Morgunblaðið - 31.08.1958, Page 3

Morgunblaðið - 31.08.1958, Page 3
Sunnucfagur 31. ágúst 1958 MORCVNBLAÐIÐ Þorl. Ó. Johnson, kaupmaöur. í DAG, 31. ágúst, eru 120 ár liðin frá fæðingu Þorláks Ó. Johnson, kaupmanns. Hann var fæddur að Breiða- bólsstað á Skógarströnd 31. ágúst 1838, sonur hins þjóðkunna manns, Ólafs E. Johnsen, prófasts á Stað á Reykjanesi og konu hans, Sigríðar Þorláksdóttur. Þorlákur Ó. Johnson er einn hinn merkasti maður, sem ís- lenzk verzlunarstétt hefur átt. Gekkst hann m. a. fyrir stofnun .Menntunarfélags verzlunar- manna 11. marz 1890, er hafði það markmið að starfrækja verzl unarskóla. Skóli þessi tók til starfa haustið 1890, og lagði Þor- Bankamenn á fundum Sr. Jónas Gíslason: Hinn týndi sauður Ingibjörg Johnson. lákur honum til ókeypis húsnæði og sjálfur tók hann að sér ókeypis kennslu í ensku. Er heilsa Þorláks þraut, sem varð skömmu síðar, lagðist skólinn niður. í tilefni dagsins hefur Ólafur Johnson, stórkaupmaður, og frú Guðrún, kona hans, gefið bygg- ingarsjóði Verzlunarskóla ís- lands eitt hundrað þúsund krón- ur í íslenzkum ríkisskuldabréfum til minningar um Þorlák Ó. John- son og konu hans, frú Ingibjörgu Bjarnadóttur Johnson. Jafnframt hafa þau hjónin afhent Verzlun- arskólanum að gjöf brjóstlíkan úr eir af Þorláki Ó. Johnson. AÐALFUNDUR Sambands nor rænna bankamanna var haldinn að Bifröst í Borgarfirði í sl. viku. Hófst hann á miðvikudag og stóð til föstudags. Fulltrúar af íslands hálfu voru þeir Hannes Pálsson (Búnaðarbankanum) og Jóhann- es Nordal (Landsbankanum) og auk þess sátu fundinn Adolf Björnsson (Útvegsbankanum) og Guðmundur Einarsson (Útvegs- bankanum). Níu erlendir banka- menn komu til fundarins. Aðal- fundir norræna bankamanna- sambandsins eru haldnir ó ári hverju. Hefur slíkur fundur einu sinni áður verið haldinn á fs- landi. Var það árið 1949. Á fundum þessum eru gefnar skýrslur um störf landssambanda bankamanna og rætt um lcjör þeirra og félagsstarf. Á fundinum í fyrri viku var sérstaklega rætt um væntanlega kjarasamninga bankamanna í Danmörku og Noregi. Alþjóðafundur bankamanna verður haldinn í borgunum St. Andrews og Edinborg í Skotlandi dagana 29. ágúst til 13. sepember. Fundinn sitja tveir íslendingar: Einar Ingvarsson (Landsbankan- um, ísafirði) og Guðmundur Einarsson (Útvegsbankanum, — Reykjavík). Eru þeir farnir utan. Fundir af þessu tagi eru haldnir árlega, og er þar fjallað um ýmis atriði varðandi bankastarfsemi. A¥ ♦ * BRIDCC ♦ * í 16. UMFERÐ í opna flokknum Þar fóru þeir Eggert og Stefán sigraði íslenzka sveitin þá ítölsku með 67:44. Er þessi sigur mjög kærkominn og kemur mjög á ó- vart, því að ítalir eru núverandi Evrópumeistarar og heimsmeist- arar. Önnur úrslit urða: Egyptaland vann Frakkland Noregur vann Svíþjóð Holland vann Þýzkaland Spánn vann írland Engiand vann Finnland Belgía, Damörk og Austurríki sátu hjá. Einnig kemur mjög á óvart sig- ur Egyptalands yfir Frakklandi, því að Frakkland var í öðru sæti og hefði orðið nr. 1 eftir tap ítal- anna. Ein umferð er nú eftir og er staða efstu landanna fyrir þá um ferð þessi: Ítalía 28 stig; England 28 stig; Frakkland 27 stig; Svíþjóð 22 stig, Egyptaland 22 stig. Eftirfarandi spil er frá leikn- um milli íslendinga og Frakka. Lauk viðureigninni með sigri Frakka 72:34. Hér er eitt spil frá þeirri viðureign tekið til gamans til að sýna sagntækni þeirra Ghestem og Bacherich, en þeir sátu A.—V. í opna salnúm. Yest- ur gefur. N.—S. á hættu. óþarflega varlega og spiluðu bara 6 lauf. 6 stig fyrir Frakkland. í kvennaflokki gerðu íslenzku dömurnar jafntefli við þær írsku. Höfðu íslenzku dömurnar 17 stig yfir eftir fyrri hálfleik og er hér eitt spil frá þeim hálfleik. ♦ G 10 5 V Á D G 10 ♦ Á 9 7 6 5 3 ♦ — A Á 8 A 9 4 V 9 8 7 K 6 5 2 N K D 10 8 V A ♦ 4 S * K D 10 9 A 75 832 A K D 7 6 5 2 V 4 3 ♦ 2 * Á G 7 6 frsku dömurnar sátu N.—S. í opna salnum og fóru einn niður dobblað í 6 spöðum, en okkar dömur spiluðu 4 spaða og unnu sex. 7 punktar fyrir ísland. Samkomulag um viðskipti við Tékkóslóvakíu HINN 29. ágúst var undirritað í Reykjavík samkomulag um við- skipti milli íslands og Tékkósló- vakíu á tímabilinu frá 1. septem- ber 1958 til 31. ágúst 1959. Sam- komulagið undirritaði fyrir ís- lands hönd Guðmundur í Guð- mundsson, utanríkisráðherra, en fyrir hönd Tékkóslóvakíu Frant- isek Schlegl, formaður tékknesku samninganefndarinnar. Samkomulag þetta er gert í samræmi við ákvæði viðskipta- samningsins milli íslands og Tékkóslóvakíu, er undirritaður var í Prag hinn 1. ok4óber 1957 og gildir til 31. ágúst 1960. Samkomulagið gerir ráð fyrir sams konar viðskiptum og verið hafa við Tékkóslóvakíu undan- farin ár, en þó heldur meiri. Samningaviðræður hófust í Reykjavík hinn 20. þ. m. Þórhallur Ásgeirsson, ráðu- neytisstjóri, var formaður ís- lenzku samninganefndarinnar. :• KV I KMY N Dl R A ¥ ♦ + ♦ 7 5 * Á 8 5 ♦ G 9 * ÁKG 10 6 5 9 8 D 10 4 10 8 6 5 4 3 2 9 N V A S ¥ ♦ * Á K D 4 3 2 9 2 Á 8 7 4 2 A G 10 6 ¥ K G 7 6 3 ♦ K D 7 * D 3 Sagnir í opna salnum gengu þannig hjá Frökkunum (N.—S. alltaf pass). V. A. 1 * 1 ¥ 2 * 2 ♦ 2 ¥ 2 A 3 * 4 * 4 A 5 G 7 + og spilið var sjálfspilandi þar eð laufin liggja 2 og 1. En í lokaða salnum getið þið vel ímyndað ykkur, að sagnir hafi gengið nokkuð á annan veg. „Sjónvarpskvik- myndir" ÞAU HJÓNIN Halla og Hal Linker sýndu sl. föstudag í Gamla bíói kvikmyndaþætti sína, er þau nefna „Undur veraldar“, en þættir þessir eru atriði úr bandarískri sjónvarpsdagskrá, sem sýnd hefur verið og sýnd er enn víða um Bandaríkin. Eru þættirnir, sem hér eru sýndir, þrír: Dularfullir töfradansar í Kongó, íslenzkir víkingar og Japan. — Þau Linkers-hjónin hafa á undanförnum árum gert víðreist um heiminn og er óhætt að fullyrða að frú Halla er víð- förlasta konan. fyrr og síðar, af íslenzku bergi brotin. Hefur, sem vænta mátti, margt nýstárlegt og fróðlegt borið fyrir augu hjón- anna á þessum ferðum þeirra, og kvikmyndaþættir þessir bera það með sér að þau hafa glöggt auga fyrir því sem girnilegt er til fróð- leiks. — Því eru þættir þessir mjög skemmtilegir jafnframt því, sem þeir eru prýðilega tekn- ir og skýringarnar á þeim ljósar og lifandi — en um það atriði sjá hjónin til skiptis. í þættinum „Islenzkir víking- ar“, sem tekinn er hér á landi, er sýnt allt hið markverðasta í náttúru landsins og atvinnulífi, og segir frú Halla þar í stuttu máli nokkur helztu atriði úr sögu landsins. — Er þessi þáttur mikilsverð landkynning og vel úr garði gerður. Er þar ekki ein- ungis leitast við að sýna fegurð landsins, heldur einnig reynt að kynna Bandaríkjamönnum at- vinnulíf og framleiðslu þjóðar- innar. Eiga Linkers-hjónin þakk- ir skilið fyrir þessa viðleitni sína, sem vafalaust getur orðið okkur mikils virði. Eins og áður er sagt, eru allir kvikmyndaþættirnir fróðlegir og skemmtilegir, ekki sízt þátturinn frá Japan. — Og svo var gaman að sjá Davíð litla Þór, ungan son Linkers-hjónanna, sem er hressi- legur drengur og virðist hafa dafnað ágætlega á hinu mikla ferðalagi með foreldrum sínum. Ego, Lúk. 15, 1—10. HVERT erindi átti Jesús Kristur inn í þennan heim í mannlegu holdi? Mörgum kann að þykja þessi spurning einkennileg. Þó er full þörf á að spyrja hennar. því að margir virðast hafa misskilið er- indi hans. Slíkur misskilningur er þó ekki nýr af nálinni, því að hans gætti þegar í samtíð hans meðal Gyðinganna. Leiðtogar þjóðarinnar litu niður á hann. Hvers vegna? Hann stóðst ekki mælikvarða þeirra. Hann var ekki nógu fínn í augum þeirra. Og það, sem hneykslaði þá mest, var, að hann gleymdi að taka tillit til mann- virðinga. Hann gerði alla jafna og samneytti jafnvel hinum lægstu og verstu að manna dómi. Hið sama kom fram í prédikun hans. Hann sagði: „Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.“ En svo bætti hann við: „Ekki þurfa heilbrigðir lækn is við, heldur þeir, sem sjúkir eru.“ Þarna segir hann tvennt, sem í fyrstu virðist ósamrýmanlegt. Hann býður öllum að koma til sín, en segir síðan, að aðems hinir sjúku þurfi sín með. En í þessu felst aðeins dómur hans yfir okkur mönnunum. Hér er enginn réttlátur, enginn heil- brigður. Hér þurfa allir læknis við. Og hér er fólginn ásteytingar steinninn, sem svo margir hnjót.a um. Við mennirnir erum allir syndarar og þörfnumst náðar Guðs. Og Jesús lét sér ekki nægja að tala þannig. Líf hans sjálfs bar þess gleggstan vottinn, að hér talaði hann sannleikann og breytti eftir eigin orðum. Hann forðaðist ekki tollheimtumenn og bersynduga eins og fyrirmenn þjóðarinnar, heldur laðaði þá að sér. Og sumir lærisveinar hans voru úr þeim hópi valdir. í stað þess að fyrirlíta og dæma, vildi hann fyrirgefa og hjálpa. í augum hans var ekki jafnmikill munur á hinum bezta og hinum versta meðal manna, því að þeir voru báðir syndarar, sem þörfnuðust náðar Guðs. Menn spyrja oft enn í dag eins og farísearnir spurðu hann: Eru þá góð verk einskis virði? Nei, síður en svo. Við þurfum ekki langi að lesa í fjallræðunni til þess að sjá, að Jesús gerir langtum strangari kröfur um Hf og breytni en nokkur annar. Hann gerði svo strangar kröfur, að enginn sá maður hefur verið til auk hans, sem hefur getað gengið fram og sagt: Hver yðar getur sannað á mig synd? En þessi góðu verk, sem menn- irnir vinna, geta aldrei orðið grundvöllur undir guðssamfélagi þeirra. Þar skildi með þeim. Farísearnir sögðu: Af því að ég vinn góð verk, þá er ég barn Guðs. Jesús segir: Af því að þú ert barn Guðs, þá vinnur þú góð verk. Á þessu tvennu er augljós regin Ísaíjarðartogar- arnir afla vel ÍSAFIRÐI, 29. ágúst: — Togarinn ísborg kom hingað í morgun með fullfermi af karfa af Nýju Fylkis- miðum. Sólborg er á leið hingað af sömu miðum, einnig með full- fermi. — Nú er rétt byrjað að salta reknetasíldina hér. — Hér hafa verið stöðugar rigningar undanfarið, en í dag hefur skipt um veður og er nú logn og úr- komulaust. — G. K munur. Hin góða breytni er eðli- legur og nauðsynlegur ávöxtur í lífi sérhvers manns, sem vill vera lærisveinn Jesú Krists. Trúin er dauð án verkanna. En breytnin getur aldrei orðið grundvöllur guðssamfélagsins. Samfélag við Guð getum við aðeins eignazt fyrir trú á Jesúm Krist. Og þetta er kjarni fagnaðar- erindis kristindómsins. Enginn maður er of vondur eða syndum hlaðinn til þess, að Guð vilji veita honum viðtöku, ef hann aðeins vill koma til Guðs í veik- leika sínum og vanmætti og þiggja óverðskuldaða náð hans. Föðurfaðmur Guðs stendur opinn hverjum þeim manni, sem til hans leitar huggunar og styrks. En enginn maður er heldur nógu góður til þess að komast aí án náðar Guðs. En kærleikur Guðs er ekki að- eins fólginn í því, að hann tekur á móti þeim, sem til hans leita. Hann leitar sjálfur að fyrra bragði mannanna. Þess vegna sendi hann eingetinn son sinn í heiminn. Jesús Kristur kom til þess að leita að hinu týnda og frelsa það, leiða það aftur til Guðs. Sá var tilgangurinn með komu hans í heiminn. Til þess lifði hann og staffaði meðal okk- ar mannanna. Til þess gaf hann líf sitt á krossinum. Hann er hirðirinn, sem fer til þess að leita að sauðnum, sem villzt hefur burt frá hjörðinr.i. Engin hætta er of bráð. ekkert erfiði er of mikið, þegar hann leitar einhvers, sem týndur er og villtur og í háska staddur. Hann er hinn góði hirðir, sem leggur líf sitt í sölurnar fyrir hjörðina. En kærleikur Guðs lætur ekki heldur staðar numið hér. Honum nægir ekki aðeins að taka á móti þeim, sem kemurj eða að leita uppi hinn týnda. Er hann hefur fundið hann, leggur hann hann á herðar sér og ber hann heim. Hann lætur sér ekki nægja að vísa veginn, heldur gefur hann einnig. kraft- inn, sem með þarf. Við þekkjum efalaust öll mynd ina af góða hirðinum, sem gengur fyrir hjörðinni með lítið lamb í fanginu. Þannig ber Jesús Kristur okkur mennina á kærleiksörm- um sínum þann veg, sem okkur er um megn að ganga, einir og óstuddir. Og þessi kærleikur hans kom skýrast fram, er hann gaf líf sitt á krossinum og tók þar með á sig syndabyrði alls mannkyns- ins. Við megum varpa allri okkar áhyggju upp á hann. Hann hefur opnað okkur leið heim til Guðs. Hann styrkir okkur í veikleika okkar og ber okkur fram fyrir náðarstól Guðs. Jesús Kristur er í gær og í dag og að eilífu hinn sami, hinn sami líknsami lausn- ari, hinn sami góði hirðir, hinn sami trúfasti vinur syndaranna. Þetta er sá boðskapur, sem guð spjall dagsins flytur okkur: Jesús Kristur elskar syndar- ann. Hann tekur á móti hverjum þeim, sem til hans leitar með bæn um líkn og styrk. Hann leit- ar sjálfur að fyrra bragði þeirra, sem burt hafa villzt, tekur þá á herðar sér og ber þá með fögn- uði him til Guðs. Þetta er fagnaðarerindi kristin dómsins. Við þörfnumst allir náð ar Guðs, og' hún stendur okkur öllum til boða. Við getum aldrei í eigin krafti orðið verðir þeirrar náðar, en Jesús hefur veitt okkur aðgang að henni með fórn sinni á krossinum. Hann, eingetinn sonur Guðs, elskar okkur og vill allt fyrir okkur gera. Ef við að- eins leyfum honum að komast að með náð sína og kærleika, þá er það honum nóg. Annars er ekki af okkur krafizt. Hitt allt hefur hann gert í náð sinni og gefur okkur. Leitum því til hans, hins góða hirðis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.