Morgunblaðið - 08.06.1958, Page 2

Morgunblaðið - 08.06.1958, Page 2
2 MORCVNBL.4Ð1Ð Sunnudagur 8. ]úní1958 Helga Valtýsdóttir hyllt í Iðnó Fær verblaun úr minningarsjóði SöHiu Guðlaugsdóttur SÝNING Leikfélags Reykjavíkur í fyri'akvöid á leiknum „Nótf yfir Napolí", var helguð minningu Soffiu heitinnar Guðlaugsdóttur, leikkonu, er lézt fyrir réttum tíu árum, í júlímánuði 1948, en hefði orðíð sextug þennan clag. — Frú Soffía vai harmdauði öllum, sem þekktu hana og hinum fjölmörgu mönnum sem notið höfðu þrótt- mikiliar og áhrifaríkrar listar hennar á leiksviðinu. Hún hóf ung leikferil sinn, fyrst norður á Akureyri, en 1916 lék hún fyrsta hiutverk sitt hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Síðan gerðist hún ein af máttarstoðum íslenzkrar leiklistar og leysti af hendi með mikium glzesibrag hin erfiðustu viðfangsefni. Er mér minnisstaeð- ur frábær leikur hennar í tveim- ur erfiðustu hlutverkum íslenzkra leikbókmennta, Höilu í Fjalla- Eyvindi og Steinunni í Galdra- Lofti og ennfremur- í hlutverki Heigu í Klofa i Lénharði fógeta. Þá var og stórbrotinn leikur henn ar í hlutverki Úlrikku í Kinnar- hvolssystur og Agnete í Sá sterk- asti, Skömmu eftir lát frú Soffíu stofnuðu nokkrir vinir hennar og aðdáendur sjóð tii minningar um hana til þess að verðlauna mikil leikafrek íslenzkra ieikara. — í fyrrakvöld voru þessi verðiaun veitt í 'yrsta sinn og afhent á leiksviðinu eftir leiksýninguna. — Híaut Heiga Vaitýsdóttir þessi verðlaun, ojg var það allra manna mái að enginn hefði frekar til þeirra unnið, en þessi mikilhæfa leikkona, sem á þessu leikári, sem nú er senn á enda, hefir leikið hin erfiðustu hlutverk af frábærri list,,svo sem Amöndu Wingfield í „Glerdýrunum“ eftir Tennessee Wiiiiams og Amalia í „Nótt yfir Napolí”. — Hefur Helga með leik sínum I þessum hlutverkum tekið sér sæti í alira fremstu röð ís- lenzkra ieikara og á hún áreiðan- lega eftir að vinna enn marga og mikla leiksigra. Athöfnin hófst með því, að séra Jón Auðuns, dómprófastur, gekk upp á sviðið og minntist frú Soffíu Guðiaugsdóttur, í snjallri Eiui verkföll LUNDÚNUM, 6. júní. — Ekkert lát er á strætisvagnaverkfallinu í Lundúnum og segja fréttamenn, að ekki sé enn séð fyrir endann á því. — 19 þúsund hafnarverka- menn hafa heitið því að hefja aft- ur vinnu svo framarlega sem þeim aðstoðarmönnum við upp- skipun sem ekki eru í verkalýðs- féíögunum verði sagt upp vinnu. ræðu. Gat hann þess hversu brenn andi hefði verið ást hennar á leik- iistinni frá fyrstu tíð og áhugi hennar á hví að sú list mætti þrosk ast og göfgast sem mest í landi voru. — Þá gekk fram Vilhjálm- u, Þ. Gíslason, hélt stutta ræðu og afhenti fyrir hönd sjóðsstjórn- ar Helgu Valtýsdóttur, áður nefnd verðiaun úr minningarsjóði Soffíu Guðlaugsdóttur „fyrir bezta leik ársins". — túlkun henn á móðurinni í Glerdýrunum —- í verðl. voru smástytta úr eir er nefnist „Skáiholtsdrengurinn", eft ir danska myndhöggvarann Áge Edvin Nielsen, en til Skáiholts má svo sem kunnugt er rekja fyrstu tilraunir til leiksýninga hér á landi. — Tóku allir viðstadd ir þessari verðlaunaveitingu með geysifögnuði og hylltu leikkon- una með ferföidu húrrahrópi og langvarandi ’-fataki, en hún þakk aði með nokkrum látlausum og hlýjum orðum. Þá bárust leikkon- unni einnig fögur bióm. Að lokum mælti formaður Leikfélags Reykja víkur, Jón Sigurbjörnsson, nokk- ur orð og bakkaði leikkonunni leikafrek hennar, er einnig hafði orðið Leikféiaginu og starfsemi þess tii mikils sóma. ---- S. Gr. Iletga Valtýsdóttir og Kristín Anna Þórarinsdóttir sem mæðgurnar í „GIerdýrunum“ ★ „Skálholtsdrengurinn“ verður til sýnis í glugga Morgunblaðsins eftir helgina. Sœnskt hlað telur her- skipavernd á fiskimiðum algera fjarstœðu STOKKHÓLMI, 7. júní — Frjáls- lynda kvöldblaðið í Stokkhólmi, „Expressen" skrifar í ritstjórn- argrein um þá ákvörðun Islend- inga og Færeyinga að víkka land- helgina í 12 mílur og segir, að í þessu sambandi sé hægt að láta sem vind um eyrun þjóta allar heimskulegar ógnanir um, að fiskiskip annarra ríkja verði í fylgd herskipa sem verji hags- muni þeirra á bannsvæðunum. Það sé ekki undir neinum kring- umstæðum hægt að leysa 'vanda- mál af þessu tagi með ofbeldi. Segir blaðið, að almenningsálit- ið muni vafalaust fá því fram- gengt, að ríkin við Norður- Átiantshafið, sem hlut eiga að þessu máli, haldi með sér ráð- stefnu. „Expressen“ segir enn, að til þess liggt margar ástæður, að taka beri tillit til efnahags- ástandsins á íslandi, en hins veg- ar sé því ekki að leyna, að það hafi verið rangt að fara með þetta mál út í slíkar öfgar sem Bulganin líka horfinn í myrkrið LONDON, 7. júní — Nikolai Buíganin fyrrverandi forsætis- ráðherra Sovétríkjanna mun á sama hátt og Molotov og Malen- kov verða sendur í eitthvert veigalitið embætti í afviknu héraði einhvers staðar í Rúss- landi, segir þrálátur orðrómur meðal erlendra erindreka í London. Sendiráðsstarfsmaður, sem er nýkominn frá Moskvu, heldur þvi fram, að Búlganin hafi þegar verið vísað burt frá Moskvu og settur í eitthvert embætti í Odessa við Svartahafið. Rússnesk blöð hafa undanfar- ið alls ekki nefnt Bulganin á nafn, og opinberlega hefur ekk- ert veríð látið uppi um orðróm- inn, sem nú er á kreiki. Samt er það kunnugt, að í rúman mán- uð hefur Búlganin ekki haft nein ar- opinberar skyldur í sam- kvæmislífinu. Hann hefur ekki verið viðstaddur þær fjölmörgu samkomur tignarmanna og er- lendra gesta, þar sem aðrir flokks ráðsmenn . Sovétríkjanna koma jafnan. Hafi Buiganin verið rek- inn úr flokksráðinu, þá hefur það ekki verið tilkynnt opinber- lega ennþá. Heilsuveill Það er vitað að heilsa Buigan- ins hefur verið bágborin undan- farið, og hafa menn því fest nokkurn trúnað við fréttir um fiutning hans til Odessa. Margir rússneskir afturbatamenn dvelj- ast við Svartahafið. Búlganin kom í engin þau sam- kvæmi sem haldin voru þegar Kekkonen Finnlandsforseti var í opinbérri heimsókn í Moskvu ný- lega. Var búizt við, að hann sæti í einhverju þeirra, þar sem hann var í opinberri heimsókn í Finn- landi fyrir tveimur árum. raun ber vitni. Einhliða ákvarð- anir til að skapa alþjóðlega sjálfheldu eigi engan þegnrétt í hinum lýðfrjálsa heitni, segir blaðið. Námsmenn erlend- is óánægðir með yfirfærslugjaldið FÉLAG íslendinga í Stuttgart i Þýzkalandi hefur sent ríkisstjórn- inni áskorun um að fella niður úr tekjuöflunarfrumvarpi sínu lið þann, er fjallar um 30% yfir- færslugjald á gjaldeyri til náms- manna, eða að öðrum kosti að veita námsmönnum þetta yfir- færslugjald sem lán með lágum vöxtum unz námi lýkur. Áskorunin er undirrituð af stjórn félagsins og hljóðar þessa leið: „Félagsmenn Félags íslendinga í Stóðgörðum (Stutt- gart) samþykkja einróma áskor- un til hæstvirtrar ríkisstjórnar íslands um að fella niður úr tekjuöfiunarfrumvarpi sínu lið þann, er fjallar um 30% yfir- færslugjald á gjaldeyri til náms- manna. Vilja félagsmenn í þessu sambandi benda á, að ef tillaga þessi nái fram að ganga, muni margir efnalitlir menn eigi sjá ser fært að stunda langt nám erlendis í framtíðinni. Auk þess munu margir, er þegar hafa hafið nám, neyðast til að hverfa heim að óloknu námi. Er því auðsætt er stundir líða, að skortur verð- ur á tæknivísinda- og fræði- menntuðum mönnum. Með auk- inni tækniþróun landsins yrði þetta óbætanlegt tjón, einkum þar eð þegar er skortur á sér- menntuðum mönnum. Auk þess myndi sú upphæð, sem á þennan hátt fengist, ekki hafa veruleg áhrif á fjárhag þjóðarinnar. Sjái hæstvirt ríkisstjórn og Al- þingi sér eigi fært að verða við áskorun þessari, vilja félagsmenn benda á eftirfarandi leið: að yfir- færslugjald þetta verði veitt námsmönnum sem lán með lág- utn vöxtum unz námi lýkur“. Sfundaði nám í höfuð- borg flugsins — Monfreal Samtal við Gísla G. ísleifsson lögfrœðing Gísli G. ísleifsson lögfræðing- ur hefur dvalizt í vetur við sérnám í alþjóðaflugrétti í Montreal í Kanada. Er hann eini íslendingurinn sem hefur stundað sérnám í þessari grein lögfræðinnar, sem verður æ þýðingarmeiri 'eftir því sem flugsamgöngur aukast. Frétta maður frá Mbl. ræddi við Gísla er hann var nýkominn að utan. Hann sagði svo frá: Áhugi flugfélaganna — Ég hef lengi haft áhuga á flugi og eftir hvatningu frá þeim er flugmálum eru kunnugir afréð ég sl. haust að taka fyrir sérnám í alþjóðaflugrétti. Flug- ráð veitti mér til þess 10 þúsund króna styrk. Auk þess hef ég notið styrkja frá báðum flugfé- lögunum og þremur tryggingar- félögum. Flugfélögin munu sérstaklega hafa áhuga á að hérlendur maður kynni sér flugréttinn, því að oft koma upp vafaatriði í skiptum þeirra við önnur félög og skiln- ing á alþjóðasamningum. Höfuðborg flugsins — En hvers vegna valdirðu Montreal til námsins? — Borgin Montreal í Kanada er oft á seinni árum köliuð höfuð borg flugsins í heiminum. Þav hafa aðsetur helztu alþjóðasam- tök um flug, svo sem ICAO og IATA, þ. e. alþjóða flugmála- stofnunin og alþjóðasamband flugfélaga. Fyrir um 8 árum ákvað McGill- háskólinn í borginni að stofna sérstaka flugréitardeild við laga- deild sína. Nýtur flugréttardeild- in sérstaks álits um víða veröld. Þangað koma lögfræðingar frá flestum löndum hins frjálsa heims. Að þessu sinni voru í deildinni 13 manns frá 9 löndum. Aðstaða til náms er líka betri þarna en nokkurs staðar annars staðar. Við hinar alþjóðlegu flug- málastofnanir eru stæistu sér- bókasöfn í heimi, sem fjalla um allt er að flugmálum lýtur og við sömu stofnanir eru starfandi hin- ir beztu sérfræðmgar í ötlurn greinum flugmála. Vikkandi svið flngréttarins — Viltu svo skýra frá þvi um hvað alþjóðaflugréttur fjaTiar? — Hann fjallar um þær réttar- reglur sem snerta flugið í hetm- inum. Það eru alls kyns reglur, sem fylgja verður við fiug: milli- ríkj asamningar, öryggisreglur skrásetning og skaðabótaskylda. Þessar réttarreglur hafa æ meiri þýðingu eftir því sem flugsam- göngur aukast. Það er og stöðug tiihneiging í heiminum tii að sam ræma sem mest reglur um fiug í öllum löndum. Um slíkt hafa verið gerðir nokkrir alþjóðasáttmáiar og eru þessir þýðingarmestir: Varsjár- sáttmálinn frá 1929 um skaða- bótaábyrgð og Chicago-sáttmál- inn frá 1944, sem er aðalsáttmái- inn og grundvöilurinn að ICAO. Hann íjallar almennt um flug bæði tæknilega og lagalega, t. d. hver hafi lögsögu í lofti, hvar flugfélögin megi fljúga, um að- stöðu fastra áætlunarflugvéla og hins vegar leiguflugvéla, um loft ferðasamninga milli ríkja. Þá fjallar hann um skrásetningar á flugvélum og merkingu og um öryggisskilyrði. Einnig er rétt að nefna Rómar-sáttmálann frá 1952, sem fjallar um skaðabótaábyrgð vegna tjóns sem þriðji aðili á jörðu niðri verður fyrir af völd- um fiugvéla. Vona ég að þetta sé nokkur skilgreining á efni flug réttarins, þótt miklu lengra mál þyrfti til að skýra það. Alþjóða- flugréttur stefnir æ meira í þá átt að vera skráður réttur, and- stætt venjurétti eða dómstóla- venju, eins og tíðkast í hinum enska heimi. Mætti það virðast undarlegt, því að engilsaxnesku þjóðirnar hafa einmitt haft mest áhrif á þróun hans. En þetta kemur til af nauðsymrmi á að samræma mismunandi regiur, sem gilda í mörgum löndum. Fyrirlestrar sérfræðinga — Hvað er svo að segja um sjálft námið. — Ég undi mér vel við það. Aðalkennari deildarinnar er franskur maður víðkunnur fyrir forustu sýna í flugrétti. Hann heitir Eugene Pépin og var m. a. einn aðalhöfundur fyrsta alþjóða sáttmálans um flug, sem gerður var í París 1919. Hann er sjófróð- ur um öll þessi efni. Auk þess komu til okkar sérfræðingar frá ICAO og IATA og fiuttu fyrir- lestra um ýmis efni. — Tókstu svo lokapróf í þess- um greinum? — Ég skrifaði ritgerð sem nefn ist „The non-scheduled air-serv- ices considered from international and regional approaches." Þ. e. a. s. um réttarstöðu hins svonéfnda lausaflugs eða leiguflugs, ems og Flugfélagið hér annast oft til Grænlands. Um það gilda mjög mismunandi reglur í mísmunandi löndum. í Chieago-sáttjjaálanum Gtsli G. ísteii'sson 1944 er því lýst yfir að slíkt flug sé frjálst, þó með þeim fyrirvara, að hvert ríki fyrir sig megi setja reglugerð um það. Nú er það víða, sem svo strangar reglugerðir eru settar um það, að jafngildir að það sé bannað. Er nú deilt um hvort slíkt sé samrýmaniegt grundvallarregiunni. að það skuli vera frjálst. Þetta er skemmtilegt íhugunarefni, en niðuistöður rit- gerðar minnar get ég ekki, rakO hér. Fyrir þessa ritgerð hlaut ég ekki prófstig, en get skrifað lengri ritgerð innan ems árs og fengi fyrir hana, ef ég héldi því áfram prófstigið Master of Laws. Kosningar og atvinnuleysi — Og að Iokum: — Hvernig líkaði þér dvölin í Kanada. — Ágætlega í alla staði. Ég var að vísu önnurn kafinn við námið, því að þar þurfti mikið að lesa á stúttum tíma. Kanaaa- menn eru að mörgu æyti fra- brugðnir Bandaríkjamönnum í siðum sínum. Þénnan tíma, sem ég dvaldist þar vöru næstum stöðugar kosningar. Tvennar þingkosningar og xom hmn seinni og meiri sigur Diefenbak- ers mönnum jafnvei meira á ó- vart en sá fyrri. Þá voru þar bæjarstjórnarkosningar og var furðulegt fyrirkomulag á þeim. Þar greiða menn atkvæði eftir því hve miklar fasteignir þeir eiga í borginni. Þeir sem eiga miklar fasteignir greiða mörg at- kvæði. Þeir sem eiga enga fast- eign eru óatkvæðisbærir. Er litið á bæjarfélagið eins og hlutaféiag fasteignaeigenda. Annars var verst hið mikla atvinnuleysi í borginni, sem stafar af krepp- unni. Atvinnuleysmgjarnir geta þó lifað sæmilega á háum at- vinnuleysisstyrk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.