Morgunblaðið - 22.06.1958, Síða 1
20 síðuK
45. ái*gangur 138. tbl. — Sunnudagur 22. júní 1958 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gríska stjórnin á
bandi Makariosar
AÞENU, 21. júní — 1 morgun var
brezka sendiherranum í Aþenu
afhent bréf frá gríska forsætis-
ráðherranum til Macmillans. —
Fullvíst er. talið, að í þessu bréfi
geri forsætisráðherrann grein
fyrir afstöðu Grikkja til hinna
Soraya komin
úr vesturför
LONDON — Soraya er nú komin
úr Bandaríkjaförinni — og þar
með virðist loku fyrir það skot-
ið, að þau Iranskeisari taki aft-
ur saman. Keisarinn dvelst sér
til hvíldar og hressingar á Hawai
og ekki var talið ólíklegt, að þau
hefðu í hyggju að hittast meðan
Soraya dveldist í Bandaríkjunum.
Samkv. írönskum lögum geta
keisari og drottning hans fyrir-
hafnarlaust tekið saman á ný ef
þau hittast innan 100 daga frá
skilnaði. En 100. dagurinn frá
skilnaði þeirra er hinn 22. þ. m.
(í dag) svo að nú þykir séð að
þau hittast ekki, úr því að Soraya
hélt frá Bandaríkjunum, heim til
foreldra sinna í Þýzkalandi án
þess að fundum þeirra hefði bor-
ið saman vestra. Keisarinn og
Soraya hafa búið saman í sjö ár
án þess að drottning hafi alið
manni sínum barn. Sá orðrómur
komst á kreik meðan Soraya var
vestra, að hún hefði gengizt undir
smáuppskurð, sem gerði henni
kleift að ala barn — og þá var
talið, að endurfundir þeírra
keisarans stæðu fyrir dyrum.
Belgiski flug-
maðurinn laus
BERLÍN 21. júní — A-þýzka
stjórnin lét í dag lausan belgísk-
an orrustuflugmann, sem neydd-
ur var til þess að lenda í A-
Þýzkalandi fyrir Iöngu, er hann
villtist af leið á flugi frá Belgíu
til Danmerkur. A-þýzka stjórmn
lætur á sér skilja, að Bandaríkja-
menn geti leyst úr haldi níu flug-
menn, sem villtust á þyrilvængju
að a þýzku landamærunum og
voru neyddir til þess að lenda
þar fyrir skemmstu. Bandaríkja-
menn hafa árangurslaust reynt
að fá Rússa til þess að leysa
mennina úr haldi, en eru tregir
til að ræða við a-þýzku stjórn-
ina þar eð óbein viðurkenn-
ing á stjórninni fælist í beinum
viðræðum.
nýju tillagna Breta um framtíð-
arstjórn Kýpur. Haft er eftir
áreiðanlegum heimildum, að
gríska stjórnin sé í einu og öllu
á bandi Makariosar og hafni til-
lögunum.
Makarios ritaði Foot, lands-
stjóra á Kýpur, bréf í gær þar
sem hann kvaðst ekki mundu
fallast á sameiginlega yfirstjórn
Breta, Grikkja og Tyrkja á Kýp-
ur. Hins vegar kvaðst hann fylgj-
andi því, að fulltrúar Kýpurbúa
ræddu við fulltrúa brezku stjórn-
arinnar um framtíðarstjórn Kýp-
ur, en brezka stjórnin hefur
skýrt svo frá, að hin nýja áætlun
hennar verði framkvæmd, hvað
sem hver segir — og til þess að
sýna einhug sinn hafa Bretar
flutt mikinn liðsafla til Kýpur.
Túnis og Marokko
'tyðja uppreisnar-
f s ' v** ' Sfi ' Aí ' < ,
^nn
LONDON, 21. júní — Sjórnir
Túnis og Marokkós hafa lýst
því yfir, að bæði ríkin styðji
þá kröfu uppreisnarmanna í
Alsír um að Alsír og Frakk-
land verði aldrei skoðuð sem
ein heikl. Var tilkynning
þessi gefin út að loknum
fundi fulltrúa beggja ríkj-
anna, sem fram fór í Túnis.
Segir og í yfirlýsingunni, að
Alsírdeilan verði aldrei leyst
á viðunandi hátt fyrr en stofn
að hafi verið sjálfstætt og
fullvalda ríki Afríkumanna i
Alsír. Að því marki verð'i unn
ið með öllum friðsamlegum til
tækum ráðum. Að lokum er
það sögð skoðun stjórna
i beggja ríkjanna, að tilgangs-
Iaust sé að setja á fót útlaga-
stjórn uppreisnarmanna í
Alsír.
Hollenzka flutningaskipið Tjibantjet lenti í september sl. ár í fellibyl rétt við höfnina í Hong-
kong. Kastaðist skipið upp að klettóttri ströndinni við höfnina og sat þar fast. Nú fyrir skömmu
tókst að losa skipið, sem er 8,240 lestir, og var það dregið inn í sjálfa höfnina. Þetta hefur tekið
langan tíma, en aftur á móti mun það taka aðeins hálfan mánuð að gera við þær skemmdir, er
urðu á skipinu.
I.ýsa fyrirlitningu á
framferði kommúnista
LONDON, 21. júní — Ungverja-
landsncfnd Sameinuðu þjóðanna
kemur nú saman til þess að ræða
að hvaða gagni nefndin megi
helzt koma hvað viðvíkur nýaf-
stöðnwm aftökum Nagy og félaga
hans í Ungverjalandi.
í höfuðborgum víða um Evrópu
hefur fjöldi fólks látið í ljós
andúð sina og fyrirlitningu á
starfsháttum kommúnista.
1 París gengu stúdentar fylktu
liði að sigurboganum og lögðu
blómsveig á minnisvarða óþekkta
hermannsins til minningar um
ungversku frelsishetjurnar. Lög-
regla hefti för skarans að rúss-
neska sendiráðinu.
1 Bonn grýttu stúdentar og
Fimm ár hjá þrœlahöldur-
Kína
um i
HONG KONG, 21. júní. — Tveir
kaþólskir prestar, Bandaríkja-
menn, komu hingað í dag, er þeir
voru látnir lausir af kínverskum
kommúnistum. Prestarnir, sem
eru 65 ára og 51 árs, haia setið
í fangelsi kommúnista í fimm ár
og hlotið hina verstu meðferð.
Voru þeir fölir sem lík og ekkcrt
annað en skinin bein, eins og
fréttamenn komust að orði.
Sagðist þeim svo frá, að þeir
hefðu verið leiddir fyrir leyni-
legan dómstól strax eftir hand-
tökuna — og réttarhöld hefðu
staðið nær óslitið í heilt ár. ,,Við
vorum sakaðir um alla þá glæpi,
sem hægt er að fremja — allt
undir sólinni. En við vissum að
þetta voru allt falsréttarhöld og
það skipti engu máli hvort við
játuðum eða neituðum — dóm-
urinn varð sá sami, hann er á-
kveðinn fyrirfram"
ungverskir flóttamenn rússn-
eska sendiráðið, brutu rúður og
unnu önnur smávægileg spjöll.
Lögreglan dreifði hópnum með
kylftum.
I Aþenu og mörgum öðrum
borgum hefur sama saga gerzt.
Svíar sýndu hug
sinn
STOKKHÓLMI — Er Ungverjar
léku við Wales í heimsmeistara
keppninni í knattspyrnu í Stokk-
hólmi voru aðeins viðstaddir
600—700 áhorfendur, en leik-
vangurinn tekur 50,000. Svíar
sóttu ekki leik Ungverjanna til
þess að mótmæla aftökunum í
Ungverjalandi. Meðan leikurinn
fór fram stóðu allmargir leik-
menn úr júgóslavneska landslið-
inu aftan við ungverska markið
og báru fána með sorgarborðum
til minningar um hina myrtu föð-
urlandsvini Ungverjalands.
Listkynning Mbl.
BÓKAÚTGÁFAN Helgafell opn-
ar næstu daga nýja deild í fyrir-
tækinu, málverkadejld, og verða
þar seld málverk ýmissa lista-
manna. Mun fyrirtækið opna sýn-
ingu í Listamannaskálanura
næstu daga til að kynna þessa
nýju starfsemi. En fyrirhugað
mun að lána fólki myndirnar í
nokkra mánuði til að kynnast
þeim, en gefa því síðar kost á
að eignast þær með afborgunum,
ef það kærir sig um. Allmikið af
myndum er komið í skálann, en
þeim hefir ekki verið komið fyrir
á veggjunum og því ekki unnt að
segja frá sýningunni fyrr en síð-
ar.
Listkynning Morgunblaðsins
fékk hins vegar lánaðar nokkrar
myndir af handahófi, sem verða
til sýnis í sýningarglugga þess
meðan sýningin í Listamanna-
skálanum stendur.
Myndirnar eru eftir þessa mál.
ara: Þorvald Skúlason, Veturliða
Gunnarsson, Braga Ásgeirsson,
Krisíj' "'avíðsson, NínuTryggva
dóttur og Kan »n.
Hammarskjöld stríðir
í ströngu
Reynt að sprengja
forsetabústaðinn
skjöld flugleiðis til Jerúsalem
til þess að heimsækja aðalstöðvar
S. þ. þar. Síðan mun hann halda
til Amman til viðræðna við Huss-
ein konung til þess að reyna að
jafna deilur Jórdana og ísraels-
Víkingaskipinu miðar vel
OSLO, 21. júní. — Sem kunnugt
er sigldu sjö norskir „víkmgar"
fyrir skemmstu áleiðis til New
York á einu víkingaskipanna,
sem Kirk Douglas notaði við gerð
víkingakvikmyndarinnar í Nor-
egi í fyrra. Er þetta að mestu
gert í auglýsingaskyni fyrir kvix
myndina. Hreppti víkingaskipið
vont veður á hluta leiðarinnar, en
samt hefur ferðin gengið mun
betur en ætlað var — og hefur
skipið nú tekið íand í Nýfundna-
landi — og er lagt upp í síðasta
áfangann, til New York. í skeyti,
sem barst til Oslo í morgun frá
„víkingaskipstjóranum“ gerir
hann ráð fyrir að koma til New
York á miðvikudaginn, eða fjór-
um dögum áður en gert hafði
verið ráð fyrir, ef allt gengi klakk
laust. Mun skipstjórinn fá álitleg
verðlaun, ef svo vel tekst til, því
að Kirk Douglas hafði heitið hon_
um 5.000 dollurum, ef hann næði
landi í New York þann 28. júní
— og þúsund dollurum að auki
fyrir hvern dag, sem hann yrði
skemur á leiðinni. Frumsýning
víkingamyndarinnar fer fram í
New York í þessum mánuði.
Prestarnir sögðust hafa hlotið
illa meðferð, enda bar útlit þeirra
vott um það að þeir höfðu orðið
að þola líkamlegar pyndingar.
□--------------□
Hitabylgja
NÝJU DELHI, 21. júní. — Mikil
hitabylgja hefur að undanförnu
gengið yfir Indland — og yfiv
600 manns hafa látið lifið í hit-
unum.
P--------------□
BEIRUT, 21. júní. —- Hammar-
skjöld hefur í morgun átt tai við
líbönsk stjórnarvöld og ráð-
gjafa sína og kynnt sér ákærur
Líbanonstjórnar á hendur Sýr-
lendingum og ákærurök. Samkv.
áreiðanlegum heimildum hefur
Hammarskjöld tjáð sig mjög and
vígan því að Líbanonstjórn leit-
aði aðstoðar Breta og Bandaríkja
manna til þess að berja uppreisn-
ina niður. Hann mun vera þeirrar
skoðunar, að fela berj gæzluliði
S. þ. að annast gæzlu á landa-
mærunum við Sýrland. Líbanon-
stjórn hefur nú hafið nýja her-
ferð gegn uppreisnarmönnum og
her og lögregla hafa nandtekið
fjölmarga þeirra í morgun
Um hádegisbilið hélt riammar-
manna. Ekki er talið loku fyrir
það skotið að hann fari til Kario
seinnihluta dags á morgun og
ræðj við Nasser — og komi síðan
aftur til Beirut á mánudag eða
þriðjudag.
★
Tímasprengja sprakk í morgun
tæplega 100 metra frá aðsetri for-
seta Líbanons. Bifreið gjöreyði-
lagðist og rúður brotnuðu i for-
setabústaðnum. Stendur forseta-
bústaðurinn í halla — og þykir
sýnt, að uppreisnarmenn hafi lát-
ið umgetna bifreið renna stjórn-
lausa niður hallann, x áttina að
bústaðnum, en í bifreiðinni hafi
þeir falið tímasprengju, sem hef-
ur sprungið fyrr en uppreisnar-
mennirnif ætluðust til.