Morgunblaðið - 20.08.1958, Blaðsíða 13
Miðvikudagiir 20. ágúst 1958
MORCUNBLAÐIÐ
!3
Páll Björgvinsson
Efra-Hvoli sextugur
„HVÁRTGI skal ek á þessu níð-
ast ok engu öðru, því er mér er
til trúat.“
Það munu bráðum þúsund ár
síðan þessi orð voru mælt á
Gunnarshólma. Þau munu áreið-
anlega vera ein þeirra orða forn
bókmennta vorra, sem bezt hafa
geymzt í geði þjóðarinnar, allt
til síðustu tíma, og ómæid munu
áhrif þeirra um aldir.
Nú er sagt, og í skjölum skráð,
svo trúa verður, þótt með ólík-
indum sé, að Páll Björgvinsson
bóndi m. a. á Efra-Hvoli sé sex-
tugur í dag. —
Mætti ég velja orð í skjaldar-
merki honum til handa, — væri
sú forneskja ekki niðurlögð, —
myndi ég óhikað kjósd þessi gull-
vægu orð frá Gunnarshólma. Svo
þykist ég þekkja hann af langri
samferð, að mikil þyrfti sú nauð
að vera, er hopa léti hann til
hliðar frá slíku merki. — Hvert
æviskeið hans, sem enn er liðið,
er skýrt mótað þeirri skapgerð,
sem lætur í eitt falla yfirlýsingu
og efndir, orð og athöfn.
Ég man hann fyrst sem ungan
mann við nám á heimili rnínu.
Mikil var þá þegar prúðmennska
hans og skyldurækni og námið
sótti hann af kappi. Það var um
langan tíma og er víst enn sá
siður við hafður í Menntaskólan-
um að fáeinum nemendum eru
á vori hverju veitt verðlaun íyrir
— segi og skrifa: „iðni, siðprýði
og framfarir." Ekki var örgrannt
um að okkur skóiastrákunum
fyndist stundum í þá daga verð-
launin ekki vera ævinlega í réttu
hlutfalli við hinar tvær fyrst
töldu dygðir. En víst er það að
ekki hefði um slíkan efa verið
að ræða, ef í hlut hefði átt nem-
andi með skapgerðarmótun Páls
Björgvinssonar.
prýði og myndarskap og vin-
sældir þess almennar um allt hér
aðið. — Hvorttveggja hefir vel
við haldizt og bújörðin enn bætt
undir stjórn og atorku Páls og
ágætrar konu hans Ingunnar
Óskar Sigurðardóttur. Og nú
vaxa þar upp dætur þeirra, tvær
efnilegar systur í stað þeirra, sem
að heiman giftust í tíð foreldra
hans. Bera þær nöfn horfnu ást-
vinanna.
Fæddur er Páll á Hallormsstað.
Sjö ára gamall fluttist hann með
foreldrum sínum að Höfða-
brekku og þrem árum síðar, árið
1908, var föður hans veitt Rangár
vallasýsla, svo Páll á jafnframt
á þessu ári hálfrar aldar afmæli
sem Rangæingur. Hlýr í lund og
vinsæll heldur hann óðal sitt við
búsannir miklar og hlaðinn trún-
aðarstörfum; — er meðai annars
bæði oddviti og sýslunefndar-
maður sveitar sinnar, og mun í
engu hafa brugðizt því, sem hon-
um er til trúað. —
Af þessu, sem hér hefir verið
á drepið, má ljóst vera, að Páll
á Efra-Hvoli hefir vel haldið
uppi merki ættar sinnar og þarf
þó nokkuð til. Faðir hans var
Vigfússon prests á Ási í Fellum,
Guttormssonar prófasts í Valla-
nesi, Pálssonar prófasts á Val-
þjófstað. Og sé svo rakið áfram
í beinan karllegg mætti bæta hér
við í röð fimm sýslumönnum og
lögréttumönnum. Móðir hans var
og göfug kona og merk, Ragn-
heiður Ingibjörg Einaisdóttir al-
þingismanns og hreppsstjóra
Gíslasonar að Höskuldsstöðum í
Breiðdal, systir Magnúsar heit.
dýralæknis.
Allt frá fyrstu kynnum og til
þessa dags hefir hlýlegt viðmót
og traust Páls Björvinssonar ver-
ið mér til gleði. Ég vil þakka
honum löng og góð kynni og óska
honum, ástvinum hans og heimili
allrar blessunar á þessum merka
afmælisdegi hans.
E. Þ.
Duglegur og ábyggilegur
maður óskast
til að veita forstöðu verzlunarfyrirtæki í nágrenni
Reykjavíkur. Þeir, sem vilja kynna sér það leggi nafn og
heimilisfang inn á skrifstofu Morgunblaðsins merkt:
„Ábyggilegur — 6756“ fyrir 30. ágúst 1958.
Um áratuga skeið var Páll
hægri hönd föður síns Björgvins
sýslumanns Vigfússonar við bú-
skap og ritstörf á skrifstofu em-
bættisins. Skyldurækni hans við
þau störf voru öllum í héraði
kunn. Oft var hann settur sýslu-
maður í fjarveru föður síns. Var
æfing hans og þekking á hinum |
fjölmörgu og margþættu máiefn- j
um héraðsins mikil og minnið
trútt. Um fjölda ára var hann
ritari sýslunefndar og á þinga
ferðum föður síns. — Engan i
mann hefi ég séð rita jafnhratt
jafnfagra hönd sem hann. Það
hefði mátt búast við að skrif-
stofustörf yrðu aðalstörf hans til
frambúðar. En svo varð ekki.
Heimilið og bújörðin Efri-Hvoll,
sem foreldrar hans gerðu að höf-
uðbóli, hélt honum, sem betur
fer. — Hann staðfestist meðal
bændanna, en þá hefir hann jafn
an metið mikils að verðleikum
og þykir gott að deila geði með
þeim. í tíð foreldra hans var
Efra-Hvols heimilið annálað að .
Hefi kaupanda
að húsnæði sem má nota til verzlunar, iðnaðar, fé-
lagsstarfsemi eða annars atvinnurekstrar. Útb. 300
—400 þús. kr.
Einar Sigurðsson
Ingólfsstræti 4 — Sími 16767.
Húsgagnasmiðir
Til leigu á góðum stað í bænum, stórt verkstæðispláss
með fyrsta flokks trésmíðavélum. Vélarnar eru til sölu
ef óskað er, Tilboð leggist inn á afgreiðslu morgunblaðs-
ins, fyrir laugardaginn 23. þ.m. merkt: „Framtíðarstaður
-— 6753“. Tilboð í auglýsingu þessa hafa borizt áður, en
hafa glatast.
FokheSdar íbuðir
Höfum til sölu við Miðbraut á Seltjarnarnesi 3ja her-
bergja íbúðir um 90 ferm. og 5 herb. íbúðir 112 ferm.
Útborgun kr. 70—100 þúsund. Eftirst. til nokkurra ára.
Málflutningsstofa Sigurður Reynir Pétursson, hrl.,
Agnar Gústafsson hdl., Gísli G. Isleifsson hd!..
Austurstræti 14, símar 1-94-78 og 2-28-70.
TILKYNINilNG
Að gefnu tilefni tilkynnist að kauptaxti sá sem vinnuveit-
endur í Hafnarfirði hafa komið sér saman um að gilda
skuli í unglingavinnu hefur eigi verið samþykktur af
verkalýðsfélögunum og er því ógildur til eftirbreytni.
Verkamannafélagið Hlíf,
Verkakvennafélagið Framtiðin.
Afgreiðslumaður
óskast í byrjun september til starfa í Kaup-
félagi á Vesturlandi. Upplýsingar gefur
Starfsmannahald S. í. S. Sambandshúsinu
Reykjavík.
Byggingarsamvinnufélag prentara
íbúðir tll sölu
Vegna forfalla eru nokkrar íbúðir 4—5 herbergja til sölu
í nýbyggingu félagsins við Sólheima 25.
Félagsmenn, sem tryggja vilja forkaupsrétt sinn að
íbúðum þessum, hafi samband við skrifstofu félagsins að
Hagamel 18 (opin virka daga kl. 4—7, nema laugardaga)
fyrir 27. ágúst næstk., en eftir þann tíma verður þeim ráð-
stafað til annara.
Byggingarsamvinnufél. prentara.
„Old English" DBI-BRITE (frb. dræ-bræt) |
FIjótandi gljávax
— Léttir störfin! —
— Er mjög drjúgt! —
—r Sparar dúkinn! —
Inniheldur undraefnið „Silicones“, sem
bæði hreinsar, gljáir og sparar — tima,
erfiði, dúk og gólf.
Fæst ails staðar
SÍ-SLÉTT P0PLIN
(N0-IR0N)
MINEKVAeÆ*******
STRAUNING
ÓÞÖRF
Laugaveg 72 ......................... FROSTY
★ Laugaveg 72
... Lítið inn á Laugaveg 72 ...
BANANA SPLIT
3 ísskammtar með bönunum
GLÓÐARSTEIKTAR PYLSUR
með heitu brauði
MILK SHAKE
með margs konar bragði
ISKALDIR SANITASDRYKKIR
og COCA COLA
ALLS KONAR ISRÉTTIR
á 3, 4, 6, 9 og 10 krónur
SÆLGÆTI OG TÓBAK
í úrvali