Morgunblaðið - 08.06.1958, Síða 1

Morgunblaðið - 08.06.1958, Síða 1
24 síðuK Landhelgismálið ræft á fundi Eisenhowers og Macmillans Fœreyingar ákveða 12 mílna landhelgi Hansen styður jbd en vill samninga KAUPMANNAHÖFN, 7. júní — Færeyska lögþingið samþykkti í gærkvöldi að færa landhelgina út í 12 mílur frá 1. sept. n. k. Inn- an þessara takmarka verða eng- ar botnvörpuveiðar leyfðar. Þetta var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema at- kvæðum Þjóðveldisflokksins, sem krefst þess að landhelgin verði vikkuð í 16 mílur. H. C. Hansen forsætis- og ut- anríkisráðherra Dana hefur lýst yfir því, að hann álíti Færeyinga hafa fulla heimild til að líta svo á, að fiskveiðasamningurinn við Breta sé fallinn úr gildi. Hins vegar sé endanleg ákvörðun um De Gaulle fer til Alsír aftur innan mánaðar Þrátt fyrir verkfall strætisvagnastjóra fá I.undúnabúar eigi að síður tækifæri til að aka í strætisvögnum, já og meira að segja ókeypis. Edward Martell hefur nefnilega í nafni „Þjóð- fylkingarinnar til verndar írelsinu" tekið á leigu 50 tvílyfta strætisvagna, og með þeim flytur hann fólk fvam og aftur til City frá West End og útborgunum. Maðurinn sem er að hjálpa konunni upp í vagnínn á myndinni hér að ofan er hinn frægi „óði majór“, Christopher Draper. Það var hann sem vakti athygli á sér fyrir nokkrum árum með því að fljúga lítilli flugvél undir eina af brúnum yfir Xhames-ána. PARÍS, 7. júní — Franska stjórn- in kom í morgun til fundar í París undir forsæti de Gaulle. Var búizt við að forsætisráðherr- ann mundi gefa stjórninni skýrslu á þessum fundi um þriggja daga ferðalag sitt um Alsír. Jafnframt mun stjórnin sennilega ræða undirbúning væntanlegs þjóðar- atkvæðis, sem á að fara fram í lok september. Verður þá gengið til atkvæða um tillög'ur de Gaulle til breytinga á stjórn- skipunarlögunum. Annars er búizt við, að gerðar verði ein- hverjar breytingar á sjálfri Nýja gjaldeyrisálagið eykur úfgjöld Eimskips um tugi milljóna króna Frá aðalfundi félagsins i gær SÍÐDEGIS í gær var haldinn hér í Keykjavík aðalfundur Eimskipa félags íslands. Er formaður stjórnar félagsins Einar B. Guð- mundsson hrl. fluttiskýrslustjórn ar, gat hann þess m.a. að næsta „Fossi“ félagsins myndi verða hleypt af stokkunum innan fárra daga. Er hann ræddi um afkomu felagsins skýrði hann frá þvi að á það hefði nú verið lagður 3 milljónir króna í stórcignaskatt. Þeir sem þessi skattur hefði ver- ið lagður á myndu leita til dóm- stólanna um réttmæti hans. Varð- andi reksturinn á siðastl. ári upp- lýsti stjórnarformaður að tapið hefði orðið um 3,2 milljónir. Eitt helzta vandamálið sem við hefur verið að etja á síðasta starfsári, hefur verið að fá gjaldeyrisyfir- færslur vegna skipasmíðanna og utgjalda skipanna erlcndis. Varð- andi áhrif hins nýja álags á gjald eyri kvað stjórnarformaður það mundu hafa í för með sér millj- onatuga útgjaldaukningu fyrir lelagið. Aðalfundur Eimskipafélagsins hófst kl. 1,30 síðdegis. Að þessu sinn sáu Vestur-íslendingar, hluthafar vestur í Ameríku, sér ekki fært að senda hingað full- trúa til að mæta á fundinum, en með atkvæði Vestur-íslending anna fóru þeir Gunnlaugur E. Briem ráðuneytisstjóri og Hall- grímur Fr. Hallgrímsson, aðal- ræðismaður. Á aðalfundinum var og við- staddur Mr. David Summerfield frá New York, en hann er fram- kvæmdastjóri Thule Ship Agency, sem annast alla fyrir- greiðslu fyrir skip Eimskipafé- Jagsins í New York. Aðalfundurinn hófst með því, að Einar B. Guðmundsson, hæsta réttarmálaflutningsmaður for- maður stjórnar félagsins setti fundinn og bauð fundarmenn vel komna til starfa. Hann til- nefndi sem fundarstjóra Lárus Jóhannesson hrl. í upphafi máls síns minntist Einar B. Guðmundsson J akobs Karlssonar kaupmanns á Akur- eyri, en hann var afgreiðslumað- ur Eimskipafélagsins um 37 ára skeið frá árinu 1915 til 1952. Risu fundarmenn úr sætum í virðingar skyni við hinn látna. Þessu næst fór stjórnarfor- maður að ræða skýrslu félags- stjórnar. Fyrst gat hann um sölu Brúarfoss, sem félagið seldi eftir Einar B. Guðmnndsson að hafa átt hann í 30 ár, en hann mun hafa siglt samtals um 1 milljón sjómílna. Þessu næst skýrði stjórnarfor- maður frá skipasmíðum félags- ins, en Eimskip á nú í smíðum hjá Alborg Værft, tvö skip með frystiútbúnaði en þau verða hvort um sig 3500 d.w. tonn og lestarrúm hvers skips um 169 teningsfet. Kjölur að fyrra skipinu var lagður 6. ágúst 1957 og verður því hleypt af stokkunum eftir örfáa daga, sagði stjórnarformaður, væntan- lega 11. þessa mánaðaf. Er þess að vænta að þetta skip verði af- hent Eimskipafélaginu í desem- bei mánuði n.k. Síðara skipið a að vera tilbúið síðast á árinu 1960. Formaður gat þess að hér væri , Framh. á bls. 23. stjórninni og utanríkisþjónust- unni. Kvöldblaðið „France-Söir“ held ur því fram, að de Gaulle muni fara til Alsír aftur innan mánað- ar, eftir að hann hefur tryggt sér stuðning hersins og dregið úr áhrifum öryggisnefndanna í Alsír. Það er haft eftir áreiðanlegum heimildum í París, að de Gaulle hafi fengið nýja orðsendingu frá Macmillan forsætisráðh. Breta, þar sem lagt er til að þeir hitt- ist eins fljótt og auðið er, eftir að Macmillan kemur heim frá Washington, en þar mun hann ræða heimsmálin við Eisenhower forseta. í orðsendingunni á Macmillan að hafa beðið de Gaulle að ákveða stað og tíma fundarins, jafnframt því sem hann gaf í skyn að hann mundi nota tækifærið til að segja franska forsætisráðherranum frá viðræðunUm við Eisenhower vídd’ fiskveiðilögsögunnar ríkis- mál, sem danska stjórnin verði að ganga frá í samráði við land- stjórn Færeyja. Hann kvað Dani styðja 12 mílna landhelgi, en hér yrði að fara samningaleiðina. Yfirlýsing Breta til íslendinga gefi góðar vonir um, að Færey- ingar geti líka fengið réttláta lausn á málinu með samningum. Blaðið „Politiken" skýrir frá því, að landhelgisdeilan og vandamálin sem hún hefur skap- að í samvinnu NATO-ríkjanna verði til umræðu þegar þeir Eisenhower Bandaríkjaforseti og Macmillan forsætisráðh. Breta hittast í næstu viku. Brezki sendiherrann í Washington tjáði Dulles utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, að hann harmaði ákvörðun íslendinga. Sérfræð- ingur utanríkisráðuneytisins um málefni Norður-Evrópu, Ernest Mayer, fer til Reykjavíkur 12. júní. —Páll. Adolf Hitler dæmd ur fvrir stuld «/ BONN, 7. júní — Fréttaritari DPA-fréttastofunnar skýrir frá því, að nú í vikunni hafi Adolf nokkur Hitler fengið skilorðs- bundinn dóm fyrir réttinum í Höfðaborg fyrir að stela 80 sterlingspundum úr bæjarsjóðin- um. Þjófurinn, sem er 23 ára, heitir fullu nafni Adolf Hitler von Rensburg. Hann hafði í hyggju að taka þátt í stjórnmál- um borgarinnar þegar hann var afhjúpaður sem þjófur. Hann lofaði bót og betrun í réttinum og lýsti því yfir að hann mundi borga upphæðina aftur. En blöð- in í Suður-Afríku segja með nokkrum létti, að skeið ''AdoIfs Hitlers á stjórnmálabaráttunni hafi verið stöðvað í tæka tíð. Norskir útgerðarmenn vilja svœðaráðstefnu AALESUND, 7. júní — Knut Vartdal, formaður sambands norskra útgeröarmanna, segir í „Sunnmörsposten", að hann sé algerlega fylgjandi svæðaráð- stefnu um fiskveiöilögsöguna. Fiskveiðiþjóðirnar sem hlut eiga að máli verða að koma saman og ræða ástandið, segir hann. Knut Vartdal kveðst vera mjög eindreginn stuðningsmaður nú- gildandi laga um landhelgina, en sé ekki hægt að komast hjá að ræða þetta vandamál, eigi fisk- veiðiþjóðirnar að koma sér sam- an um að banna botnvörupuveið- ar á 12 mílna svæði undan strönd- um, en hins vegar verði þær að gera með sér samning um að leyfa neta- og línuveiðar á sömu svæðum og nú. Ef hægt væri aö ná slíku samkomulagi, yrði það til mikilla hagsbóta og þá væri líka hugsanlegt að norskar fisk- veiðar á höfum úti gætu haldið áfram, sagði Vartdal. Sýrlendingar á leið til Líbanons stöðvaðir TEL AVIV, 7. júní — Herflokkur frá ísrael réðst í gærkvöldi á 60 manna vopnaðan hóp, sem var á leið frá Sýrlandi til Líbanons. Fór þessi hópur gegnum norðan- vert ísrael. Af hópnum var einn drepinn en 13 teknir til fanga, samkvæmt tilkynningu herstjórn er ísraels í Tel Aviv. Það var lítil landamærasveit frá ísrael sem rakst á flokkinn, sem var á leið til landamæra Líbanons frá Sýrlandi. Flokkarn- ir skiptust á skotum og landa- mærasveitinni tókst að hi-ekja sýrlenzka flokkinn aftur yfir landamæri Sýrlands, eftir að hún hafði drepið einn mann, en tekið fjóra til fanga. Þegar landa mærasveitinni hafði borizt lið- styrkur tók hún enn níu menn úr sýrlenzka flokknum til fanga eftir að gerð hafði verið nákvæm leit á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.