Morgunblaðið - 31.08.1958, Blaðsíða 19
Sunnudagur 31. ágúst 1958
MORGUNBLAÐIÐ
19
Krúsieff vill rœða um
stöðvun kjarnorkutilr.
— Iþróttir
Framh. aí bls. 6
en þá kom Hewson — spretthlaup
arinn í hópi 1500 metra hlaupara,
og skauzt fram fyrir hann sem og
Waern sem varð af gullinu á
síðustu 10 m hlaupsins. Tíminn
varð verri en í undankeppninni,
enda von þegar svona taktiskt illa
er hlaupið í baráttunni um verð-
launin og stigin.
Spjótkast
Spjótkastskeppnin var glæsi-
leg á að horfa. Hvílíkur kraftur
í köstunum. Manni fannst
spjótin stefna eins og eldflaugar
út í heiminn en þau lentu á sínum
stað, lengst rúma 80 metra frá
kaststað.
Olympíusigurvegarinn og heims
methafinn Norðmaðurinn Dani-
elsen tók forystuna með um 76
m kasti. En í þriðju umferð tók
Evrópumeistarinn Sidlo við og
hélt henni til loka er hann hafði
kastað 80,18 metra. Danielsen
hreppti annað silfur Noregs á
mótinu.
Eftir geysispennandí og tvísýnt
hlaup tókst Bretum að sigra í
4x400 m hlaupi en þó skyldu að-
eins 3/10 úr sekúndu þá og Þjóð-
verja að. Það var þarna sem oft
áður, að enginn sér við Englend-
ingnum. Hann er seigari en flestir
trúa þegar á reynir.
í 4x100 m hlaupinu fékk eng-
inn ógnað Þjóðverjum. Þrátt fyrir
það að fyrsta skiptingin hjá
Nahlendorf og Hary misheppnað-
ist algerlega og sveitin tapaði
3—5 metrum, þá unnu þeir það
upp, Futterer á seinni beygjunni
og ekki sízt Germar á endasprett-
inum. Hann tók við keflinu annar
eða þriðji en skilaði vel fyrstur.
í 4x100 m hlaupi kvenna sigr-
aði rússneska sveitin, en hinar
ensku urðu í 2. sæti sjónarmun
á undan Pólverjum. Tími rúss-
nesku stúlknanna þætti allsæmi-
legur af venjulegri sveit eins fé-
lags í Reykjavík.
Keppni Evrópumeistaramóts-
ins var lokið. Hún hvað hörð-
ust síðasta daginn. Mest bar sem
áður á Englandi, Rússlandi, og
Þýzkalandi. En 'Svíþjóð var nreð
í hópnum þennan dag. Þessar
fjórar þjóðir hlutu samtais 6 gull
verðlaun, 4 silfur og 5 brons-
verðlaun. Mest „hörkuðu" Eng-
lendingar af stigum eða 29, en
Rússland fékk „aðeins" 27 þennan
dag. Þjóðverjar hlutu 24 stig en
Svíar 21.
Þegar þarna var komið var
gengið inn á völlinn með fána
keppendaþjóðanna. Þá taiaði for_
maður alþjóðasambandsins. mark
greifinn af Exeter. Þá voru fán-
arnir aftur bornir út. Fáni al-
þjóðasambandsins var dreginn
niður, en hann hafði verið við
hún alla mótsdagana. Stuttri en
hátíðlegri athöfn var lokið. Mesta
Evrópumóti í frjálsíþróttum var
lokið. 19 af 22 gildandi mótsmet-
um höfðu verið bætt. Það gefur
nokkra hugmynd um árangurinn
og samanburð við fyrri mót.
A. St.
Úrslit sunnudagsins urðu ann- I
ars sem hér segir:
100 m grindahlaup: — 1. Lau- j
er, Þýzkalandi, 13,7 sek., 2. Lor- j
ger, Júgóslaviu, 14,1, 3. Michail-
ov, Rússlandi, 14,4, 4. Hildreth,
Bretlandi, 14,4, 5. Mazza, Ítalíu, !
14,6, og 6. Johansson, Svíþjóð,
14,7 sek.
1500 m hlaup: — 1. Hewson,
Bretlandi, 3.41,9 mín., 2. Dan
Waern, Svíþjóð, 3.42,1, 3. Delany,
írlandi, 3.42,3, 4. Rózsavölgyi,
Ungverjalandi, 3.42,7, 5. Vuori-
salo, Finnlandi, 3.42,8, og 6. Herr-
mann, Þýzkalandi, 3.43,4.
Hástökk: — 1. Dahl, Svíþjóð, ,
2,12 m, 2. Lansky, Tékkósló-
vakíu, 2,10, 3. Pettersson, Sví-
þjóð, 2,10, 4. Kasjakarov, Rúss-
iandi, 2,06 m, 5. Púll, Þýzkalandi,
2,06, og 6. Stepanov, Rússlandi,
2,06 m.
Spjótkast: — 1. Sidlo, Pól-
landi, 80,18 m, 2. Danielsen, Nor-
egi, 78,27, 3. Kulcsar, Ungverja-
landi, 75,26, 4. Macquet, Frakk-
landi, 75,18, Kuisma, Finnlandi,
74,90, og 6. Kusnetsov, Rússlandi,
73,89 m.
4x100 m hlaup: — 1. Þýzka-
land, 40,2 sek., 2. Bretland, 40,2,
3. Rússland, 40,4, 4. Tékkósló-
vakía, 40,7, 5. Frakkland, 41,0.
Italía var dæmd úr leik.
4x400 m hlaup: — 1. Bretland
3.07,9 mín., 2. Þýzkaland 3.08,2
mín., 3. Svíþjóð 3.10,7 mín., 4.
Ítalía 3.11,1 mín., 5. Rússland
3.11,4 mín. og 6. Pólland 3.13,8
mín.
800 m hlaup kvenna: — 1. Er-
molajeva, Rússlandi, 2.06,3 mín.,
2. Leather, Bretlandi, 2.06,6, og
3. Levitskaja, Rússlandi, 2.06,6.
4x100 m hlaup kvenna: — 1.
Rússland, 45,3 sek., 2. Bretland,
46,0, og 3. Pólland, 46,0.
Maraþonhlaup: — 1. Popov,
Rússlandi, 2 klst. 15.17,0 mín., 2.
Filin, Rússlandi, 2 klst. 20.50,6,
3. Norris, Englandi, 2 klst. 21.15,0,
4. Wilkinson, Bretlandi, 2 klst.
21.40,0, 5. Beckert, Þýzkalandi,
2 klst. 22.11,2, og 6. Korhonen,
Finnlandi, 2 klst. 22.45,8.
- E. O. P.
Framh. af bls 9
átti hann sæti í 11 ár. Þá sat
hann einnig í Þjóðhátíðarnefnd
Reykjavíkur lengst af síðan 1944.
Erlendur var orðlagður dreng-
skaparmaður og þótt oft hafi
verið deilt um menn og málefni,
munu állir sammála um, að úr
þeim deilum hafi Erlendur ávallt
komið með hreinan skjöld, því
að í hverju sem hann lét sig
varða, sýndi hann ávallt hinn
sanna drengskap og hreinlyndi.
Til marks um það álit, sem hann
naut út á við, skal þess getið,
að á 50 ára afmæli Ármanns var
hann sæmdur heiðursmerki þess
félags.
Það er erfitt að hugsa sér KR
án Erlendar, eftir að hann hefur
í tæpan mannsaldur verið óað-
skiljanlegur hluti félagsins og
fórnað félaginu flestum sínum
frístundum og stórum hluta síns
starfsdags, en fyrir allt hans þrot
lausa starf í þágu félagsmanna
viljum við nú færa alúðarfyllstu
þakkir.
KR-ingar.
PARÍS, 30. ágúst. Reuter. —
Stjórn de Gaulles samþykkti í
dag nýjar aðgerðir gegn hermd-
arverkum Serkja í Frakklandi.
LUNDÚNUM, 30. ágúst. — Reut-
er. Sovézki forsætisráðherrann
Krúsjeff lýsir yfir því í dag í
viðtali við Pravda, að Sovétstjórn
in sé fús til þess að hefja við-
ræður við ríkisstjórnir Bretlands
og Bandarikjanna 31. okt. í haust
um að binda enda á tilraunir með
kjarnorkuvopn. Höíðu þeir Eisen
hower Bandaríkjaforseti og
brezki forsætisráðherrann Mac-
millan lagt til, að slíkar viðræð-
ur hæfust þennan dag.
Leggur Krúsjeff áherzlu á, að
á slíkri ráðstefnu verði að nást
samkomulag um, að öll ríki hætti
endanlega tilraunum með kjarn-
orkuvopn. Er Krúsjeff þeirrar
skoðunar, að ákveða eigi fyrir-
fram, hversu lengi ráðstefnan
standi, og telur, að hún ætti ekki
að þurfa að standa lengur en 2—
3 vikur. Leggur Krúsjeff til, að
ráðstefnan verði haldin í Genf.
Krúsjeff hefir enn ekki svarað
formlega bréfum Macmillans og
Eisenhowers, þar sem þeir lögðu
til, að slík ráðstefna yrði haldin.
í viðtalinu í Pravda fer Krúsjeff
hörðum orðum um Breta og
Bandaríkjamenn og dregur í efa,
að þeir vilji raunverulega hætta
tilraunum með kjarnorkuvopn.
Engri átt nái að hætta slíkum til-
raunum í eitt ár, og þar sem nið-
urstaðan af Genfarráðstefnu
kjarnorkusérfræðinganna hafi
orðið sú, að hægt væri að fylgj-
ast með öllum kjarnorkuvopna-
tilraunum, sé engin ástæða til að
hætta ekki slíkum tilraunum fyr-
Foriíigjaskóli
á Úifljótsvatni
HINN 20. sept. hefst nám-
skeið á Úlfljótsvatni fyrir skáta-
foringja, þar sem þeir verða
þjálfaðir í ýmsu af því, sem að
gagni má verða í starfi þeirra.
Fofingjaskólinn, en svo er þessi
starfsemi kölluð, mun standa yfir
í vÍKutíma og sækja hann skáta-
foringjar frá Reykjavík, Akur-
eyri, Hafnarfirði, Keflavík,
Hveragerði, Selfossi, Eyrarbakka
og Stokkseyri, Akranesi og fleiri
stöðum. Frú Hrefna Tynes vara-
skátáhöfðingi mun standa fyrir
námskeiðinu, en meðal annarra
leiðbeinenda verður Eiríkur Jó-
hannesson félagsforingi í Hafn-
arfirði, sem a undanförnu hefir
verið á svipuðum skóla í Noregi.
Sams konar námskeið hafa tví-
vegis verið haldin áður á Úlfljóts
vatni, en nú er um áratugur,
síðan það var síðast gert.
ir fullt og allt. Segir Krúsjeff í
viðtalinu, að Sovétstjórnin telji
sig frjálsa að því að hefja tilraun
ir að nýju, þar sem Bretar og
Bandaríkjamenn hafi haldið til-
Keflavík — AljarM
Amerísk hjón með tvö börn,
óska eftir íbúð, helzt með hús-
gögnum. Tilboð sendist afgr.
Mbl. í Keflavík, merkt: „92 —
j 1201“. —
Duglegan
verzlunarstjóra
við matvöruverzlun vantar nú þegar. Gott kaup.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt:
„Góð vinna. — Hátt kaup“
fyrir 4. september.
HRINGUNUM
FRÁ
HAFNARSTR A
raunum áfram, eftir að Sovét-
stjórnin lýsti yfir því, að Rússar
væru hættir öllum slíkum tilraun
um.
Talið er, að undanfarna viku
hafi Sovétstjórnin verið að ráðg-
ast við kínverska kommúnista
um formlegt svar. Sé þeim ráða-
umleitunum sennilega ekki lok-
ið, úr því að Krúsjeff hafi tekið
þann kostinn aS birta afstöðu
samstjórnarinnar í Pravda, en
ekki sent formlegt svar.
Stálbofbbúna&ur
Mislit leirtau
Mislit glös
í miklu úrvali. —
Storesar
vERZiu-ir V ..
Vesturgötu 6.
Hreinir storesar stífaðir og
strekktir. Fljót afgreiðsla. —
Sörlaskjól 44, sími 15871. Vin-
samlegast geymið auglýsing-
una. —
dugleg og áreiðanleg, óskast 10
—15 klst. á viku. Bréfaskriftir
á íslenzku, ensku og dönsku.
Tilboð merkt: „Útgáfa — 6895‘
sendist Mbl. fyrir 5. sept.
Sem nýr
PELS
(Beaver lamb), ti!
Mánagötu 18.
söln, á
T œksfœriskaup
Vandað sófasett, 3 stólar og sófi, til sölu með sér-
stöku tækifærisverði til sýnis að Ægissíðu 72,
neðri hæð.
Hjartanlegustu þakkir færi ég öllum þeim er sýndu mér
velvild og vinarhug á sextugsafmæli mínu.
Sveinn Þórðarson,
bankaféhirðir.
Lokað
eftir hádegi mánudaginn 1. sept. vegna jarð-
arfaraur Erlendar Ó. Péturssonar forstjóra.
Everest Trading Company
Garðastræti 4
Vésturröst hf.,
Austurg. 23
Sonur okkar
JÓHANN ÆVAB HARALDSSON
Hólmgarði 66, lézt í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 26.
þ.m.
Ingibjörg G. Gunnlaugsdótíir,
Haraidur Kr. Jóhannsson.
———Ha—i—nnu—i—■mb—tmi ■■iMtwiiMawMBKaaaBMBWWM
Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
KRISTINN ÓSKAR KRISTJÁNSSON
sjómaður, Háteigsveg 25, verður jarðsunginn þriðjudag-
inn 2. september frá Dómkirkjunni kl. 2 e.h.
Athöfninni verður útvarpað.
Jónína Guðjónsdóttir, synir og tengdadætur.
SÍ-SLÉTT POPLIN
(N0-IR0N)
MINERVAcÆ^w^
STRAUN I NG
OÞÖRF