Morgunblaðið - 25.01.1959, Blaðsíða 23
23
Sunnudagur 25. jan. 1959
MORClJNnr.AfílÐ
Halldór Gröndal með verðlaunatrogið. Hver getur torgað þessu
á tveim tímum?
Þorramatur í trogum
kominn á borð í Nausti
í fyrra tók Halldór Gröndal
veitingamaður í Nausti upp þann
skemmtilega sið að bjóða gest-
um veitingahússins upp á ís-
lenzkan mat í trogum á Þorr-
anum. Varð þetta ákaflega vin-
sælt, fólk kom langar leiðir að í
Þorramatinn, t. d. frá Selfossi,
Akranesi, Keflavik, ofan af Kjal-
arnesi og frá fleiri stöðum í nær-
sveitum Reykjavíkur.
Nú er aftur kominn þorri, og
Þorramaturinn kominn á borðið
í Nausti. í fyrra var aðeins hægt
að fá trog, ef fjórir voru saman.
Nú hafa verið fengin minni trog,
svo hægt er að framleiða þannan
íslenzka ma't fyrir einn eða tvo.
Verðið er kr. 75.00 á mann og
má hver borða eins mikið og hann
getur í sig látið.
Til gamans verður fólki á þess-
um Þorra gefinn kostur á að
reyna sig við sérstakt verðlauna
trog, og takist því að ljúka úr
því á tveimur tímum, fær það
ekki einungis allan matinn frí-
an og þau drykkjarföng, sem
það kærir sig um, heldur hlýt-
ur það verðlaun að auki. I verð-
launatroginu er svolítill skammt
ur af öllu því góðgæti, sem Þorra
matnum tilheyrir: súr og ný svið,
hangikjöt, rófustappa, bringu-
kollur, tvenns konar sulta, hákarl
flatkökur, hverabrauð, o. fl. Ekki
virðist skammturinn þó svo mik-
ill að sæmilegur matmaður hafi
ekki von um að klára úr troginu.
Súrmatinn lét veitingahúsið
útbúa í haust, í samvinnu við
kjötbúðina Borg, sem um áratugi
hefur haft á boðstólum úrvals
súrmat. Erfiðast er að útvega
góðan hákarl, að því er Halldór
Gröndal tjáði fréttamönnum á
bóndadaginn, þegar þessi matur
var fyrst á borðum á þessum
vetri. Kvað hann iandsmenn að
mestu vera hætta að verka há-
karl, nema helzt á Austfjörðum.
Islenzki maturinn verður á
boðstólum í Nausti allan þorrann
eða fram á Þorraþræl, sem er 22.
febrúar, og er ekki að efa að
margir muni nota tækifærið til að
bragða þennan mat, sem nú er
að verða nokkurs konar sjald-
gæfur hátíðamatur hér í höfuð-
borginni.
B-listinn er listi
iýbræbissinna í DagsbrÉ
LISTI lýðræðissinna í Dagsbrún,
B-listinn_ er skipaður eftirtöldum
mönnum í stjóx'n og vai’astjói’n:
Aðalst jórn:
Formaður: Jón Hjálmarsson.
Varaform.: Jóhann Sigai-ðsson.
Ritari: Kristinus Arndal
Gjaldkeri: Daníel Daníelsson
Fjánmr.: Magnús Hákonarson.
Meðstj.: Tryggvi Gunnlaugsson
Gunnar Sigurðsson.
Varastjórn:
Guðmundur Jónsson
Sigurður Þórðarson
Karl Sigurþórsson.
Dagsbrúnarmenn, fjölmennið á
kjörstað og gefið kommúnistunum
I stjórn fclagsins frí frá störfum
með því að kjósa B-LISTANN.
Fjórhogsneindir beggjn þing-
deildn unnu uð uthugun niírar-
færsluirumvurpsins í gær
Eins og skýrt er frá á öðrum
stað í blaðinu, lauk 1. umræðu
um niðurfærslufrumvarp ríkis-
stjórnarinnar kl. rúmlega hálf-
þrjú í fyrrinótt. Var því vísað
til 2 umræðu og fjárhagsnefndar.
Bar forseti neðri deildar fram
þá ósk forsætisráðherra í fund-
arlok, að fjárhagsnefnd efri deild
ar ynni með fjárhagsnefnd neðri
deildar að athugun frumvarpsins.
Klukkan tvö í gær komu svo
fjárhagsnefndir beggja deilda
saman á fund og tóku frumvarp-
ið til meðferðar. Stóð sá furtdur
til kl. 7 í gærkvöldi. Var þá ekki
unnt að segja hvenær málið yrði
afgreitt frá néfndunum, en
áherzla verður lögð á að hraða
afgreiðslu þess.
Anderson og Eiríkur sömdu
um ráðstafanir gegn veiðar-
færaskemmdum
Anderson hvatti brezka togaraskip-
stjóra til að segja satt frá málavöxtum
1 kvöldfréttum útvarpsins í gær
var frá ?ví skýrt, að í síðasta
gæzluleiðangri varðskipsins Þórs
hefði það borið til tíðinda, að
Eiríkur Kristófersson, skipherra,
og Andie.rson, flotaforingi á her-
skipinu Duncan, hefðu ræðzt við
persónulega um ráðstafanir til að
vernda veiðai’færi vertíðabátanna
fyrir skemmdum af völdum
brezkra togara.
Fékk stirð svör lijá Russell
1 þesari síðustu ferð varðskips-
ins kvörtuðu vélbátar, sem fiska
með línu undan Suð-austurlandi,
til varðskipsins yfir veiðarfæra-
tapi, er be.rzkir txxgarar höfðu
valdið þeim. Sneri Eiríkur skip-
herra sér þá til brezka hei’skips-
ins Russell og kvartaði ýfir veið
arfæraskemmdunum, en fékk stii’ð
svör.
★
Anderson, flotaforingi á herskip
inu Duncan, mun hafa fylgzt með
talstöðvaskiptunum milli Þórs og
taistöðvaskiptunum milli Þórs og
Russell. Lét hann málið til sín
taka og fór f ram á að fá að ræða
persónulega við Eirík um mál
þetta.
Ekki minnzt einu orSi á Iand-
helgisdeiluna
Leitaði Eiríkur Kristófersson á-
lits stjórnar Landhelgisgæzlunn-
ar, sem féllst á, að Eiríkur ræddi
Burns-veizla hjá
„British Council6‘
í KVÖLD gengst „British Counc-
il“ fyrir veizlu í Þjóðleikhúskjall-
aranum í tilefni af 200 ára af-
mæli skozka ljóðskáldsins Rob-
erts Burns, sem er mörgum ís-
lendingum að góðu kunnur.
Veizlan er haldin að tilhlutan
brezka sendikennarans hér, sem
er Skoti eins og nafn hans bendir
til: Donald McKinnon Brander.
í veizluna verður boðið öllum
styrkþegum „British Council"
ásamt ýmsum þeim sem aðstoðað
hafa við undirbúning Burns-sýn-
ingarinnar í Glasgow. Meðal
þeirra er Axel Thorsteinsson
blaðamaður, en hann lánaði þýð-
ingar föður síns á ljóðum Burns
til sýningarinnar, en þar eru m. a.
sýndar þýðingar á ijóðum skálds-
ins á um 60 tungumálum. í veizl-
unni í kvöld verður ýmislegt með
þjóðlegum skozkum blæ, m. a.
„address to the haggis", sem er
ræða yfir skozku slátri, og er
hún flutt á skozkri mállýzku.
í blaðinu á þriðjudaginn verður
sagt nánar frá Robert Burns.
málið við Anderson. Fór Eirfkur
skipherra þá til fundar við flota-
foringjann uim borð í Duncan. —
Skipin lágu fyrir akkeri í land-
vari„ meðan á fundinum stóð.
Tók Eiríkur það fram, að ein-
göngu hefðir verið rætt um ráð-
stafanir til að vernda veiðarfæri
vertíðarbátanna án hliðsjónar af
því_ hvort þau. liggja í sjó inn-
an eða utan 12 mílna landhelginn
ar. Ekki hefði verið minnzt einu
orði á landhelgisdeiluna, og því
hefðu þessar viðx-æður alveg eins
getað farið fram, þó að Bretar og
íslendingar hefðu ekki átt í nein-
um deilum út af landhelginni.
Anderson brást vel við.
Ságði Eiríkur skipherra, að
Anderson hefði brugðizt mjög vel
við beiðni hans um, að hex’skipin
veittu aðstoð sína til að koma því
til leiðar, að brezkir togarar hlífðu
línum og netum bátanna. Sjálfur
hefði hann lofað að koma á fram
færi við skipstjóra á bátaflotan-
um tilmæium um, að þeir mei’ktu
veiðarfæri sín svo vel sem unnt
er, svo að togaraskipstjórarnir
ættu auðvelt með að foi-ðast veið-
arfæi'askemmdir — einnig að
skipstjói’arnir forðisþ að leggja
veiðarfæi’i sín í sjó í veg fyrir
togara, þar sem þeir eru að veið-
um fyrir.
Loftskeytamenn Þórs he3>T3u
að morgni 18. jan. sl. tilkynningu
um þennan fund frá Anderson
flotaforingja til skipstjóranna á
brezku togurunum. Sagði Ander-
son í tilkynningunni, að hann
hefði boðið Eiríki Kristóferssyni,
sem sjómönnum sé að góðu einu
kunnur, til viðtals við sig um
veiðarfæraskemmdir. í tiikynn-
ingunni var ýtarlega greint frá
samkomulaginu, sem þeir gerðu
sín á milii.
Einnig sagði Anderson í erindi
sínu til togaramanna, að misklíð
rísi oft að óþörfu af því, að línu-
bátarnir sendi kvartanir til varð-
skipanna, en togararnir til her-
skipanna, og erfitt reynist að
komast að hinu sanna í málinu.
★
Anderson skoraði á togaraskip-
stjóraná að huga vel að duflum
línu- og netjabátanna og tilkynna
herskipunum tafarlaust, ef þeir
hafi fengið línu eða net í vörp-
urnar. Enn fremur hvatti Ander-
son skipstjórana til að segja satt
frá málavöxtum, svo að herskipin
geti gert þær ráðstafanir, sem
þau telja nauðsynlegar.
Þakka hjartanlega heimsóknina, gjafirnar og skeytin
á áttræðisáfmæli mínu 20. þessa mánaðar.
Skúli Kolbeinsson.
Hjartanlegustu þakkir sendi ég öllum þeim, ættingj-
um og vinum sem minntust mín á svo margan ógleyman-
legan hátt á 70 ára afmæli mínu 1. janúar.
Heill og heimingja fylgi ykkur öllum.
Árný Sigurðardóttir frá Hildisey.
Maðurinn minn og faðir okkar
HERGEIR ELÍASSON
skipstjóri,
lézt að sjúkrahúsinu Sólheimum, föstudaginn 23. jan.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragnheiður Þórðardóttir og börn.
Útför móður minnar
INGIBJARGAR ÞORVALDSDÓTTUR SlVERTSEN
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjud. 27. janúar kl. 1,30.
Hlíf Jónsdóttir.
Eiginkona mín og móðir okkar
JÚLlANA JENSDÓTTIR
sem andaðist laugardaginn 17. þ.m. verður jarðsungin
mánudaginn 26. jan. frá Fossvogskapellu kl. 1M> e.h.
Karl Björnsson,
Björn Karlsson, Jens Karlsson,
Karl Valur Karlsson, Garðar Karlsson.
Jarðarför sonar míns og bróður okkar
NIELSAR ÞÓRARINSSONAR
Laugavegi 76,
fer fram þriðjudaginn 27. þ.m. frá Fríkirkjunni kl. 2,30
e.h.
Guðrún Daníelsdóttir og böm.
Jarðarför sonar okkar
HALLDÓRS GUNNLAUGSSONAR
fer fram frá Bessastaðakirkju þriðjud. 27. þ.m. kl. 2 e.h.
Guðný Klemensdóttir, Gunnlaugur Halldórsson.