Morgunblaðið - 03.07.1958, Qupperneq 4
4
MORGVHBT.ABIO
Fimmfudagur 3. júlí 1958
í dag er 184. dagur ársins.
Fimmtudagur 3. júlí.
Árdeigsflæði kl. 7,43.
Síðdegisflæði kl. 20,03.
Slysavarðstofa Reykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinn' er opin all
tn sólarhringinn.. Læknavörður
L, R. (fyrir vitjanir) er á saxna
stað, frá kl. 18—8. — Sími 15030.
Næturvarzla vikuna 29. júní til
5. júlí er í Laugarvegsapóteki
súni 24047.
Holts-apótek og Carðsapótek
eru opir á sunnudögum kL 1—4.
Hafnarfjarðar-apótek er opíð alla
virka daga kL 9—21. Laugardaga kl
9—16 og 19—21. Helgidaga kL 13—16
Næturlæknir í Hafnarfirði er
Ólafur Einarsson.
Keflavikur-apótek er opið alla
virka daga fcL 9—19, laugardaga kl
9—16. Helgidaga kL 13—16.
Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, rrema
laugardaga kL 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
Hjónaefni
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Auðuns
ungfrú Guðrún Kristjánsdóttir
Hoffmann og Hrigur Hermóðsson.
Heimili þeirra verður að Skipa-
sundi 58.
WS Skipin
Eimskipafélag Islands h.f.. —
Dettifoss er í Reykjavík. Fjallfoss
fór frá Hamborg í gær. Goðafoss
fer frá New York um 9. þ.m.
Gullfoss er í Reykjavík. Lagar-
foss fer frá Warnemúnde í dag.
Reyjafoss er í Reykjavík. Trölla-
fo3S fór frá New York 26. þ.m.
Tungufoss fór frá Rotterdam 1.
þ.m.
Skipaútgerð ríkisins. — Hekla
er í Reykjavík. Esja er í Reykja-
vík. Herðubreið kom til Reykja-
víkur árdegis í dag frá Austfjörð
um. Skjaldbreið er í Reykjavík.
Þyrill er í Reykjavík. Skaftfell-
ingur fer frá Reykjavík í dag.
Eimskipafélag R-víkur h.f.: —
Katla er í Reykjavík. Askja er í
Reykjavík.
Skipadeild S.I.S.: — Hvassa-
fell er í Reykjavík. Arnarfell fór
frá Leningrad 1. þ.m. Jökulfell er
í Reykjavík. Dísarfell væntanlegt
til Gautaborgar á morgun. Litla-
fell losar á Norðurlandshöfnum.
Helgafell er í Reykjavík. Hamra-
fell er í Reykjavík.
Flugvélar
Flugfélag íslands. Millilanda-
flug: Hrímfaxi fer til Óslóar,
Kaupmannahafnar og Hamborgar
kl. 8.00 í dag. Væntanlegur aftur
til Reykjavíkur kl. 22.45 í kvöld.
Flugvélin fer til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 8.00 í fyrra
málið. Gullfaxi fer til Lundúna kl.
10.00 í dag. Væ»tanlegur aftur til
Reykjavíkur kl. 21.00 á morgun.
Innanlandsflug: 1 dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar (3 ferðir),
Egilsstaða, ísafjarðar, Kópaskers,
Patreksfjarðar, Sauðárkróks og
Vestmannaeyja (2 ferðir). — Á
morgun er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar (3 ferðir), Egilsstaða,
Fagurhólsmýrar, Flateyrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar, Isa-
f jarðar, Kirkjubæjarkiausturs, |
Vestmannaeyja (2 ferðir) og
Þingeyrar.
Loftleiðir h.f.: — Edda er vænt
anleg kl. 08.15 frá New York.
Fer kl. 09.45 til Oslóar, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar.
Saga er væntanleg kl. 19.00 frá
Stafangri og Osló. Fer kl. 20.30
til New York.
J*.
Félagsstörf
Aðulfundur Ekknasjóðs Reykja-
víkur verður haldinn í K.F.U.M.
húsinu föstudagskvöld kl. 8,30.
Ymislegt
Mæðrafclagiu efnir til skemmti-
ferðar n.k. sunnudag 6. júlí. Þátt
taka tilkynnist fyrir fimmtudags
kvöld í síma 32783 og 17808.
Telpur, sem hafa verið í 1.
dvalarflokki í Skátaskólanum að
Úlfljótsvatni koma í bæinn
mánud. 7. júlí kl. 5 að Skátaheim-
ilinu. Telpur, sem eiga að fara í
2. dvalarflokk, mæti við Skáta-
heimilið þriðjud. 8. júM kl. 2.
Gjald kr. '25 á viku greiðist við
brottför.
Bæjarbíó 1 Hafnarfirðl sýnir um þessar mundir ítölsku stór-
myndina „Attila“, sem gerð er í Iitum. — Aðalhlutverkin
leika Anthony Quinn og Sophia Loren.
Fyrstu númer, sem dregin voru
út í ökuhappdrætti Bifreiðastöðv-
ar Keflavíkur eru þessi: 2409,
3000, 3812, 25598 og 28215. Næst
verður dregið 25. júlí.
Hvað kostar undir bréfin.
ínnanbæjar .... 20 gr. kr. 2.00
Innanl. og til útl.
(sjóleiðis) .... 20 — — 2.25
Flugb. til Norðurl.,
Norð-vestur og 20 — — 3.50
Mið-Evrópu 40 — — 6.10
Flugb. til Suður- 20 — — 4.00
og A-Evrópu 40 — — 7.10
Flugbréf til landa 5 — — 3.30
utan Evrópu 10 — — 4.35
15-------5.40
20-------6.45
Ath. Peninga má ekki sénda í
almennum 'oréfum.
Læknar fjarverandl:
Alfreð Gíslason frá 24. júní til
5. ágúst. Staðgengill: Árni Guð-
mundsson.
Alma Þórarinsson. frá 23. júní
til 1. september. Staðgengill:
Guðjón Guðnason Hverfisgötu 50.
Viðtalstími 3,30—4,30. Sími 15730.
Bergsveinn Ólafsson frá 3. júlí
til 12. ágúst. Staðgengill: Skúli
Thoroddsen.
Bergþór Smári frá 22. júní til 27.
júlí. Staðgengill: Arinbjörn Kol-
beinsson.
Bjarni Bjarnason til 15. ágúst.
— Stg.: Árni Guðmundsson.
Snorri Hallgrímsson til 31. júl.
Björn Guðbrandsson frá 23.
júní til 11. ágúst. Staðgengill:
Guðmundur Benediktsson.
Brynjúlfur Dagsson héraðsl. í
Kópavogi frá 16. júní t'! 10. júlí.
Staðgengill: Ragnhildur Ingi-
beigsdóttir, Kópavogsbraut 19
(heimasími 14885). Viðtalstími í
Kópavogsapóteki kl. 3—4 e.h.
Eggert Steinþórsson frá 2.
júlí til 20. júlí. Staðgengill:
Kristján Þorvarðarson.
Eyþór Gunnarsson 20. júní—
2«. júlí. Staðgengill: Victor Gests
son.
Grímur Magnússon frá 3. júlí
til 6. júlí. Staðgengill: Jóhannes
Björnsson.
Gunnar Benjamínsson frá 2.
júlí. Staðgengill Ófeigur Ófeigs-
son. Viðtalstími kl. 4—5.
Gunnlaugur Snædal frá 23.
júní til 3. júlí. Staðgengill:
Tryggvi Þoríteinsson, Vestur-
bæjarapóteki.
1 Halldór Hansen frá 3. júlí til
ca. 14. ágúst. StaðgengUl: Karl
Sig. Jónsson.
Hulda Sveinsson fr' 18. júní til
18. júlí. Stg.: Guðjón Guðnason,
Hverfisgótu 50, viðtalst. kl.
3,30—4,30. Sími 15730 og 16209.
Jónas Sveinsson frá 2. júlí Stað
gengill: Ófeigur Ófeigsson. Við-
talstími kl. 4—5.
Jón Þorsteinsson frá 18. júní
til 14. júli. Staðgengill: Tryggvi
Þorsteinsson.
Oddur Ólafsson til júlíloka.
Staðgengill: Árni Guðmunds-
son.
Richard Thors frá 12. júní til
15. júlí.
Stefán Ólafsson til júlíloka. —
Staðgengill: Ólafur Þorsteinsson.
Tómas Á. Jónasson frá 23. júní
til 6. júlí. Staðgengill: Guðjón
Guðnason, Hverfisgötu 50 (sími
15730 og heimas. 16209.
Valtýr Albertsson frá 2. júlí
til ca. 6. ágúst. Staðgengill:
Jón Hjaltalín Gunlaugsson.
Njarðvík — Keflavík.
Guðjón Klemensson 18. júni til
6. júlí. — Staðgengill: Kjartan
Ólafsson.
Árbæjarsafnið er opið kl. 14—18
alla daga nema mánudaga.
NáttúrugripasafniSi — Opið a
sunnudögum kL 13,30—15 þriðju-
dogum og fimmtudögum lcl. 14—15
Listasafn Einars Jónssonar, —
Hnitbjörgum, er opið daglega frá
kl. 1,30 til kl. 3,30 síðdegis.
ÞjóSminjasafnið er opið sunnu
daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtu
daga og laugardaga kl. 1—3.
Bæjarbókasafn Reykjavikur,
sími 1-23-08:
Aðalsafnið Þingholtsstræti 29A.
Útlánadeild: Opið alla virka
daga kl. 14—22, nema laugardaga
13—16. — Lesstofa: Opið aila
virka daga kl. 10—12 og 13—22,
nema laugardaga kl. 10—12 og
13—16.
Útibúið Hólmgarði 34. Útlánad.
fyrir fullorðna: Opið mánudaga
kl. 17—21, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 17—19. Útlánad. fyrlr
brrn: Opið mánudaga, miðviku-
daga og föstudaga kl. 17—19.
Útihúið Hofsvallagötu 16. Út-
lárad. fyrir börn og fullorðna:
Opið alla virka iaga, nema laug-
ardaga, kl. 18—19.
Útibúið Efstasundi 26. Útlánad.
fyrir börn og fullorðna: Opið
mánudaga, miðvikudaga og föstu
daga kl. 17—19.
Þjóðlelkhúsið er opið til sýnis
þriðjudaga og föstudaga kl. 11 til
12 árdegis. Inngangur um aðal-
dyr.
• Gengið •
Gullverð IsL krónu:
100 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Sölugengi
1 Sterlingspund .... kr. 45,70
1 Bandaríkjadollar..— 16.32
1 Kanadadollar .... — 16,96
100 danskar kr........— 236,30
100 norskar kr........— 228,50
100 sænskar kr...............— 315,50
100 finnsk mörk .... — 5,10
1000 franskir frankar .. — 38,86
100 belgiskir frankar..— 32,90
100 svissn. frankar .. — 376.00
100 tékkneskar kr. .. — 226,67
100 vestur-þýzk mörk — 391,30
1000 Lírur .............— 26.02
100 Gyllini ...........— 431.10
Fimmtugur í dag:
jr
Olafur Jónsson Alfsnesi
ÞAÐ ER á fjórða tug ára síðan
ég, sem þessar línur rita, skyldi
halda áfram ferð minni frá
Reykjavik heim um Álfsnes í
ákveðnum erindum og tók það
ráð, að fara á mótorbát sjóleiðina.
Er mér enn mjög minnisstæð
þessi stutta sjóferð milli eyjanna
í Kollafirði inn með Þerney, er
ég sá heim að Álfsnesi af sjó,
hve búsældarlegt þar var. Þótt-
ist ég strax merkja að þar drypi
smjör af hverju strái. Og friðsam’t
var þar, þyí fuglalíf var þar mik-
ið og fjölskrúðugt. Er heim kom,
var þar fyrir mannmargt heimili,
myndarlegt og góðlegt fólk, er
:tók mér með alúð og gestrisni.
■ Síðan hefur Álfsnes jörðin og
fólkið þar verið mér kært.
Nú býr í Álfsnesi Ólafur Jóns-
son bóndi og kona hans Berta
Björnsdóttir með börnum sínum
6 að tölu og vil ég það sama
segja um þessa fjölskyldu, að öll
sambúð við þau heima og utan
heimilis hefur verið hin bezta og
ánægjuleg — við alla þá, sem
þau þekkja.
Ólafur er fæddur í Reykjavík,
foreldrar hans voru hjónin Jón
Magnússon frá Miðhúsum í Bisk-
upstungum, dugnaðar- og at-
hafnamaður og kona hans Rakel
Ólafsdóttir frá Hábæ í Þykkva-
bæ.sem er komin af góðri og
merkri. bændaætt á Suðurlandi.
Ólafur vandist allri algengri
vinnu á landi og sjó. Hann var
í siglingum í nokkur ár og kom
þá víða við á ferðum sínum og
veitti þá ýmsu eftixtekt. Þau
hjónin giftu sig á Patreksfirði og
dvöldu þar 6 ár, en til Reykjavík-
ur fluttu þau 1936 og. bjuggu þar,
þar til þau fluttu að Alfsnesi
1951.
Berta Björnsdóttir kona Ólafs,
er Svarfdælingur áð ætt, hin
bezta kona og dugmikil, sem er
manni sinum mjög samhent og
umhyggjusöm móðir barna sinna.
Ólafur hefur almenningsorð
fyrir glaðværð, frjálslega og
drengilega framkomu. Mun hann
eiga margt góðra vina og enga
óvildarmenn og lýsir það mann-
inum vel.
Ólafur Jónsson er 50 ára í dag
og munu margir góðkunningjar
hans sækja hann heim og votta
honum vinsemd og þakklæti fyr-
ir farinn veg.
Ólafur Jónsson keypti jörðina
Álfsnes árið 1951. Hann hefur rek
ið þar fjölbreytilegan búrekstur
og er hjá honum eitt af stærstu
búunum í Kjalarneshreppi.
í sveitum landsins hefur verið
haldið áfram miklum fram-
kvæmdum í ræktun landsins og
byggingu góðra húsa fyrir fólkið
og búpeninginn.
Til þessara framkvæmda hefur
verið vandað mjög og meir en
áður fyrr, sem er að þakka fjöl-
breytilegri tækni mannsandans
og meiri lánsmöguleikum, þótt
ýmsu sé áfátt enn í þeim málum.
Ólafur hefur ræktað stórt land
og aukið þar með stórlega töðu-
fenginn. Þá hefur hann endur-
hyggt íbúðarhúsið og peningshús
og meðal annars byggt góð fjár-
hús fyrir 220 fjár og heyturn
svo nokkuð sé nefnt.
Allar þessar byggingar og rækt
un eru vel gerðar og lofa verk
bóndans, sem ber að geta hér
um. Búsmali Ólafs er margur og
afurðagóður og er öll meðferð og
hirðing hans í bezta lagi.
Þar sem hér er aðeins um 50
ára afmæli að ræða og afmælis-
barnið virðist bera þetta hálfrar
aldar afmæli mjög léttilega, —
beinn í baki, ungur í anda og létt-
ur í spori, þá er ekki ástæða til
að orðlengja þetta afmælisrabb
mitt — og enda ég því með inni-
legri hamingjuósk afmælisbarn-
inu til handa og konu hans og
börnum.
O. B.
FERDINAMD
Bílstjórinn
lék á Ferdinand
Lœknar- og
snyrtidomur
höfum til sölu bekk með fær-
anlegu baki, hentugt fyrir
lækna- og snyrtistofur, og
einnig höfum við handsnyrti-
borð. Selst mjög ódýrt.
HÚSGAGNASALAN
j Barónsstíg 3. — Sími 34087.
BEZT AÐ AUGL'ÍSA (
I MORGUNBLAÐIMJ
2-24-80