Morgunblaðið - 20.08.1958, Blaðsíða 3
Miðvikudaeur 20. ðeúst 1958
MOR CVNfíL 4Ðlfí
9
Gyltan með grísi sína.
Myndirnar hér á síðunni eru
teknar síðastliðinn sunnudag á
Landbúnaðarsýningunni á Sel
fossi, en ]>á sóttu 6000 manns sýn-
lnguna. Hér sjáum við m. a. gyltu
]>ar sem hún liggur og mókir í
hitanum með grísina sína. Við
sjáum einnig tvær úrvalskýr. Þá
getur að líta stafla af afurðum
Sláturfélags SuðurTands, bæði
dósamat og pakkaða vöru í ís-
skán.
Síðan hverfum við aTlTangt aft
Það er margra stunda verk að
skoða þessa sýningu svo að full-
um notum komi og marga mun
fýsa að koma þangað oftar en
einu sinni. Á sunnudaginn var
erfitt fyrir gesti að njóta sýning-
arinnar, vegna þess hve fólks-
meraðin var mikii. f upnhafi var
ákveðið að sýningunni lyki á
miðvikudagskvöld, en vegna þess,
hve aðsókn er mikil var ákveðið
í gær að framlengja sýninguna
um einn dag — til fimmtudags-
kvölds.
Auðvitað voru einnig sýndir lifandi gripir. Hér getur að líta
tvær kostakýr, sem á sýningunni voru. Auk þeirra voru m. a.
sýndir hestar, kindur, hænsni og svín.
ur í tímann og skoðum hinn
fagra skautbúning, sem sýndur
er innan um fagurlega ofin teppi
frá gömlum tíma.
Ekki má svo gleyma tækni nú-
tímans. Við sjáum Fordson Major
dráttarvél, sem beitt hefur verið
fyrir Lundell sláttutætara.
Þetta eru þó aðeins svipmynd-
Ir af hinni miklu sýningu, þar
sem gífurlegan fjölda hluta ber
fyrir augu, bæði lifandi og
dauða.
Afurðasýning Sláturfélags Suðurlands.
f^gri skautbúnlngur.
Fordson Major dráttarvél og Lundell sláttutætarl.
STAKSTtliVAH
Þióðviljinn
rvf"r llöornina
Moskvuferð Lúðvíks Jósefs-
sonar og ummæli hans í Kaup-
mannahöfn á keimleið þaðan hafa
að undanförnu verið talin til
stórfrétta í blöðum víðs vegar,
t. d. á Norðurlöndum. Ekkert ís-
lenzku stiórnarblaðanna hefur hó
minnzt á förina fyrr en Þjóð-
viljinn rýfnr þögnina í gær og
segir í smífrétt:
„Lúðvík Jósefsson sjávarút-
vegsmálaráðhcrra kominn heim.
Lúðvík Jósefsson sjávarútvegs-
málaráðherra og frú hans komu
hingað heim í gærkvöldi frá
Kaupmannahöfn, en þar dvöldu
þau síðustu dagana af ferðalagi
sínu. Fyrst dvöldu þau í Austur-
Þýzkalandi en síðan í Tékkóslóva
kíu og loks nokkra daga í Sovét-
ríkjunum".
Hvorki Tíminn né Alþýðublað-
ið segja hins ves’ar enn einu orði
frá ferðni^gi Lúðvíks eða helm-
komu hans.
se»v> T Yiðvík neitar,
f*”"1 r»ú f»*am
Sjálfur hefur Lúðvík neitað þrl
í Kaupmannahöfn, að hann hafl
„minnzt á landhelgismálið” í
Moskvu. Trúi því hver sem trúa
vill.
Hitt er víst, að Lúðvík hefur
ekki fylgzt glögglega með því,
sem gerzt hefur innan ríkis-
stjórnarinnar og liðs hennar f
landhelgismálinu undanfarnar
vikur. Þjóðviljinn hefur þetta
eftir Lúðviki í Kamnmannahöfn:
„Lúðvík sagði að íslendmgar
hefðu ekki getað fallizt á tillög-
ur um viðræður við þau ríki
Vestur-Evrónu, sem eiga beinan
hlut að málí. þar eð þeir hefðu
ekki getað átt von á nokkrum
stuðningi við sjónarmið sín á
slíkri ráðstefnu“.
Og Lúðvík bætti þessu við:
„Atlantshafsbandalagið kemur
hér alls ekki við sögu“.
En í Tímanum sl. sunnudag
segir:
„Af fulltrúum fslands er nú
kappsamlega unnið áð því að
afla málinu skilnings og "iður-
kenningar annarra þjóða. Alveg
sérstaklega vinnur fulltrúi okkar
hjá NATO að þessu máli og ræðir
um það við fulltrúa annara banda
lagsríkja okkar þar“.
f þessum orðum er Iýst hinu
saina og áður hefur komið fram
í Alþýðublaðinu og fullyrt er þar
síðast í gær, að fastafulltrúinn i
Atlantshaf«ráðinu fari í þessu að
öllu *eftir fyrirmælum utanríkls-
ráðherra.
..Ef A^lc>»«tsTipfs:T»an(Ia'
^ripi ekki
í t9>imana“
Enn hefur Þjóðviljinn eftir
Lúðvík:
„Veiði brezk fiskiskip innan
hinna nýju 12 mílna takmarka
undir vernd herskipa eftir 1. sept
ember mun á það litið sem árás
á ísland“.
Jafnframt þessu hefur Þjóðvilj-
inn þó eftir ráðherranum:
„Síðan sagði hann að ísland
myndi ekki leita á náðir Atlants-
hafsbandalagsins, ef Bretland
gerði alvöru úr hótunum sínum
um vopnaða aðstoð við togara að
veiðum innan 12 míina takmark-
anna eftir 1. september“.
Alveg gagnstætt þessu segir
Tíminn sl. sunnudag:
„Ef Atlantshafsbandalagið gripi
ekki í taumana og hindraði þetta
ofbeldi, myndi það koma áþreif-
anlega í ljós, að allt tal um hinn
háleita tilgang þess sem verndara
smáþjóða, væri hjóm eitt“.