Morgunblaðið - 12.02.1959, Síða 4
MORGUN BLAÐIB
Fimmtudaeur 12. febr. 1959
Ég kom út aftur í sömu andránni og
frakkinn réðist á roskinn mann, sem var
þarna á gangi í hægðum sínum. Ég sá,
að ekki var um annað að ræða en slá
frakkann í rot.
Fatakaup
• Geagtö •
100 gullkr. = 738,95 pappirskr.
Guliverð isl. krónu:
Sölugengi
1 Sterlingspund .... kr. 45,70
1 Bandank iadollar.. — 16.32
1 Kanadadollar .... — 16,32
100 Gyllini ..........—432,40
100 danskar kr. ...... — 236.30
100 norskar kr. .....— 228.50
100 sænskar kr.......— 315,50
1000 fránskir frankar .. — 33,06
100 belgiskir frankar.. — 32,90
100 svissn. frankar .. —376,00
100 vestur-þýzk mörk — 391.30
1000 Lírur ............ 26.02
100 tékkneskar kr. .. — 226,67
100 finnsk n.örk .... — 5.10
Einar Ásmundsson
liæsUréttarlögiuaoui.
Hafsteinn Sigurðsson
héraSsdúmslögmaður
Sími 15407, 1981?
Skrifstoíu Hafuarslr. 8, II. hæí.
.... klæddi ég mig úr frakkanum, þaut
af stað eins og elding og forðaði mér
inn um næstu dyr.
FERDINAND
Ég trúði varla mínum eigin augum, þeg-
ar ég sá frakkann minn verða hamslaus-
an, ráðast á hundinn og leika hann svo
grátt, að hundurinn sá þann kost vænzt-
an að flýja hið bráðasta.
í dag er 43. dagur ársins.
Fimmtudagur 12. febrúar.
Árdegisflæði kl. 8,11.
Síðdegisflæði kl. 20,31.
SlysavarSstofa Reykjavíkur i
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður
L.R. (fyrir vitjanir) er á sama
stað frá kl. 18—8. — Sími 15030.
Næturvarzla vikuna 8. til 14.
febr. er í Reykjavíkurapóleki, sínii
11760.
Holts-apótek og Garðs-apótek
eru opin á sunnudögum kl. 1—4
eftir hádegi.
Hafnarf jarðarapótck er opið
alla virka daga kl. 9—21. Laugar-
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
dag kl. 13—16 og kl. 19—21.
Píæturlæknir í Hafnarfirði er
Kristján Jóhannesson, sími 50056.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Simi 23100.
□ Gimli "9592127 — 1 Fr. Atkv.
IS Helgafell 59592137. VI. — 2.
I.O.O.F. 5 ae 1402128% s 9. 0
I.O.O.F. 1 = 1402122*4 + Frik.
Frík.
____Messui
Klliheimilið. — Föstuguðsþjón-
usta kl. 6,30 í kvöld. Séra Bragi
FriSriksson prédikar.
B^Brúökaup
S.l. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband Gréta Friðriksdótt
ir, Silfurtúni F-l, Garðahreppi
og öm Ingólfur Kinsky, Njáls-
götu 10, Reykjavík.
Nýlega voru gefin saman, í Nes
kirkju af séi-a Jóni Thorarensen,
ungfrú Ása Jónsdóttir, Nesvegi
53 og William Stacy Clark, starfs
maður á Kefiavíkurflugvelli.
Hjönaefni
Nýiega hafa opinberað trúlofun
aána ungfrú Elisabet Ásmunds-
dóttir, Grettisgötu 5, Reykjavík og
Jónas Hafsteinsson, Njálsstöðum,
Blönduósi, A.-Hún.
Nýlega hafa opinberaö trúlof-
un sína ungfrú Auður Konráðs-
dóttir, Nökkvavogi 46 og Guðjón
Már Jónsson, Langholtavegi 12.
Helga Kuld, Hjallavegi 25 og
Ótafur Bex-gnoann Ásmundsson,
Akranesi, opinberuðu trúlofun
sína 9. janúar s.l.
Opinberað hafa trúlofim sína
ungfrú Brynja Sigursteinsdóttir,
Nönnustíg 4, Hafnarfirði og örn
Snævar Ólafsson, Áifaskeiði 14,
Hafnarfirði.
Skipin
Eimskipafélag fslands h.f.: —
Dettifoss fór frá Pati-eksfirði í
gær. Fjallfoss kom til Rvíkur 8.
þ.m. Goðafoss kom til Rotterdam
í gær. Gullfoss fór frá Seyðisfirði
3. þ.m. Lagarfoss kom til Ham-
borgar 8. þ.m. Reykjafoss fór fri
Akureyrí í gærkveldi. Selfoss fór
frá Vestmannaeyjum 4. þ.m. —
Tröllafoss fór frá Hamborg 9. þ.
m. Tungufoss kom til Reykjavíkur
í gær. —
Skipaútgerð rtkisins: — Hekla
er á Austfjöx-ðum. Esja fór frá
Reykjavík í gærkveldi. Herðubreið
er á Austf jörðum. Skjaldbreið
kom til Reykjavikur í gærkveldi.
Þyrill er á Vestfjörðum. Helgi
Helgason f«r frá Reykjavík í dag.
Baldur fer frá Rvík í úag.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell
fór frá Gautaborg í gær. A rnar-
fell fór frá Barcelona 6. þ.m. Jök-
ulfell átti að fara frá Rostock í
gær. Ðísarfell kemur til Aki-aness
um hádegið í dag. Litlafell losar
á Norðurlandshöfnum. Helgafeli
er í New Orleans. Hamrafell er í
Palermo.
Eintskiprfélag Reykjavtkur h.f.
Katla er á leið til Reykjavíkur
frá Spáni. — Askja er í Rvík.
ggFlugvélar
Flugfélag íslands b.f.: — Hrím-
faxi er væntanlegur til Rvikur kl.
16,35 í dag frá Kaupmannahöfn
og Glasgow. — Flugvélin fer til
Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08,30 í fyrramálið. — Innanlands
flug: 1 dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Bíldudals, Egiísstaða,
ísafjarðar, Kópaskers, Patreks-
fjarðar og Vestmannaeyja. — Á
morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Fagurhólsmýrar, —
Hólmavikur, Hornafjarðar, Isa-
fjarðar, Kirkjubæjarklausturs,
Vestmannaeyja og Þórshafnar.
PSjjAheit&samskot
Til Hallgrínutkirkju í Saurbæ
hef ég nýlega móttekið 110 kr. þ.
e. gjöf frá N N, 60 kr., og gjöf
frá S S og S H 50 kr., til minn-
ingar um ÓVaf Þoisteinsson tré-
smið. — Afhent mér af Sigurjóni
prófasti Guðjónssyni í Saurbæ. —
Matthías Þórðarson.
Lamaði íþróttaniaðurinn: E A,
Vestmannaeyjum kr. 100,00; G V
S 50,00; G. Sveinbjamar 50,00.
Sólheimadrengurinn: — G.
Sveinbjamar kr. 50,00.
Lamaða stúlkan: G V kr. 100,00.
Ymislegt
Orð lífsins: — Á þeirri stundu
var hann að lækna marga af sjúk-
dónuim og plágum og af illum önd
Ég gekk hress í bragði eftir þröngum
götum Lundúnaborgar. Skyndilega kom
óður hundur þjótandi í áttina til mín.
Jæja, hugsaði ég með sjálfum mér. Það
er bersýnilega ekki um annað að gera
en bjarga sér á flótta. Til að eiga hæg-
ara með það ....
-mtð
— Vissulega met ég stundvísi
nijög mikils, en öllu má of-
bjoða ....
★
LÆKNI nokkrum í New York
hafði verið boðið til mikillar
veizlu. Eins og gerist og gengur,
hlakkaði hann til þess að borða
góðan mat og skemmta sér. En
þegar til kastanna kom, varð
annað uppi á teningnum, þvi að
borðdaman hans var sí og æ að
spyrja hann um mataræði og
biðja hann að ráðleggja sér, hvað
hún ætti helzt að leggja sér til
munns. Hún lét ekki þar við sitja
heldur fjölyrti hún um margs
konar meltingarsjúkdóma og
spurði lækninn í þaula um ein-
kenni slikra veikinda.
Er borðhaldinu var lokið, vék
læknirinn sér að lögfræðingi, sem
setið hafði beint á móti honum
við borðið.
— Þér heyrðuð, hvað okkur
fór á milli. Segið mér, haldið þér,
að ég ætti að senda henni reikn-
ing?
— Já, auðvitað, sagði lögfræð-
ingurinn og kinkaði kolli i ákafa.
Það liggur í augum uppi.
Er Iæknirinn kom á lækninga
stofuna næsta morgun, bjóst
hann til að senda konunni reikn
ing, en settist fyrst niður til að
lesa nokkur bréf, sem honum
höfðu borizt. í fyrsta umslaginu,
sem hann opnaði, var reikningur
frá lögfræðingnum fyrir lögfræði
lega aðstoð; 25 dalir.
★
Um langt skeið hefir verið bann
að í Tékkóslóvakíu að sýna banda
riskar kvikmyndir frá villta
vestrinu. Slíkar myndir eru í
Tékkóslóvakíu álitnar mjög sið-
spillandi. Fyrir nokkru voru lög-
reglumenn í Prag á eftirlitsferð
um borgina. Komust þeir þá að
raun um, að í kvikmyndahúsi
nokkru var verið að sýna banda-
ríska kúrekamynd með sjálfum
Gary Cooper í aðalhlutverkL
Fimmtíu áhorfendur voru hand-
teknir, þ. á. m. 16 frægir tékk-
neskir leikarar, sem allir höfðu
verið sæmdir heiðursverðlaunum
Jistamanna, sem njóta hylli al-
mennings”-
um, og mörgunn blindum gaf hann
sýn Og hann svaraði og sagði viö
þá: Farið og ktinngjörið Jóhannesi
það sem þið hafió séð og heyrt.
(Lúk. 7). —
Borgfirðingafélagið heldur spila
kvöld í Skátaheimilinu kl. 8,30 í
kvöld. —•
Ægir, rit Fiskifélags íslands(2.
hefti 1959), er nýkomið út. Þar
er m.a. yfirlit um útgerð og afla-
brögð á Suðvesturlandi 1.—15.
janúar og i Austfirðingafjórðungi
í nóv. og des. 1958. Sagt er frá
námskeiðum í meðferð og við-
haldi fiskileitartækja. Þá eru er-
lendar fréttir: Segja Norðmenn
sig úr hvalveiðisamtökunum?
Birt er skýrsla um heildarfiskafla
landsmanna 1.—30. nóv. sl., og
loks er grein, sem nefnist „Um
verksmiðjutogara". Fleira er og í
ritinu.
Félag austfirzkra kvenna held-
ur aðalfund fimmtudaginn 12. þ»
m. kl. 8:30 í Garðastræti 8.
Kvenfélag Lágafellssóknar: —
Handavinnutími verður fimmtu-
daginn 12. febrúar kl. 2—7. Kenn
ari kemur.
Mæðrafélagið. — Saumanám-
skeið félagsins byrjar um miðj-
an febrúar. Konur, sem vilja
taka þátt í því, geri svo vel að
láta vita um það í síma 24846 eð«
15938 fyrir n. k. föstudag.
Mænusóttarbólusetning. —
Mænusóttarbólusetning í Reykja-
vík fer enn fram í Heilsuvernd-
arstöðinni við Barónsstíg alla
þriðjudaga kl. 4—7 e. h. — Sér-
staklega er vakin athygli þeirra
Reykvíkinga, sem aðeins hafa
fengið fyrstu, eða fyrstu og aðra
bólusetningu, á því að rétt er
að fá allar 3 bólusetningarnar,
enda þótt lengra líði á milli en
ráð er fyrir gert.
^Pennavinir
Pennavinir. — Bev Williams,
Chrislcharch School, Chrisáeh-
urch, Virginia, U.SA. (drengur
um fermingaraldur) óskar eftir
bréfaskiptum við íslenzka jafn-
aldra, stúlkur eða drengi. Hann
safnar frímerkjum og langar auk
þess til að fá upplýsingar um ís-
land.