Morgunblaðið - 02.09.1958, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 2. september 1958
MORGVNBLAÐI9
13
Jóhannes Árnason bóndi
að Cröf í Skaftártungu
ísland vann Danmörk í
frjálsíþróftum
með 110 stigum gegn 101
JÓHANNES Árnason bóndi að
Gröf í Skaftártungu lézt hinn 22.
ágúst sl., 77 ára að aldri, og er
þar hniginn einn eftirtakanlegasti
búandi í þeirri sveit.
Jóhannes Árnason var fæddur
að Melhól (Undirhrauni) í Meðal-
landi þ. 24. ágúst 1881, sumar-
barn frá byrjun til enda. For-
eldrar hans voru hin vinsælu
hjón Árni Árnason ög Jóhanna
Margrét Jónsdóttir, og voru þau
sveitungar, en þau bjuggu lengi
á Melhól og voru lengst af við
það býli kennd, en síðar á Leið-
velli í sama hreppi, en þar rak
einnig áfram búskap sonur þeirra
Erasmus, er síðar fluttist að Háu,-
Kotey. Alls voru systkinin, börn
Árna og Margrétar (en því nafni
kallaðist hún), 8 að tölu og lifa
nú eftir aðeins 2 og er annað
þeirra Árni, hinn góðkunni dóm-
kirkjuvörður í Reykjavík. — í
ætt þessari lengra fram er og all-
margt merkismanna nafnkunnra,
er eigi verða greindir hér.
Eftir að Jóhannes komst vel á
legg, næstyngstur barna Árna
gamla, kom brátt í ljós, að í hon-
um bjó efni í myndarmann, enda
varð sú raun á síðar. Hann var
álitlegur ásýndum og röskur á
velli, sem og ásannaðist ekki sízt,
er hann tókst á hendur störf að
heiman, e»da vildi hann mannast
sem bezt, og hélt því jafnan um
ævina að kynna sér góða háttu
meðal samborgaranna. Kaus hann
þá, ungur að aldri, að nema
nokkura iðn, eins og talsvert tíðk
aðist um hríð í landinu, m. a.
til styrktar annarri atvinnu. Lærði
Skeiðárréttir
19. septemher
SELFOSSI, 30l ágúst. — Fjall-
skilafundur oddvita í nyrðri
hreppum Árnessýslu var hald-
inn hér á Selfossi í gær. Var þar
raðað niður í göngur. Var
það ákveðið á fundi þessum,
að réttað skyldi í Skeiðúrrétt-
um 19. sept., en það er viku fyrr
en venjulegt er. í fyrra var einn-
ig réttað viku fyrr en venjulega
og er þetta gert til að fá kjötið á
markaðinn í tíma. Göngur taka
um hálfan mánuð og leggja
fyrstu gangnamenn upp í næstu
viku.
SVOLVÆR, 30. ágúst. — NTB. —
Sjávarútvegs- og fiskimálanefd
norska Stórþingsins, sem verið
hefir í Svolvær, hefir skyndilega
verið kölluð til Oslóar, segir blað-
ið Lofotposten. Nefndin á að vera
komin til Oslóar í síðasta lagi á
mánudagsmorgun.
Jóhannes skósmíði hjá Árna bróð
ur sínum, sem var útlærður í
þeirri grein, og stundaði þetta
nokkuð á vetrum í Víkurkaup-
túni, er þá var í frumvexti. —
En brátt hneigðist hugur hans
að öðru til aðal-lífsviðurværis,
landbúnaðarstörfum og búskap,
enda borinn úr þeim jarðvegi.
Réðist hann þá til Gísla óðals-
bónda Gíslasonar í Gröf, sem þar
bjó gæðabúi með konu sinni
Þuríði Eiríksdóttur frá Hlíð, en
þeirra bú þótti bæði gamalt og
gróið, sem ekki var talin nein
minnkun 1 þá tíð. Þau hjón voru
frændkin, af hinni nafnkunnu
Hlíðarætt, en meðal systkina
Þuríðar var séra Sveinn í Ás-
um og móðir þeirra Sigríður dótt-
ir Sveins læknis og náttúrufræð-
ings í Vík Pálssonar; var hún
gift Eiríki hreppstjóra Jónssyni í
Hlíð, kunnum sæmdarmanni, en
þetta fjölmarga ættfólk er nú
dreift víða um landið.
Þá er Gísli bóndi féil frá
skömmu síðar, mátti kalla, að
Jóhannes tæki við Grafarbúinu,
enda hafði hann árið 1914 kvænzt
dóttur þeirra hjóna,Ólöfu, gáfaðri
mannkostakonu, svo að vitnaðvar
til þar um sveitir, og lifir hún nú
mann sinn. Af börnum þeirra
komust upp 6, en elzti sonurinn
Gísli Kjartan andaðist fullvax-
inn, frábær að gáfum og gjörvi-
leik. Hin eru: Þuríður Ragna,
Árni, Sigursveinn (þau eru
heima), Sigurlaug og Sveinn Páll
gift og búsett í R'eykjavík. Sverja
þau sig vel í ætt að mannskap og
í framkomu. Ein systir Ólafar er
enn á lífi, Sigríður húsfreyja og
ekkja Vigfúsar Gestssonar bónda
í Skálmarbæ í Álftaveri.
Nokkuð bar brátt að fráfall
Jóhannesar í Gröf, þótt lasleika
hefði hann kennt um hríð. Mun
nú þykja á ýmsan hátt skarð
fyrir skildi og sakna munu marg-
ir úr hópi hins glaðværa og hressi
lega manns. Trúnaðarstörf hafði
hann ýmis á hendi. Var lengstum
í skólanefnd hreppsins og for-
maður hennar, formaður sóknar-
nefndar og kirkjuhaldari, og fór
honum það allt mætavel úr hendi,
áhugasamur og samvinnuþýður.
Af kirkjuvöldum fékk hann lof
fyrir verk sín í þeim efnum.
Loks átti hann sæti hin síðari ár-
in í stjórn Verzlunarfélags Vest-
ur-Skaftfellinga. Og sjálfsagt
mætti fleira telja.
Það þótti nú löngum ekki ama-
legt að heimsækja Grafarhjónin,
reyndar bæði þau fyrri og síð-
ari, því að þar hefir farið saman
hið alúðlegasta viðmót og einstök
gestrisni, og einnig greiðasemi til
hvers, sem við þurfti, og þá ekki
farið í manngreinarálit. Margir
góðvinir þeirra Jóhannesar og
Ólafar í sveit og bæ munu nú
minnast þess, einnig það fólk, að
öðru leyti vandalaust, sem dvaldi
þar bæði börn og fullorðið við
góða og notalega aðbúð („hjá
Ólöfu minni i Gröf“, eins og
sumir komust þægilega að orði).
Hin fagra sveit, Skaftártung-
an, sem þó getur verið hvort-
tveggja, unaðsleg og úfin, hefir
nú brátt séð á bak flestum „hinna
eldri manna" — tímamótamann-
anna, sem stóðu sig vel bæði í
fyrri og seinni tíð. Nú lifir þó
enn, eiztur allra þar og kominn
að níræðu, Vigfús Gunnarsson
fyrrverandi oddviti og óðals-
bóndi á Flögu. En afkomendur
og annað fólk vex upp og heldur
áfram að búa þar með mýndar-
skap og sveitin blómgast. Er og
vel á meðttn svo er.
RANDERS, 30. ágúst. — Lands-
keppnin við Dani í frjálsíþrótt-
um hófst hér kl. 5 e.h. í dag með
hátíðlegri athöfn. Liðin gengu í
fylkingu inn á völlinn, þjóð-
söngvarnir voru leiknir, borgar-
stjóri Randers flutti ræðu og
formaður frjálsíþróttasambands
Danmerkur flutti ávarp.
Fyrri dagur
110 m. grindahlaup: 1. Pétur
Rögnvaldsson í 15,0 sek. 2. Guð-
jón Guðmundsson í 15,6 sek. 3.
Hg. Andersen D 15,7. Erik Christ
ensen datt illa á fyrstu grind og
lauk ekki keppninni. — ísland 8
stig, Danmörk 2 stig.
100 m hlaup: 1. Hilmar Þor-
björnsson í 11,1 sek. 2. Peter
Rasmussen D 11,2 sek. 3. Erik
Madsen D 11,4 sek. og 4 Valbjörn
Þorláksson í 11,5 sek. — ísland
6, Danmörk 5.
400 m hlaup: 1. Alex Frandsen
D. 49,4 sek. 2. Þórir Þorsteinsson
í 49,8 sek. 3. Hörður Haraldsson í
50,2 sek. og 4. Peter Hansen D
51.5 sek. — ísland 5, Danmörk 6.
Spjótkast: 1. Jóel Sigurðsson í
62,27 m. 2. J. V. Jensen D 60,30.
3. Ove Thomsen D 57,40 og 4.
Gylfi Gunnarsson í 54,08 m. —
ísland 6, Danmörk 5.
1500 m. hlaup: 1. Svavar Mark-
ússon í 3:56,3 mín. 2. John
Schmidt D 3:58,5 mín. 3. Bruun
Jensen D 3:59,2 mín. og 4. Krist-
leifur Guðbjörnsson í 3:59,4 mín.
— ísland 6, Danmörk 5.
Stangarstökk: 1. Valbjörn Þor-
láksson í 4,20 m. 2. Rich. Larsen
D. 4,10 m. 3 Heiðar Georgsson í
4,00 og 4. Poul Knudsen D 3,70
m. — ísland 7, Danmörk 4.
Kringlukast: 1. Friðrik Guð-
mundsson í 46,21 m. 2. Þorsteinn
Löve í 45,67 m. 3. Andreas Micha
elsen 44,19 m. og 4. Munk Plum
43,82 m. — ísland 8, Danmörk 3.
5000 metra hlaup: 1. Thyge
Tögersen D 14:44,2 mín. 2.
Schmith D 15:00,5 mín. 3. Krist-
ján Jóhannsson í 15:15,0 mín. og
4. Hafsteinn Sveinsson í 17:01,4
mín. — ísland 3, Danmörk 8.
Hástökk: 1. Jón Pétursson I
1,91 m. 2. Breum D 1,80 m. 3. Ove
Thomsen D 1,75 m. og 4. Sigurð-
ur Lárusson í 1,75 m. — ísland 6,
Danmörk 5. — Jón reyndi næst
við 1,98 m., sem er einum sm.
hærra en íslenzka metið og mun-
aði litlu að hann færi yfir.
4x100 m boðhlaup: 1. Danmörk
42.5 sek. 2. ísland 43,0 sek.
Stigin eftir fyrri daginn: ís-
land 57, Danmörk 48.
★ ★ ★
RANDERS, 31. ágúst. — Eftir
æsispennandi augnablik, er að-
eins tvær greinar voru eftir, þrí-
stökk og 4x400 m. hlaup, sigraði
ísland Danmörku í landskeppni í
frjálsíþi’óttum í fimmta sinn með
110 stigum gegn 101.
Vilhjálmur Einarsson stökk
tvö stökk í þrístökki með vöðva-
slit í læri. Fyrir það seinna fékk
hann kvalastillandi sprautu. En
hann tryggði með því annað sæt-
ið í þristökkinu og sigur í keppn-
inni. Síðan vann boðhlaupssveit-
in, en fyrir tvær síðustu grein-
arnar hafði ísland eitt stig yfir.
Úrslit síðari dags
400 m. grindahlaup: 1. Björg-
vin Hólm, í, 55,8 sek. 2. Jacobsen
D 56,8 sek. 3. Preben Kristensen
D 57,4 sek. og 4. Guðjón Guð-
mundsson í 69,2. — ísland 6, Dan
mörk 5. Guðjón datt á næstsíð-
ustu grind, en var þá fyrstur.
Haltraði hann í mark.
800 m hlaup: 1. Svavar Mark-
ússon í 1:52,2 mín. 2. Roholm D
1:54,0 mín. 3. Þórir Þorsteinsson
í 1:54,3 mín. og 4. Bruun Jensen
1:54,6 mín. — ísland 7, Danmörk
4.
3000 m hindrunarhlaup: 1.
Kurt Haslund D 9:21,6 mín. 2.
Kristleifur Guðbjörnsson í 9:24,4
mín. (nýtt ísl. met), 3. Haukur
Engilbertsson í 9:26,2 mín. og 4.
Bjarne Petersen D 9:35,4 mín. —
ísland 5, Danmörk 6.
Sleggjukast: 1. Poul Ceder-
quist D 55,29. 2. Þórður B. Sig-
urðsson í 52,14 m. 3. Aage Fred-
eriksen D 52,11 m og 4. Friðrik
Guðmundsson í 41,13 m. — ís-
land 4, Danmörk 7.
Langstökk: 1. Einar Frímanns-
son í 7,22. 2. Rich. Larsen D 6.98
m. 3. Poul Nielsen D 6.94 m. og
4. Pétur Rögnvaldsson 6,77 m. —
ísland 6, Danmörk 5.
200 m hlaup: 1. Peter Rasmus-
sen D, 22,2 sek. 2. Hilmar Þor-
björnsson í 22,3 sek. 3. Erik Mad-
sen D 22,5 sek. og 4. Valbjörn
Þorláksson í 23,0 sek. — ísland
4, Danmörk 7.
Kúluvarp: 1. Aksel Thorsager
D. 16,69 m (danskt met), 2. Gunn
ar Huseby í 15,84 m. 3. Skúli
Thorarensen í 14,55 m. og 4.
Andreas Michaelsen D 14,10 m.
— fsland 5, Danmörk 6.
10000 m hlaup.- 1. Thyge Tög-
ersen D 30:53,0 mín. 2. Johs.
Lauritzen D 31:54,4 mín. 3. Krist-
ján Jóhannsson í 32:23,4 mín. og
4. Hafsteinn Sveinsson í 34:01,8
mín.
Þrístökk: — 1. Jón Pétursson
í 14,56 m. 2. Vilhjálmur Einars-
son í. 14,21 m. 3. Robert Lind-
holm D 14,15 m og 4. Bay Jörg-
ensen D 14,00 m. — ísland 8,
Danmörk 3.
4x400 m. boðhlaup: 1. ísland
3:19,5 mín. 2. Danmörk 3:20,2
mín.
Mikil gleði er ríkjandi hér
meðal landa yfir að óheppnin
skyldi ekki hindra íslenzkan sig-
ur, því útlitið var sannarlega
ekki gott um tíma. Flestir frjáls-
íþróttamennirnir koma heim á
miðvikudag. — Atli.
NÝJU DELHI', 30. ágúst. Reuter.
— í sl. viku létust 36 manns hér
í borginni úr kóleru. Um 300
voru fluttir í sjúkrahús. Kóleru-
faraldurinn kom upp, eftir að
vatnsveita borgarinnar varð ónot
hæf. Heilbrigðisyfirvöldin hófust
þegar handa um bólusetningu, til
þess að stemma stigu við far-
aldrinum.
G. Sv.
Kvöldvinna
Afgreiðslustúlkur óskast í sælgætisverzlun. Vinnu-
tími frá kl. 7 til 12 annað hvert kvöld.
Tilboð merkt: Gott kaup — 6905, sendist Mbl.
fyrir fimmtudagskvöld.
Húsasmiðir
Óska eftir samstarfi við húsasmið, sem getur lagt
fram nokkurt fjármagn. Verkstæði og vélar fyrir
hendi. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyrir 5. þ.m. merkt:
„Framtíðarstarf — 6902“.
Húsráðendur
Við höfum leigjendur á biðlista i 1 til 6 herb. íbúðir.
Husnæðismiðlunin AÐSTOÐ
v/Kalkofnsveg — Sími 15812
Skemmugrind
12x30 m til sölu. —
Upplýsingar í síma 33507.
Kefiavík
Stúlka óskast til aðstoða skólalækni við Barnaskól-
ann í Keflavík, til að annast ljósböð, aðstoða við
skólaskoðun o. fl.
Daglegur vinnutími fyrst um sinn 4—5 stundir.
Umsóknir sendist formanni fræðsluráðs Keflavíkur,
Hafnarg. 48A, -Keflavík, fyrir 8. sept. n.k.
Orðsending frá
Hótel Selfoss
Lokað frá og með 1. september. Leigjum sali fyrir
veizlur og fundi. Einnig tökum við að okkur hóp-
ferðir með fyrirvara í síma 20.
liótel Selfoss