Morgunblaðið - 08.06.1958, Blaðsíða 9
Sunmiðagur 8. júni 1958
MOnVVN1iT/at>lÐ
9
Umferðarpróf nr. 3
Hve fljótir eruð þér að fœra
fótinn á hemilinn ?
Setjist á stól með beinu baki og leggið blaðið fyrir framan
yður á gólfið. Setjið fótinn yfir myndina af benzíngjaf-
anum. Haldið peningi í hægri hendi í höfuðhæð. Látið
hann detta en flytjið. samtímis fotinn yfir á hemilinn.
Lesið hér að neðan hvernig viðbragðsflýtir yðar er metinn.
tH
m
m
Hver var vlðbragðsflýtir yðar? Höfðuð þér fótinn á hemlinum áður en pening-
urinn skall í gólfið? Sé viðbragðsflýtir yðar í meðallagi hraður ættuð þér að
hafa verið fljótari að færa fótinn en peningurinn að detta í gólfið, en falltími
hans er y2 sekúnda. Á þessari hálfu sekúndu hefðuð þér með 70 kílómerta hraða
á klukkustund ekið 9,7 metra, áður en yður tækist að setja fótinn á hemilinn. Á
þurrum vegi með góða hemla á bifreiðinni, hefðuð þér ekið 32 metra til viðbót-
ar áður en yður tækist að stöðva bifreiðina til fulls. Akið því ekki of hratt og
hafið ætíð a.m.k. eina bíllengd á milli yðar og bifreiðarinnar næst á undan fyrir
hverja 15 kílómetra (þ. e. 4 bíllengdir fyrir 60 km/klst. o. s. frv.), sem hraða-
mælirinn sýnir, að þér akið á klukkustund.
£$!: PÍSj (í/íi vm.
*:•:•» .•*•
tm w*
Öryggi kostar ekki peninga. Þegar
þér akið bifreið gelið þér stuðlað að
auknu öryggi án nokkurra útláta frá
yðar hendi. Allt, sem þér þurfið að
gera er að sýna þolinmæði og kurteisi
í skiptum yðar við aðra ökumenn svo
og gangandi fólk. Þér getið ekki búist
við þessum eiginleikum hjá öðrum, ef
þér sýnið þá ekki sjálfir í verki.Munið
að yðar eigið öryggi er jafn mikið
undir því komið hvernig aðrir aka í
umferðtnni og þér sjálfir. — Hví ekki
að gefa öörum gott fordæmi? Sýnið
tilhliðrunarsemi — til öryggis og
hagsbóta fyrir aila aðila.
Olíufélagið SKELJUNCUR hf.
hvtfur til gœtni í akstri