Morgunblaðið - 08.06.1958, Blaðsíða 17
Sunnudagur 8. júní 1958
MORdnSBLAÐIÐ
17
Gerard Philipe og Anouk Aimée í hlutverkum Modiglianis og
Jeanne í kvikmyndinni „Montparnasse 19“. Til vinstri er mál-
verk, sem Modigliani -gerði á sínum tima af hinni réttu Jeanne.
* KVIKMYNDIR
Franskar
kvikmyndir
ÞRÁTT fyrir kvikmyndahátíðina,
sem haldin er árlega í Frakk-
landi, hafa Frakkar um margra
ára skeið verið uggandi um sinn
eigin kvikmyndaiðnað. Nú spá
bjartsýnustu kvikmyndagerðar-
menn því að vart muni verða
gerðar fleiri en 85 myndir þar í
landi á þessu ári eða 57 myndum
færra en árið 1957. Orsökin er
fjárskortur. Kvikmyndagerðar-
mennirnir eru flestir fátækir
menn, þó þeir neyðist til að
greiða leikurum á borð við
Brigitte Bardot og Jean Gabin
25 milljónir franka fyrir hverja
mynd, og erfitt er að fá lán til
kvikmyndagerðar. Fáanleg eru
aðeins lán til stutts tíma og ef
verkiö svo tefst af einhverjum
orsökum, er voðinn vís.
Frakkar senda í þetta sinn tvær
litmyndir á kvikmyndahátíðina:
gamanmyndina „Frændi minn“
með einum snjallasta gamanleik-
ara þeirra, Tati, sem vinnur sín-
ar myndir sjálfur og er oft nefnd-
ur Chaplin Frakka, og myndina
.Iðandi vatn“ með Audret Pascal
í aðalhlutverkinu. Audret er ein
af þeirra upprennandi stjörnum,
lék meðal annars Önnu Frank á
leiksviði á síðastliðnu leikári og
hlaut fyrir það ákaflega lofsam-
lega dóma. Það tók þrjú ár að
gera báðar þessar myndir og
þó þær séu að öðru leyti ólíkar,
hafa þær báðar sama boðskap
að flytja: frelsið sigrar alltaf.
Af öðrum nýjum athyglisverð-
um kvikmyndum má nefna mynd
ina, sem Jacque Backer gerði um
ævi ítalska málarans Modigliani,
einn frægasta málara þessarar
aldar, en hann dó úr eymd og
drykkjuskap 35 ára gamall og er
ímynd bóhemanna frægu á
Montparnasse í París á árunum
fyrir 1920. Rétt áður en hann dó,
tókst honum með erfiðismunum
að selja nokkrar myndir fyrir
50—100 franka, en nú eru mál-
verk hans á sýningu, sem stend-
ur yfir í París, tryggð fyrir 4
milljarða og fræg söfn þykjast
heppin ef þau ná í mynd eftir
hann næstum sama hvað hún
kostar,
Ævi Modiglianis virðist tilval-
ið kvikmyndaefni. Hann var fá-
tækur og einstaklega glæsilegur
listamaður sem brenndi kertið í
báða enda, drakk og svallaði, átti
tvö söguleg ástarævintýri, dó
ungur og varð heimsfrægur mál-
ari eftir dauðann. Það er Gerard
Philipe sem leikur Modigliani í
myndinni,
Konurnar tvær sem hann elsk-
aði og gerði ódauðlegar með
myndum sínum voru þær Beatr-
ice Hastings, ensk stúlka, sem
gafst upp á að búa með honum,
og Jeanne Hébuterne, sem
fleygði sér út um glugga af
fimmtu hæð daginn eftir dauða
hans og lét eftir sig dóttur á öðru
ári. Jeanne er leikin af Anouk
Aimée.
Kvikmyndin um þennan ógæfu
sama unga málara heitir „Mont-
parnasse 19“, og í henni koma
fram margir af vinum hans, sem
á þeim árum eigruðu álíka
snauðir um Montparnasse-breið-
götuna en hafa lifað það að verða
í margumtöluðum ballet eftir
Francoise Sagan fyrir skömmu.
Loks er vert að geta um ákaf-
lega alþjóðlega kvikmynd, sem
nú er á ferðinni. Hún er tekin
í Madrid, stjórnandi er Svíinn
Arne Mattson (sá sem gerði
Sölku Völku), og aðalleikararnir
eru Frakkarnir Mouloudji og
Christian Marquand og sænska
leikkonan Ulla Jacobson, sú sem
„dansaði eitt sumar".
Efnið er sannsögulegt. Myndin
fjallar um það þegar tveir glæpa-
menn leituðu hælis í skólahúsi í
þorpi einu á Ítalíu fyrir einu
eða tveimur árum og héldu
kennslukonunni og börnunum
sem gislum, eins og menn muna
ef til vill úr fréttunum frá þeim
tíma.
Brezkar kvikmyndir
THE Young Lions, 20th Century
Fox kvikmynd í Cinemascope er
ein af þessum stríðsmyndum,
sem spretta upp á friðartímum.
Myndin fjallar um austurrískan
skíðakennara, sem fer í þýzxa
herinn og trúir að fyrirætlamr
Hitlers muni skapa meira
öryggi og betri lífskjör. Honum
snýst fljótt hugur þegar hann
kemst að raun um ofstæki og
pyndingar, sem þýzki herinn beit-
ir varnarlaust fólk. Marlon
Brando leikur skíðakennarann,
sem seinna meir verður mjög
háttsettur hjá hernum þrátt fyrir
býr þegar á herðir. Þessir þrír
menn eru „ljón“ stríðsinS og
myndin fjallar um örlög þeirra
allra og ástalíf. Konur þeirra og
ástmeyjar eru vel leiknar af Hope
Lange, Barbara Rush, May Britt
og Dora Doll. Myndin er allvej
gerð og þess virði að eyða kvöld-
stund að horfa á hann.
★
The Inn of the Sixth Happi-
ness heitir kvikmynd sem 20th
Century Fox hefur á prjónunum
og er að kvikmynda um þessar
mundir. Myndin er byggð á
sannri sögu um enska konu, Gla-
dys Alylward, sem eyddi mörg-
um árum ævi sinnar, sem trúboði
í Norður-Kína. Ingrid Bergman
leikur aðalhlutverkið — meðleik-
arar Curt Jurgens og Robert
Donat, ásamt kínverskum blóma-
rósum.
Það hefur valdið miklum erfið-
ieikum að fá nógu marga leikara.
Þar sem þetta er kínversk kvik-
mynd þarf marga „sanna“ Kín
verja, eða um alls 2000 talsins!
Flest kínversk matsöluhús og
skólar í London hafa orðið að
láta af hendi verkafólk og nem-
endur sína fyrir kvikmyndunina,
sem á þann hátt geta náð sér í
góðan vasapening meðan á kvik-
mynduninni stendur, en það verð
ur sennilega a. m. k. allan júni.
Fyrir þessa kvikmynd hefur ver-
ið leitað hátt og lágt að sérstakri
tegund múlasna. Frakkland og
Spánn hlupu undir bagga og
buðu múlasna en þeir reyndust
of litlir í samanburði við norður-
kínversku múlasnana. Að lokum
fannst nothæf múlasnategund a
Írlandi og eru þeir nú á ferðinm
til þess að feta sig áfram á tor-
farinni leiklistarbraut! Leikstjór-
inn, Mark Rotoson vonar að enda
þótt þeir séu múlasnar geti
þeir tekið leikstjórn, þótt ekki
bæti það úr að þeir eru írskir í
ofanálag! Til skýringar fyiir
þá sem ekki vita: múlasnar eiga
asna fyrir föður en meri fyrir
móður, svo þeir hafa dálítið af
hestablóði í sér!
Áætlað er að þ«ssi kvikmynd
muni kosta 20th Century Fox
margar milljónir dollara.
Krf.
Gamanleikarinn Tati að stjórna ungutn leikara í kvikmyndinni
„Frændi rninn", sem hlaut aukaverðlaun á kvikmyndahátíðinni
í Cannes.
heimsfrægir málarar, eins og ógeð hans á stríðinu. — Leikur
Marlon er alltaf eftirtektarverð-
ur, enda er hann einn af þessum
vel þekktu leikurum, sem útskrif-
uðust úr ameríska umtalaða
„method“-skólanum. Þeim skóla,
sem trúir á leik frá hjartanu
einu, frekar en tækni. James
Dean var einnig frá sama skóla
Nokkur hluti myndarinnar ger-
ist í New York, þar sem við kom-
umst í kynni við Michael (leikinn
af Dean Martin) og Noah (leik-
inn af Montgomery Clift með sér-
stakri varfærni og alúð). Michaei
er leikari og söngvari, latur dð
eðlisfari og hræddur við bardaga.
Þegar hann tr kallaður í herinn
verður hann mjög óánægður og
reynir að komast undan skyldu
sinni, en fyrir áeggjan kæruscu
sinnar, fer hann þangað sem hætt
an er mest. Noah er fátækur og
óframfærinn Gyðingur, sem á i
höggi við félaga sína vegna trúar
sinnar, en sýnir hvað í honutn
t. d. Picasso, Foujita, Vlaminck
o. fl. Myndin hefur vakið tals-
verð blaðaskrif og deilur. Von-
andi fáum við áður en langt um
líður að sjá hana hér.
Af frönskum leikkonum er
Brigitte Bardot vafalaust sú vin-
sælasta um þessar mundir. Mynd-
irnar hennar eru sýndar við
mikla aðsókn víða um heim.
Brigitte er nú að leika í nýrri
mynd undir stjórn Juliens Duvi-
vier. Sú mynd gerizt á Spáni.
Margir spá því að Mijanou, yngri
systir hennar muni áður en langt
um líður verða henni harður
keppinautur. Að minnsta kosti
vakti vaxtarleg hennar ekki
minni athygli á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes.
Ameríski kvikmyndaleikarinn
Gene Kelly hefur fundið sér mót-
leikara í fyrirhugaða dans- og
söngvamynd í París. Það er
Noelle Adams, sem vakti athygli
4ra herb. íbuð til sölu
í 3ja ára gömlu húsi í Vogahverfi. Sér olíukynding,
þvottaherbergi og inngangur. Hagstæð lán áhvíl-
andi. Lítil útborgun og hagstætt verð, ef samið er
strax. Upplýsingar í sima 33616.
Kaffistofu- og hóteleigendur, athugið:
KAFFIKAMNA
Nýleg vönduð, sjálfvirk Rowent a-kaffikanna er
til sýnis og sölu í raftækjaverzluninni LÝSING h/f
Hverfisgötu 64, ef viðunandi tilboð fæst.
TILBOÐ OSKAST
í bandsög, hulsubor, fræsara, hjólsög, blokkþvingur
og samsetta vél með afréttara, bor og hjólsög (eldri
gerð). Vélarnar verða til sýnis í kjallara Iðnskólans
(inngangur að norðanverðu úr portinu), mánudag
og þriðjudag n.k. kl. 4—6.
Okkur vantar
Djúpfrystikistu
Upplýsingor í síma 1-72-77.
Sand geröingar
Morgunblaðið vantar afgreiðslumann í Sandgerði
frá 1. júlí n.k.
Axel Jónsson, kaupmaður, Sandgerði gefur nánari
upplýsingar.
Athugið
Getum útvegað ís í sölutiöld á 17. iúní.
Talið við okkur sem fyrst. —
í SBORG, Austurstr. 12
Vön vélrifunarstúlka
óskast vegna forfalla annarrar frá og með fimmtu-
deginum 12. júní til laugardags 21. júní.
Vinnutíini eftir samkomulagi. Tilboð merkt:
Vön vélritun —
fyrir mánudag.
leggist inn á afgr. Mbl.