Morgunblaðið - 22.06.1958, Síða 4

Morgunblaðið - 22.06.1958, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. júní 1958 í dag er 173. dagur ársins. Sunnudagur 22. júní. Árdegisflæði kl. 9.52. Síðlegisflæði kl 22.10. Slysavarðstofa Beykjavíkur í Heilsuverndarstöðinni er opin all an sólarhringinn. LæknaVörður L. R. (fyrir vitjanir) er á sama stað, frá kl. 18—8. — Sími 15030. Helgidagsvarzla er i Lyfjabúð- inni Iðunni sími 17911. Helgi- dagslæknir er Árni Guðmunds- son. Næturvarzla vikuna 22. til 28. júní er í Ingólfs apóteki sími 11330. Holts-apólek og Garðsapótek eru opir á sunnudögum kl. 1—4. Hafnarfjarðar-apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. 9—16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 Helgidagslæknir í Hafnarfirði er Kristján Jóhannesson. Keflavíkur-apótek er opið alla virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16. Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9 er opið daglega kl. 9—20. nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kL 13—16. — Simi 23100. EH^Messur Eliiheimilið. Messa kl. 10 ár- degis. Sr. Sigurbjörn Á. Gísla- son. * AF M Æ Ll <■ Gullbrúðkaup eiga í dag frú Anna Bjarnadóttir og Jörgen Björnsson, fyrrum bóndi, Vita- stíg 17. Silfurbrúðkaup eiga í dag Ebba Jónsdóttir og Engilbert Guð- mundsson, tannlæknir. (5?^ Brúökaup í dag verða gefin saman í hjónaband í Eiríksstaðakirkju ungfrú KapítólaJóhannsdóttirfrá Neskaupstað og Hákon Aðal- steinsson Vaðbrekku, Jökuldal. Séra Einar Þór Þorsteinsson, prestur að Kirkjubæ framkvæm ir hjónavígsluna. Skipin Eimskipafélag Reykjavíkur hf. Katla er væntanleg til Rvíkur annað kvöld. Askja er í Reykja- vík. Skipadeild SÍS.: Hvassafell er á Vestfjörðum. Arnarfell fór frá Þorlákshöfn 20. þ.m. Jökulfell fór frá Hull 19. þ.m. Dísarfell er á Blönduósi. Litlafell losar á Aust ur- og Norðurlandshöfnum. Helgafell er í Hull. Hamrafell er á leið til Rvíkur. gg Flugvélar Loftleiðir hf.: Hekla er vænt- anleg kl. 08.15 frá New York. Fer kl. 09.45 til Oslóar og Staf- angurs. Edda er væntanleg kl. 19.00 frá Hamborg, Kaupmanna- höfn og Osló. Fer kl. 20.30 til New York. Flugfélag fslands hf.: Hrím- faxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08:00 í dag. — Væntanlegur aftur til Reykja- víkur kl. 22:45 í kvöld. Gullfaxi er væntanlegur til Rvíkur kl. 16:50 í dag frá Ham- borg, Kaupmannahöfn og Oslo. Flugvélin fer til Lundúna kl. 10:00 í fyrramálið. Innanlandsflug: í dag er áætl- að að fljúga til Akureyrar (2 ferð ir) Húsavíkur, ísafjarðar, Siglu- fjarðar og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (3 ferðir), Bíldudals, Egilsstaða, Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kópa- skers, Patreksfjarðar og Vest- mannaeyja. Ymislegí Orð lífsins: Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns, en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði, því að af gnægð hjartans mælir munnur hans. Lúk. 6,45. ★ Telpur, sem eiga að fara í Skátaskólann 24. júní mæti í Skátaheimilinu kl. 2 sama dag. Skólagjald greiðist við brottför. Leiðrétting. — í frétt af þjóð- hátíðarhöldum á Akranesi, var sagt að fjallkonan hefði verið klædd í upphlut. Þetta var rang- hermi. Hún var í skautbúningi. Barnaheimilið Vorboðinn. — Farangur barnanna, sem eiga að vera í Rauðhólum í sumar, á að koma mánudaginn 23. kl. 9.30 í portið við Austurbæjarbarnaskól ann. Börnin eiga að fara þriðju- daginn 24. kl. 1,30 frá sama stað. Bréfaskipti. — Liv Kristian- sen, Lundegardsv. 43, Lande pr. Sarpsborg, Norge, óskar eftir bréfaskiptum við íslenzka stúlku 13—14 ára, sem kann norsku. J§|Aheit&samskot Sólheimadrengurinn, afh. Mbl. Frá Ollu 50; NN 150; Lísa og börn 50. Aheit á Strandarkirkju, afh. Mbl.: AGH 300; KG 25; LT-55 30; Unnur 100; áheit frá ónefndum 100; NN 30; áh. Jónína Einarsd. Ve. 50; frá ónefndum 100; SB 100; NN 100; Aðalbjörg 50; JG 10; HP 10; JG 30; KH 20; frá Vamba 20; GÓ 25 ;GÓ 25; Snerrir 100; SA 200; ES 100; áheit Jósef 100. Læknar fjarverandi: Brynjúlfur Dagsson héraðsl. í Kópavogi frá 16. júní ti! 10. júlí. Staðgengill: Ragnhildur Ingi- bergsdóttir, Kópavogsbraut 19 (heimasími 14885). Viðtalstími í Kópavogsapóteki kl. 3—4 e.h. Eíríkur Björnsson, Hafnarfirði um óákveðinn tíma. Staðgengill: Kristján Jóhannesson. Eyþór Gunnarsson 20. júní— 24. júlí. Staðgengill: Victor Gests son. Hulda Sveinsson fr' 18. júní til 18. júli. Stg.: Guðjón Guðnason, HverfisgJtu 50, viðtalst. kl. 3,30—4,30. Sími 15730 og 16209. Jonas Sveinsson til 31. júlí. — Staðgengjll: Gunnai Benjamins- son. Viðtalstimi kl 4—5. Karl S. Jónasson frá 20. júni til 2. júlí. Staðgengill: Ólafur Helgason. Jón Þorsteinsson frá 18. júní Nýr bíll Norðurleiðar Akureyri. NÝLEGA kom hingað til bæjar- ins ný bifreið á vegum Norður- leiðar hf. og var blaðamönnum og fleiri gestum boðið að skoða hana. Gafst þeim kostur á að til 14. júlí. Staðgengill: Tryggvi Þorsteinsson. Ófeigur Ófeigsson frá 11. júní til 22. júní. — Staðgengill: Gunn- ar Benjamínsson. Richard Thors frá 12. júní til 15. júlí. Víkingur H. Arnórsson frá 9. júní til mánaðamóta. Staðgengill: Axel Blöndal, Aðalstr. 8. Njarðvík — Keflavík. Guðjón Klemensson 18. júní til 6. júlí. — Staðgengill: Kjartan Ólafsson. • Gengið • Gullverð Isl. krónu: 100 gulikr. = 738,95 pappírskr. Sölugengj 1 Sterlingspund .... kr. 45,70 1 Bandarikjadollar..— 16,32 1 Kanadadollar .... — 16,96 100 danskar kr. ...... — 236,30 100 norskar kr.......— 228,50 100 sænskar kr.......— 315,50 100 finnsk mörk .... — 5,10 1000 franskir frankar .. — 38,86 100 belgiskir frankar.. — 32,90 100 svissn. frankar .. — 376,00 100 tékkneskar kr. .. — 226,6? 100 vestur-þýzk mörk — 391,30 1000 Lírur .................— 26,02 100 Gyllini ..............— 431,10 Hvað kostar undir bréfin. 1- -20 grömm. Sjópóstur til utianda ......... 1,75 Innanbæiar ................... 1.50 Út á land..................... 1,75 Banuaríkin — Flugpóstur: i— & gr 3.45 S—10 gi 3,15 1(P -15 gx 3.85 15—20 gi 1.5f Evrúpa — Plugpostur: DanmörJt ......... 2,55 Noregur .......... 2,55 Sviþjóð .......... 2,55 Finnland ........ 3.00 ÞýzKaland ....... 3.00 Bretland ......... 2,45 Fraitkiand ...... 3.00 írlana ........... 2.65 ítalia ........... 3,25 Luxemburg ....... 3,00 Maita ............ 3.25 Holland .......... 3,00 Póliand .......... 3,25 Portugai ........ 3.50 Spánn ............ 3.25 Rúmenla .......... 3.25 Sviss ............ 3,00 Buigarla ......... 3,25 Belgia ........... 3.00 Jugóslavía ....... 3,25 Tékkóslóvakla .... 3.00 aka í bifreiðinni austur á Vaðla- heiði en þar var staðið við nokkra stund og mönnum skýrt frá gerð og gæðum bifreiðarinnar. Hún er af Mercedes-Benz gerð og tekur 33 farþega 1 sæti. Sætin eru sérstaklega gerð með það fyrir augum að fólk geti sofið í þeim, því vagninn er ætlaður sem næturvagn, en slíkar ferðir hafa notið vinsælda á undanförnum árum. Þessi bifreið hefir það fram yfir fyrri svefnvagna að hún er á gormum að framan í stað fjaðra. Er hún því muh þýðari enda sáralítill munur á mýkt hennar og venjulegra fólksbif- reiða. Aflvélin er aftast í bif- reiðinni og er hávaði frá henni mjög lítill. Grind er sett þannig saman að höggpúðar úr gúmmí eru á samskeytum, einnig á sam skeytum yfirbyggingar og grind- ar og dregur það úr titringi á yfirbyggingu. Öryggisútbúnaður er með fullkomnasta hætti sem nú þekkist og hátalarakerfi er um bifreiðina. Hitakerfið er ný- stárlegt og hitar alla bifreiðina jafnt. Fulllestuð vegur þessi bif- reið sama og fyrri svefnvagnar Norðurleiðar þ. e. um 9 tonn, en eldri bifreiðirnar vega það tóm- ar. Vélin er 120 ha. dieselvél, og mun eyða sem svarar 23—25 lítrum á hverja 100 km. Hingað kominn kostar bíllinn um 400 þús. kr. Það var Skarphéðinn Eyvinds- son, sem hafði orð fyrir þeim Norðurleiðamönnum og lýsti bif- reiðinni. Auk hans tóku nokkrir gestanna til máls og árnuðu Norðurleið heilla með hinn nýja vagn. vig. Vörusala Verzlunarfélags v.-Skaftf. um 10 millj. kr. AÐALFUNDUR Verzlunarfélags Vestur-Skaftfellinga, var hald- inn í Vík laugardaginn 7. júní s.l. Varaformaður félagsins, Bjarni Bjarnason, hreppsstjóri í Hörgs- dal, setti fundinn og stjórnaði honum. Fundinn sátu auk stjórnar og framkvæmdastjóra, endurskoð- endur, 25 fulltrúar frá 7 félags- deildum og maigir gestir víðs vegar að úr héraðinu. Framkvæmdastjórinn, Ragnar Jónsson, flutti skýi-slu um hag félagsins og rekstur þess á síðast- liðnu ári. Vörusala þess var tæpar 10 millj. króna og hafði aukizt um tæpl. 1,7 millj. frá árinu áður. Útistandandi skuldir hækkuðu ekki á árinu, en innstæður í inn- lánsdeild og reikningum hækk- uðu um kr. 700 þús. Samþykkt var að greiða 5% arð af ágóða- skyldri vöruúttekt félagsmanna, og leggja upphæðina í stofnsjóð. Úr stjórninni áttu að ganga, Páll Pálsson, Litlu-Heiði og Ás- geir Pálsson, Frarnnesi. Voru þeir báðir endurkjörnir. Sr. Jónas Gíslason í Vík, var endur- kjörinn endurskoðandi. Miklar umræður urðu á fund- inum, áðallega um samgöngumál Vestur-Skaftfellinga og búnaðar mál. Aðalfundurinn skoraði á vega- málastjóra og ríkisstjórn að end- urbyggja brúna á Hóimsá í Skaft ártugu þar sem hún er mjög úr FLRDIMAND Samræmd þjónusta L sér gengin og að heita má ófær öllum stórum bifreiðum, enda byggð fyrir hestvagna í upphafi. Fundurinn þakkaði þingmarini Vestur-Skaftfellinga fyrir fram- göngu hans í því að fá rannsakað hafnarstæði við Dyrhólaey, og skoraði jafnframt á stjórn vita- og hafnarmála, að Iáta nt þegar skera úr því ,hvort kleift muni að gera þar höfn. Þá mótmælti fundurinn harð- lega þeim aðgerðum búnaðar- þings s.l. vetur þar sem það leggur til að hækka til helminga búnaðarmálasjóðsgjaldið og leggja 5 króna skatt á hvern áburðarpoka, sem keyptur er frá Áburðarverksmiðjunni í Gufu- nesi. Þessu taldi fundurinn að búnaðarþing gæti ekki ráðið nema í samráði við bændafélög um land allt. Á fundinum var kosin nefnd til þess að semja tillögur um fram- leiðslu og verðlagsmál. Nefndin skilaði eftirfarandi ályktun: 1. Fundurinn mótmælir harð- lega þeim gífurlegu hækkunum, sem í vændum eru á rekstrar- vörum landbúnaðarins, svo sem áburði, kjarnfóðri, benzíni og landbúnaðarvélum. 2. Fundurinn lítur svo á, að hlutur bænda hafi verið mun lakari en annarra stétta undan- farin ár, og telur að ýmsir liðir í verðlagsgrundvellinum þurfi leiðréttingar við. Jafnframt krefst fundurinn þess af stéttar- sambandi bænda, að það sjái um, að fullt tillit verði tekið til hækk unar á rekstrarvörum landbún- aðarins þegar verðlagsgrund- völlurinn verður saminn í haust. 3. Fundurinn skorar á fram- leiðsluráð landbúnaðarins, að það hagi verðlagningu afurðanna þannig, að hún verði til þess að örva framleiðslu þeirra afurða, sem seljanlegastar eru á hverjum tíma. Verzlunarfélag Vestur-Skaft- fellinga er 7 ára gamalt. Formað ur þess hefur frá upphaíi verið, Björn Runólfsson, fyrrv. hrepps- stjóri í Holti á Síðu, en hann, varð áttræður 11. þ.m. Fram- kvæmdastjóri þess hefur einnig verið frá upphafi, Ragnar Jóns- son frá Hellu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.