Morgunblaðið - 20.05.1958, Page 8

Morgunblaðið - 20.05.1958, Page 8
8 MORGVNBLAÐ1Ð T>rið.indaeur 20. maí 1958 Þegar síldin brást var stoðunum kipptundanatvinnulífi Siglfirðinga 40 dra afmæli Siglufjarðarkaups+aðar 140 dr síðan Siglufjörður hlaut verzlunarréttindi unni um þá tíð, er hamingjuhjól- ið snerist þar — og þúsundir íslendinga héldu þangað til þess að freista hamingjunnar, í von- inni um að koma auðugir heim að hausti. Viðtal við Baldur Eiríksson forseta bæjarstj. í LÖGUM um kaupstaðaréttindi Siglufjarðar segir um verzlunar- lóð kaupstaðarins, að hún tak- markist — a) að vestanverðu við höfnina; að norðan bein lína milli fjalls og fjöru, 25 föðmum fyrir norðan húsið Bakka. Að sunnan bein lína milli fjalls og fjöru, 25 föðmum fyrir sunnan gullnáma dugmikilla kvenna og karla og yfir sumarmánuðina líktist bærinn frekast gullgrafara bæ, þar var jafnan líf og fjör og mikið um glaum og gleði. — En síðar brást „silfur hafsins" og færri koma nú til Siglufjarðar á síldarvertíð en áður var, áhætt- an varð meiri — sumir komu Til Sigluf jarðar fóru ungar og gamlar til þess að salta og þegar aflinn var mikill stóð kvenfólkið stundum við söltun í tvo sólarhringa. Þá var gaman að vera á Siglufirði. húsið Hlíðarhús. Að vestan fjall- ið. Að austan höfnin. — b) Að austanverðu við höfnina. Að norðan svo nefndur Rjómalæk- ur.......... ★—O—★ Hvort sem rjómi hefur ein- hvern tíma runnið í Rjómalæk eða ekki, þá má segja, að um árabil hafi íslendingar fleytt rjómann á Siglufirði. Þar stóð einn mesti og öflugasti atvinnu- vegur þjóðarinnar traustum fót- um um margra ára skeið og það- an var rjómi íslenzkra útflutn- ingsafurða, síldarafurðirnar, fluttur til erlendra markaðs- landa. í dag á Siglufjörður 40 ára kaupstaðarafmæli. — Frá því, að Siglufjörður hlaut kaupstaðar- réttindi, hefur hann öðrum kaup- stöðum fremur verið tengdur von um íslenzku þjóðarinnar um góð- an afla og farsæla afkomu þjóð- arbúsins. Um áratuga skeið hafði þessi bær bein áhrif á afkomu þorra íslenzkra heimila um allt land. Allir, sem vettlingi gátu valdið, fóru í þá daga „á síld“ eða til síldarvinnu á Siglufirði. — Að sumrinu var bærinn miðdep ill íslenzks atvinnulífs, þangað flykktust menn úr öllum lands- hlutum til þess að fá hlutdeild í „silfri hafsins“ — og heima, í bæjum og sveitum, var jafnan beðið með eftirvæntingu eftir nýjum fréttum frá Siglufirði. Um árabil var Siglufjörður hreinasta tómhentir að hausti — og þjóðar- búskapurinn stóð höllum fæti. Þó eiga flest íslenzk heimili enn ein- hverjar minningar tengdar Siglu- firði — og í huga sjómanna og þeirra, sem eldri eru, hvílir enn gamli ævintýraljóminn yfir Siglufirði — bundinn minning- — Hornsteinninn að framtíð Siglufjarðar var lagður hinn 20 maí árið 1818, er Siglufjörður varð löggiltur verzlunarstaður, sagði Baldur Eiríksson, forseti bæjarstjórnar Siglufjarðar, er blaðið átti tal við hann í gær. En þegar Siglfirðingar minntust 100 ára afmælis löggildingar verzlunarstaðarins, 20. maí árið 1918, barst þeim fregnin um það að Alþingi hefði tveim dögum áður samþykkt lögin um kaup- staðarréttindi fyrir Siglufjörð. Stefán Stefánsson frá Fagraskógi, þingmaður Eyfirðinga, var for- mælandi málsins á þingi og reyndist jafnan ótrauður og ör- uggur málsvari Siglfirðinga. En sá, sem drýgstan þátt átti í sjálf- stjórnarbaráttu Siglfirðinga, var séra Bjarni Þorsteinsson, mjög merkur og mikilhæfur maður, sem allir Siglfirðingar báru ótak- markað traust til, sagði Baldur. í fyrstu bæjarstjórn Siglu- fjarðar sátu 7 menn — og er einn þeirra enn á lífi, Sigurður ICristjánsson, konsúll, sem var kjörinn heiðursborgari kaupstað- arins á 1000. fundi bæjarstjórnar í fyrra. ★—O—★ — Og nú eru 40 ár liðin síðan Siglfirðingar urðu kaupstaðar- búar. Skil hafa verið skörp milli góðæra og magurára og Sigl- firðingar hafa á þessum árum fært þjóðarbúinu drjúgar tekj- ur. Fyrir 40 árum voru síldveið- ar og síldarverkun okkar á byrj- unarstigi, um tíma mændu allra augu til síldarinnar og Siglu- fjarðar, en nú hafa síldveiðarn- ar brugðizt. Árið 1945 varð Siglu- firði, Siglfirðingum og þjóðarbú- inu, örlagaríkt. Það sumar brást síldin — og hefur brugðizt æ síðan. Stoðunum var kippt und- an atvinnulífi bæjarins. Áður en síldarvinnslan hófst stunduðu Siglfirðingar mestmegnis aðrar fiskveiðar — og nú var aftur leit að fyrri bjarga. Skjótra úrræða var þörf, bæjarútgerð var stofn- uð — og tveir togarar keyptir sem síðan hafa verið undirstaða atvinnulífsins hér. Síldarverk smiðjur ríkisins eru enn stærsta fyrirtækið í bænum, en nú reka verksmiðjurnar hraðfrystihús. -— Fiskverkun er nú mikil hér, tunnuverksmiðja ríkisins starfar og hér og verzlunarlyrirtæki eru mörg sem áður, það elzta stofn- sett 1906. Söliunarkassar og síldarlunnustaflar — þá þekkja allir Sigiufjórð Töluvert hefur verið unnið að byggingarmálum á undanförnum árum, unnið er að stækkun og endurbótum hafnarbryggjunnar log athugaðir möguleikar á frek ari hafnarframkvæmdum. Sam- göngur við önnur byggðarlög eru enn að mestu leyti á sjó. Siglu- Baldur Eiríksson fjarðarskarð er ekki fært nema stuttan tíma á ári hverju, en í fyrra var hafizt handa um vega- lagningu fyrir Stráka, en heyrzt hefur, að ekkert verði unnið að þeim vegi í sumar — og er það til mikils baga, því að sá vegur yrði fær mikinn hluta ársins. Eitt helzta hagsmunamál Sigl- firðinga hvað samgöngum við- kemur er flugvallarbygging. Enn er ekki lokið byggingu sjúkra- flugbrautar, en brýn nauðsyn ber til þess að byggð verði hér flug- braut fyrir stærri flugvélar, því að sömu sögu segjum við og Vestfirðingar: Flugfélagið hefur einungis yfir einni sjóflugvél að ráða, sem á að anna flutningum íil Vestfjarða og Siglufjarðar. ★—O—★ — Mig langar til þess að nota tækifærið, sagði Baldur, til þess að geta þess, að kaupstaðurinn hefir átt skilningi og velvild að mæta hjá Alþingi og ríkisstjórn á undanförnum árum og átt vin- samleg og þægileg samskipti við lánastofnanir. Gjaldþol bæjarbúa er nú hins vegar þanið til hins ýtrasta. Þorri bæjarbúá á allt sitt undir stopulum sjávarafla — og hærri opinber gjöld en nú haía verið lögð á, eru óhugsanleg. — Bæjarsjóður Siglufjarðar, sem og fleiri slíkir, þarf á ýmsum tekju- stofnum að halda og knýjandi þörf er nú að settar verði nýjar reglur um fjármál bæjar- og sveit arfélaga. Ríkisstjórn og Alþingi verða að hafa fullt samráð v>ið bæjar- og sveitarfélög við af- greiðslu mála, sem þeim er við- komandi. Ekki verður unað við það lengur, að löggjafinn leggi milljónaútgjöld á bæjar- og sveitarfélög án samráðs við þau, að því er virðist — og án þess að kynna sér hvort þau standi undir auknum útgjöldum. í því sambandi má benda á frumvarp Gunnars Thoroddsens um að bæj- arfélög fái hluta söluskatts — og mundi slíkt létta mjög undir. Ekki má gleyma því, að sjálf- stæði bæjar- og sveitarfélaga er einn af hornsteinum íslenzks stjórnskipulags, góður fjárhagur og fjármálastjórn eru undirstöð- ur framkvæmda í atvinnumálum, viðreisn og alhliða framförum. ★—Q—★ — Hér á Siglufirði býr dug- mikið og þróttmikið fólk, sem þykir vænt um byggðarlag sitt og hefur unnið því hörðum hönd- um í blíðu og stríðu. Framtíðar- verkefnin eru ærin — og ósk okkar er sú, að vonirnar, sem tengdar eru framtíðinni, rætist — og Siglufjörður megi verða farsælt byggðarlag með blóm- legu atvinnulífi, sem veitir borg- urum sínum lífvænleg kjör og bættan hag. Áfram munum við vinna að aukinni velferð og heill Siglfirðinga — í öruggri trú á framtíð bæjarins, sagði Baldur Eiríksson að lokum. h. j. h.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.