Morgunblaðið - 20.08.1958, Blaðsíða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
MiðvíVudagur 20. ágúst 1958
Utg.: H.l. Arvakur, Reykjavfk.
Framkvæmdastióri: Sigí'ús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Steíánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola. simi 33045
Auglýsmgar: Arni Garðar Knstinsson.
Ritstjórn: Aðalstrætj 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480
Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innariiands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
TAUMLAUS VERÐBÓLGA
OG DÝRTIÐ
EGAR vinstri stjórnin var
mynduð var það eitt aðal
fyrirheit hennar að dýrtíð
og verðbólgu skyldi útrýmt.
Vandamál efnahagslífsins skyldu
leyst að „nýjum leiðum" og
„varanlegum úrræðum".
Efndir þessa loforðs hafa fólg-
izt í því, að á fyrsta misseri valda
sinna lagði vinstri stjórnin um
300 millj. kr. nýja skatta og tolla
á almenning. Þessar nýju álögur
voru notaðar til þess að halda
uppi styrkja- og uppbótakerfi til
stuðnings framleiðslunni, sem
komin var á heljarþröm vegna
ábyrgðarlausrar baráttu komm-
únista gegn þeirri jafnvægis-
stefnu, sem fyrrverandi ríkis-
stjórnir höfðu beitt sér fyrir.
En þessi bráðabirgðaúrræði
vinstri stjórnarinnar hrukku
Skammt til þess að halda dýr-
tíðinni í skefjum og fram-
leiðslutækjunum í gangi. Hin-
ar nýju álögur bitnuðu á
marga lund á almenningi en
tekjurnar af þeim nægðu eng-
an veginn til þess að greiða
hailarekstur framleiðslunnar.
Ætla mætti að vinstri stjórnin
hefði nú loks talið tímabært að
sýna hin „varanlegu úrræði“ sín
í efnahagsmálunum. En svo reynd
ist þó ekki. Stjórnin lagði fram
tillögur sínar um ráðstafanir til
stuðnings framleiðslunni sl. vor
án þess að í þeim örlaði á nokk-
urri nýrri leið eða varanlegu úr-
ræði. Hún' hélt aðeins áfram að
vaða lengra út í styrkjafenið.
Enn voru lagðir á hrikalegir ný-
ir skattar og tollar og dulbúin
gengislækkun framkvæmd.
10 stiga
vísitöluhækkun
Áhrif „bjargráða" vinstri
stjórnarinnar frá sl. vori eru nú
sem óðast að koma fram. Verðlag
á almennum nauðsynjum og
rekstrarvörum og tækjum at-
vinnuveganna hefur hækkað stór
kostlega. Framfærsluvísitalan,
sem var 192 stig 1. maí er nú
komin upp í 202 stig. Hún hefur
með öðrum orðum hækkað um
10 stig yfir rúmlega hálft sum-
arið. Kaupgreiðsluvísitalan er
hins vegar 183 stig. Er það í sam-
ræmi við ákvæði „bjargráða“-
laganna, því samkvæmt þeim
skyldi greiða verðlagsuppbót frá
gildistöku þeir»a til ágústloka
með kaupgreiðsluvísitölu 183 stig.
En hún var reiknuð eftir vísitölu
framfærslukostnaðar 191 hinn 1.
febrúar 1958. Á tímabilinu 1. sept
ember til 30. nóvember 1958 skal
einnig greiða verðlagsuppbót sam
kvæmt kaupgreiðsluvísitölu 183,
nema því aðeins að vísitala fram-
færslukostnaðar 1. ág. 1958 hafi
hækkað um meira en 9 stig frá 1.
febrúar 1958 og sé því orðin hærri
en 200 stig. Þar sem framfærslu-
vísitalan er nú orðin 202 stig
hækkar kaupgreiðsluvísitalan
upp í 185 stig 1. september n.k.
Hin stóraukna dýrtíð og
verðbólga bitnar nú með vax-
andi þunga á öllum almenn-
ingi. Allar vörur hækka, mat-
vörur, klæðnaður, rekstrar-
vörur atvinnsiveganna, hvers
konar tæki til Iands og sjávar.
Leiðir af þessu margvíslega
erfiðleika.
Ekki öll kurl komin
til grafair
En því fer víðs fjarri að öll
kurl séu hér komin til grafar.
Verðhækkanirnar af völdum
„bjargráða“ vinstri stjórnarinnar
eru ekki nálægt því allar komnar
fram. Mjólk og mjólkurafurðir
hækkuðu að vísu um 5% 1. júní.
En í haust hljóta landbúnaðar-
afurðir almennt að hækka veru-
lega. Er beinlínis gert ráð fyrir
því í sjálfum „bjargráðalögun-
um“ að verðlagsgrundvöllur
þeirra hækki.
Frá bændum heyrast einnig
háværar raddir um nauðsyn veru
legrar afurðahækkunar. Benda
bændur á það, að kaupgjald hafi
í sumar hækkað miklu meira en
um þau 5%, sem gert var ráð
fyrir í lögunum.
Kapphlaup milli
kaupgjalds og verðlags
Af öllu þessu er auðsætt að
stórfellt kapphlaup milli kaup
gjalds og verðlags á sér stað
í landinu um þessar mundir.
Hin dulbúna gengislækkun og
skattahækkanir, sem vinstri
stjórnin framkvæmdi sl. vor er
að renna út í sandinn. Fram-
leiðslan mun innan tiltölulega
skamms tíma þurfa nýjan og
aukinn stuðning, ef svo fer
fram um aukningu framleiðslu
kostnaðar sem gert hefur í
sumar.
Ríkisstjórnin hefur í raun
og veru misst öll tök á stjórn
efnahagsmálanna. Hún hefur
látið dugandi hagfræðinga,
innlenda og erlenda, reikna
og reikna. En hún hefur ekki
borið gæfu til þess að bera
fram og framkvæma nein
raunveruleg og jákvæð úrræði
í viðureigninni við þann
vanda, sem við er að etja.
Allur almenningur í landinu
horfir með kvíða og ugg á hina
hröðu verðbólguþróun eg vax-
andi dýrtíð. Heimilin við sjávar-
síðuna eiga stöðugt erfiðara með
að láta launin hrökkva fyrir
nauðsynjum. Bændur eiga í vand
ræðum vegna verðhækkana á
áburði, fóðurbæti og hvers kon-
ar tækjum. Stórkostleg hækkun
rekstrarútgjalda sjávarútvegs- og
iðnaðar þjarmar að þeim atvinnu
greinum.
Nýtt rússneskt lán —
nýir skattar
En vinstri stjórnin á aðeins eitt
úrræði, að taka ný erlend lán og
leggja á nýja skatta. Hún er nú
nýlega búin að taka 50 millj. kr.
rússneskt lán og hefur samkvæmt
upplýsingum „Þjóðviljans“ fleiri
rússnesk lán í bakhendinni. Og
fjármálaráðherrann er farinn að
litast um eftir nýjum skattstofn-
um til þess að standa undir
styrkja- og uppbótastefnunni.
Þannig flýtur vinstri stjórn-
in að feigðarósi, úrræðalaus
og sundurþykk. Á meðan nag-
ar taumlaus verðbólga og dýr-
tíð máttarviði hins íslenzka
þjóðfélags og skerðir afkomu-
möguleika fólksins.
ÚR HEIMI
✓
Sœnskar prinsessur /
sumarleyfi á Korfueyju
Það kvað vera hlýtt á milli griska
krónprinsins og Désirée
SÆNSKA prinsessan Désírée
hefur undanfarið dvalizt á Korfu
eyjunni í Jóníska-hafinu ásamt
systur sinni, Birgittu. Þær syst-
ur komu þangað 4. ágúst í boði
grísku konungshjónanna, sem
eiga sumarbústað á eyjunni, er
nefnist Mon Repos. Gríski krón-
prinsinn Constantine var á skóla-
skipinu Ierax, en fór til Korfu
skömmu áður en sænsku prinsess
urnar komu þangað. Þau Désirée
og Constantine hafa oft sézt sam-
an, og auðvitað hefur ekki þurft
meira til að koma af stað orð-
rómi um, að hlýtt væri á milli
þeirra. Krónprinsirín er 18 ára,
en prinsessan tvítug.
Constantine er alinn upp í
Aþenu. Þar gekk hann í einka-
skóla ásamt öðrum grískum
drengjum. Hann hefur gegnt her-
þjónustu í landher, flugher og
flota og er nú myndugur sam-
kvæmt grískum lögum. Gegnir
hann því störfum ríkisstjóra, er
faðir hans, Páll konungur, er
fjarverandi.
Ekki er vitað, hversu lengi
sænsku prinsessurnar ætla að
vera á Korfu, en 25. ágúst fer
gríska konungsfjölskyldan til
Austurríkis í heimsókn til ætt-
ingja Frederiku drottningar. Þess
er þó exki vænzt, að með sumar-
dvölinni á Korfu ljúki kynnum
krónprinsins og sænsku prinsess-
unnar.
Dagana 9.—16. ágúst urðu sex
mikil flugslys, sem kostuðu alls
212 menn lífið: 9. ágúst fórst Vis-
Constantine krónprins.
countflugfél frá Central African
Airways í grennd við Bengazi í
Lýbíu, 36 menn fórust. Hinn 13.
ágúst urðu þrjú flugslys. Japönsk
212 menn farast / flug
slysum á einni viku
Ljósmyndarar frá :li löndum komn nýlega saman í Lundúnum
til að velja „fegurstu stúlkuna í heiminum" — jafnframt ræddu
þeir ýmis vandamál viðkomandi ljósmyndun. Margir ljósmynd-
arar hafa það að aðalatvinnu að taka myndir af fallegum stúlk-
um og kvikmyndaleikkonum fyrir tímarit og blöð, og þykjast
þeir því hafa töluvert vit á því, í hverju kvenleg fegurð sé
fólgin. Ljósmyndararnir völdu í ár ensku leikkonuna Joan
Collins. Hún er rauðhærð og kvað skipta mjög fallega litum.
Churchill hafnaði ekki hádegisverðar
boði frá Gretu Garbo
Winston Churchill dvelst nú
sér ru nvuuar og hressingar a
Rivierastronamni. Læknar ríöfðu
gefið honum ströng fyrirmæli
um að naiaa kyrru iyrir og hvíla
sig rækilega fyrst í stað. Gamli
maðurinn kvað ekki hafa verið
mjög hrifinn af þessu, en stytti
sér stundir m. a. með því að lesa
verk eftirlætishöfundar síns,
Kiplings. Fjöldi milljónamær-
inga og tiginna manna bauð
Churchill í veizlur eða sam-
kvæmi, en öllum boðunum var
hafnað nema einu, sem var frá
Gretu Garbo. Churchill snæddi
með henni hádegisverð um borð
í sxemmusnekKju mmjonamær-
ingsins Onassis. Hádegisverðin-
um lauk með því, að þau fengu
sér gias að whisky og spiluðu á
spil á þilíarinu. Var Churchill
svo hress og kátur eftir þennan
hádegisverð, að hann ákvað að
fara til Tanger, en aðalræðis-
maður Breta þar er einn elzti og
bezti vinur Churchills. Hinn 12.
sept. eiga þau Churchill og kona
hans gullbrúðkaup, sem haldið
verður hátíðlegt á Rivieraströnd-
inni en ekki í Lundúnum eins og
búizt var við.
DC-3 farþegaflugvél hrapaði i
hafið suður af Tókíó, 36 manns
fórust; argentínsk flugvél fórst
suðvestur af Buenos Aires og
með henni 12 manns; bandarísk
flugvél fórst skammt frá Brússel
og með henni sjö manns. Þriðja
mesta flugslys, sem orðið hefur,
varð 14. ágúst, er Super-Con-
stellation-farþegaflugvél ^frá
KLM fórst vestur af írlandi og
með henni 99 menn. Og sl. laug-
ardag, 16. ágúst, fórst bandarísk
flugvél á Nantucketeyju fyrir
norðan New York, 22 af 34 um
borð biðu bana.
Elzti sonur Charlies Chaplins,
Sidney, hefur gengið að eiga
frönsku dansmeyna Noélle
Adams, sem gat sér mikla frægð,
er hún dansaði í Francoise Sagan
ballettinum, Stefnumótið, sem
fórst fyrir. Hér sjást þau Noélle
og Sidney koma frá vígslunni á
leið í brúðkaupsveizluna. Athöfn-
in fór fram í Antibes á Riviera-
ströndinni, en þar á Chaplins-
fjölskyldan einbýlishús.
KAIRÓ, 19. ágúst. — Reuter. —
Egypskt blað skýrir frá þvi í
dag, að 25 sovézk kaupskip séu
væntanleg til Alexandríu innan
skamms með farm iðnaðartækja.