Morgunblaðið - 20.05.1958, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ
NA stinningskaldi, hiti 2-5 stig.
Neyðarásfand
Sjá grein á bls. 11.
Dregur til tíðinda innan
stjórnarinnar?
Umræður um „bjargráðin" dragast
á langinn
Eldhúsumrœðum frestað fram yfir helgi
MIKLAR sögur gengu um
það manna á milli í Reykja-
vík í gær, að alvarlegur
ágreiningur væri kominn upp
í ríkisstjórninni og mætti bú-
ast við, að til stórtíðinda
drægi á hverri stundu. Ekkert
liggur þó fyrir opinberlega
um mál þetta. Hins vegar
vakti það athygli, að „bjarg-
ráðafrumvarp“ ríkisstjórnar-
innar var ekki á dagskrá neðri
deildar Alþingis í gær. Frum-
SUNNUDAGINN 18. þ.m. hófst
hinn almenni hafrannsóknarleið-
angur á vegum Fiskideildar At-
vinnudeildar Háskólans, en slíkir
leiðangrar hafa verið farnir und-
anfarin ár í samvinnu við Dani
og Norðmenh. Rannsóknirnar
fara fram á varðskipinu Ægi, og
stendur leiðangurinn til 24. júní.
Fyrst verður farið suður fyrir
land, og síðan vestur með landi
og allt norður undir ísrönd. Haf-
svæðið norðan lands verður rann
sakað bæði djúpt og grunnt, og
sömuleiðis verður útbreiðsla Aust
ur-fslandsstraumsins könnuð. Á-
ætlað er, að þessum yfirlitsrann-
sóknum ljúki undan Austfjörðum
um 13. júní, og verður þá á ný
farið yfir veiðisvæðið norðan
lands. Leiðangrinum lýkur á
Seyðisfirði 24. júní, en þá hefst
fundur fiskifræðinga frá þeim að
ildarríkjum Alþjóða hafrann-
sóknaráðsins, sem stunda síldar-
rannsóknir á Norður-Atlantshafi,
en það eru íslendingar, Danir,
Norðmenn og Rússar. Að þessu
sinni munu þó Danir ekki taka
þátt í þessum sameiginlegu rann-
sóknum, en væntanlega mun
færeyskur fiskifræðingur taka
þátt 'í fundinum.
Leiðangursstjóri íslenzka leið-
angurssins er Ingvar Hallgríms-
son, magister, og sér hann jafn-
framt um áturannsóknir. Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur, sér um
athuganir á síldardreifingu, og
Þórunn Þórðardóttir, magister,
sér um rannsóknir á plöntugróðri
sjávar og framleiðslugetu hans
af lífrænum efnum. Auk þess
munu þeir dr. Hermann Einars-
son og Unnsteinn Stefánsson, sjó
fræðingur Fiskideildar, taka þátt
í hluta leiðangursins og fundin-
UM tíuleytið í gærkvöldi kom
upp eldur í íbúðarhúsinu Lauga-
vegi 53 B, en það er gamalt
timburhús, tvær hæðir og kjall-
ari. Kviknaði í kjallaranum og
urðu þar töluverðar skemmdir.
Eldur komst einnig í eldhús á
neðri hæðinni, en varð fljótlega
slökktur. Nokkrar skemmdir
urðu þó á hæðinni af vatni og
reykur fór um allt húsið. — í
kjallaranum bjó roskinn maður,
Þorbergur Skúlason að nafni.
Mun eldurinn hafa komið upp í
varpið hefur ekki heldur ver-
ið sett á dagskrá í dag, en þó
Iiggur fyrir álit frá tveimur
minnihlutum fjárhagsnefnd-
ar: fulltrúum Framsóknar-
flokksins og Alþýðuflokksins.
sem vilja samþykkja frum-
varpið með smábreytingum,
og fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins, sem eru andvígir
frumvarpinu. Einar Olgeirs-
son mun og skila sérstöku
áliti, en hann er andvígur
um á Seyðisfirði. Ennfremur
verða með í leiðangrinum 4 að-
stoðarmenn frá Fiskideild. Skip-
stjóri á Ægi er Þórarinn Björns-
son.
Frá Alþingi
DEILDAFUNDIR verða kl. 1,30.
Þessi frumv. eru á dagskrá: í
efri deild: Skólakostnaður. í
neðri deild: Tekjuskattur og
eignaskattur. Sala áfengis til
flugfarþega. Sveitastjórnarkosn-
ingar. Aðstoð við vangefið fólk.
Stofnun nýrra hreppa. Sjúkra-
húsalög.
Á AÐALFUNDI Hins íslenzka
prentarafélags, er haldinn var á
sunnudag, var rætt um samT-ings
uppsögn félagsins miðað við 1.
júní næstkomandi og þær kröfur
er settar skulu fram við prent-
smiðjueigendur. Einnig var þar
samþykkt ályktun varðandi efna
hagstillögur ríkistjórnarinnar,
„bjargráðin" svonefndu.
Á fundi þessum munu um 80
félagsmenn hafa venð mætíir.
í'yrst var gerð grein fyrir úrslit-
um stjórnarkjörs í félag-
mu en Magnús Ástmarsson tor-
maður og aðrir sljornarmenn
voru endurkjörnir.
Þessu næst var rætt um kröf-
ur félagsins í sambandi við nýja
kjarasamninga, en félagið hefur
sagt upp samningum sínum frá
íbúðinni hjá honum er hann var
að kveikja upp í olíueldavél, og
læstu logarnir sig í föt hans.
Hljóp hann út í logandi föt-
unum og var fljótlega flutt-
ur á slysavarðstofuna. Þaðan
var hann fluttur á Landa-
kotsspitala. Reyndist hann all-
mikið brenndur á höndum og
í andliti, en þó var líðan
hans sæmileg í gærkvöldi. Kona
að nafni Ólafía Einarsdóttir hjó
einnig í kjallaranum, en hjá
henni urðu minni skemmdir.
frumvarpínu sem kunnugt er.
Útvarpsumræður, „eldhúsið“
svonefnda, áttu að fara fram
í kvöld og annað kvöld, en
þeim hefur verið frestað. Var
þeim fyrst frestað einn sólar-
hring, en nú mun ákveðið, að
umræðurnar verði ekki í þess-
ari viku. Dragast þær því
fram yfir hvítasunnu.
Iðja mótmælir
FUNDUR stjónar og trúnaðar-
mannaráðs Iðju, félags verk-
smiðjufólks í Reykjavík, haldinn
19. maí 1958, mótmælir harðlega
fram komnu efnahagsmálafrum-
varpi hæstvirtrar ríkisstjórnar.
Telur fundurinn frumvarpið fela
í sér það mikla kjaraskerðingu,
að ekki verði við unað, og vísar
í því sambandi til samþykkta
síðasta þings A.S.Í. Ennfremur
átelur fundurinn vinnubrögð
ríkisstjórnarinnar við samningu
og undirbúning frumvarpsins, og
telur hana hafa brugðizt því
trausti, er verkalýðssamtökin
hafa sýnt henni.
Eldur í vélbáti
AKRANESI, 19. maí. — Á sunnu
daginn var mb. Ásmundur búinn
að keyra lVz tíma á miðin, er
eldur blossaði upp úr reykháfn-
um. Hafði kviknað í sótinu. Var
snúið aftur til Akraness og var
brunabíll á bryggjunm, er bát-
urinn lagði að. Stýrishúsið hafðt
sviðnað og eldur komizt í ein-
angrun, en bátsverjar höfðu
slökkt hann, áður en komið var
að landi. —Oddur.
1. júní. Var samþykkt að gera
kröfur um 10 prósent launahækk
un, þ.e.a.s. 5 prósent að viðbættri
b j argráðaf rumvarpshækkun-
inni. Þá var samþykkt að leita
eftir því, að samningar þeir, sem
nú verða gerðir, skuli ekki gilda
lengur en til 1. desember, vegna
þeirrar óvissu, sem ríkir í kjara
málum verkalýðsstéttarinnar.
Þá var rætt um efnahagstillög-
ur ríkisstjórnarinnanr, sem nú
liggja fyrir Alþingi og samþykkt
að skora á Alþingi að fella þær.
Hið ísl. prentarafélag er hið
fyrsta, sem gerir grein fyrir kröf
um sínum varðandi nýja kaup
og kjarasamninga.
„Stórkostleg
kjaraskerðing64
PRENTMYNDASMIÐIR gerðu í
gær eftirfarandi samþykkt.
„Fundur í trúnaðarráði Prent-
myndasmiðafélags íslands hald-
inn 19. maí mótmælir harðlega
efnahagsmálafrumvarpi því, er
ríkisstjórnin hefir lagt fyrir Al-
þingi. Telur fundurinn frumvarp-
ið fela í sér stórkostlega kjara-
skerðingu og algerlega fara í
bága við yfirlýsingu síðasta Al-
þýðusambandsþings. Sérstaklega
mótmælir fundurinn ákvörðun
frumvarpsins um útreikning vísi
tölunnar á kaup og telur það lág-
markskröfu að vísitalan verði
reiknuð á sama hátt og verið hef-
ir.“
H afrannsóknarleiðangur
hér við land
Roskinn maður slasaðistí
eldsvoða í gœrkvöldi
Prentarar víta bjargráðin
Gera kröfu um 10% launahækkun
Harkalegur árekstur varð á horni Vesturgötu og Ægisgötu
nokkru eftir hádegi á sunnudag milli strætisvagns og varnar-
liðsbíls. Strætisvagninn var á Vesturgötunni, sem er aðalbraut.
Báðir bílarnir skemmdust mikið, en alvarleg meiðsli urðu ekki
á mönnum. Hér á myndinni sést hvernig strætisvagninn var
útleikinn.
Fjölmenn jarðarlör
Hanks Snorrasonar
rltstjóra í gær
JARÐARFÖR Hauks Snorrasonar ritstjóra fór fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík í gær. Var hún mjög fjölmenn. Menn úr Karla-
kórnum Fóstbræðrum sungu, dr. Páll Isólfsson lék á orgel og Þor-
valdur Steingrímsson einleik á fiðiu. Séra Sveinn Víkingur flutti
líkræðuna. —
Sungnir voru sálmarnir: Hvað
bindur vorn hug við heimsins
glaum, Þú Kristur ástvin alls sem
lifir, Ver hjá mér herra, dagur
óðum dvín og Allt eins og
blómstrið eina.
Úr kirkju báru ráðherrar og
miðstjórnarmenn Framsóknar-
flokksins, ásamt samstarfsmönn-
um hins látna í ritstjórn Tímans.
I kirkjugarði báru stjórn og
Áíormað aS sfofna Hrossa
rækfarsamband
AKUREYRI, 19. maí. — Síðastl.
fimmtudag komu saman í Varma
hlíð allmargir áhugamenn um
hestamennsku og hrossarækt, í
þeim tilgangi að undirbúa stofn-
un Hrossaræktarsambands Norð-
urlands. Voru mættir fulltrúar úr
Skagafirði, Austur-Húnavatns-
sýslu og Eyjafirði. Miklar og fjör
ugar umræður urðu á fundinum
og var samþykkt tillaga þess
efnis, að stofnað skyldi Hrossa-
ræktarsamband Norðurlands og
öllum félögum hestamanna í
Norðlendingafjórðungi boðin þátt
taka. Ákveðið var að efna cil
stofnfundar í næsta mánuði.Ráðu
nautum Búnaðarsambands Skag
firðinga þeim Agli Bjarnasyni og
Haraldi Árnasyni var falið að
boða til þessa stofnfundar. vig.
félagar í Blaðamannafélagi Is-
lands og síðasta spölinn að gröf-
inni bræður og nánustu vinir.
Jarðarförinni var útvarpað.
Verður leyfið veitt
- eða ekki?
í HÚSUNUM Skipholti 19 og
Brautarholti 20, en skammt er
milli þessara húsa, hefur verið
unnið að því að breyta verzlunar-
og iðnaðarplássi í þeim tilgangi
að þar verði dans- og skemmti-
staðir.
Enn sem komið er hafa bæjar-
yfirvöldin ekki veitt leyfi til
þessarar starfsemi í fyrrnefnd-
um húsum ög mun það m.a. stafa
af því, að eigendur höfðu látið
undir höfuð leggjast að sækja
formlega um leyfi til bæjaryfir-
valdanna til þess að breyta hús-
um þessum í skemmtistaði.
íbúar í næsta nágrenni hafa
sent bæjaryfirvöldunum mót-
mæli gegn því að leyfi verði
veitt fyrir skemmtistöðum þess-
um. Enn sem komið er hafa bæj-
aryfirvöldin ekki tekið endanlega
ákvörðun í málinu, en nú liggur
fyrir bæjarráði álitsgjörð borgar-
ritara og skrifstofustjóra borgar-
stjóra um málið.
Orðsending til Sjálfstæðismanna
NÚ er liðrnn helmingur þess
tíma, sem ætlaður er til sölu á
happdrættismiðum Sjálfstæðis-
flokksins svo nú ríður á að nota
vel þann tíma, sem eftir er, ef
takast á að selja alla miðana fyrir
10. júní.
Miðarnir fást hjá umboðsmönn
um flokksins um allt land og í
Reykjavík í skrifstofunni í Sjálf-
stæðishúsinu. Opið kl. 9—12 og
13—18 alla virka daga.
Allir stuðningsmenn flokksins,
sem fengið hafa miða senda eru
minntir á að gera skil sem fyrst.
Þeim, sem ekki eiga heimangengt
er bent á að hafa samband við
skrifstofuna, sími 1-71-04 og
verður þá sent til þeirra.
Happdrættisnefndin.