Morgunblaðið - 20.05.1958, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 20. maí 1958
MORCVISBLAÐIÐ
13
Olafur Arni
Minningarorð
í DAG er til moldar borinn Ólaf-
ur Árni Bjarnason verzlunar-
maður, Sólheimum 45 hér í bæ.
Ólafur fæddist 27. nóv. 1917
í Ólafsvík, og voru foreldrar hans
hjónin Margrét Gísladóttir og
Bjarni Ólafsson, sjómaður.
Ungur að árúm fluttist Ólafur
til Reykjavíkur með foreldrum
sínum, og lagði fyrstu árin stund
á margs konar störf. Síðar fékkst
hann við bifreiðaakstur og um-
sjón við bifreiðastöðina „Bifröst",
ásamt föður sínum og bróður, um
margra ára skeið. Eftir það
fékkst hann við akstur á annarri
bifreiðastöð um hríð eða þar til
hann réðst til Timburverzlunar
Árna Jónssonar h.f., og starfaði
þar óslitið allt til dauðadags.
Sá, sem þetta ritar, var svo
lánsamur að kynnast Ólafi, ung-
um að árum, og tókst þá þegar
sú vinátta á milli, sem stóð alla
tíð síðan, án þess að nokkur
skuggi félli þar á. Enda var það
í sjálfu sér í samræmi við mann-
inn sjálfan, sem var fyrst og
fremst trygglyndur, velviljaður
og hreinskilinn.
Þegar mér barst andlátsfregn
hans, setti mig hljóðan, því að
þarna átti ég á bak að sjá góð-
um vini, skemmtilegum og gáfuð-
um félaga, sem alltaf vildi hvers
manns vandræði leysa, væri það
á hans valdi. Það'munu því vera
fleiri en nánustu vandamenn,
kona og þrjú börn, sem sakna
þar vinar í stað. — Aldraður fað-
ir, systkini og aðrir nákomnir,
að ógleymdum samstarfsmönnum
hans bæði fyrr og síðar. Það mun
líklega leitun í dag að öðrum
eins manni, sem búið hefur við
svipuð kjör, og Ólafur var — svo
vinsæll var hann og viðmótsþýð-
ur, þrátt fyrir mikla skapfestu,
ef því var að skipta. Fæstum
tekst að sameina það tvennt, að
vera vinsæll og viðmótsþýður en
halda samt sínum hlut, en það
má hiklaust með sanni segja um
Ólaf.
Þeir, sem hafa átt því láni að
fagna að eignast góðan vin, skilja
áreiðanlega hversu mikils er
misst, þegar slíkur vinur hnígur
skyndilega í valinn á bezta
aldri. En enginn má sköpum
renna, og við, sem eftir lifum,
getum að minnsta kosti huggað
okkur og yljað við minninguna
um góðan dreng. En sárastur
hlýtur þó söknuðurinn að vera
hjá eftirlifandi konu hans og
börnum, sem alla tíð sátu í fyrir-
rúmi í huga hans, framar öllu
öðru.
Ólafur var svo heppinn að ráð-
ast til góðs fyrirtækis, sem sjálft
var svo heppið að koma auga á
starfskrafta hans og meta þá að
verðleikum. Enda hafði Ólafur
stundum orð á því, hve vel hefði
tekizt til með atvinnuna og hve
vel og drengilega hefði verið gert
til hans sem starfsmanns af hálfu
fyrirtækisins. En sjálfur er und-
irritaður ekki í neinum vafa um
það, að með Ólafi fékk fyrirtæk-
ið líka prúðan, samvizkusaman,
duglegan og einarðan mann, sem
vann sín verk af mikilli skyldu-
rækni.
Sjaldan var efnt svo til mann-
fagnaðar meðal vina og kunn-
Bjarnason
ingja Ólafs heitins, að ekki þætti
skarð í hópinn, ef hann var ekki
viðstaddur. Ástæður til þess voru
margar. Menn geta verið mörgum
kostum búnir, þótt ekki þyki þeir
eftirsóknarverðir á mannfund-
um — en um Ólaf var öðru máli
að gegna. Enda þótt hann nyti
lítillar skólagöngu, var hann vel
lesinn og hafði í sér einhverja
meðfædda menntaþrá. Hann var
sílesandi, eftir því sem tök voru
á, og duldist engum, sem skipti
við hann orðum, að þar fór mað-
ur, sem vildi og reyndi að skilja
sem bezt það, sem verið var að j
ræða og efst var á baugi hverju j
sinni. Hann var í eðli sínu mann- |
vinur, sem vildi bera réttlætinu I
vitni.
Ólafur v@r kvæntur Ernu
Erlendsdóttur, dóttur Erlends
Pálmasonar skipstjóra og konu
hans, Hrefnu Ólafsdóttur. Þeim
Ólafi og Ernu varð þriggja barna
auðið.
Um leið og ég kveð minn ágæta
vin, Ólaf Bjarnason, vil ég votta
konu hans og börnum, föður,
systkinum og öðrum ástvinum,
dýpstu samúð mína — og bið
guð að blessa þau.
Valur Þorgeirsson.
Gunnvör Pnlsdóttir — minning
,í DAG kl. 3,30 e. h. verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju, Gunn-
vör Pálsdóttir, sem andaðist á
Elliheimilinu Grund þann 14.
þ.m., 87 ára að aldri.
Gunnvör fæddist að Kjartans-
stöðum í Glaumbæjarprestakalli
í Skagafirði 16. ágúst 1870, og
voru foreldrar hennar Guðbjörg
Björnsdóttir og Páll Pálsson
bóndi þar. Faðir Gunnvarar dó
frá barnahóp, meðan hún var í
bernsku. Efnin voru lítil, og ekkj-
an varð að þola þá raun að hóp-
urinn hennar tvístraðist. Það var
algeng saga þeirra tíma. Gunn-
vör ólst svo upp hjá vandalaús-
um. Hún var nokkur ár hjá frú
Guðrúnu og séra Magnúsi
Thorlasíus á Hafsteinsstöðum, en
þegar Magnús lézt fór hún til
Steinunnar Árnadóttur og Jóns
Jónssonar, er þá byrjuðu búskap
á Hafsteinsstöðum, og þar dvaldi
hún frá sjö ára til sextán
ára aldurs. Gunnvör dvaldi svo
í Skagafirði þar til árið 1897, en
þá fluttist hún vestur að Arn-
gerðareyri við ísafjarðardjúp, til
frænku sinnar Aðalbjargar Jóns-
dóttur og manns hennar Ásgeirs
Guðmundssonar bónda þar. Hús-
freyjan á Arngerðareyri mat
Gunnvöru mikils, og á milli þess-
ara frændkvenna myndaðist
órjúfandi vinátta sem aldrei bar
skugga á. Á Arngerðareyri átti
svo Gunnvör heimili í tuttugu og
þrjú ár, eða til ársins 1920, en
þá brá frænka hennar búi, eftir
að hafa misst mann sinn, og flutt-
ist til Reykjavíkur ásamt Gunn-
vöru. Þegar svo Aðalbjörg lézt
árið 1922, þá tók Gunnvör sig
upp og fluttist norður í Skaga-
fjörð á æskuslóðir, og settist að
á Löngumýri, hjá hálfbróður sín-
um Jóhanni Sigurðssyni, sem þá
var bóndi þar.
Fyrir þrettán árum flutti svo
Gunnvör hingað í bæinn aftur,
og hefur lengst af átt heima síð-
an á Elliheimilinu Grund.
Gunnvör Pálsdóttir var tæplega
meðalkona á hæð, þéttvaxin og
beinvaxin, svipurinn hreinn og
lýsti góðri greind. Yfirbragðið
var glaðlegt og lundin ljúf. Hún
var fróð, og kunni mikið af sög-
um, ljóðum og lausavísum, gat |
líka sjálf gert stöku, ef svo bar
undir. Hún varð hvers manns
hugljúfi þeirra er henni kynnt-
ust. öll börn hændust að henni,
og höfðu yndi af að hlusta á hana
segja frá. Við sem ritum þessi
fátæklegu orð, sem segja svo
fátt af því, sem hægt væri að
segja um þessa konu, höfum
þekkt Gunnvöru frá því við vor-
um litlar telpur á Arngerðareyri
og við munum alltaf minnast
hennar með þakklátum huga.
Hún var ávallt reiðubúin til að
gleðja aðra, og það var hennar
mesta yndi.
Á heimili okkar á Arngerðar-
eyri, þar sem jafnan var gest-
kvæmt og mannmargt, þar var
Gunnvör bezta stoð húsfreyjunn-
ar, því henni var hægt að treysta,
og hún taldi aldrei eftir, þó spor-
in yrðu mörg, og vökurnar lang-
ar, þegar marga gesti bar að
garði. Og verkin voru öll af hendi
leyst með trúmennsku og kær-
leika.
Gunnvör minntist alltaf sam-
ferðafólksins í lífinu með þakk-
látum huga og henni þótti vænt
um það fólk, sem ól hana upp í
gegnum bernskuárin. Nú er þessi
gæðakona með glaða og hreina
svipinn horfin af sjónarsviðinu,
en eftir lifir minningin. Okkur
þykir tómlegt fyrst á eftir, og
svo mun vera um fleiri, þegar
Gunnvör kemur ekki lengur í
heimsókn. En við gleðjumst yfir
því, að hafa fengið að þekkja
hana um mörg ár, og njóta kær-
leika hennar. Við trúum því, að
nú sé Gunnvör Pálsdóttir flutt
þangað sem gleðin og kærleik-
urinn ríkir.
Vertu blessuð Gunna frænka
og þökk fyrir allt.
Margrét og
Geirþrúöur Ásgeirsdælur.
Morris '55
í góðu standi, til sölu. —
Bílasalau
Klapparstíg 37. Sími 19032.
Stúlka ós’kast til
afgreiðslustarfa
strax í nýlenduvöruverzlun, —
yngri en 16 ára kemur helzt
ekki til greina. Uppl. í verzl.
Hamrafell, Hamrahlíð 25.
Garðeigendur
Garðyrkjustöðin, Grímsstaðir,
Hveragerði selur útirósir og
blómrunna, í miklu úrvali, allt
tegundir, sem hafa verið reynd
ar og ræktaðar í garði Krist-
manns Guðmundssonar. Enn-
fremur mikið úrval af fjölær-
um blómplöntum og Slemer-
blómaplöntum. — Pantanir
sendar um allt land.
Hallgrímur Egilsson
Gísli Einarsson
lióraðsd'Hiislúgtna JUr.
CVtáltÍutniiigsskrifstoia.
i-augavegi 20 B. — Sími 19631.
PÁLL S. PÁLSSON
hæstarcttarlog madui.
Hankastræti 7. — Sími 24-200.
Hlutabréf til sölu í fólksbifreiðastöð í Keflavík. Gott fyrir mann sem hefur hugsað sér að stunda leigubíla- akstur. — Upplýsingar í síma 16877. — Veitingastofa Veitingastofa eða eignarhluti í veitingastofu, £ fullum gangi, á mjög góðum stað, til sölu. Heppilegt fyrir mann er ekki þolir erfiðisvinnu. — Tilboð merkt: „Gott tækifæri — 3904“, sendist afgr. Mbl., fyr-
Daglega nýbrennt og malað KAFFI molasykur (pólskur). — Hvít- ur Kúpa-strásykur. Indriðabúð Þingholtsstræti 15. Sími 17283. ir fimmtudagskvöld.
Bændur - Bændaefni Ágæt bújörð til leigu. — Góðar samgöngur, rafmagn, laxveiði. Sala á hálfri jörðinni kemur til greina. Dugandi menn er 1 hyggja á framtíðarbúskap ‘ ganga fyrir. Tilboð sendist afgr. blaðsins fyrir 1. júní, — merkt: „Jörð — 3907“.
Bananar kr. 19,00 kílóið. — Sunkist 1 sítrónur. — Kartöflur (rauðar, | ísienzkar). — Indriðabúð Þingholtsstræti 15. Sími 17283.
Námshjálp smælingjanna! Landsprófskeppendur, bó'kasafnendur Landfræðilegar minnisvisur og stærðfræðileg formúluljóð end- u bætt, aukin rímlaganótum, eru sérstæðar, hentugar vasa- handbækur, nauðsynlegar skóla nemendum. Fást hjá mörgum bóksölum. Mjög ódýrar. Ilufundurinn
Kápur, dragtir og stuttjakkar Tækifærisverð. Kápusalan Laugavegi 11, 3. hæð t. h. Sími 15982.
Bátur til sölu Vélbáturinn Skíði EA-51 er til sölu. Báturinn er 814 lestir, með 54 hestafla Listervél. — Línu- og handfæraveiðarfæri fylgja. Uppl. gefa Bergur Lár- usson, Dalvík, sími 96, eða Jóhann SigurSsson, Dalvík, sími 86. —
íbúðaskipti Get útvegað einbýlishús í Kópa vogi (5 herb. og eldhús auk geymslu), í skiptum fyrir íbúð í fieykjavík (3 herb. og eldh.). Áhvílandi lán á húsinu getur fylgt sem milligjöf. Þeir, sem vildu hafa samband við mig, leggi nöfn sín inn á afgr. blaðs ins, merkt: „Hagkvæm við- , skipti — 3908“, fyrir n.k. laug ardag. — (
STÚLKA eða kona óskast. níiÉuL
BÍLVIRKININ Síðumúla 19, sími 18580 Bíla\iðgerðir, réttingar, ryðbæt- ingar, bílasprautun.
Málarastofan Barónstíg 3, sími 15281 Gerum gömul búsgögn sem ný. CLa&dAA&tmt 9
SUMARBUSTAMIR Góður sumarbústaður óskast til leigu. Tilboð merkt: Sumarbústaður — 3909, sendist afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld.
Afgreiðslustúlka
óskast nú þegar eða 1. júní. Uppl. milli kl. 5—7
á skrifstofunni.
I
ADLON, Aðalstræti 8.
sími 16737.
Ný 5 herbergja íbúð
fil leigu
tilbúin um miðjan júní. Fyrirframgreiðsla. Tilboð
merKt: 3906, sendist afgr. blaðsins.
Sumarbústaður
við Þingvallavatn óskast til kaups. — Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld merkt:
Sumarbústaður — 4003.