Morgunblaðið - 02.09.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.09.1958, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. september 1958 ,Þegar býður þjóðarsómi' hann í þessu máli, þar sem þjóð- inni riði mest á að standa sam- an, látið undan freistingunni að reyna að gera ríkisstjórninni óskunda, þó að hann ynni þjóð- inni stórkostlegt tjón út á við um leið“. Forsætisráðherra svaraði ekki Hér ber forsætisráðherra lands- ins þungar sakir á stærsta flokk þjóðarinnar. En hann nefnir eng- in dæmi til sönnunar sakaráburði sínum. Sú þögn er af einföldum ástæðum. Söguburður forsætis- ráðherra er uppspuni frá rótum. Sérstaklega er eítirtektarvert, að forsætisráðherra skuli telja fyrstu sakargiftina þá, að Sjálf- stæðisflokkurinn „hefði ekki fengizt til að svara nema endr- um og eins“. Alþjóð er kunnugt, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur beint einni málaleitan til for- sætisráðherra í landhelgismálinu. Það var í bréfi hinn 7. ágúst, þar sem skorað var á ríkisstjórnina að birta allar skýrslur og gögn í málinu. Sjálfstæðisflokkurinn bar fram þessa ósk, vegna þess að hann taldi, að með þessu mundi eytt margs konar grun- semdum og þar með greitt fyrir sannri þj'óðareiningu. Látum vðra, að einhverjir telji, að þessi ósk hafi verið misráðin. En víst er að hún var þess eðlis, að til hennar varð að taka afstöðu, henni varð að svara. En forsætisráðherrann hefur ekki látið svo lítið að virða stærsta flokk þjóðarinnar svars. Bréfinu frá 7. ágúst er enn ósvarað og tillaga flokksins hef- ur verið að engu höfð. Síðan leyfir þessi sami maður sér að koma og ásaka Sjálfstæðisflokk- inn gersamlega að ástæðulausu Frá héraðsmóti Sjálfstœðismanna á Ólafsfirði HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna kveðnum vísum, og nú hefði í Ólafsfirði var haldið laugardag- inn 30. ágúst. Hófst það kl. 9,30 síðdegis. Formaður Garðars, félags ungra Sjálfstæðismanna í Ólafsfirði, Jakob Ágústsson raf- veitustjóri, setti mótið og stjórn- aði því. Ræður fluttu alþingis- mennirnir Bjarni Benediktsson og Magnús Jónsson. Vandamál Ólafsfirðinga Magnús Jónsson tók fyrst til máls. Hann kvað það nú sem fyrr meginviðfangsefni stjórnmálanna að reyna að tryggja landsfólkinu sem bærilegust lífsskilyrði. Menn greindi á um leiðir að því marki, en um markmiðið sjálft gæti ekki verið ágreiningur. Ólafsfirðingar* ættu við marg- víslegan vanda að stríða við að tryggja íbúum bæjarfélagsins sómasamlega afkomu. Þar ynnu allir að þjóðnýtum framleiðslu- störfum, þegar slíka vinnu væri að fá, og myndi það næsta fá- títt, ef ekki einsdæmi nú á dög- um, að fleiri vildu sækja sjóinn en skiprúm leyfðu á staðnum. Þrennt væri lífsnauðsyn fyrir Ólafsfirðinga, — fleiri fiskiskip, aukin hráefni til fiskvinnslu- stöðva og bætt hafnarskilyrði. Því miður hefði ríkisstjórnin eigi stutt þessi mál sem skyldi og bein og afdráttarlaus loforð um aukinn skipakost hefðu ekki ver- ið efnd. Unga fólkið og framtíðin Þá vék Magnús að nauðsyn þess að tryggja sem jafnasta aðstöðu allra þjóðfélagsborgara til lífs- bjargar. Framtíð hvers byggðar- lags væri undir því komin, að unga fólkið festi þar rætur. Því væri mikilvægt að búa sem bezt að því. Kvað Magnús því sér- staklega eftirtektarverða þá fyr- irætlun bæjarstjórnarinnar í Ólafsfirði undir forystu Sjálf- stæðismanna að gera sérstakar ráðstafanir til að auðvelda ungu fólki í bænum að eignast hús- næði. Að lokum minntist Magnús á þær miklu vonir, sem Ólafsfirð- ingar, sem ættu alla afkomu sína undir sjávarútvegi, gerðu sér um stækkun fiskveiðilögsögunnar. Væri það allra ósk, að það ör- lagaríka mál leystist farsællega. ísland á eina sál Bjarni Benediktsson hóf ræðu sína með þessum orðum: „Þegar býður þjóðarsómi, þá á Bretland eina sál. Svo kvað Einar Benediktsson um Breta forðum. Nú eru þeir atburðir að gerast, að Bretar munu sanna heiminum, að ísland á eina sál“. í landhelgismálinu eru allir ís- lendingar einhuga um megin- atriði. En um framkvæmdina verður heilbrigð gagnrýni að njóta sin því frekar sem málið er mikilsverðara. Með því einu móti er von til, að bætt verði úr mistökum, sem að hafa borið. Sakargiftir Hermanns Síðan rakti Bjarni gang land- helgismálsins frá setningu land- grunnslaganna fram á þennan dag. Sjálfstæðismenn hafa frá upp- hafi lagt sig fram um að vinna málinu allt það gagn, sem þeir máttu, sagði Bjarni. í dag, laug- ardag, segir Tíminn raunar frá ræðu, sem Hermann Jónasson forsætisráðherra hélt fyrir skömmu og hefur blaðið eftir honum um landhelgismálið: „Ríkisstjórnin hefði óskað eft- ir nánu samstarfi í því máli, og samráði. Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki fengizt til að svara nema endrum og eins og í hálf- fyrir að sem til beint! hafa ekki svarað því, flokksins hefur verið Utanríkisráðherra úti á þekju Þvílík vinnubrögð forsætisráð- herrans lýsa því miður ekki mikl- um samvinnuvilja. Við Sjálf- stæðismenn höfum aldrei látið það á okkur fá. Við höfum hér sett málefnið ofar öllu öðru. Ein- mitt þess vegna bórum við fram tillöguna um, að ráðherrafundur í Atlantshafsbandalaginu yrði kallaður saman. Við sáum fram á, að sú starfsaðferð, sem við- höfð hafði verið, mundi ekki leiða til neins. Okkur duldist ekki, að á ferðum var voði, sem við töldum, að afstýra yrði. Utanríkisráðherra synjaði þeirri málaleitun m.a. með þeim rökstuðningi, „að viðtöl fara enn fram á vegum Atlantshafs- bandalagsins" og „að viðræðun- um verður haldið áfram og það þrautreynt til seinustu stundar að ná jákvæðri niðurstöðu". í sama mund og utanríkisráð- herra sendi þetta frá sér, var formlega tilkynnt, að þessum við- ræðum væri slitið. Svo er því ekki að sjá sem utanríkisráðherra hafi fylgzt ýkjavel með því, sem var að gerast. Sama kemur enn fram í því, þegar hann lýsir yfir, að „að óreyndu verður því þó ekki trúað að bandalagsþjóð ís- lendinga grípi til hervalds í því augnamiði að koma í veg fyrir, að íslendingar geti gætt fiskveiði landhelgi sinnar". Ef ríkisstjórnin veit ekki að þetta er yfirvofandi, þá er hún sá eini hér á landi, sem þetta hefur farið fram hjá. Við Sjálfstæðis- menn bentum á ráð, er við töld- um líklegast til að afstýra þeim vandræðum, sem yfir vofa og þeim ófýrirsjáanl. afleiðingum, sem þar af geta stafað. Einmitt rétt áður en við komum á þennan fund, barzt í útvarpinu fregn um, að danska ríkisstjórnin hefði ósk- að eftir fundi Atlantshafsráðsins um málið. Af því sést, að aðrar ríkisstjórnir, sem minna eiga þó í húfi en við, loka ekki á sama hátt og hin íslenzka stjórn augunum fyrir þeim voða, sem hér er á ferðum. Okkar skoðun er að sterkara hefði verið að mæta á slíkum fundi sem sækj- andi, en láta aðra um málatilbún- aðinn. Einhuga þjóð En jafnframt því sem við bend um á það, sem miður hefur farið, þá leggjum við höfuðáherzlu á, að nú er sá tími kominn, að öll þjóðin verður að standa saman. Svo er að vísu að sjá sem for- sætisráðherra leggi ekki mikið upp úr samhug Sjálfstæðis- manna, þar með meirihluta kjós- enda, t.d. hér í Ólafsfirði. Ein- mitt hér, þar sem menn af dirfsku sækja sjóinn út á opið Norðurhafið, hafa þeir lært, að án hvorugs verður af komizt, sjálfsbjargarhugarins og sam- hjálparinnar, sem einkennir stefnu Sjálfstæðismanna. Þess vegna er hér eitt af sterkustu vígjum Sjálfstæðismanna. Ólafsfirðingar skilja, að þegar sæmd byggðarlags þeirra er í veði, þá verða þeir allir að taka höndum saman, hvar í stétt, stöðu og flokki, sem þeir standa. Á sama veg mun öll islenzka þjóðin gera nú. Hún mun læra af því, sem aflaga hefur farið og hún mun sýna, að þegar býður þjóðarsómi, þá á hún eina sál, ekki síður en ríkari og mann- fleiri þjóðir, er okkur þykjast geta knésett. ★ Báðum ræðumönnum á héraðs- mótinu var ágætlega fagnað. — Leikararnir Ævar R. Kvaran og Steinunn Bjarnadóttir, Kristinn Hallsson óperusöngvari og Máni Sigurjónsson þíanóleikari, fluttu fjölbreytta skemmtidagskrá við mjög góðar undirtektir áheyr- enda. Að lokum var stiginn dans. Mótið var mjög fjölsótt. Meðferð málsi ns landhelgis- fyrr og nu T í M I N N heldur því fram sl. sunnudag, að á fundi, sem Olafur Thors átti með fulltrúbm brezku stjórnarinnar í London í janúar árið 1952 hafi hann annaðhvort ekki sagt frá því, sem ætlunin var að hann segði, um áform okkar um útfærslu landhelginn- ar, eða þá að hinir brezku stjórn- arfulltrúar hafi ekki skilið hann nægilega glöggt. Þessari fáránlegu fullyrðingu Tímans er bezt svarað með því að vitna í yfirlýsingu, sem Olafur Thors las upp á fyrrgreindum fundi og síðar var birt Alþingi í þingræðu, sem hann flutti hinn 6. nóvember árið 1952. í þeirri ræðu skýrir Ólafur Thors frá því að hann hafi á fundinum með hinum brezku fulltrúum lesið upp eftirfarandi yfirlýsingu: „1. Samkvæmt beiðni brezku ríkisstjórnarinnar frestaði ís- lenzka ríkisstjórnin frekari að gerðum í sambandi við vernd- un fiskimiða þangað til vitað yrði um úrslit Haagdómsins. 2. Lögfræðilegir ráðunautar ríkisstjórnarinnar, bæði inn- lendir og erlendir, telja nú að íslenzku stjórninni sé heimilt að taka upp að minnsta kosti sams konar reglur og Norð- menn. Þetta fyrirkomulag höfðu íslendingar einnig áður ÚP sbrifar daglega lífinu ] Uppskerutiminn nálgast. NÚ líður að þeim tíma, að garð eigendur huga að haustupp- skerunni og margir hafa þegar gætt sér á nýjum kartöflum. Hvílíkt lostæti borið saman við skemmdar og myglaðar kartöflur frá útlandinu, sem maður hefur orðið að gera sér að góðu í sum- ar — þegar þá nokkrar kartölfur hafa fengizt á annao borð. Það kostar ærna vinnu og áhyggjur að fást við matjurta- rækt hér í Reykjavík og stund- um fer langt frá, að erindi fari þar eftir erfiði. Þannig kemur mér í hug saga, sem ég heyrði nú á dögnum — hálfgerð rauna- saga er það. — Hún er um kor.u, sem á garð inni í Laugardal, skammt frá þvottalaugunum. Þar í grenndinni er líka knattspyrnu- völlur, þar sem ungíingsdrengir leika og æfa knattspyrnu aí m'kl um móði. Af vcllinum — í garðinn. FYRR í sumar — sagði konan — var ég öll kvöld þarpa inn frá til að lú arfa og hlú að garðinum. Ég hafði þar bæði rabbarbara, kartölfur og rófur. Ég varð snemma vör við, að drengirnir, sem vöndu komur sínar á völlinn, þurftu líka að koma við í garðinum rnínum. — Þannig var slitinn upp allur rabb arbarinn minn, meðan leggirn- ir voru enn ungir og óþroskaðir. Látum það nú vera — en ein- kennilegt þótti mér að nokkurn skyldi langa til að kippa upp kornungum kartöflugrösum, áður en um nokkurn undirvöxt gat verið að ræða. Sennilega hafa rabbarbaraþjófarnir gert sér að leik að slíta þau upp í leiðinni — eða kannski hafa þeir ekki þekkt hvaða jurt þetta var eða hvernig vexti hennar væri hátt- að! — Hvað um það. — Svo fóru rófurnar að koma upp og mér sýndist líta heldur vei út með þá uppskeru hjá mér. En þá varð ég að skreppa norður í land, — hugaði auðvitað fljótlega að garð inum mínum, þegar ég kom í bæ inn aftur. E' Erfiði til einskis. N það var heldur ljót að- koma. Rófurnar lágu upp- rifnar eins og hráviði um garð- inn. Hver einasta hafði verið rif- in upp — en augsýnilega aðeins hluti af þeim hirtur. Heldur gröm og dauf í bragði fór ég leið- ar minnar heim og hugðist koma brátt aftur til að hirða þessar leifar. En auðvitað stóð það heima, þegar ég kom þar tveim- ur dögum seinna, að þá var hver og ein einasta horfin. Svo þetta var árangurinn af öllu mínu erf- iði. — Lái mér hver sem vill, að ég varð bálreið og sár. — Ég er ekki í neinum vafa um, að það voru fótboltadrengirnir. sem hér höfðu verið að verki. Slóðin eftir þá lá greinilega troðin frá vellinum og í garðinn minn — og jafnvel yfir aðra garða, sem þeir höfðu orðið að fara yfir til að komast í rófurnar mínar. Fallega innrættir upprennandi íþróttamenn að tarna — eða hvers konar uppeldi skyldu þess- ir veslings drengir hafa fengið? Tc Landsbankinn líka. OGGI gamli skrifar: „f sumar sá ég minnzt á það í dálku« Velvakanda, hve póst- húsið í Reykjavík væri illa merkt og víst er það satt og rétt. Væntanlega verður þó úr því bætt nú, þegar svo gagngerðar umbætur á því standa yfir — og er reyndar að mestu lokið, á húsinu að innan. Væri hálf- hlálegt að gleyma sjálfum stimpl inum á meistaraverkið. En nú dettur mér í hug, að í rauninni er þetta alveg sama sagan um ná- granna pósthússins, sjálfan Landsbankann, hvað ógreinilega merkingu snertir.Sérstaklegameð tilliti til útlendinga, sem hér koma, ætti bankinn að vera auð- kenndur betur en nú er og raunar fyrir íslendinga líka — aðkomu- fólk í borginni. Okkur, sem þekkj um Reykjavík út og inn finnst þetta ef til vill óþörf krafa, en „gcstagangur" er orðinn mikill hér, og gestirnir margir hverjir alls ófróðir um, hvar Landsbank inn og aðrar slíkar heiðursstofn- anir eru til húsa. Toggi gamli“. en samning«urinn frá 1901 var gerður, bæði að því er varðar grunnlínur og fjögurra mílna fjarlægð frá þeim. 3. fslendingar eru nú að und- irbúa ráðstafanir sínar á þess- um grundvelli". Þessi yfirlýsing sýnir, hversu fráleitar ásakanir Tímans eru um það nú, 6 árum eftir að flóum og fjörðum var lokað, að brezkir stjórnarfulltrúar hafi ekki skil- ið Ólaf Thors. í fyrrgreindri yfir- lýsingu er ekki talað neinu tæpi- tungu-máli, enda hafði stefna Ólafs Thors og Sjálfstæðisflokks- ins alltaf verið hiklaus í barátt- unni fyrir útfærslu landhelginn- ar. Tíminn telur það mikla van- sæmd fyrir Ólaf Thors, að á bess- um fundi voru ekki mætt tu menn úr ríkisstjórn BreL.ands. Sjálfur veit hann að Ólafur Thors ræddi hvað eftir annað við utan- ríkisráðherra Bretlands um fyr- irhugaðar friðunarráðstafanir ís- lendinga og skýrði þar málstað fslands. Það er rétt, sem Davíð Ólafsson fiskimálastjóri sagði nýlega í grein um landhelgismálið, að engin stjórnarráðstöfun hefur verið eins vel undirbúin og setn- ing reglugerðarinnar árið 1952 þegar flóum og fjörðum var lok- að og fjögurra mílna fiskveiði- takmörkin ákveðin. Áður en það merka spor var stigið höfðu Sjálfstæðismenn beitt sér fyrir uppsögn samn- ings þess, sem Danir gerðu við Breta 1901 um víðáttu íslenzkr- ar landhelgi og ennfremur haft forgöngu um setningu laganna um vísindalega verndun fiski- miða landgrunnsins frá 1948. En á þeirri löggjöf byggjast þær ráð- stafanir, sem nú hafa verið gerð- ar um 12 mílna fiskveiðilögsögu. Því miður hafa þær ráðstafan- ir ekki verið eins vel undirbúnar og hinar fyrri. Sá móður sína kyrkta LUNDÚNUM, 26. ág. — Sex ára drengur varð í dag áhorfandi að því, þegar móðir hans, frú Joyce Green 31 árs, var myrt í Denham, Englandi. Drengurinn var í fel- um, og eftir morðið hljóp hann grátandi til nágrannanna, en þeg ar þeir komu á vettvang, var móðir hans látin. Lögreglan hefur ráðlagt ætt- ingjum drengsins að gæta hans vel, því að svo gæti farið, að morðinginn reyni einnig að hafa hendur í hári hans vegna þess, að hann gæti orðið hættulegt vitni. Frú Green var áður gift banda rískum hermanni og bjó með hon um í. 10 ár í Bandaríkjunum. Hún var skilin við hann og flutt aftur heim til Englands, þar sem hún giftist 25 ára gömlum manni ekki alls fyrir löngu. — Unnið er að rannsókn málsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.