Morgunblaðið - 02.09.1958, Side 11
Þriðjudagur 2. september 1958
M O TfC TJNBLAÐ1Ð
n
Varðskipið Ægir og „Ilerskip hennar Hátígnar“ Russel þar sem þau liggja skammt hvort frá öðru á 12 mílna línunni á sunnudagskvöld og bíða miðnættís.
Brezk herskip sfjórnuðu innrás togar-
anna í íslenzka landhelgi
//
Fyrirmœlin ganga í gildi á miðnœtfi.
Hafið auga með svörtum skipum
Fréttamaður og Ijósmyndari Mbl. lýsa
undirbúningi Breta að ofbeldisað-
gerðum fyrir Vestfjörðum
STRAX upp úr hádegi á sunnu-
dag fóru brezkir togarar fyrir
Vestur- og Norðurlandi að hafa
samband við eftirlitsskip brezka
flotans II. M. S. Russel, sem lá
rúmlega 12 sjómílur út af Arnar-
firði. Ilafði verið ákveðið, að
Russel, sem er um 2000 lesta
tundurspillir lægi á ákveðnum
stað út af firðinum, en þegar
þangað kom, var Ægir þar fyrir,
nákvæmlega á sama stað og Bret-
arnir höfðu gert ráð fyrir, að
eftirlitsskip þeirra yrði. Russel
sigldi þá nokkru norðar og tók
sér stöðu um 1 km frá Ægi.
Stjórnaði togaraflotanum
Eins og fyrr getur, höfðu
brezku togaraskipstjórarnir náið
samband við Russel. Fréttamað-
ur Mbl. fylgdist með samtölum
þessum og var þegar Ijóst, að
eftirlitsskipið stjórnaði togara-
flotanum og gaf honum nákvæm-
ar fyrirskipanir um það, hvernig
togarasjómenn skyldu hegða sér.
Skipsmenn á Russel spurðust ná-
kvæmlega fyrir um staðarákvörð
un togaranna og svöruðu þeir því
greiðlega, skýrðu einnig frá fyrir
ætlunum sínum. Mátti heyra á
togarasjómönnum. að þeim var
heitt í hamsi, en þó létu þeir
gamanyrði fylgja upplýsingum
sínum. Þannig gat einn togara-
skipstjóranna þess, að hann bygg
ist við því, að „þetta yrði eins
og í neðanjarðarlest.“ 'Hefur
hann sennilega átt við það, að
þröngt yrði á þingi, þegar flotinn
sigldi inn fyrir nyju landhelgis-
mörkin undir vernd eftirlitsskips
ins. Annar sagðist mundu „gelta
xraman í“ íslenzku varðskips-
mennina, ef þeir létu sjá sig. Þá
gáfu togararnir upp staðarákvarð
anir sínar eins og fyrr getur.
Derby County kvaðst vera 12 sjó-
milur fyrir utan Kópanes kl. 5.30,
en kvaðst mundu toga að 9 míl-
um hvað liði. Cape Portland
sagði: Við förum senn frá þeim
stað, sem við gáfum ykkur upp
í morgun, látum ykkur vita síð-
ar. Mátti heyra, að sumir togara-
skipstjórarnir voru varkárir, ef
á þá væri hlustað og töluðu und-
ir rós. Þeir sögðust hafa fengið
„fyrirskipanirnar“ o. s. frv. —
Greinilegt var af samtölunum, að
togarinn Churchill gegndi ein-
hverju mikilvægu hlutverki á
þessum slóðum og virtist hann
vera forystuskip fyrir togurun-
um.
Kölluðu á Russel
Augljóst var, að togaramenn
höfðu nákvæmar gætur á öllu
sem gerðist í kringum þá. Ef
eitthvað óvenjulegt bar að hönd-
um, kölluðu þeir þegar á Russel
og skýrðu frá atburðum. Kl. rúm
lega 6 síðdegis á sunnudag skýrði
Lincoln City t. d. frá því, að flug-
vél væri á sveimi skammt frá
honum. Var togarinn þá staddur
um 2 sjómílur undan Malarrifi.
Skýrði togarinn frá því, að svo
virtist sem þarna væri á ferðinni
farþegaflugvél. —■ Þetta er ekki
katalínubátur, bætti hann við.
Alllöngu síðar skýrðu togarar
undan Arnarfirði frá því að flug-
vél flygi yfir þá og sögðu, að
hún væri blágrá og gul á vængj-
um, en hér var einmitt um að
ræða flugvél þá, sem flutti frétta-
menn Mbl. á slóðir togaranna.
Síðar mátti heyra, að ferð flug-
vélarinnar vakti mikla athygli
togaramanna, enda flaug hún
mjög lágt yfir skipunum, eins og
getið er um annars staðar í þess-
ari frétt.
Hafið auga með „svörtum
skipum“
Klukkan 20.50 á sunnudags-
kvöldið kallaði Russel á alla
brezku togarana og sagði: Ekkert
samkomulag hefur náðst. Fyrir-
mælin ganga í giidi á miðnætti.
Hafið auga með öllum „svörtum
skipum“ sem sigla í áttina til
ykkar, svo og öðrum. skipum.
Skýrið okkur þegar í stað frá
siglingu þeirra.
Um þetta leyti og skömmu áð-
ur heyrðist líka í brezkum tog-
urum sem voru að veiðum fyrir
Norðurlandi, svo og nokkrum tog
urum sem voru á siglingu undan
Reykjanesi. Lock Wagan skýrði
t. d. frá því, að hann væri að
i/eiðum ekki langt frá Eldey.
Munu þar nafa verið nokkrir
aðrir Aberdeen-togarar á ferð. —
Á flugi yfir Látrabjargi á sunnudagskvöld. Séð norður með
Vestfjörðum, þar sem brezkir togarar og lierskip biðu þess
að gera innrás í íslenzka landhelgi.
Sæbjörg var á verði á Selvogs-
banka um þetta leyti.
Um miðnætti var mikið um að
vera hjá brezka flotanum og var
erfitt að fylgjast með samtölum
skipanna. Þó mátti heyra, að
skipstjórarnir skýrðu eftirlits-
skipinu frá því, að þeir væru
nú að toga út og draga inn vörp-
ur sínar.
Síðari hluta nætur reyndist
mjög erfitt að greina samtöl skip-
anna. Þó var það augljóst, er
líða tók á nóttina, að brezku
togararnir voru að veiðum innan
við hina nýju línu. Heyrðist það
á tilkynninkum þeirra um stað-
arákvarðanir.
Er líða tók á morguninn mátti
heyra að íslenzku varðskipin
gáfu hinum brezku togurum að-
varanir. Þeir væru að veiðum
inn&n landhelginnar og yrðu þeir
teknir og færðir fyrir íslenzka
dómstóla.
En eins og kunnugt er hindr-
uðu hin erlendu eftirlitsskip ís-
lenzku varðskipin í að gegna
skyldu sinni.
Á flugi yfir miðunum
úfi fyrir Vestfiörðum
Tveir brezkir togarar að veiðum á sunnudagskvöldið út af
Vestfjörðum.
ÞAÐ var liðlega sex á sunnudags
kvöldið sem blaðamaður Mbl. og
Ólafur K. Magnússon ljósm.
lögðu af stað með einkaflugvél
frá Reykjavíkurflugvelli vestur
fyrir Vestfirði til þess að svipast
eftir ferðum brezkra togara og
eftirlitsskipa á þeim slóðum. Flug
vélinni, sem var lítil fjögurra
manna flugvél, TF-SOL, stýrði
eigandi hennar Sig. Ólafss., sem
er einn af f lugmönnum Loftleiða.
Skyggni var gott og stefna var
tekin vestur yfir Snæfellsnes,
flogið yfir Breiðafjörð og fram-
hjá Látrabjargi. Ekkert skip var
sjáanlegt á siglingarleið, utan
vöruflutningaskip á leið til
Reykjavíkur skammt sunnan við
Látrabjarg. •
Flogið var fyrir Látrabjarg í
glaða sólskini, fram hjá Hvallátr
um og Breiðavík nokkurn spöl
frá landi án þess að enn yrði
annarra skipa vart.
Klukkan 7.03
Sjáum hvar skip fer djúpt út
af Hvallátrum. Sigurður sveigir
flugvélina til vesturs og innan
stundar erum við komnir yfir
skipið. Það reynist vera brezkur
togari, grámálaður með skor-
steinsmerki frá Grimsby. Hann
er á norðurleið. Ólafur tekur
mynd út um gluggann og við
höldum áfram norður með strönd
því í kvöldsólinni virðast þau
nær hvít að lit. Við fljúgum
fyrst til varðskipanna. Og þá
kemur í ljós að hér er komið
flaggskip brezka flotans á þess-
um slóðum, H. M. S. Russel og
ber einkennisstafina F-97. Hitt
skipið er ekki brezkt sem við í
fyrstu hugðum. Það er íslenzka
varðskipið Ægir.
Við fljúgum lágt yfir H. M. S.
Russel og Ólafur myndar í sí-
fellu. Ljósmerki eru send frá
stjórnpalli brezka herskipsins,
þegar þeir skipsmenn verða okk-
ar varir. En enginn okkar skilur
hvað herskipsmenn eru að fara.
Þeir halda á, mjög hægri ferð
til norðurs og þegar við fljúgum
sem lægst veifa dátarnir á þil-
farinu til okkar. Fallbyssurnar
eru enn huldar grænni segldúks-
ábreiðu.
Utar liggja togararnir og eru
þeir flestir að veiðum. Við fljúg-
um nú lágt yfir þá alla. Flestir
eru þeir með vörpuna úti, vír-
arnir hverfa í sjóinn í fuglamor-
inu aftur með skipshliðinni, og
einn er með hlerana á skipshlið-
inni. Menn í gulum olíustökkum
eru við vinnu sína á þilfarinu
inni og erum brátt komnir fram
hjá mynni Patreksfjarðar.
Klukkan 7.10
Framundan sjáum við skyndi-
lega þyrpingu skipa í fjarska.
— Þafna er brezki flotinn,
segir Ólafur. Þegar nær dreg-
ur kemur í ljós að hann
á kollgátuna, en ekki er
hann þó allur. Þarna eru í hóp
sex togarar og leggur reykinn
frá þeim til himins í blíðunni.
Skipin eru skammt hvert frá
öðru, ekki nema á að gizka
500—1000 metrar á milli þeirra.
Enn sjáum við ekki hvort þau
eru að veiðum. Nokkru nær landi
liggja tvö stór skip og það má
sjá að þetta eru varðskip,
og sumir veifa, þegar flugvélin
nær strýkur siglutoppana. Það
kemur í ljós að allir eru togar-
Frh. á bls. 18.