Morgunblaðið - 02.09.1958, Page 19

Morgunblaðið - 02.09.1958, Page 19
Þriðju'cfagur 2. sepícmber 1958 MORCVNBLAÐIÐ 19 Clœsilegt félagsheimili við Freyjugötu Murarafélag Reykjavíkur og Félag ísl. rafvirkja hafa mí búið starfsemi sinni góð skilyrði FÉLAGSHEIMILI Múrarafélags Reykjavíkur og Félags islenzkra rafvirkja að Freyjugólu 27, var vígt á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni. Þetta er fjögurra hæða hús, hið reisulegasta — og innan stokks glæsilegt og vel búið í alia staði. Vígsluhófið fór fram við góðar veitingar í samkomusal félags- heimilisins, sem rúmar 80—90 manns í sæti, Eggert G. Þorsieins son, formaður Múrarafélagsins bauð gesti velkomna, en siðan tók formaður byggingarnefndar og hússtjórnar, Olaíur Pálsson mælingafulltrúi til máls. Lýsti hann húsinu og þakkaði öllum þeim, sem lagt höfðu hönd á verk ið. Afhenti hann síðan húsið og veitti Óskar Hallgrímsson, form. Fél. ísl. rafvirkja því viðtöku. Lýsti Óskar húsið opið til afnota og bað allar góðar vættir jafnan vemda og blessa starfsemi þess og félaganna. Eðvarð Sigurðsson flutti heilla dskir Alþýðusambandsins, en að því loknu tók Árni Brynjólfsson, form. rafvirkjameistarafélags Reykjavíkur til máls. Flutti hann félagsheimilinu og eigendum þess árnaðaróskir og heillakveðjur og brýndi jafnframt fyrir þeim, að mikil ábyrgð væri þeim á hönd- um, sem náð heíSu slíkum áfanga í starfi sínu. Freisinu fylgdi mik- il ábyrgð — ábyrgðin að gæta þess. Guðmundur St. Gíslason, form. Múrarameistarafélags Reykja- víkur flutti heillaósKir svo og Hallgrimur Bachmann, fyrsti form. Fél. ísl. rafvirkja. Þá voru heiðraðir tveir aldnir brautryðjendur, þeir Kjartan Ól- afsson múrari og Bergmundur Ólafsson rafvirki. Luku allir ræðumenn miklu lofsorði á glæsi brag félagsheimilisins og þann stórhug og þrótt, sem byggingin bæri vott um. Bæði félögin hafa átt við mikla erfiðleika að stríða í félagsstarfseminni og er það einlæg von forráðamanna þeirra, að nýju húsakynnin verði til þess að efla félags- og menningaranda samtakanna. — Byggingin er nú fullsetin og ein- göngu af stéttarfélögunum og starfsmönmrm þeirra. Húsið að Freyjugötu 27 eiga Vatnavextir á Mýrdalssandi í SIJMAR hefir runnið jökulvatn úr Mýrdalsjökli vestan Langa- slcers á Mýrdalssandi, þó ekki meira en það, að ekki hefir það valdið verulegum samgöngutrufl- tmum. En síðustu dagana hefir þetta vatnsrennsli færzt mjög í aukana og rennur nú um 4 km breitt svæði, meiraog minna, í misdjúpum álum. Er nú að verða ófært yfir þessa vaðla öðrum bíl- um en stórum vörubílum með drif á öllum hjólum. Víða er vatnið allt af metersdjúpt. Ef þessir vatnavextir ágerast enn er hætta á að sveitirnar austan Mýr dalssands einangrist algerlega, svo fremi sem ekkert verður að gert. Svo virðist sem jökulvatnið hafi brotið sér aðra braut en venjulega undan jöklinum, því að mjög lítið vatn hefir verið í Múlakvísl. Hins vegar hefir Skálm verið í miklum vexti. múrarafélagar að fjórum fimmtu hlutum. Uppdrátt að húsinu gerði Sigurður Pétursson, bygg- ingafulltrúi, og Sveinn Kjarval sá um innanstokksuppdrætti. Halldór Guðmundsson húsasm. meistari, var yfirsmiður við bygg inguna og múrarameistari var Magnús Árnason. Jón Ágústsson form. Málarameistarafél. Reykja víkur hafði umsjón með málun. Byggingarnefnd skipuðu Aðal- steinn Tryggvason, Þorsteinn Sveinssson, Kristján Benedixts- son, Þorfinnur Guðbrandsson, Guðbrandur Guðjónsson og Ól- afur Pálsson.Auk byggingarneínd ar störfuðu stjórnir félaganna mjög að byggingarmálinu svo sem að líkum lætur og meðlimir félaganna lögðu fram mikla sjálf boðavinnu. Útför Erlends Ó. ! Frá Porforoz Péturssonar gerð að viðstöddu fjöl- Barn drukknar I fjörn HÚSAVÍK, 2. sept. — Það svip- lega slys vildi til í gær í Flatey á Skjálfanda, að tæplega tveggja ára barn, Þórgunnur Hjaltadótt- ir frá Reykjavík, féll í tjörn og drukknaði. Móðir litlu stúlkunnar hefur dvalizt í sumar hjá tengdaforeldr um sínum í Flatey. — Var litla stúlkan við leik, ásamt tveim systkinum sínum, þriggja og fjögurra ára, en nefnd tjörn er skammt frá heimili þeirra. Foreldrar Þórgunnar litlu eru Jóhanna Þorgeirsdóttir frá Akra- nesi og Hjalti Jónasson frá Flat- ey, kennari í Reykjavík. —Fréttaritari. Smyglmálið umfangs- meira með hverjum degi Rúml. 2 tonn með Tungufossi — Eldri smyglmál er nú verið að rannsaka FYRIRSJÁANLEGT er að „smyglmálið mikla", muni verða svo yfirgripsmikið er öll kurl eru komin til grafar, að sennilega mun ekkert smyglmál fyrr kom- ast nokkuð í likingu við þetta. Rannsókn smyglsins í síðustu ferð. Tungufoss hefur orðið til þess að nú er að komast upp um ýmis eldri smyglmál. Rannsókn þessara mála fer fram hér í Reykjavík, þar sem Guðmundur Ingvi Sigurðsson einbeitir rann- sókn sinni að smyglinu í Tungu- fossi og í Hafnarfirði, þar sem Jón Finnsson, bæjarfógetafull- trúi, er að rannsaka eldri smygl- mál. í „Steininum“ sátu í gærkvöldi 9 menn í gæzluvarðhaldi vegna smyglsins í Tungufossi. Margir menn hafa verið kyrrsettir, sem kunnugt er, t.d. um helmingur skipshafnarinnar á Tungufossi. Um helgina var yfirheyrslum haldið áfram og var þá náð merk- um áfanga við rannsókn málsins. jHefur tekizt að fá fram játningar manna á því, að í skipinu hafi alls verið rúmlega 2 tonn af • spíra. Þegar upp komst um mál- ið fundu lögreglumenn alls um 1 tonn. Þá voru á sunnud. var, eftir ábendingu sakbornings grafnir upp úr kálgarði suður í 11 en ekki 15 í gærmorgun var álitið að brezku landhelgisbrjótarmr væru 15, en við nánari athugun reyndust þeir ellefu. Kópavogi spírabrúsar með alls 80 lítrum. Fleiri og fleiri menn hafa orð- ið með degi hverjum, á einn eða annan hátt viðriðnir smyglmál þetta. Hafa margir verið kallaðir fyrir rétt, en menn þessir hafa aðallega verið kaupendur spíra eða verið aðstoðarmenn þeirra sem að smyglinu hafa unnið við dreifingu þess og þess háttar. Það mun vera tekið að greið ast úr flækjunni, en þó hefur enn engum verið sleppt úr haldi, síðan á fyrsta degi rannsóknar- innar. Er blaðinu kunnugt um að allmargir þeirra sem nú sitja í gæzluvarðhaldi hafa nú valið þann kostinn að gera hreint fyíir sinum dyrum í málinu. í sambandi við rannsókn á Tungufoss-smyglinu, hefur orðið meira og minna upplýst um eldri smyglmál. Rannsókn þeirra mála fer fram í Hafnarfirði. Verður væntanlega bráðlega hægt að skýra frá því hvernig rannsókn- inni miðar, en þessi gömlu smygl- mál munu vera allumfangsmikil. 1 Hafnarfirði sitja fjórir menn í gæzluvarðhaldi vegna rannsókn ar þessara mála. memu ÚTFÖR Erlends Ó. Péturssonar var gerð frá Neskirkju í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Séra Jón Thorarensen flutti húskveðj- una en séra Bjarni Jónsson vígslu biskup flutti líkræðuna og jarð- söng. Jón ísleifsson lék á kirkju- orgelið og stjórnaði söng kirkju- kórs Neskirkju. Guðmundur Jóns son söng einsöng og Þórarinn Guðmundsson lék einleik á fiðlu. íþróttamenn stóðu heiðursvörð undir fánum í kirkjunni. Félag- ar úr íþróttahreyfingunni og fleiri samtökum og vinir og kunn ingjar hins látna báru kistu hans. ORN CLAUSEN héraðsdómslögmaður Málf’utníngsskriístofa. Bankastræti 12 — Sím: 1Ó499. LEIKAR fóru þannig í 15. um- ferð, að Tal vann Larsen, Fischer vann de Greiff, Matanovic vann Fúster, Filip vann Neykirch og Gligoric vann Cardoso. Jafntefli varð hjá Friðrik Ólafssyni og Sanguinetti, Petrosjan og Aver- bach, Sherwin og Bronstein, Szabo og Benkö og Pachman og Rossetto. í IG^ umferð vann Neykirch Cardoso, Filip vann Fúster, og Larsen vann Petrosjan. Er það fyrsta skákin, sem Petrosjan tap- ar. Jafntefli gerðu Rossetto og Matonovic, Benkö og Pachman, Fischer og Szabo, Sanguinetti og Tal og Panno og Friðrik Ólaís- son. Hitt eru biðskákir. Tal er nú orðinn efstur með 11 vinninga. Petrosjan er með 10 V2, Friðrik Ólafsson þriðji með 10 og Matanovic fjórði með 9V2 vinning. Benkö, Pachman og Gligoric eru með 9 vinninga og Averbach 8% og biðskák. Ekkert verður teflt í Portoroz í dag, en 17. umferðin er á morg- un. Friðrik Ólafsson á þá frí. Hjartans þakkir til allra er glöddu mig á sjötugsaf- mælinu. Fanný Karlsdóttir. Martinus kemur til Islands í BYRJUN september kemur danski lífsspekingurinn Martinus hingað til landsins í boði vina sinna hér. Hann mun flytja nokkra fyrir- lestra hér í Reykjavik og á Akur- eyri. Aðalefni fyrirlestranna verður: Hin eilífa heimsmynd: 1. Gerð alheimsins. 2. Endurholdgun og örlaga- myndun. 3. Ódauðleiki. 4. Um tilverusvið alheimsins - lífið eftir dauðann. 5. Guðsvitundin. AKRANESI, 1. september: Annar flokkur íþróttabandalags Akra- ness, sem er á knattspyrnuferða- lagi í Finnlandi og Svíþjóð, lék sinn fyrsta leik í Nárpes í Finn- landi í gær. Leikar fóru þannig, að jafntefli varð ,þrjú mörk gegn þremur. — Frá íþróttabandaiagi Akraness. Vinsæl revía sýnd víða út um land í GÆRMORGUN sást Haraldur Á. Sigurðsson leikari á þönum í Miðbænum. Hann var að kaupa sér nesti og eitthvað fleira, því í dag leggur hann upp í langferð ásamt leikflokki sínum með reví una: „Tunglið, tunglið taktu mig“. Sagði Haraldur að um verulega yfirferð yrði að ræða. Við munum aðeins skilja Suðurlandið eftir, en hina landsf jórðungana alla heim- sækjum við, og höldum sýningu á revíunni í kauptúnum og kaup- stöðum. Það er líklega rétt að hafa röðina öfugt, sagði hann, og dró upp minnisseðilinn með nauðsynj- um á. V^ð ætlum að sýna á Blöndu ósi í kvöld. Revían var sýnd hér í Reykja- vík við mikla hrifningu í fjölda mörg skipti, og ekki er að efa að úti á landi kunni fólk að meta góða brandara. Þetta hafði átt að vera samtal við Harald Á. um leikförina, en svo var hann kominn í svo mikla tímaþröng, „eins og skákmennirnir skilurðu", sagði hann, að ef ég kemst ekki á stund- inni til skósmiðsins til að sækja skóna mína, þá verð ég að fara á inniskónum mínuml J Hjartans þaltkir færi ég börnum mínum, tengdabörn- um og barnabörnum og öðrum ættingjum og vinum, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og heillaskeytum á sjötugsafmæli mínu, 25. ágúst sl. Guð blessi ykkur öll. Ástbjörg Jónsdóttir, Framnesveg 17. Guð blessi þá er glöddu mig níræða. Lovísa Ingibjörg Jónsdóttir, Háukinn 2, Hafnarfirði. Hjartanlega þakka ég öllum vinum mínum ástúðlegar afmæliskveðjur. Sigurlang Erlendsdóttir. Hjartkær eiginmaður minn GUÐMUNDUR H. ÞORLÁKSSON Kirkjuteig 14, andaðist að morgni sunnudagsins 31. ágúst. Ingunn S. Tómasdóttir. Móðir okkar ÞÓRDlS RUNÓLFSDÓTTIR Hverfisgötu 88, lézt að heimili sínu, sunnud. 31. ágúst. Börn hinnar látnu. Móðir okkar og fósturmóðir TORFHILDUR GUÐNADÓTTIR fyrrum húsfreyja að Steinum Austur-Eyjafjöllum, sem andaðist 26. ágúst sl. verður jarðsett frá Eyvindarhóla- kirkju Austur-Eyjafjöllum föstudaginn 5. september n.k. Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hennar Stein- um kl. 1 e.h. Fyrir hönd okkar systkinanna. Ragnar Eyjólfsson. Elsku maðurinn minn JÓNAS ARNGRlMSSON sem andaðist 27. ágúst verður jarðsunginn frá Keflavik- urkirkju föstudaginn 5. september. Húskveðjan hefst kL 13,30 frá heimili hins látna Faxabraut 33A. Guðbjörg Óiafsdóttir. Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu samúð við frá- fall og jarðai'för eiginmanns míns KARLS KRISTJÁNSSONAR Norðurbraut 17, Hcifnarfirði. Stefanía Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.