Morgunblaðið - 08.06.1958, Side 8

Morgunblaðið - 08.06.1958, Side 8
8 MORC.ryBT 4 ÐtÐ ^unnudagur 8. ■ júní 1958 ÞAÐ mun margt vera brallað bseði í stríði og blaðamennsku. Ég tók það því ekki allt of hátíðlega þegar framkvæmdastjóri Sements verksmiðju ríkisins sagði mér, er ég kom upp á Akranes fyrir skemmstu og bað leyfis að fá að skoða verksmiðjuna, að slíkt yrði engum leyft fyrr en hún yrði vígð laugardaginn 14. júní nk. Að sönnu hafði ég ofurlítið samvizku bit þegar ég drakk hið vel úti látna morgunkaffi í glæsilegum matsal verksmiðjunnar í boði dr. Jóns Vestdals. En lögmálið verð- ur að vera: Eitt í einu. Fyrst nær- ingin í hungraðan blaðamanns- maga, þá framkvæmdir og síðast samvizkubitið. Ég kvaddi því hinn vingjarn- lega framkvæmdastjóra og hélt út í sólskinið. Á aðalhliðinu stóð skýrum stöfum „Óviðkomandi bannaður aðgangur“. Hugsa sér allt þetta sólskin og myndavél- ina reiðubúna. Ég hélt inn með sjónum. Akraborgin átti ekki að fara fyrr en eftir rúma 3 klukKU tíma. Þegar ég vax kominn inn fyrir hina miklu hrauka af skelja sandi, sem liggja mnan við grjót garðinn austan verksmiðjunnar var allt samvizkubit á brott. Hér var heldur ekkert hlið sem mein aði óviðkomandi aðgang. Ég hélt því yfir hinn gula sand og beindi myndavélinni að því, sem fyrir augun bar. Sumt birtist hér á síð- unni með þessum fáu orðum. Annað neyddist umbrotsmeistar- inn til að leggja til hliðar. Ég rölti yfir gulan sandinn og nálgaðist mesta mannvirki okk- ar íslendinga. Samvizkubiðið bærði aðeins á sér þegar ég sá hinn gráhræða, myndarlega dokt or nálgast í fylgd tveggja manna. Þeir voru sýnilega að skoða sand inn. Síðan hélt ég nokkuð úr- leiðis að verksmiðjunni. Hæsti reykháfur landsins lenti á film- unni og síðan ýmsir hlutai bygg- ingarinnnar eftir þvi sem ég nálg aðist meir. Trekt full af sandi, er notuð er til blöndunar skeljasahd inum fékk sömu meðferð pg turn inn, og með fylgdu einn hinna fjögurra leðjuturna, færibandið, sem flytur hráefnið inn í kvarn- irnar og lengst til vinstri risa- veggur geymsluhússins. Fjöldi manna vann allt í kringum mtg, þeir tóku saman uppsláttartimb- ur, slógu upp á nýjum stöðum. Verkið er sýnilega ekki nema hálfkarað, en samt er svona stutt til vigslunnar. En hvað um það. Þar sem ég nú stóð, var auð fjara fyrir aðeins tveimur árum síðan. Hér er á þessum tíma búið að reisa byggingar fyrir tugi milljóna króna. Ég hélt áfram inn í þessa húsaborg. Þar hitti ég gamlan kunningja að norðan. Ég hef hann grunaðan um að vera einhver yfirmaður þarna og nú bjóst ég við vin- gjarnlegri brottvísun.Ekkert slikt skeði. Hann gaf- mér hins vegar nokkrar góðar upplýsingar og ég greip upp gamalt víxileyðublað og krotaði niður. Við vorum staddir í fleytingunni, þar sem saman er malaður skeljasandur og líparít og er það hefur verið blandað vökva, kemur það sem leðja í þrær, en úr þeim er svoleðj unni dælt í leðjugeymana og það- an í brennsluofninn. Enn á ný fer efnið í lageriiúsið þ. e. geymsluhúsið stóra, en síðan í sementskvörnina og þar er það blandað gipsi og þá er sementið til og því blásið út í sements- geyminn, sem er stór turn vest- astur steinbygginganna. Skrið- mótin voru enn efst á honum svo ég veit ekki nema hann eigi enn eftir að hækka. f fleytingunni er fyrirhugað að vinna fleira en leðjuna í sementið, því búizt er við að afgangur verði þar af kalki úr skeljasandinum og mun það verða notað til áburðar- vinnslu. Nú .xegar búið er uð vinna all- mikið af leðju og voru þrær í fleytingunni fullar af henni. Byrjað verður svo að brenna sementið, þegar búið er að leggja rafleiðsluna fyrir — . alfjörð, en ennþá er ekkj nægi' :ga mikið rafmagn til þess að -ægt sé að hefja vinnslu af fullum krafti. Ég þakkaðí vini mínum fyrir góða hjálp og hélt á brott. Yfirlitsmynd Frá vinstri: Sem- entsgeymsluturn, lagerhús, fleyt- ing og færiband, leðjuturnar og lengst til hægri hæsta bygging á íslandi, skorsteinninn. Næst efst til vinstri: Sandtrckt in í forgrunni. Lcngst til vinstri er lagerhús. Þá fleyting með færi bandi og Ioks einn af leðjuturn- unum. Til hægri: Hinn mikli skor- steinn. Neðst til hægri: í fleytingunni. Hluti af sandkvörn með tilheyr- andi aflvélum. Handriðið er í kringum leðjuþróna. v. . Stærsta iðjuver á Isiandi verftur vígt um næsiu helgi — Stolizt með myndavél um mannvirkin —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.