Morgunblaðið - 20.05.1958, Blaðsíða 18
18
M OK CT’1\ m. 4 ÐIÐ
■Þriðjudagur 20. maí 1958
Fram tryggöi sig til úrslitaleiksins
við KR. — vann Val 2:1
SJÖTTI LEIKUR Reykjavíkur-
mótsins fór fram sl. sunnudag og
mættust tvö hinna sterkari fé-
laga Fram og Valur. Leikurinn
var harður og á köflum skemmti-
legur og meðal hinna beztu í vor.
Athygli vakti hvað liðin hafa
verið „yngd upp“ — nýir leik-
menn einkum hjá Fram.
Fram náði sterkum tökum á
leiknum í byrjun og hélt þeim
út fyrri hálfleik, þó leikurinn
jafnaðist nokkuð er á leið. Hvað
eftir annað komust Fram-menn
í góð færi við Valsmarkið en
kunnu ekki að nýta tækifærin.
Tvívegis komust Valsmenn í opin
færi en fóru illa með. Samleik-
ur Fram var mun betri
Valsmanna, og þó tókst Fram
ekki að tengja saman framlínu
sína. Voru útherjarnir sjaldan
eða illa með er miðjutríóið vann
og öfugt. Innherjarnir Guðmund
ur og Grétar voru virkustu og
beztu menn framlínunnar. Voru
þeir í þessum leik beztir Fram-
manna og reyndar Guðjón fram-
vörður og Rúnar bakvörður.
Fram mátti heita ráða mestu
um leikinn í fyrri hálfleik. Und-
ir lok hálfleiksins tókst þeim að
skora tvö mörk með 8 mín. milli-
bili. Hið fyrra skoraði Grétar
Sigurðsson með skalla yfir Björg-
vin sem var á báðum áttum hvort
hann ætti að vera í markinu eða
hlaupa á móti og var því auðvelt
að skora. Hið síðara skoraði
Björgvin miðherji eftir góða að-
stoð Guðjóns framvarðar og Grét
ars. Héldu Valsmenn að um rang
stöðu væri að ræða og veittu ekki
mótspyrnu. Var því leiðin í mark
ið greið. Var það dýrkeypt fyrir
vörn Vals að hætta áður en flaut
að er og raunar óafsakanlegt.
Eins og Fram réði leiknum í
fyrri hálfleik réð Valur honum
langt fram eftir siðari hálfleik.
Fengu þeir mörg og góð tækifæri
en fóru herfilega með ýmist
vegna óheppni eða klaufaskapar.
Er um þriðjungur var af hálf-
leiknum skoruðu þeir sitt eina
mark í leiknum. Skoraði Gunnar
Gunnarsson útherji með fremur
lausu skoti í horn við jörð. Mörk
en in urðu ekki fleiri þrátt fyrir
tækifæri á báða bóga.
Stoðir Fram í þessum leik voru
innherjarnir Guðm. Axelsson og
Grétar Sigurðsson. Góðan leik og
góða uppbyggingu sýndi og Guð-
jón Jónsson framvörður. Athygl-
isverður var leikur Rúnars Guð-
mannssonar í bakvarðastöðu. Þar
er hann nýliði ep lofar góðu.
Valsliðið var í þessum leik (síð
ari hálfleik einkum) betra en
Þessi mynd er tekin að Hálogaiandi sl. föstudagskvöld er
Reykjavíkurúrval mætti dönsku meisturunum frá Helsingör.
Danir unnu með 25:19. Á myndinni sem Rafn Hafnfjörð tók,
sést er Gunnlaugur er kominn í gegnum alla vörn, leggur sig
niður undir gólf áður en skotið „ríður af“ og þó Morthensen,
hinn snjall' markvörður (nr. 1) gerði sitt ýtrasta fékk hann
ekki varið. —
Hvor sigrar
Valur eða
Víkingur?
EINS og skýrt var frá í sunnu-
dagsblaðinu efnir Víkingur til
tveggja knattspyrnuleika á annan
í hvítasunnu í tilefni af 50 ára
afmæli félagsins. Aðalleikurinn
verður á milli „unglinga-lands-
liðs“ og íslandsmeistaranna frá
Akranesi. Á- undan honum fer
fram leikur milli Vals og Víkings
þ. e. a. s. liða félaganna eins og
þau voru skipuð 1940 er Víking-
ur og Valur deildu meistaratitl-
unum. Urðu Víkingar þá Reykja-
víkurmeistarar en Valsmenn Is-
landsmeistarar.
Það er mál margra að knatt-
spyrna hérlendis hafi aldrei verið
betrí eða náð hærra en fyrir og
um 1940. Liðin sem þá börðust
um meistaratitlana voru og eru
af mörgum álitin hafa sýnt fram-
úrskarandi leik og kunnáttu. Þó
allir þeir er þá kepptu í áður-
nefndum liðum séu löngu hættir
æfingum, mun þó sannast að
lengi lifir í glæðunum. Það munu
menn sannfærast um á mánu-
margir sem enn í dag taka virkan
þátt í knattspyrnumálunum t.d.
form. landsliðsnefndar Gunnlaug
ur Lárusson, Haukur Óskarsson
dómari, Frímann Helgason knatt-
spyrnugagnrýnandi og þjálfari, hrenntu er Þórólfur Beck
Sigurður Ólafsson landsliðsnefnd f.. g ... . .
móti KR. Þeim tókst oft með
hraða að rugla Framvörnina og
skapa opin tækifæri en nýttu þau
ekki. Virkastir voru Elías og Æg-
ir. Duglegastur var Gunnl. hand-
knattleiksmaður sem gerði usla
í Framvörninni þótt eigi bæri ár-
angur. Hann notaði sér réttilega
aðferðina að trufla markvörð og
fór í alla staði löglega að. En
Geir markverði Fram gerði hann
erfitt fyrir og gerði Geir ýmsar
skyssur í viðureigninni við
Gunnlaug. íslenzkir markmenn
verða að læra að þeir eru leik-
menn eins og aðrir, sem verða að
berjast fyrir því sem þeir ætla að
gera, en geta ekki náð takmarki
sinu óáreittir. Þetta er ekki vanda
minna en sjálft höfuðtakmarkið
— að verja vel.
Haukur Óskarssan dæmdi vel
að vanda.
KR vann Val 1:0
DREGIZT hefur vegna rúmleysis
í blaðinu að skýra nánar frá leik
KR og Vals í sl. viku, að öðru
leyti en því, að KR vann með 1
marki gegn engu.
Leikurinn var allfjörlegur og
á köflum allvel leikinn. KR-ingar
sóttu mun fastar á og skipulegar
og áttu allgóð tækifæri til marka.
Það kom í ljós sem hér á síðunni
hafði verið spáð, að hin nýja
framlína KR, skipuð að mestu nýj
um, ungum en bráðefnilegum
leikmönnum lét mikið að sér
kveða í leiknum og náði oft með
aðstoð framvarðanna fallegum
leik, allvel uppbyggðum og ná-
lægt því að gefa fyllsta árangur.
En oftar — og því miður allt of
oft — vantaði öryggi er að mark-
inu dró. Einkennir þetta reyndar
flesta sóknarleikmenn okkar í
dag. En það sem KR sýndi gegn
Víking og hér var talið mundu
reynast hornsteinn nýs blóma-
skeiðs stóð enn, þótt við Val eitt
þriggja beztu félaga í Reykjavík
væri að etja. Nýliðarnir einkum
Þórólfur Beck og Garðar fram-
vörður skiluðu sínu sízt ver en
á móti Víking. Vörn KR reynd-
ist einnig allsterk, en á hana
hefur lítt reynt fyrr. Bezti mað-
ur hennar er Hörður Felixson.
Leikur KR liðsins í þessum leik
styrkir vonirnar um að einhver
meira en maður hefur átt að
venjast megi vænta í reykvískri
knattspyrnu í sumar. Ungu pilt-
arnir léku oft leikandi létt og
hratt á köflum. En það skortir
enn kunnáttuna og öryggið er að
markinu kemur.
Valsliðið náði illa saman og
réði á köflum alls ekki við stutt-
an og hraðan samleik KR-ing-
anna. Hvort það var vegna þess
að leikmenn væru eitthvað mið-
ur sin þennan dag eða hvort þeir
réðu ekki við leik KR-inganna
verður ekki fullyrt, en KR verð-
skuldaði sigur í þessum leik, sem
armaður svo einhverjir séu
nefndir.
Þó mikið skilji meistaraflokk
Vals og Víkings að í dag, þá mun
keppni gömlu flokkanna áreiðan-
lega verða jöfn. Og nú er spurn-
ingin. Hvernig fer þessi nýstár- I
legi leikur. Verða það íslands- |
meistararnir frá 1940 sem vinna
Reykjavikurmeistarana?
Iþróttasíða Mbl. mun lesendum |
til skemmtunar lofa þeim að
spreyta sig á að gizka um úrslit
leiksins. Sá sem rétt getur til um
úrslitin (og dregið verður ef
margir hafa rétt) hlýtur að laun-
um 2 stúkumiða að landsleik Is-
lands og írlands sem fram fer í
ágúst. Menn eru beðnir að senda
Íþróttasíðunni tilgátur sínar og
miðar verða að hafa borizt fyr-
tókst að skora eftir laglegt upp-
hlaup snemma í síðari hálfleik.
KR vann Þróft 1:0
í GÆRKVÖLDI léku KR og
Þróttur i Reykjavíkurmótinu. —
Úrslit urðu að KR sigraði 1:0 í
daufum og tilþrifalitlum leik.
daginn. Meðal leikmanna eru ir föstudagskvöld
Sundmeistaramótið
j Akureyri
SUNDMEISTARAMÓT íslands
1958 fer fram á Akureyri 7. og
8. júní næstkomandi. Þátttökutil-
kynningar sendist til ísaks J.
Guðmanns, pósthólf nr. 34, Ak-
ureyri, eigi síðar en 25. maí.
Fyrsfa frjálsíþróttamótiö
„Jóelsmót" ÍR. er í kvöld
í KVÖLD kl. 8.15 hefst fyrsta
frjálsíþróttamót sumarsins. —
Það er mót ÍR og nefnir félag-
ið það „Jóelsmótið" í heiðurs
og þakklætisskyni við hinn
kunna frjálsíþróttamann Jóel
Sigurðsson sem nú hefur óslit-
ið keppt fyrir félagið í 20 ár.
Keppnisgreinarnar eru 100 m,
300 m, 3000 m hlaup, 110 m grinda
hlaup, 4x100 m boðhlaup, 80 m
og 600 m hlaup drengja, kúlu-
varp, spjótkast, langstökk, stang-
arstökk og kringlukast.
Þátttakendur eru um 40 talsins
frá 6 félögum, ÍR, KR, Ármanni,
Ungm.sambandi A-Húnvetninga,
UMF Selfoss og IBK. Meðal
þeirra eru Vilhjálmur Einarsson
í langstökki', Hilmar Þorbjörns-
son í 100 m hlaupi, Valbjörn Þor-
láksson og Heiðar Georgsson í
stangarstökki, Kristján Jóhanns-
son og Sig. Guðnason í 3000 m
hlaupi, Pétur Rögnvaldsson og
Björgvin Hólm í grindahlaupi,
Huseby í kúluvarpi, Jóel Sigurðs-
son og Valbjörn í spjótkasti, Þor-
steinn Löve og Friðrik Guðmunds
son í kringlukasti.
Má búast við mikilli keppni í
ýmsum greinum og þar sem frjáls
íþróttamenn hafa hæft vel í vet-
Boðsmiðar af afmælisleik Víkings
26. maí, verða afhentir á
íþróttavellinum frá 20. maí.
ur og vor og framundan eru stór-
verkefni s.s. landskeppni við
Dani og Evrópumeistaramót má
vænta góðra afreka verði veður
hagstætt.
---------------------« Piltur og stúlka
Asmundur Sveinsson 65 ára í dag
E I N N af öndvegislistamönnum
íslands, Ásmundur Sveinsson, á
í dag sextíu og fimm ára afmæli.
Ásmund þarf ekki að kynna fyr-
ir íslenzku þjóðinni. Verk hans
eru flestum kunn hér, bæði af
bókum sem gefnar hafa verið út
með myndum af þeim, og af að
horfa á þau umhverfis hús hans
og víðar. Smám saman munu hin
miklu listaverk hans prýða bæ-
inn víðar en nú og raunar ýms-
ar borgir utan íslands.
Á síðastliðnu ári var eirsteypu
af mynd hans „Móðir jörð“, kom-
ið fyrir í listagarði í Svíþjóð og
vonir standa til að önnur af-
steypa komi til íslands er úr ræt-
ist með gjaldeyri.
Á sýningu þeirri er undanfar-
ið hefir staðið yfir í Listamanna-
skálanum, var nýtt stórverk eft-
ir Asmund, er nanu nefnir „Reli-
gion“, mikllúðlegt listaverk og
frumlegt, gert úr eik og stáli og
fleiri málmura, Ásmundur er sí-
vinnandi og kemur alltaf jafnó-
vart að aðdáendum sínum sakir
sinnar ríku hugkvæmni og ný-
stárlegu túlkunar á viðfangsefn-
um sínum.
öll þjóðin hyllir í dag hinn
mikla meistara og þakkar honura
fyrir að hafa borið hróður ís-
lands út um lönd, þakkar hon-
um fyrir hið göfuga fordæmi er
hann hefir veitt ísleitzkum lista-
mönnum og raunar allri þjóðinnl
með ofurmannlegum fórnum og
elju ,og í dag þakkar hún honum
þó fyrst og fremst fyrir það að
hafa ekki gefizt upp, þó hún hafi
stundum verið sein að átta sig á
verkum hans og heiðarleika.