Morgunblaðið - 08.06.1958, Síða 10
10
MORCVNBL 4 ÐIÐ
P’innudagur S. juní 1958
Fólk
Vart mun annar skalli vera
frægari í heiminum en skalli
kvikmyndaleikarans Vul Brynn-
ers, enda leggja
j (jósmyndarar
| höfuðáherzlu á
| að ná góðum
jjmyndum af þess-
íum víðfræga,
Igljáfægða skalla.
I — Nýjasta kvik-
1 mynd Yul Brynn
ers er Karama-
sov-bræðirnir,
gerð eftir skáldsögu Dostojev-
skys. Þessi kvikmynd MGM var
sýnd á alþjóðakvikmyndahátíð
inni í Cannes. Yul Brynner fer
með hlutverk Dimitri Karamasov
en Grouchenska er leikin af
Maríu Schell.
Rithöfundurinn Georges Sim-
enon telur sig vera afkastamesta
rithöfund í heiminum. Þetta er
sennilega alveg rétt, því að hann
semur að jafnaði 28 skáldsögur
á ári — sem sé rúmlega tvær
skáldsögur á
mánuði. Fyrir
skömmu benti
vinur hans hon
um á, að hann
muni ekki eiga
metið.
• — Veiztu
það, að spánski
rithöfundur.
inn Lope de
Vega samdi á
50 árum 1,737 leikrit eða um þrjú
á mánuði? spurði vinur Simen-
ons.
— Þetta get ég ekki látið við-
gangast, sagði Simenon og tottaði
pípuna sína hugsandi. Augljóst
er, að ég verða að herða mig.
> . ■
Sophia Loren sá Grétu Garbo
nýlega í lyftu í húsi nokkru í
New York. — Hún var með hræði
lega snjáðan hatt á höfðinu og
stór, dökk sólgleraugu. Ég held,
að hún hljóti að nota þessi gler
augu, af því að annars mundi eng
inn kannast við hana“, sagði
ítalska kvikmyndaleikkonan.
rfííBÍ
- SaSte
Miss Unverse-keppninni.
— Ykkur áskotnast mikið af
gjöfum í keppninni þarna vestra,
er það ekki?, spurði blaðamaður
nokkur dönsku fegurðardrottn-
inguna.
— Jú, við fáum allar ósviknar
perlur. Það verður indælt því að
perlur eru beztu vinir hverrar
túlku.
— Beztu vinir? Eruð þér viss-
ar um pað?
— Jæja, nei, ég á reyndar unn-
usta, leikarann Cl&us Pagh. En
hann fær ekki að fara með, svo
að ég verð aö hugga mig við
perlúrnar!
Leikkonan Aiexandra Jablotj-
kina er sögð vera auðugasta kona
Rússlands. Hún er níræð að aldri
og leikur enn af kappi, t. d. fer
hún nú með hlutverk í leikriti,
sem verið er að sýna í einu þekkt
asta leikhúsi Moskvu. Alexandra
mun hafa leikið um 400 hlutverk
um ævina. Alexandra er dóttir
Alexanders Jablotjkin, sem var
í fréttunum
kunnur leikari á sínum tíma. Er
hann dó, lét hann dóttur sinni
eftir höll í Moskvu og mikla fjár-
muni. Hún ávaxtaði fé sitt svo
vel, að hún er nú talin vera ein
hver ríkasta kona í Rússlandi og
þótt víðar væri leitað. 1 höll sinni
á hún stærsta listasafn í einka-
eign í Moskvu. En hún lét sér
ekki nægja að vera aðeins auðug
kona. Hún fetaði x fótspor föður
síns. Fyrir starfsemi sína í þágu
leiklistarinnar hefur hún verið
sæmd fjölmörgum heiðursmerkj-
um, t. d. á hún fjórar Leninorður.
Yvonne de Gaulle, kona hers-
höfðingjans, sem nú ræður lög-
um og lofum í Frakklandi, var
ekki, eins og ætla mætti, að halda
ræðu, þegar myndin hér að ofan
var tekin. Öðru nær. Hún kvað
vera hlédræg kona og lítið brifm
af blaðaljósmyndurum. En þeir
komu aðvífandi. Hún reyndj að
verja sig með handtöskunni og
hendinni, en enginn má við
margnum. Ljósopum myndavél-
anna var beint að henni úr öllum
áttum.
Sl. ár varð Bruno Walter að af-
lýsa öllum hljómleikum, sem
hann hafði ætlað að stjórna bæði
í New York og Evrópu, þar senx
hann fékk snert af heilablóðfalli.
Þessi aldraði hljómsveitarstjóri
hefir því ekki mátt spila opin-
berlega um langt skeið. Nú hef-
ur frétzt, að Bruno Walter eigi
að stjórna hljómleikunum á Van-
couvertónlistarhátíðinni, sem
hefst 19. júlí nk. Myndin er af
Bruno Walter á heimili hans í
Kaliforníu.
Evy Nordlund hefur verið
kjörin fegurðardrottning Dan-
merkur og fer nú til Langa Sands
í Kaliforníu til að taka þátt í
FORD
LEYFISHAFAR oo VÆMTAIMLEGIR
LEYFISHAFAK, ATHUGIÐ, að
Ford Consul
eftirsóttustu bifreiðarnar í dag eru frá Ford-verksmiðj-
unum í Englandi og Vestur-ÞyzKalandi. Notiiin Anglia,
Prefect, Consul, Zephyr, Zodiac, og Tauuus eru á allra
vörum.
Leitið nánari upplýsinga á skrifstofum
vorum:
FORD-umboðið:
Kr. Kristiánsson hf.
Lau&aveg itio—11U, Snm X44ol>.