Morgunblaðið - 20.05.1958, Blaðsíða 2
z
MORnVNHT.4 ÐJÐ
f>rISJuaagar 20. máí 1958
r'
!
►
Chamoun forseti Liban-
on er ósveigjanlegur
Stjómmálamenn, sem hafa
reynt að koma á málamiðlun
sögðu í kvöld að tilraunir þeirra
bæru ekki árangur. Þær stranda
Stúdentar mótmœla
álögum á námsgjaldeyrir
Mörg hundruð Sýrlendingar handteknir
við Tripoli
BEIRUT 19. maí (NTB). — Einn
maður lét lífið og 20 manns aðal-
lega konur særðust, þegar tíma-
sprengja sprakk í morgun á
grænmetismarkaði í Beirut,
höfuðborg Libanon. Lögreglan
handtók nokkru síðar allmarga
unglinga, sem voru eigi allfjarri
markaðnum.
Að öðru leyti var allt rólegt í
Libanon, jafnvel í hafnarborg-
inni Tripoli, þar sem óeirðirnar
gegn Chamoun forseta hófust
fyrir 11 dögum.
Sýrlendingar handteknir
Harðir bardagar stóðu í Tri-
poli yfir helgina milli upp-
rcisnarmanna og herliðs
stjórnarinnar. Féllu 80 manns
í þeim átökum, sem lauk með
þvi að 700 úr hópi uppreisnar-
manna gáfust upp. Þeir sem
handteknir voru reyndust
mestmegnis vera Sýrlending-
ar, sem farið höfðu yfir landa-
mærin til að taka þátt í upp-
reisninni gegn Chamoun for-
seta. Bíða nú um 1500 Sýrlend
ingar í fangabúðum við Beirut
og verða þeir inan skamms
sendir aftur til Sýrlands.
Deilan um Chamoun
Saeb Salam foringi stjórnar-
andstöðunnar í Libanon birti í
dag yfirlýsingu, þar sem hann
ítrekaði enn kröfu sína um að
Chamoun forseti færi frá völd-
um. En það var ákvörðxm Cha-
mouns forseta um að sitja að
völdum eitt kjörtímabil í viðbót,
sem hleypti uppreisninni af stað.
Segir Saeb, að allsherjarverkfall
muni standa í ótiltekinn tima,
þar til Chamoun er farinn frá.
Mjög lóg faimgjöld valda erfiið-
leikum við rekslur Hamrulelis
í FRÉTT ATILK YNNIN GU frá
Sambandi íslenzkra samvinnufé-
laga er rætt um erfiðleika við
rekstur á olíuskipinu Hamrafelli.
Eiga þeir rætur að rekja til
lágra farmgjalda, sem nú eru
komin niður fyrir rekstrarkostn-
að skipsins.
vöxtum og afborgunum af skip-
inu. Nú er olíuskipum lagt vegna
skorts á verkefnum og lágra
farmgjalda víða um heim........
Farmgjöld olíuskipa hafa aldrei
verið lægri en nú og erfiðleikar á
rekstri þeirra aldrei slíkir, sem
nú eru“.
á því að stjórnarandstaðan krefst
skilyrðislaust að Chamoun for-
seti fari frá völdum, en Chamoun
og fylgismenn hans eru ósveigj-
anlegir í þeirri ákvörðun sinni að
breyta svo stjórnarskránni að
hann geti setið áfram í embætti
næstu sex ár.
STÚDENTARÁÐ Háskóla
íslands hélt fund s.l. laugar-
dag. Þar var eftirfarandi
ályktun gerð með atkvæðum
allra stúdentaráðsmanna:
Stúdentaráð Háskóla íslands
mótmælir harðlega þeirri grein í
Nœr 100 manns scerðusf
í óeirðum í Lissabon
LISSABON, Portugal, 19. maí. — Reuter). —• Róstur urðu á götum
Lissabon í gær í sambandi við kosningafund, sem Humberto
Delgado, einn af frambjóðendum í forsetakosningum efndi til. —
En í óeirðum þessum særðust 70 borgarar og 12 lögreglumenn.
Æsinga- og hatursalda
Stjórnmálasamtökin Uniao
Nacional, sem styðja núverandi
stjórn Salazars, gáfu út yfirlýs-
ingu í dag um þessar róstur, þar
sem sagt er að Delgado frambjóð-
andi eigi enga sök á þeim. Það
hafi verið kommúnískir undir-
róðursmenn sem blésu að glóðun-
um.
Hins vegar er málgagn sam-
takanna, blaðið Diario de Manha,
á allt annarri skoðun. Blaðið
ræðst harðlega á Delgado, og
segir að hann eigi sök á æsinga-
og hatursöldu í borginni, með
hinum öfgafullu ræðum sem hann
hafi flutt.
Fundarsókn hindruð
Óeirðirnar hófust þegar lög-
reglan lokaði einu borgar-
hverfi, þar sem Delgado hélt
kosningafund sinn. Hindruðu
þeir för allra, sem ekki gátu
sýnt boðsmiða að kosningafund-
inum. Brátt safnaðist mannfjöldi
saman meðfram tálmunum lög-
reglunnar og hóf grjótkast að
lögreglumönnunum. Þegar róst-
urnar náðu hámarki kom vopnað
herlið inn í borgina og skaut af
vélbyssum upp í loftið, en skrið-
drekar óku inn á aðaltorg Lissa-
bon, Terreiro do Paco, en það
þýðir friðarstaður.
Delgado er einn af þremur
frambjóðendum í forsetakosn-
ingunum, sem fram eiga að
fara 8. júní. Það er talið ó-
líklegt að hann sigri Amerigo
Tomas fylgismann Salazars
einræðisherra. Delgado hefur
gagnrýnt einræðisstjórn Sala-
zars, og krefst þess að stjórn
hans verði rekin frá völdum
og fram fari lýðræðislegar
kosningar.
I fréttatilkynningunni er þess
getið að Hamrafell hafi síðan það
hóf siglingar flutt tæpl. 220.000
lestir af olíu til landsins frá
Rússlandi og hafi skipið reynzt í
alla staði vel.
Hamrafell hefir verið í sigling-
um í hálft annað ár. Fyrst þegar
skipið hóf siglingar voru farm-
gjöld þess 160 shillingar fyrir
tonnið en hafa farið lækkandi.
Frá áramótum hafa farmgjöldin
verið innan við 35 shillinga og í
þeirri ferð, sem skipið er nú á
heimleið úr, er farmgjaldið 22
sh. 3% pence, eða komið „niður
fyrir rekstrarkostnað" eins og
segir í tilkynningunni.
„Þessar gííurlegu sveiflur
hafa valdið miklum erfiðleikum
fyrir útgerðina“, segir í tilkynn-
ingu SÍS, .,og er það ógæfa, að
fyrsta útgerð olíuskips í íslenzkri
eigu skuli í byrjun lenda í svo
stórkostlegum sveiflum, þar sem
núverandi farmgjöld nægja eng-
an veginn fyrir kostnaði, hvað þá
Sr. ÞorvalcJi Böðv-
arssyni reistur
IV. kafla frumvarps til laga um
útflutningssj óð o.fl., sem ríkis-
stjórn íslands lagði fyrir Alþingi
hinn 13. maí 1958, þar sem lagt
er til, að 30% yfirfærslugjald
verði lagt á yfirfærslur fyrir
námskostnaði.
Vill Stúdentaráð meðal annars
benda á, að tekjuauki ríkissjóðs
af ráðstöfun þessari yrði mjög
óverulegur, en hins vegar kæmi
gjald þetta afar hart niður á
hverjum einstökum námsmanni.
Yrði ráðagerð þessi að lögum,
myndu íslenzkir námsmenn er-
lendis verða verst úti allra þjóð-
félagsþegna vegna hinna nýju
ráðstafana ríkisstjórnarinnar í
efnahagSmálum, því að hér yrði
um beina og raunverulega kjaisa-
skerðingu að ræða, þar eð náms-
kostnaður þeirra hækkaði um
30%.
Skorar Stúdentaráð því á Al-
þingi að fella ákvæði þetta niður
úr fýrrgreindu frumvarpi“.
Tónlistarfélags-
tónleikar
í þessari viku
STREN G J AKV ARTETT Björns
Ólafssonar, ásamt Agli Jónssyni
klarinettleikara, heldur tónle;ka
fyrir styrktarfélaga Tónlitsarfé-
lagsins, annað kvöld og á föstu-
dagskvöld kl. 7 í Austurbæjar-
biói.
í kvartettinum eru auk Björns
Ólafssonar þeir Jón 'Sen, Jósef
Felzmann og Einar Vigfússon.
Á efnisskránni eru 2 kvaitett-
ar eftir Beethoven, op. 18, nr 2
og op. 59, nr. 1. Auk þess verður
leikinn klarinettkvintett eftir
Mozart
Kvartett Björns Ólafssonar hef
ur starfað í mörg ár og komið
oft opinberlega fram við ýmis
tækifæri, en leikur nú í fyrsta
sinn fyrir styrktarfélaga Tónlist-
afélagsins. Egill Jónsson er mörg
um kunnur fyrir klarinettleik
sinn. Hann er fyrsti klarnettleik-
ari í Sinfóníuhljómsveit íslands.
Hallbjörg Bjarnadóftir
skemmtir á Akureyri
AKUREYRI, 19. mai. — KA-
kabarettinn, sem á undanförnum
árum hefir gengizt fyrir fjáröfi-
un með skemmtanahaldi til
styrktar Knattspyrnufél. Akur-
eyrar og stafsemi þess, mun í
þessari viku efna til tveggja
kvöldskemmtana. -— Hallbjörg
Bjarnadóttir söngkona mun koma
fram á þessum skemmtunum.
Verða þær á miðvikudags- og
fimmtudagskvöld. Allur ágóði
af þessum skemmtunum rennur
til slysatryggingasjóðs KA.
—vig.
Farfuglaferðir um byggðir og óbyggðir
minnisvarði
NOKKRIR niðjar Þorvalds Böðv-
arssonar prests og sálmaskálds,
hafa reist honum minnisvarða að
Holti undir Eyjafjöllum, í til-
efni þess, að þann 21. maí eru 200
ár liðin frá fæðingu hans. Sið-
degis á miðvikudag verður minn-
ingarathöfn um Séra Þorvald
austur í Holti, og verður farið
þangað frá Ferðaskrifstofu ríkis-
ins kl. 1.30 á miðvikudag og
komið aftur að kvöldi.
Séra Þorvaldur Böðvarsson var
prestur á Breiðabólsstað í Fljóts-
hlíð 1783—88, forstöðumaður eða
skólastjóri barnaskólans að
Hausastöðum 1792—1804, prestur
á Reynivöllum 1804—1810, að
Holti í Önundarfirði 1810—21, að
Melum 1821—26 og að Holti undir
Eyj afjöllum 1827—36. Af honum
er mikil ætt komin því að hann
átti 15 börn, sem ættir eru af
komnar, en alls 21 barn.
FARFUGLAR efna til fjölmargra
ferða í sumar, lengri og skemmri.
Farið verður víða um landið í
lengri ferðunum, en hinar styttri
eru um byggðir og óbyggðir hér
sunnanlands og vestan.
Nokkrar ferðir Farfugla eru
sameiginlegar með Æskulýðsráði
Reykjavíkur, eins og til dæmis
ljósmyndatökuferð í Valaból,
ferð í Botnsdal, ferð til Þing-
valla, blómakynningarferð, berja
ferð og gönguferð á Esju.
Af styttri ferðum Farfugla,
sem farnar eru um helgar eða á
frídögum skal minnzt á skógrækt
arferð í Heiðmörk um hvítasunn-
una, Jónsmessuferð út í bláinn,
ferð í Þjórsárdal, gönguferð á
Skjaldbreið, gönguferð á Mó-
skarðshnúk og að Tröllafossi,
ferð á Kerlingarfjöll og inn á
Kjöl, ferð undir Eyjafjöll,
gönguferð á Krísuvíkurbjarg,
ferð í Gullborgarhraun og Hítar-
dalsferð.
Sumarleyfisferðirhar eru fimm,
vikudvöl í Þórsmörk, hjólreiða-
ferð um Borgarfjörð, vikudvöl I
Kerlingarfjöllum, farið í Kerl-
j ingarfjöll og á Kjöl og síðan
i gengið norðan Langjökuls niðui
ao Húsafelli og loks er Vestui
landsíerð. Ráðgert er að aka um
Dali og Barðaströnd vestur á
Patreksfjörð. Þaðan verður hald-
ið vestur á Látrabjarg, en síðan
norður Vestfirðina til ísafjarðar.
Áherzla er lögð á að fara hægt
yfir svo þátttakendum gefizt
kostur á að sjá sig sem bezt um
á leiðinni.
Skógræktin í Þórsmörk
Farfuglar hafa undanfarin ár
farið í skógræktarför í Þórsmörk
um hverja hvítasunnuhelgi. Hafa
þeir nú gróðursett yfir lOþús. trjá
plöntur í Sleppugili, auk þess
sem birkiskógurinn hefir verið
grisjaður, grasfræi sáð í upp-
blástursflög og borinn í þau
áburður.
Plönturnar hafa dafnað vel og
má víða sjá 10—12 cm. ársprota
á þeim plöntum, sem gróðursett-
ar voru fyrstu árin. Þátttaka
hefur alltaf verið góð í skógrækt-
arferðunum, í fyrra tóku t.d. 57
þátt í ferðinni. Áskriftarlisti
fyrir skógræktarferðina liggur
frammi á skrifstofunni að Lind-
argötu 50 á þriðjudagskvöld kl.
8,30—10 og farseðlar sækist á
mikvikudagskvöld. Upplýsingar
verða veittar í síma 15937 á sama
tíma. Skrifstofa Farfugla verður
annars opin kl. 8,30—10 e.h. á
miðvikudags- og föstudagskvöld-
um í sumar.
Birtingur kominn út
BIRTINGUR, 1. hefti 1958 er kom
inn út. Efni í ritinu er: Samtal
við Hannes Sigfússon eftir Einar
Braga, fjögur þýdd ljóð eftir
García Lorca (Jóhann Hjálmars-
son), samtal við Karl Kvaran
(Bj. Th. Björnsson), Thor Vil-
hjálmsson skrifar syrpu, þá er
þýðing úr „Doktor Zivago" (Þor-
geir Þorgeirsson), tvö þýdd ljóð
(Rögnvaldur Finnbogason) og
Magnús Torfi Ólafsson skrifar rit
dóma. — Heftið er 40 bls. Eiríkur
Smith gerði kápuna.
STYKKISHÓLMI, 19. maí: —
Togarinn Þorsteinn þorskabítur
kom til Stykkishólms af veiðum
sl. laugadag, og var hann með
fullfermi. Mældist aflinn 315
tonn. Veiðiförin hafði staðið 10
sólarhringa. Aflinn var eins og að
undanförnu settur í fiskvinnslu-
stöðvarnar í bænum. —Árni,
e
J