Morgunblaðið - 25.01.1959, Síða 15

Morgunblaðið - 25.01.1959, Síða 15
Sunnudagur 25. jan. 1959 MORGVFBLAÐIÐ 15 Sigurður Minning Á MORGUN verður hann lagður til hinztu hvílu heima í fæðingar- sveit sinni í næsta nágrenni við fæðingarstað hans, Þorláksstaði i Kjós í hinum fagra og gróður- ríka Laxárdal, þar sem Laxá fell ur eftir miðjum dalnum. Þar fæddist Sigurður 24. maí 1865 sonur hjónanna Guðrúnar Þor- steinsdóttur og Eyjólfs Guð- mundssonar sem þar bjuggu um og eftir miðja nítjándu öld. Eign- uðust þau hjón 12 börn en aðeins 6 af þeim komust upp, 4 synir og 2 dætur, þær Guðrún Margrét og Margrét Helga, sem báðar dóu í mlóma lífsins. Bræðurnir auk Sigurðar voru Guðmundur bóndi írafelli, Ásgeir bóndi Þorláksstöð um og Eyjólfur, sem oftast var í vinnumannsstöðu. , Sigurður ólst upp í föðurgarði og dvaldist þar fram á þrítugsald ur. Eftir það var hann lausamað- ur nokkur ár þar til hann hóf búskap á litlum parti af írafelli þar sem hann bjó í 3 ár. Þaðan flutti hann svo að Eyr- ar-Útkoti 1902 ,ar sem hann bjó samfleytt í 28 ár. Árið 1932 flytur hann svo al- farinn til Reykjavíkur þar sem hann átti heima til dauðadags. Síðustu átta árin dvaldi hann á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þar sem hann lézt 18. þ.m. Sigurður giftist aldrei. Eyrsta búskaparárið bjó hann með frænku sinni en síðan alla tíð með Valgerði Álfsdóttur, ættaðri frá Bár í Flóa, þar til hún lézt 1947. Ekki eignaðist Sigurður nein börn ,en á heimili hans dvöldust oft börn og unglingar lengri eða skemmri tíma og þótti öllum góð dvölin þar, því bæði hann og ráðs konan voru mjög barngóð. Eitt af þessum börnum sem dvöldu á Eyjólfsson heimili Sigurðar var Rannveig Jónsdóttir frá Þúfu. sem átti þar heima nokkur ár og þau tóku miklu ástfóstri við. Enda nutu þau mikillrar tryggðar hjá Rann veigu meðan þau lifðu. Sigurður var maður hæglátur en glaðlyndur og spaugsamur í vina hóp, en þó bjó jafnan al- vara bak við brosið. Og jafnan var hann hress í samræðum og kunni vel að blanda geði við aðra og naut þess margur sem á heimili hans kom. enda var oft gestkvæmt á heimili hans í Eyrar Útkoti, því sá bær liggur þið þjóð braut og meðan ferðazt var á hestum og sjóleiðina inn í Laxvog var oft gestkvæmt og stundum þröngt í litlu bað- stofunni þegar þurfti að hýsa marga í einu og oft þurfti mikið til að sjá öllum fyrir góðum beina sem báru að garði, og þeir munu vera nokkuð margir enn ofar moldu, sem minnast með þakklæti gestrisni og góðvildar I þeirra Sigurðar og Valgerðar frá þeim árum þótt liðinn sé rúmur aldarfjórðungur síðan þau fluttu úr Kjósinni. a Aldrei hafði Sigurður stórt bú, enda jarðnæðið lítið. En hann fékk góðan arð af sínu litla búi, því hann fór mjög vel með allan fénað og átti jafnan nóg fóður og oftast íyrningar árlega, því hann var maður forsjáll og fyrirhyggju samur í hvívetna. Hann hefði kunnað því illa að hafa skepnur sinar vanhaldnar, því hann var mikill skepnuvinur og yfirleitt mjög samgróin starfinu við hina lifandi náttúru og unni sveitalíf- inu af heilum hug. Unni þeim gróðri og því lífi sem þar dafn- aði og óx. ,Eitt sinn sagði hann við þann sem þetta ritar að helzt hefði hann kosið að gera fjárgæzlu að lífsstarfi sínu einhvers staðar langt inn í íslandsdölum, helzt þar sem ekki sæist til sjávar. Þetta gefur nokkra hugmynd um það hvernig hann muni hafa unað, eða sætt sig við borgarlífið, enda gat hann aldrei fest þar yndi. Það voru minningarnar úr sveitinni hans sem yljuðu honum bezt á hinu mörgu og tilbreyt- ingalausu elliárum, og jafnan voru það hans beztu gleðistundir meðan hann gat skorppið í sveit- sveitina. Þar sem aldur hans var orðinn óvenju hár og hvert sporið orðið þungt og sárt fyrir löngu. Þá mun hann vissulega fagna því að lík- amafjötrarnir eru leystir svo hann getur svifið til sællri landa þar sem hinir mörgu vinir hans og vandamenn munu taka fagn- andi á móti honum. , Blessuð sé minning hans. G. G. hristjján Cuðlaugssor liæsti-réttarlögmaður. Austurstræti 1. — Sími 13400 Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5 Starfsstúlku í eldhús vantar nú þegar á Hjúkrunarstöð Bláa Bandsins. Uppl. kl. 1—3 e.h. Sími lfi630 Skrifstofustúlka óskast Skrifstofustúlka sem er vön enskum bréfaskriftum og almennum skrifstofustörfum óskast nú þegar til starfa hjá innflutningsfyrirtæki hér í bæ.Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri'störf, sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 27. þ.m. merkt: „Reglusemi — 5764“. Dömur Ný sending af dagkjólum allar stætrðir. Hattaverzlunin „hjá Báru“ Austuirstræti 14. Vestur-þýsku trésmíðaþvingurnar eru komnar aftuir. Margar lengdir. Verzlun B.H.Bjarnason '4 LESBÖK BARNANNA KÁTUR og KALLI Töframaðurinn sýnir listir sínar. Kaiur er fljótur að finna gott ráð. Hann situr á oddhvössum nöglum. „Notaðu nú einu sinni þessa þykku „Bara að eg gæti leikið þetta eftir bók, sem þú nennir aldrei að lesa í“, honurn. þá yrði ég fraegur líka“, hugs- segir hann og tekur bókina af Kalla. ar Kalli. Brækurnar á Kalla eru neðarlega eins og vant er. Kátur kemur bók- inni varlega fyrir á réttum stað. „Eg er líka töframaður“, segir Kalií. „Hókus, pókus“, segir Kalli og sezt virðulega niður á naglana við hli'ð'- ina á töframanninum. Fólkið er al- veg hissa. „Nú er Kalli frægur líka“, hugsar Kátur. Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson ^ 25. jan. 1959 3. árg. Frá yngstu höfundunum: —■ Ritgerðasamkeppni — 6. Sagan af henni Móru MÓRA átti lítið lamb. Það var einu sinni, að Móra var úti í móum að bíta gras, og fleiri kindur með lömbin sín. Þau voru öll að leika sér. Móru þótti lítið grasið, þar sem hún var að bíta, og fór að gá í kring um sig, hvort ekki væri betra einhvers stað- ar á öðrum stað. Það er lítill lækur þarna rétt hjá, en hinu megin við lækinn sá hún mikið betra gras. Hún fór þá yfir læk inn og fór að bíta þar, en litlu lömbin héldu á- fram að leika sér og lambið hennar Móru tók ekki eftir því, hvert mamma þess fór. Hin lömbin fóru til mömmu sinnar, til þess að fá sér að drekka, þegar þau voru hætt að leika sér. Og það ætlaði litla lambið henn- ar Móru líka að gera. En þegar það sá að mamma var hinum meg- in við lækinn, þá varð það hrætt, og þorði ekki að stökkva yfir. Hljóp það þá upp og niður með læknum, vissi ekki, hvernig það átti að kom- ast yfir, og jarmaði þessi lifandis ósköp. Svo tók það á sprett upp með læknum, mikið lengra en það hafði farið áður, þar var lækurinn mjórri, en talsvert mikið niðurgraf- inn. Lambið stökk þar yfir, en það náði bara með framfæturna yfir á bakkann og rann auðvit- að niður í lækinn. Það vildi til, að lækur- inn var ekki djúpur þarna, svo að það blotn- aði aðeins í fæturna. Eftir dálitla stund fór Móru að leiðast eftir lambinu, og fór að gá ! allar áttir og kalla og kalla með jarminu sínu. Litla lambið var líka allt- af að jarma, en Móra heyrði ekki í því, af því

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.