Morgunblaðið - 02.09.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.09.1958, Blaðsíða 20
veðJTð ! A gola og síðar kaldi. Léttskýjað fram eftir degi, en rigning með nóttinni. \ 198. tbl. — Þriðjudagur 2. september 1958 Brezk herskip stjórna innrásinni. Sjá grein á blað síðu 11. —> Danska nkisstjórnin biður um að ráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins verði kallaður saman Fundurinn gœfi orðið eftir fáa daga DANSKA ríkisstjórnin ákvað á fundi síðdegis á föstudag- inn, að óska eftir því að aðal- ritara Atlantshafsbandalags- ins, og formann ráðs þess, að hann kalli þegar í stað saman ráðherrafund bandalagsins, til að fjalla um landhelgis- málið. Samkvæmt heimild aðal- blaðs dönsku ríkisstjórnar- innar,Social-Demokraten, gaf ríkisstjórnin að fundi sínum loknum út svohljóðandi yfir- lýsingu: „Eftir að umræður meðal sér- fræðinga í París út af fiskveiði- lögsögu Islands hættu í gær, án þess að nokkur árangur hefði náðst, hefur ríkisstjórnin tekið þetta mál, eins og það liggur fyr- ir nú upp á fundi sínum síðdegis í dag og íhugað það. Með hliðsjón af þeirri stór- kostlegu þýðingu, sem fiskveiði- lögsaga Islands hlýtur að hafa í sambandi við hagsmuni Fær- eyja og Grænlands, er ríkisstjórn in á þeirri skoðun að rík nauð- syn sé til þess að nú þegar fari fram nýjar tilraunir í framhaldi af þeim sérfræðingaviðræðum, sem nú eru hættar, til þess að finna lausn á þeim árekstrum, sem fyrir höndum eru. Með til- liti til þessara kringumstæðna var ákveðið á ráðherrafundinum að stefna að því að milliríkja umræður yrðu teknar upp og þá á ráðherrafundi. Fulltrúi Dana í NATO-ráðinu hefur þess vegna í dag fengið fyrirskipun um að snúa sér til ritara ráðs Atlantshafsbandalags ins og fara fram á það við þann mann, sem nú fer með fram- kvæmdastjórn og formennsku í ráðinu að hann geri ráðstafanir til þess við þau lönd, sem hér eiga hlut að máli, að þau sendi ráðherra til áframhaldandi við- ræðna um málið sem allra fyrst.“ Símasamband við H. C. Ilansen forsætis- og utanríkisráðherra Social-Demokraten skýrði enn- fremur frá því, að þegar snemma á fostudag hafi málið verið rætt meðal ráðherranna og hafi tekið þátt í þeim umræðum, Jörgen Jörgensen, sem gegnir störfum forsætisráðherra og J. O. Kragh, sem gegnir störfum utanríkisráð- herra, auk fjármálaráðherrans Viggo Kampman. Oluf Petersen sjávarútvegsmálaráðherra var þá á fundi í Jótlandi en var þegar í stað kallaður heim til ráðherra- fundar, sem halda skyldi klukk- an 15,30. Þegar til fundar kom, hafði Kragh ráðherra haft síma- samband við H. C. Hansen, en hann var á leið frá Júgóslavíu til Hamborgar og náðist til hans í Frankfurt. Blaðið segir, að Kragh hafi á ráðherrafundinum gert grein fyrir því, hvernig málin stæðu, eftir að umræður sérfræðing- anna hefðu hætt í París, og var niðurstaðan sú, sem um er getið í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og birt er hér að ofan. Ségir síð- an, að ríkisstjórnin hafi þegar í stað fyrirskipað að taka nauðsyn leg skref til að koma tillögu dönsku ríkisstjórnarinnar á fram færi við rétta aðila innan Atlants hafsbandalagsins. , ' Spaak í fríi Berlingske Tidende skýrir frá því, að áður en danska ríkis- stjórnin tók ákvörðun um að gangast fyrir ráðherrafundi, hafi málið verið lagt fyrir fulltrúa Dana í ráði Atlantshafsbandalags ins, M. A. Wassard, og hafi hann aðeins beðið þess að fá staðfest- ingu á því að ríkisstjórnin tæki ákvörðun sína, til þess að geta strax snúið sér til réttra aðila. Þess er getið, að Spaak, sem bæði er aðalritari bandalagsins og formaður í ráði þess, sé nú sem stendur í leyfi og hafi til- laga dönsku stjórnarinnar verið flutt þeim manni, sem gegnir störfum hans. Blaðið segir að fundurinn eigi að ná til 9 þjóða og gæti komiö. saman innan fárra daga. Forystugreinar blaðanna Social-Demokraten birtir á sunnudag stutta forystugrein um málið og segir, að það hljóti að vekja fögnuð að ríkisstjórn Dana gangist nú fyrir því, að ráðherrar Atlantshafsbandalagsins verði kallaðir þegar í stað saman. Segir blaðið, að landhelgismál Islands snerti einnig Færeyjar og Græn- land og sé auk þess mjög þýð- ingarmikið fyrir sambandið milli þátttakenda Atlantshafsbanda- lagsins. Segir blaðið að það sé „knýjandi nauðsyn að sérhver möguleiki sé notaður." Politiken birtir einnig forystu- grein um málið og segir þar með- al annars: „Þegar Danmörk nú hefur stigið þetta skref er vænt- anlega hægt að reikna með því,' að ekki muni koma til árekstra á íslandsmiðum þann tíma sem líður, þar til ráðherrafundur kemur saman og væntanleg nið- urstaða fæst þar. Ennfremur seg- ir blaðið: „Á þessum breiddar- gráðum hljótum við að vera komnir svo langt, að sérhver not kun fallbyssna eða vélbyssna í innbyrðisdeilum hljóti að vera bannfærð. Deilur á að leysa með viðræðum og ekki á neinn annan hátt.“ PARÍS, 1. sept. — f fréttum frá París segir, að í aðalstöðvum Atlantshafsbandalagsins þar sé nú verið að athuga tillögu dönsku stjórnarinnar um sérstakan ráð- herrafund vegna landhelgismáls- ins. I samtali við Mbl. í gær- kvöldi sagði Guðmundur I. Guðmundsson utanríkisráð- herra, að ríkisstjórninni hefði ekki borizt nein orðsending frá NATO um tillögu Dana og stjórnin enga afstöðu til hennar tekið. □—--------------------□ Síðustu fréttir ÞEGAR blaðið hafði síðast fregn- ir af brezku togurunum fyrir ut- an Vestfirði í gærkvöldi voru þeir enn við veiðar á svipuðum slóðum undir vernd H.M.S. Russ- el, góðan spöl fyrir innan fisk- veiðitakmörkin. n---------------------n Stoke City siglir út úr Patreksf jarðarhöfn eftir að hafa skilið veikan skipverja eftir í sjúkraliúsinu þar Brezkur togaras/émaður fékk tauga- áfal! skömmu áður en flofinn hóf en veiðar í iandhelgi Skipstjórinn óttaðist kaldar móttökur á Patreksfirði UM MIÐJAN DAG á sunnudag heyrðu þeir, seip hlustuðu á sam- töl brezku togaranna fyrir Vesturlandi, að Stoke City kallaði á brezka varðskipið Riassel og kvaðst eiga í erfiðleikum. Skipið hafði komið með veikan mann til Patreksfjarðar, en skipstjórinn sagðist helzt ekki vilja sigla einn inn í höfnina. Mátti ráða af samtalinu, að hann hefði beðið fyrir utan án þess að honum væri sinnt, og sagði hann eitíhvað á þá leið, að allir væru á móti sér í plássinu. Eftirlitsskipið gaf Stoke City eins og öðrum togurum á þessum slóðum fyrirmæli um það, hvernig hann skyldi hegða sér. Sögðu sjóliðarnir á Russel, að togaramenn slcyldu draga sjúkrafána að hún og bíða þess að hafnsögumaður kæmi til aðstoðar. Fengu tog- aramenn ýmis önnur nauðsyn- leg fyrirmæli, áður en samtal- imu lauk. Hræddir Mátti heyra á togaraskipstjór- anum, að hann var hræddur við að fara inn á höfnina bæði vegna ókunnugleika og svo hins, að Patreksfirðingar væru fjandsam- legir Bretunum. En eftir fyrir- mæli Russels mun togaramönn- um hafa vaxið ásmegin, a. m. k. sigldu þeir inn í höfnina og skil- uðu manninum í sjúkrahúsið Enginn bjóst við Breta Mbl. talaði í gær við Ara Kristinsson, sýslumann, um ferð- ir togarans, en hann fór um borð í hann, þegar skipið var lagzt við bryggju. Sýslumaður sagði, að hann hefði verið á ferðalagi hinum megin við fjörðinn — „enda bjóst enginn við brezkum togara tii Patreksfjarðar í gær, allra sízt Stoke City, því að hann hafði þá nýlega verið á Þing- eyri“. Togarinn var hér úti á flóanum um þrjú leytið, og þeg- ar ég kom niður að höfn um sex- leytið, var hann lagztur við bryggju. Mun hann því hafa lón- að hér fyrir utan um hríð. Umboðsmaðimnn ekki við Fréttamaðurinn spurði sýslu- manninn, hvort nokkur sérstök ástæða hefði verið fyrir ótta tog- aramanna og kvaðst hann ekki vita um það mál. Togaramenn hafi verið hinir rólegustu, þegar hann fór um borð, og beðið um lækni. Ég fór bæði upp í brú og niður í skip, sagði sýslumaður, og varð ekki var við neinn tauga- óstyrk. Annars flautaði togarinn úti á flóa og hefur viljað fá hafn- sögumann, en hér er enginn lög- skipaður hafnsögumaður, svo að honum var ekki sinnt. Þess má einnig géta, að togaramenn gátu ekki fengið samband við um- boðsmann sinn hér á staðnum, Jakob Helgason, því að hann var ekki við. Eins og fyrr getur, var ég ekki heldur við, hélt sýslu- maður áfram, og læknirinn var kallaður út í sveitina, svo að skipstjórinn gat ekki náð tali af neinum þessara manna. Þá skýrði Ari sýslumaður frá því, að brezku togararnir hefðu venjulega sam- band við umboðsmenn sína á Patreksfirði í gegnum talstöðina og ef þeir fara þess á leit að einhver komi um borð, þá snúi umboðsmaðurinn sér til sýslu- skrifstofunnar. Fái þeir þá alla nauðsynlega fyrirgreiðslu. Fengu upplýsingar En Stoke City hefur augsýni- lega ekki náð neinu sambandi við land og þótt það ills viti. Hann hefur samt ekki viljað bíða, því að hann sigldi inn i höfnina upp á eigin spýtur. Fengu togaramenn nauðsynlegar upplýsingar hjá íslenzkum fiski- báti sem sigldi framhjá skipi þeirra, Sögðu þeir íslenzku sjó- mönnunum, að þeir væru ókunn- ugir í Patreksfjarðarhöfn og báðu um aðstoð. Islendingarnir bentu þá Bretunum á innsigl- ingamerkin og sigldi togarinn síðan að bryggju. Þá átti fréttamaður Mbl. einnig tal við Hannes Finnbogason, lækni. Hann kvaðst ekki hafa verið í bænum, þegar Stoke City kom til Patreksfjarðar. Togara- menn fóru sjálfir með sjúkling- inn upp á spítalann og skildu hann þar eftir, kváðust ekki mega vera að því að bíða öllu lengur eftir lækninum. Hannes læknir gat þess, að sjúklingurinn hefði fengið taugaáfall og gæti t. d. lítið sem ekkert sagt. Þó gat hann stunið því upp, að hann væri 38 ára gamall og væri frá Grimsby. Ekki hafði maðurinn orðið fyrir neinu slysi. í ráði er að senda hann heim til Grimsby við fyrsta tækifæri. Mbl. hefur fregnað, að hér sé um að ræða stýrimann á Stoke City. Loks má geta þess, að síðar um kvöldið slóst Stoke City í hóp brezku landhelgisbrjótanna, sem réðust inn í landhelgina í skjóli eftirlitsskipsins Russels. Harðorð mótmæli Á 8. SÍÐU blaðsins í dag er birt ræða sú sem Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra flutti um landhelgismálið í Ríkis- útvarpið í gærkvöldi. Þar gat ráðherrann þess, að hann hefði í gær afhent sendiherra Breta harðorð mótmæli sökum þess að brezk herskip hefðu varnað ís- lenzku varðskipi að leysa af hendi skyldustörf sín, er þaS reyndi að stöðva brezkán togara sem brotið hafði íslenzk lög. Þá gat utanríkisráðherra þess einnig að hann hefði falið sendi- herra íslands hjá Atlantshafs- bandalaginu í París að skýra framkvæmdastjórn bandalagsins frá þessari valdbeitingu brezku herskipanna. -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.