Morgunblaðið - 12.08.1958, Blaðsíða 14
14
MORCVNBLAÐ 1 Ð
Þriðjudagur 12. ágúst 1958
Eisenhower Bandaríkjaforseti sæmir skipstjórann á Nautilus
heiðursmerki fyrir afrek það, er hann vann ásamt áhöfn kaf-
bátsins á dögunum. Eins og kunnugt er sigldi kafbáturinn frá
Kyrrahafi til Atlantshafs undir ísbreiðuna við Norðurskautið.
Skipstjórinn, W.R. Anderson, er 37 ára gamall.
Nautilus kemur til
* Englands í dag
Ætla að neyða Chamoun
til að láta af embœtti
Chamoun og Chehab rœða um skipun
sendinefndar Líbanons til aukafundar
Allsherjarþingsins
LUNDÚNUM, 11. ágúst — Reuter
— Skipstjórinn á bandaríska kaf-
bátnum Nautilus kom í dag til
Lundúna, og kafbáturinn sjálfur
kemur til Portland í Englandi á
morgun úr sinni sögulegu sigl-
ingu frá Kyrrahafi til Atlants-
hafs undir ísbreiðuna á norður-
skautinu. Eins og þegar hefir
verið skýrt frá var skipstjórinn
fluttur í þyrlu frá kafbátnum
undan ströndum íslands til Kefla
víkur, en þaðan fór hann flug-
leiðis til Washington.
Anderson sagði fréttamönnum
í dag, að hann teldi það ómögu-
legt fyrir venjulega kafbáta að
sigla 1.830 mílur undir ísbreið-
unni, en eins og kunnugt er, er
Nautilus stærsti kjarnorkuknúni
kafbáturinn, sem Bandaríkja-
menn eiga.
Kvað Anderson það vera skoð-
un sína, að miklar líkur væru á
því, að í framtíðinni yrði olía
flutt með kafbátum frá Kyrra-
Fyrsla minknum
r
banað í Arnes-
hreppi á Slröndum
FYRIR nokkru fóru þær Ester
Magnúsdóttir, Djúpavík, Ingi-
björg Guðmundsdóttir, Reykja-
firði og Herdís Árnadóttir s. st.,
ríðandi norður í Trékyllisvík. Er
konurnar voru komnar út að
svokölluðu Vallnesi, sem tilheyr-
ir Reykjafjarðarlandi, sáu þær
dýr í fjörunni, sem þær báru
ekki kennsl á. Fóru þær af baki
og eltust við dýrið, sem reyndist
vera minkur. Flúði minkurinn
undir stein. Konurnar tóku þá
það ráð, að tvær fóru heim í
Reykjafjörð, að sækja Kjartan
Guðmundsson bónda til að ráða
niðurlögum hins skaðiega dýrs.
Komu Kjartan og konurnar eft-
ir um það bil klukkustund og
var Kjartan með byssu og hund
með sér. Byrjaði þá orrustan og
voru þau öll í vígahug. Konurn-
ar tóku rekaviðarspýtur og hugð-
ust lyfta steininum, sem minkur-
inn lá undir. Eftir nokkuvn tíma
skauzt minkurinn undan steinin-
um og skaut Kjartan hann sam-
stundis. Þetta er í fyrsta skipti,
sem minkur sézt hér í Árnes-
hreppi. —Regína.
hafsströnd Bandaríkjanna undir
ísbreiðuna á norðurskautinu til
Evrópu, en til slíks væri að-
eins hægt að nota kjarnorku-
knúna kafbáta.
★ ★ ★
Anderson gat þess við blaða-
menn, að því virtust engin tak-
mörk sett, hversu stóra kafbáta
væri hægt að smiða. Skipstjórinn
mun fara um borð í kafbátinn, áð
ur en hann kemur til Portland.
Tekið verður á móti Nautilus
með mikilli viðhöfn, er kafbátur-
inn kemur til Portland á morgun.
PARÍS. — Smám saman er nú að
skýrast forsaga þess ósamkomu-
lags milli Moskvu og Peking
olli því að sovézki for-
sætisráðherrann Nikita Krú-
sjeff fór í skyndi í heimsókn til
Peking og tók þar sinnaskiptum
í sambandi við tillögurnar um
ríkisleiðtogafund innan Öryggis-
ráðsins, segir í fréttaskeyti frá
AFP, sem kveðst hafa upplýsing-
ar sínar eftir traustum heimild-
um í París.
Samkvæmt þessum heimiidum
kvað Krúsjeff hafa sagt stjórnar-
erindreka nokkrum í Moskvu,
eftir að hann kom heim frá
Austur-Þýzkalandi 12. júlí s.l., að
hann hefði ekki í hyggju að fara
í heimsókn til Peking.
Sagði hann, að Kínverjar gætu
ekki skilið sjónarmið Rússa í
ýmsum vandamálum. Kín-
verja skortir þá reynslu, sem
Rússar hafa aflað sér á stjórn-
málasviðinu undanfarin 40 ár, og
þeir hafa ekki áhuga á ýmsum
alþjóðavandamálum, sem skipta
máli fyrir Rússa, á Krúsjeff að
hafa bætt við.
★ ★ ★
En skömmu síðar kom kín-
verski sendiherrann í Moskvu,
Liu Hsiao, í heimsókn tii sovézka
forsætisráðherrans og sagði hon
um, að það hefði mælzt illa fyrir
í Kína, hversu óðfús Krúsjeff
væri til að setjast að samninga-
borðinu með fulltrúa þjóðernis-
sinnastjórnarinnar á Formósu í
Öryggisráði S.Þ.
Gaf sendiherrann í skyn, að
persónulegar viðræður Krúsjeffs
og Mao Tse-tungs myndu vera
BEIRUT, 11. ágúst. — NTB —-
Reuter. — Líbanonstjórn hóf í
dag að gera ýmsar öryggisráð-
stafánir, eftir að leiðtogar stjórn-
arandstöðunnar höfðu í morgun
rætt áform um að neyða Cham-
oun forseta til að láta af embætti,
áður en kjörtímabil hans er á
enda 23. sept. nk. Eftir að fréttir
bárust af fundi þessum sendi
stjórnin herdeildir á vettvang, er
tóku sér stöðu víða um borgina.
Vörður var settur við alla vegi,
sem liggja inn í borgina, og öll
farartæki, sem þessar leiðir fara,
eru nákvæmlega rannsökuð.
Chamoun forseti ræddi í morg-
un við eftirmann sinn Chehab
hershöfðingja og Malik utanríkis
ráðherra um það, hvernig skipuð
skyldi sendinefnd Líbanons á
aukafund Allsherjarþings S. þ.,
sem hefst á miðvikudag (morg-
un).
í fréttaskeytum segir, að tillögu
Hammarskjölds aðalritara S. þ.,
um lausn vandamálanna í Mið-
austurlöndum sé kuldalega tekið
af stjórnarandstöðunni í Líbarxon.
Gerði Hammarskjöld grein fyrir
tillögu sinni á fundi Allsherjar- [
þingsins sl. föstudagskvöld. Aðal-
atriðin í tillögu hans voru þessi:
1. Sérstakar ráðstafanir yrðu
gerðar til að skapa öryggi í Jór-
daníu, í þessu sambandi yrði ef
til vill aukið eftirlit S. þ. i ísrael.
2. Arabalöndin staðfestu regl-
urnar um gagnkvæma virðingu
og hétu því að gera ekki árásir.
Með þessu yrði komið í veg fyrir
óbeinar árásir og undirróður.
3. Þau ríki, sem framleiða
olíu, og þau ríki, sem olíu-
leiðslur liggja um, hefðu með
sér samvinnu. 4. Álíka sam-
vinna yrði höfð um nýtingu vatns
á þessum svæðum. Lagði Hamm-
arskjöld til, að settar yrðu á stofn
sérstakar stofnanir til að hafa
yfirumsjón með slíkri samvinnu.
mjög gagnlegar. Ekki mun sendi
herrann hafa beinlínis krafizt
þess, að Krúsjeff færi í heim-
sókn til Peking. En upp úr þessu
breyttist afstaða Krúsjeff til rík-
isleiðtogafundar innan Öryggis-
ráðsins. Og er hann kom frá Pe-
king, hafði hann alveg- lagt á hill-
una tillöguna um ríkisleiðtoga-
fund innan Öryggisráðsins.
Ágreiningsefni Kínverja og
Rússa kváðu vera fleiri, t.d. hafi
Kínverjar verið mjög óánægðir
yfir því, að þeim skyldi ekki boð
in þátttaka í Tundi kjarnorku-
fræðinganna í Genf, en þangað
var fulltrúum Póverja, Tékka
og Rúmena boðið. Einnig telji
Kínverjar, að Rússar hafi ekki
veitt þeim nægilega aðstoð á
sviði kjarnorkumála, og dragi
þeir það í efa, að Rússar vilji í
raun og veru, að Kínverj-
um verði gert kleift að fram-
lefða kjarnorkusprengjur.
★ ★ ★
Fréttamenn eru sammála um,
að kínverska stjórnin hafi nú
komið því til leiðar, að hún verði
áhrifameiri á alþjóðavettvangi.
I Sennilegast þykir, að kommún-
istar muni nú sækja það fast, að
Mao fái að vera með, ef stór-
veldafundur yrði haldinn. Bent
er á í þessu sambandi, að í síð-
asta bréfi sínu til ríkisleiðtoga
Vesturveldanna leggur Krúsjeff
áherzlu á, að á slíkum fundi
yrði framar öllu unnið að því að
bæta ástandið í alþjóðamálum.
Þessi yfirlýsing verður mikilvæg
í ljósi þess, að bæði í Moskvu og
Peking er því nú haldið fram,
að „ný styrjaldarógnum sé nú í
uppsiglingu vegna aukins árásar-
undirbúnings á Formósu".
5. Aukin yrði tæknileg og efna-
hagsleg aðstoð við löndin þar
austur frá undir umsjá S. þ., og
yrði í þessu sambandi lögð höfuð-
áherzla á efnahagssamvinnu.
Telur stjórnarandstaðan í Líb-
anon litla bót að þessum tillög-
um.
Talið er, að Chamoun og Che-
hab muni skipa a. m. k. einn full-
trúa stjórnarandstöðunnar í sendi
nefndina til S. þ. til þess að koroa
í veg fyrir, að tvær sendinefndir,
sem keppa hver við aðra, komi
frá Líbanon til New York. Tveir
áhrifamiklir leiðtogar stjórnar-
andstöðunnar tilkynntu í dag, að
þeir ætli að sækja aukafundinn.
JÓHANN Víglundsson, fanginn.
sem oft hefur komið við sögu
vegna stroks, strauk í fyrrakvöld
enn á ný frá vinnuhælinu á Litia-
Hrauni. Komst hann til Reykja-
víkur, en var handtekinn þar í
gærmorgun.
Skipti um klefa á laugardag
Jóhann var fluttur til Reykja-
víkur um miðjan júlí vegna
óspekta, en var fljótlega sendur
austur aftur. Var hann hafður í
einangrunarklefa í kjallara hæl-
isins, enda var hann ódæll • í
fyrstu. Helgi Vigfússon, yfir-
fangavörður, skýrði Mbl. svo frá
í gær, að hann hefði gert hávaða
'um nætur, en ógerlegt væri að
koma í veg fyrir, að hljóð úr ein-
angrunarklefunum bærust til
annarra vistarvera í húsinu. Jó-
hann bætti þó hegðun sína, er frá
leið, og sl. laugardag var hann
fluttur í kléfa sinn á 2. hæð í
hælinu.
Lokaði fangaverði inni
Á sunnudagskvöldið voru klef-
ar að venju opnaðir til að fang-
arnir gætu ræst þá og snyrt
sjálfa sig. Tveir fangaverðir litu
eftir mönnunum á efstu hæðinni,
stóð annar þeirra yfir Jóhanni,
en hinn yfir fanga, sem hafði
verið ódæll. Síðarnefndi fanga-
vörðurinn kallaði á þann, sem
Jóhanni sinnti, sér til hjólpar,
og notaði Jóhann þá tækifærið
til að strjúka. Komst hann um
dyr, sem eru í ganginum á þess-
ari hæð, og skellti hurðinni þar
í lás, svo að fangaverðirnir voru
lokaðir inni. Síðan braut hann
upp hurð inn í varðstofuna, en
henni var lokað með klinku. I
varðstofunni tók Jóhann verk-
færi, sem hann notaði til að
brjótast út um aðaldyr vinnu-
hælisins. Komst hann síðan auð-
veldlega út fyrir girðingu þess,
tók reiðhjól, sem þar var, og
lagði af stað. Skömmu síðar mun
hann hafa komizt í bil og farið
með honum til Reykjavíkur.
I gærmorgun var hann síðan
handtekinn I veitingastofu í mið-
bænum, þar sem hann ætlaði að
fá sér morgunkaffi. Ekki var bú-
ið að senda Jóhann aftur austur
í gærkvöldi, þar sem rannsaka
þurfti framferði hans i Reykja-
vík í fyrrinótt.
Hefur strokið sjö sinnum
Þetta mun vera í sjöunda sinn,
sem Jónann strýkur. Hann
strauk tvívegis úr hegningarhús-
inu í Reykjavík á sl. ári, úr
Landakotsspítala strauk hann í
vetur og fjórum sinnum hefur
han komizt af Litla-Hrauni. —
Hann kom upphaflega í hegn-
ingarhúsið frá Akureyri til að
afplána 6 mánaða dóm, en síðanl
hafa verið kveðnir upp tveir dóm I
Hin ákafa andstaða uppreisnar
manna gegn utanríkisráðherran-
um Malik kvað hafa valdið mest-
um erfiðleikum við skipun nefnd
arinnar. Ef fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar fengju sæti í nefndinni.
mundu þeir ef til vill fallast á,
að Malik yrði skipaður í nefnd-
ina. Uppreisnarmenn telja Malik
standa að baki ákærunum um
erlenda íhlutun í Líbanon, og
telja hann hafa átt mestan þátt
í því, að bandarískar hersveitir
voru kallaðar á vettvang. For-
ingi uppreisnarmanna í Beirut,
Saeb Salam, sagði í dag, að engin
Líbanonbúi gæti tekið sæti í
nefnd, sem Malik væri formað-
ur í.
★
Dómsmálaráðherrann í stjórn
Sami Solhs hefir nú sagt af sér,
og hefir Solh ájálfur tekið við
embætti hans. Gegnir Solh nú
fjórum ráðherraembættum, em-
bætti forsætisráðherra, innan-
ríkisráðherra, varnarmálaráð-
herra og dómsmálaráðherra.
ar vegna framferðis hans, þegar
hann hefur strokið. Hefur hann
með þeim verið dæmdur í 28
mánaða fangelsi.
Helgi Vigfússon tók fram, að
hann teldi háttalag Jóhanns sjúk
legt og hann hefði óskað eftir, að
fanginn yrði tekinn til geðheilsu-
rannsóknar.
— Má ég segja
Framh. af bls. 9
að taka við, og þarf ekki að vera
feimið né deigt í kröfum.
„Hinar hungruðu þjóðir Evrópu
kaupa fiskinn fyrir hvaða verð,
sem upp er sett“, sagði Einar Ol-
geirsson 1945. En það hlálega
skeði, að hungruðu Evrópuþjóð-
irnar vildu heldur brauð og
smjör. Nú er orðin offramleiðsla
á landbúnaðarvörum hérlendis.
Hvernig fer nú fyrir afdalabænd-
unum, sem versta hafa aðstöðuna,
þegar kaupgeta alþýðu minnkar
enn stórkostlega, vegna bjargráð-
anna og fjárausturs og sukks
ríkisstjórnarinnar? Ekki þýðir að
senda landbúnaðarvörur á erlend
an markað. Þær eru þar ekki sam
keppnisfærar.
Tý reyndist það hættulegt, að
leggja höndina í gin úlfsins, eft-
ir því ,sem goðafræðin segir.
Hvað myndi þá, ef þjóðin leggur
höfuð sitt í þann hættulega stað?
En svo mun fara, ef við snúum
baki við þeim þjóðum, sem í raun
eru vinir okkar, þó einstaklingar
þeirra láti ófriðlega.
Það er gott að vera stórlát-
ur, en þó með gát. A. m. k. má
stórlætið ekki ganga svo langt, að
þjóðinni sé ekki sagt á hverju hún
hefur átt kost.
Við teljum okkur réttarríki,
og að lög eigi að ráða. Er ekki
eðlilegast, að Alþjóðadómstóllinn
í Haag skeri úr, að hve miklu
leyti einhliða ákvörðun okkar sé
lög, þegar því er haldið fram, að
réttur annarra þjóða sé þar í
vegi. Þetta ætti alþýðan að at-
huga. Það kemur hvort sem er á
hennar bak, að bera þau mis-
tök, sem kunna að vera gerð.
Talað er um, að undirstöðuat-
vinnuvegirnir, sem afkoma þjóð-
arinnar hvílir á, séu einungis
landbúnaður og fiskveiðar. Þetta
er misskilningur. Báðir þessir at-
vinnuvegir eru mjög takmarkað-
ir. Það er iðnaður, sem einn bezt
er fær um að veita vaxandi fólks-
fjölda uppeldi, og þá fyrst og
fremst stóriðnaður. Þar höfum
við góða aðstöðu. En til þess að
koma upp stóriðnaði þarf erlent
fjármagn. Það er áreiðanlega til
reiðu, ef eftir því er leitað á rétt-
an hátt.
Reykjavík, 1. ágúst 1958.
Hannes Jónsson.
Mao segir Krúsjeff fyrir
verkum
Jóhann Víglundsson
sfrýkur í sjöunda skipti
Komst trá Litla-Hrauni í fyrrakvöld, var
handtekinn í Reykjavík í gœrmargun