Morgunblaðið - 31.08.1958, Síða 6

Morgunblaðið - 31.08.1958, Síða 6
6 MORGUNBL ifílÐ Sunnudagur 31. ágúst 1958 Martin Bartels banka- fulltrúi sjötugur EINN af kunnustu íslendingum í Kaupmannahöfn, Martin Bart- els bankafulltrúi, er sjötugur í dag. Hann fæddist í Keflavík 31. ágúst 1888 og voru foreldrar hans Hendrik J. Bartels kaup- maður þar og síðar í Heykjavík, að góðu kunnur, og kona hans Sara Dorthea Vilhelmina, fædd Clausen, og voru þetta danskar ættir. Þegar Martin hafði aldur til gekk hann í Lærðaskólann í Reykjavík og varð stúdent 1909. Hélt hann þá ekki lengra áfram á langskólabraut, enda hneigðist hugur hans brátt til starfa á fjár- málasviðinu. Gerðist hann að- stoðarmaður í íslandsbanka í Reykjavík stúdentsárið og starf- aði þar til 1916, er hann varð aðstoðarmaður og síðar fulltrúi í Privatbanken í Kaupmanna- höfn. Hélt hann þeim starfa um áratugi við góðan orðstír, þar til er hann fékk lausn þaðan fyrir um íslenzkum o. fl. Hafa öll þau störf hans auðkennzt af árvekni og áhuga á að gera íslenzku fólki og öðrum sem mest gagn og yfir- leitt greiða fyrir þeim eftir mætti, og mega ýmsir það muna, þótt hann sjálfur léti ekki allténd mikið yfir því. Hann kom af stað og alllangt áleiðis hreyfingu fyr- ir byggingu íslandshúss í Höfn og tókst að safna til þess álitleg- um fjárhæðum, þótt framkvæmd um sé eigi enn til fullnustu lok- ið í því nauðsynjamáli. Af fs- lands hálfu hefir Martin Bart- els verið sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar og kom sá heið- ur að minnsta kosti að því sinni niður á réttum stað. Martin Bartels er maður skyn- samur og hygginn; vel á sig kom- inn, íturvaxinn og snyrtilegur á velli, svo að eftir er tekið; lætur lítt á sjá, þótt hann eldist. Hann er og hefir verið einlægur íslend ingur, sem í hvívetna hefir vilj- að stuðla að frelsi og framgangi síns fósturlands, enda er hann maður sjálfstæður í hugsun og athöfnum. Hann er tryggur vin- ur vina sinna og býður af sér góðan þokka, hvar sem hann fer, og má vissulega segja þetta sama um þau hjón bæði. En á þessum tímamótum í ævi húsbóndans eru þeim vafalaust sendar hlýjar hugsanir og kveðjur með þökk- um fyrir liðinn tíma og árnaðar- óskum á ókomnum dögum. G. S i I i SKAK Frá Portoroz Hvítt: Friðrik Ólafsson Svart: Matanovic Nimzo-indversk-vörn 1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4. d4 Bb4 5. e 30-0 6. Bd3 c5 7. 0-0 Rc6 8. a3 Bxc3 9. bxc6 dxc4 10. Bxc4 Dc7 (Báðir hafa fylgt troðnum slóðum, en þetta afbrigði hefur hlotið viðurnefnið „hið langa“.) 11. Bb2 (Leikur Taimanofs. Hin venjulega leið 11. Dc2 leiðir til einföldunar á stöð- unni eftir 11. .. e5 12. Bd3 He8 13. e4 c4 14. Bxc4 exd4 15. cxd4 Geysilegur fögnuður Svía síðasta dag EM nokkrum árum, þótt hann hafi eigi alltaf setið auðum höndum síðan. — Martin Bartels kvænt- ist 1918 Elísabetu Arnórsdóttur prests í Hvammi í Laxárdal Árna sonar, ágætri og glæsilegri konu. Eina dóttur barna hafa þau eign- azt, Söru, sem nú er vel gift í Vesturheimi, menntamanni að nafni B. Bailey, en hann hefir einnig verið við störf í Þýzka- landif Dveljast Bartelshjónin nú oft hjá dóttur og tengdasyni. Martin Bartels reyndist hinn dyggvasti í starfi oghinngegnasti í hverju sem hann gekk að. Hann hafði lengi á hendi ýmis mikil- væg trúnaðarstörf í Höfn, áhrær- andi íslendinga og íslenzk mál, lengi formaður íslendingafélags- ins þar, einnig í stjórn Dansk- íslenzka félagsins og í sjóðstjórn til styrktar æðriskóla-nemend- Stokkhólmi, 24. ágúst. SÍÐASTI keppandinn í síðustu grein mótsins færði Svíum gull. Hvílíkur fögnuður áhorfenda og hvílíkur endir á mótinu. því lok mótsins verða öllum minnisstæð ekki sízt vegna fagnaðarins sem síðasta greinin vakti. Áhorfenda- skarinn, svo stór sem orðið gat, hélt niðri í sér andanum. Starfs menni-rnir settu rána í 2,12 m hæð. Rigningarúði setti svip sinn á þessa örlagaríku stund. Petterson Svíþjóð hálflá á bekk og hafði teppi um fætur sínar. Á stól skammt frá sat Tékkinn Lansky hálffalinn í teppi. Aðeins Richard Dahl var á hreyfingu, mýkti sig upp með því að hlaupa um og gera leikfimiæfingar. Þess ir þrír menn voru eftir og börð- ust um gull, silfur og brons. Pett- erson og Lansky höfðu farið 2,10 m í fyrsta en Dahl í öðru stökki og þar með bætt persónulegt met sitt um 2 cm. Þeim mistókst öllum í fyrstu tilraun. Dahl, sem stökk fyrstur í annarri umferð undirbjó sig vel. Keppnin hafði hvort eð var tekið miklu lengri tíma en ákveð- ið var í upphafi og tafið móts- slitin. Hann hljóp hægt að og stökk notaði henduriia vel til að- stoðar í uppstökkinu og síðan fylgdi bara öskur fólksins yfir því að ráin var kyr á sínum stað. Hún titraði að vísu eftir að hné hafði snert hana, en hún var á sínum stað. Allir á vellinum tóku þátt í feykilegum fögnuðí Dahls. Þeim hinum tókst ekki í annarri tilraun og slepptu þriðju tilraun við 2,12 til að reyna að ná sigri ef þeim tækist í fyrstu tilraun við 2,14 m. En þetta kom ekki í veg fyrir sigur Dahls — það að- eins tafði þá staðreynd að hann var Evrópumeistari og nýr sænsk ur methafi, nýr Evrópumótsmet- hafi — og í hópi allra fremstu hástökkvara heims. Maraþonhlaup Maraþonhlaupararnir voru ræstir kl. 2 e. h. í dag. Þeir voru 26 í byrjun og hlupu 1 km inni á leikvanginum. Þegar út var haldið skautzt Olympíusigurveg- arinn Mimoun í fyrsta sætið. For ystan var í góðum höndum. Þeg- ar 10 km höfðu verið hlaupnir voru 6 menn jafnir Mimoun, Van den Driessee Belgíu, Popov og Filin Rússlandi og Michalic Júgó- slavíu. Eftir það fór að greiðast úr. Popov tók forystuna og lengdi forskotið stöðugt, kom fyrstur shrifar úr daglega lífinu Riddaramennska VARLA mun um meira rætt þessa dagana en fyrirhugað- ar aðgerðir Englendinga í hinni nýju landhelgi íslendinga. Þó' slíkt sé í rauninni allt annað en hlátursefni, rifjar þetta tal upp fyrir mér klausu úr gamansögu, sem hefur verið metsölubók í Frakklandj undanfarin ár. Aðal- persónan er enskur majór, Thompson að nafni, og er hann látinn bera saman framkomu og siði Englendinga og Frakka. í ofannefndri klausu fjallar hann um virðingu þá, sem hann segir að Englendingar sýni þeim sem eru minni máttar. Hún hljóðar svo: „í brezka konungdæminu er virðingin fyrir þeim sem er minni máttar, þessi allt að því með- fædda hugulsemi að gefa hinum veikburða alltaf tækifæri í ójöfn um leik, nokkurs konar óskrifuð lög, sem fiskimenn hlýða jafnt sem skotmenn. Þegar Englending ur vill rífa niður mannorð ein- hvers, svo að hann eigi sér ekki viðreisnar von, þá er sagt um hann: He’s shooting a sitting bird — eða eftir orðanna hljóðan; Hann skýtur sitjandi fugl (þ. e., því sem næst: hann ræðst á garð- inn þar sem hann er lægstur). Þessa dýrkun á því sem erfitt er, hafa Englendingar að leiðar- Ijósi þegar þeir fara að veiða fisk. I einni af fínustu ánum í Hampshire, ánni Test, væri það t. d. hreinasti glæpur að veiða eftir sólarlag. Á sömu stundu sem silungurinn kemur upp á yfir- borðið eftir að birtu tekur að bregða, og verður þar með „auð- veldari viðfangs”, þá tekur enski gentlemaðurinn, sem er búinn að eyða öllum deginum í að reyna að freista fisksins í steikjandi hita, saman föggur sínar og heldur heim til London. Það er víst óþarfi að taka það fram, að það þykja hræðileg helgi spjöll að nota orm í beitu og að falsveiðimenn sem beita votflug- um eru litnir hornauga? Þurr- flugan ein er leyfileg.“ Svo mörg eru þau orð um riddaramennsku Englendinga í þessari bráðfyndnu bók, sem 700.000 manns keyptu til að hlæja að fyrstu tvö árin eftir að hún kom út. Skyldu íslend- ingar ekki sjá ennþá meiri ástæðu til að hlæja að þessum orðum þessa dagana? 1. september gamall merkisdagur FYRSTI september hefur fyrr en á þessu ári verið talinn til merkisdaga hér á landi, þó ekki af sömu ástæðu og nú. Ef við tryðum enn á veðrabreyting- ar á ákveðnum dögum á árinu, mundu vafalaust margir bændur nú mæna vonaraugum til þessa dags, en þá er Egidiusmessa. Áður fyrr trúði almenningur því að með höfuðdegi, sem er 29. ágúst, breyttist veðráttan og héldist sama veður a. m. k. í 20 daga á eftir. Brygðust hundadagar í þessum efnum, var þó ein von eftir þegar illa hafði árað, Egidiusmessan. í Þjóðháttum Jónasar á Hrafna gili segir svo: Egidiusmessa (1. sept.) er þrautadagur í trú margra, hvað sem höfuðdeginum líður. Ef veðrið er þá fagurt verð ur svo allan mánuðinn og ef þurrt er veður, þá verður gott haust“. Nú skulum við vona að Egidius messan bregðist ekki bændum á óþurrkasvæðunum norðanlands. Ra5 16. Bd3 Dxc2 17. Bxc2 Rxe4) 11...e5 12. h3 (Leikið til að fyrirbyggja Bg4 auk þess sem Rf3 er búinn reitur á h2) 12. e4 13. Rh2 Re7 (Riddarinn stefnir á nýjar slóðir vegna breittra staðhátta. Svartur hótar nú cxd4). 14. Ba2 c4 (Svartur á í nokkrum erfiðleikum vegna biskupapars hvíts. Hann kýs því að loka taflinu sem mest). 15. a4(?) ABCDEFGH ilifl m+m, 1if 4iii 'tm .ttft" ímíwAm^■ I H.A inn á völlinn og hljóp þar hring með lárviðarkrans um liáls. Hann var alls óþreyttur, gekk að galla sínum, en klæddist ekki strax. Hann var búinn að vera á 6. mínútu í samræðum við starfsmenn á vellinum er næsti maður kom og það var landi hans Filin sem eftir harða baráttu við Bretann Norris hreppti silfrið. Norris var þreyttastur hlauparanna. Popov er frá Síberíu ættaður og er einkar mannlegur í útliti. Afrekið sem hann vann í þessu maraþonhlaupi er hins vegar ofur mannlegt. Aldrei hefur verið hlaupin 42,2 km vegalengd á svo stuttum tíma og munar allmiklu. Keppnislaust var þetta aírek unnið og engan veginn notaði hann krafta sína til hins ýtrasta. Hann sagði svo frá meðan hann stóð og beið eftir að sjá hver yrði í öðru sæti að hann hefði ekkj byrjað að keppa fyrr en 1956. Hann kvaðst hafa hlaupið 5000 m á 14,32 mín og 10 km á 30,42. 110 m grindahlaup Þar vann Lauer Þýzkalandi yfirburðasigur og var í sérflokki. Hann jafnaði Evrópumet sitt og setti glæsilegt mótsmet. Lorger Júgóslavíu var álíka öruggur í öðru sæti með 14,1 sek., en hart var barizt um bronsið. Þeirri bar- áttu lauk með sigri Englendings- ins Hildreth sem fékk sama tima og Mikahilov Rússlandi. 800 m hlaup kvenna Þar tóku rússnesku stúlkurnar snemma forystuna og fóru þrjár í fararbroddi. Baráttan um verð- launin virtist ætla að verða milli þeirra og varð það líka með þeirri undantekningu að á síðustu hundrað metrunum hljóp Leat- her Englandi fram og komst í þriðja sætið og á markalínunni í annað sæti. Kom hún mjög á óvart í hlaupi þessu. 1500 m hlaup Hápunktur keppninnar frarnan af þessum lokadegi var úrslita- keppnin í 1500 m hlaupi. Þegar það hófst gleymdist allt annað. Þarna var Olympíusigurvegarinn Delany og þarna var heimsmet- hafinn Jungwirth, og þarna var sænska vonin Dan Waern. Byrjunarferðin benti ekki til mikilla tíma. (58 sek. 400 m, 2:01,4 við 800 m og 3:00,3 við 1200) Þetta hlaut að verða hart og mikið lokastríð. Það var líka barizt ógurlega, Delany sem legið hafði aftastur tók að færa sig fram, en fremst fór Waern sem hafði forystuna í hlaupinu lengst af. Úr síðustu beygju kom hann fyrstur en nú sóttu margir að. Delany var kominn í annað sæti, Framhald á bls. 19. ABODEFGH (Friðrik ákveður að losa um Bb2, en sú áætlun er ekki samkvæmt stöðunni. Hann hefði átt að stefna gegn miðborði svarts og leika 15. Dd2 t.d. b5 16. Hael Bb7 17. Bbl og síðan f3. Eftir hinn gerða leik nær svartur undirtökunum). 15. .... He8 16. De2 Be6 17. Ba3 Red5 18. Hfcl Hac8 19. Rfl Da5 20. Dc2 Bd7 21. Rd2 Bxa4 22. Db2 Db5 23. Dxb5 Bxb5 24. Bc5 b6 25. Bd6 a6 (Þrátt fyrir peðsvinninginn er erfitt að finna viðunandi áframhald fyrir svart- an. Til greina kemur 25. .. He6 og Re8, ásamt f5, en vinningur- inn yrði áreiðanlega torsóttur). 26. g4! (Góður leikur sem skapar mótsókn og smám saman frum- kvæðið). 26..h5 27. Bbl hxg4 28. hxg4 Hed8 29. Bg3 g5 30. Ba2 Hc8 31. Bbl a5 32. Be5 Rxg4 33. Bxe4 Rxe5 34. Bxd5 Hed8 35. Bg2 Bc6 (Friðrik hef- ur teflt vel að vanda í tímahrak- inu, og snúið á Matanovic, en fróð legt hefði verið að sjá framhaldið á skákinni eftir 36. e4). 36. Hcbl Bxg2 37. Kxg2 Rd7 38. Hb5 f6 39. Ha4 Kf7 40. Rxc4 IIc6 41. d5 og samið jafntefli. Svartur leikur bezt 41.Hc5. Þrátt fyrir friðsamleg úrslit er skák- in langt frá því að vera viðburða- laus. IRJóh. ABCDEFGH Hvítt: Tal, Rússlandi Svart: Pachman, Tékkóslóvakíu 7rönsk-vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 dxe4 5. Rxe4 Be7 6. Bxf6 Bxf6 7. Rf3 Rd7 8. Dd2 b6 9. Bb5 Bb7 10. Rxf6f gxf6 11. 0-0-0 De7 12. d5 0-0-0 13. De2 Re5 14. Rxe5 fxeð 15. Dxe5 Dc5 16. Be2 Bxd5 17. Ba6f Bb7 18. Bxb7f Kxb7 19. Dxc5 bxc5 20. Hhel Hxdlf 21. Hxdl Hg8 22. g3 Kc6 23. Hd3 Hg6 24. Kd2 Hf6 25. Ke3 Hf5 26. f4 c4 27. Hd4 Hc5 28. a4 h5 29. h3 f5 30. Hd8 Hd5 31. He8 Kd7 32. Hh8 c3 33. bxc3 Ha5 34. Hxh5 Hxa4 35. g4 fxg4 36. hxg4 Tc4 37. g5 Kd6 38. Hh2 Hxc3f 39. Kd4 Hg3 40. Hd2 a5 41. c3 a4 42 Hd3 Hgl 43. Kc4f Ke7 44. He3 Kd7 45. Kb4 Hg4 46. He4 e5 47. Hxe5 Hxf4f 48. c4 a3 49. Hd5f Kc6 50. Ha5 Hg4 — Jafntefli-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.