Morgunblaðið - 15.02.1959, Blaðsíða 2
2
M O R G V N B L AÐ1E Sunnudagur 15. febr. 1959
Við viljum ekki byggja upp menninguna
í landinu á kostnað mannúðarinnar -(
Ræða Ólafs Thors fyrir frv. um
vöruhappdrætti S. I. B. S.
Á FUNDI neðri deildar í fyrra-
dag var tekið fyrir til fyrstu um-
ræðu frumvarp til laga um vöru-
bappdræfeti fyrir Samband ís-
lenzkra berklasjúklinga. Flutn-
ingsmenn eru Ólafur Thors, Ey-
*teinn Jónsson, Einar Olgeirsson
og Emil Jónsson. Fyrsti flutn-
ingsmaður, Ólafur Thors, form.
Sjálfstæðisflokksins, f]>'lgdi
frumvarpinu úr hlaði og mælti
á þessa leið:
Ég hef leyft mér, ásamt hv. 1.
þm. S-M., hv. 3. þ.m. Reykv. og
hv. þm. Hafnf. að flytja hér frv.
á þskj. 245 um vöruhappdrætti
fyrir Samband íslenzkra berkla-
gjúklinga.
Það var árið 1949, að sett voru
lög hér á Alþingi um rétt til
handa Sambandi ísl. berklasjúkl-
inga til að stofna og reka happ-
drætti. Þessum lögum hefur tví-
vegis verið breytt, fyrra skipt-
ið 1952 og í síðara skiptið 1956,
eins og nánar greinir í grg., er frv.
fylgir. Þessi réttindi S.Í.B.S. til
handa, áttu að gilda í tíu ár. Þau
eru því úr gildi fallin á þessu
ári. Meginefni þessa frv. er að
framlengja þau í tíu ár.
Fjárþörfin, sem fyrir hendi er
og frv. er ætlað að standa und-
ir, sprettur fyrst og fremst af
þrennu. í fyrsta lagi því, að
S.f.B.S. hefur í hyggju og hef-
ur þegar hafið undirbúning að
því að færa út starfsemi sína
með almennri öryrkja að-
stoð. f öðru lagi af því, sem
raunar líka er útfærsla á starf-
seminni, að S.f.B.S. hefur ný-
verið tekið upp ýmiss konar að-
stoð við skjólstæðinga sína um-
fram það, sem áður var gert. í
þriðja lagi er svo tilgangurinn
sá að halda áfram, færa út og
efla þá starfsemi, sem í öndverðu
vakti fyrir þeim mönnum, sem
stofnuðu og stjórnað hafa S.f.B.S.
Varðandi það, er ég nefndi
fyrst, vil ég aðeins skýra frá því,
að það *r nú ætlan S.f.B.S. að
stofnsetja vinnustofur til þess að
greiða fyrir öryrkjum, sem ekki
hafa vist á sjúkrahúsum eða
heilsuhælum. Og það er ekki ætl-
anin, að þessi fyrirgreiðsla nái
eingöngu til þeirra, sem eru ör-
yrkjar vegna berklaveiki eða af-
leiðinga af berklaveiki, heldur
til öryrkja almennt. Ég vil að-
eins minna á það, til þess að und
irstrika nauðsyn þá, sem hér er
um að ræða, að í Reykjavík
einni munu vera 1100 öryrkjar
á bótum hjá Tryggingarstofnun
rikisins. Nú er tilgangurinn sá,
eins og ég sagði, að opna vinnu-
stofur, þar sem þessir menn geta
fengið atvinnu við sitt hæfi. Er
þá jafnframt haft í huga, að þeg-
ar þeir hafa lært þar störfin og
kannske eflzt að heilsu, þá geti
þeir sjálfir leitað sér atvinnu
annars staðar og án aðstoðar eða
fyrirgreiðslu S.Í.B.S. Ég veit, að
allir hv. alþm. gera sér grein
fyrir, hvílíkt þjóðfélagslegt tap
Dagskrá Alb’mgis
'Á MORGUN eru boðaðir fundir
1 báðum deildum Alþingis kl. 1,30.
Á dagskrá efri deildar eru tvö
mál: 1. Sauðfjárbaðanir, frv. —
Frh. 2. umr. (Atkvgr.). — 2. Lif-
eyriasjóður starfsmanna ríkisins,
frv. — 2. umr.
Fimm mál eru & dagskrá neðri
deildar: 1. Olíuverzlun rikisins,
frv. — Frh. 1. umr. (Atkvgr.). —
2. Skipun prestakalla, frv. — 3.
umr. — 3. Skipulagning sam-
gangna, frv. — 3. uimr. — 4. Heft-
ing sandfoks og græðsla lands,
frv. — 1. umr. Ef deiidin leyfir.
— 5. Sjúkrahúslög, frv. — 1.
umr. Ef óeildin leyfir.
það er, að í okkar fámenni, skuli
vera jafnvel þúsundir manna,
sem ekki geta aflað sér neinna
tekna né neíns starfs, vegna
meiri eða minni örorku. Þetta er
mjög mikið fjárhagslegt tjón en
hitt þó enn verra, að þessum
mönnum líður að sjálfsögðu ákaf-
lega illa. Það vita allir, að iðju-
leysi manna, sem langar til að
vinna, er þeim þungbær kvöl, og
það vita einnig allir, að einmitt
þessir öryrkjar, eiga óvíða skjóls
að leita, svo að ég segi ekki meira.
Það hlýtur því að vera alþm.
mikil gleði að eiga þess kost að
stuðla að því með atkv. sínu hér
á þingi, að greidd verði gata
þessara manna. Ég efast ekk-
ert um það, eftir því sem ég
þekki þá menn, sem hér eiga
sæti, að allir vilja leggja máli
þessu lið.
Ég skal svo ekki fjölyrða um
þetta verkefni, S.Í.B.S., vísa að
öðru leyti til þess, sem í grg.
segir.
Varðandi hið annað viðfangs-
efnið, sem ég nefndi, þ.e.a.s., fyr
irgreiðslu fyrir skjólstæðingum
S.Í.B.S. á öðrum sviðum heldur
en hingað til hefur verið aðal-
hlutverkið, skal ég aðeins skýra
frá því, sem menn kannske hafa
einnig séð í grg., að þar er átt
við, að S.Í.B.S. greiði fyrir skjól-
stæðingum sínum, bæði um að út-
vega þeim atvinnu og með því að
vera málsvari þeirra gegn hinu
opinbera og gegn ýmsum fyrir-
tækjum og yfirleitt að greiða
fyrir þeim í hvívetna, þar sem
áhrif S.Í.B.S ná til. Einnig hefur
S.Í.B.S. unnið það þarfaverk nú
að undanförnu að aðstoða þessa
miður settu menn í baráttunni
fyrir daglegu brauði um útveg-
un sómasamlegs húsnæðis og hef-
ur orðið þar nokkuð ágengt. Mig
minnir að það séu á annað
hundrað fjölskyldur, sem með
lánum og lánsfjárútvegunum
eru nú að ljúka byggingu eigin
íbúða en sem engan kost hefðu
átt á þessu, án aðstoðar S.Í.B.S.
Og auk þess eru 27 fjölskýldur,
sem eru berklaöryrkjar og hafa
komizt úr algerlega heilsuspill-
andi húsnæði og í sæmilegar og
hollar vistaverur, fyrir atbeina
S.f.B.S.
Ég skal ekki fjölyrða frekar
um þetta tvennt. Varðandi
þriðja atriðið, sem er beint á-
framhald af þeirri starfsemi,
sem í öndverðu var grundvöll-
ur undir stofnun S.Í.B.S. og það
höfuðhlutverk, sem S.Í.B.S. tókað
sér að inna af höndum, er ætl-
anin nú sú að halda áfram og
stækka byggingarnar á Reykja-
lundi. Mér er tjáð, að þar sé
margt óunnið enn þá. Það sé t.d.
eftir að reisa að verulegu leyti
ýmsar byggingar, sem þó er
alger nauðsyn fyrir starfsemina,
að komið verði upp. Ég nefni
þar til, að það er ekki nema
hálfbyggður vinnuskáli fyrir
jámsmíðar, og einnig munu
óbyggðar eða vera í byggingu og
hvergi nærri lokið bæði vöru-
geymslur, skrifstofur, kennslu-
stofur, þvottahús o. m. fl., sem
ekki verður komizt af án. Þá
er enn allmikill skortur á því,
að útvegaðar hafi verið þær vél-
ar, sem þessi mikla og gagnlega
starfsemi þarf á að halda. Og
eftir því, sem þeir skýra okkur
frá, sem þessum hnútum eru
kunnugastir, þá mun vanta um
10 millj. kr., til þess, að hægt
verði að ljúka þessum bygging-
um og kaupa nauðsynlegar vélar.
Þá hafa forystumenn S.Í.B.S.
tjáð okkur, að undanfarin 10 ár,
hafi vistmenn á Reykjalundi, en
þeir hafa alls verið um 500 sam-
alls, unnið þar 1 millj. og 200 þús.
vinnustundir. Greidd vinnulaun
hafa verið 15 millj. kr., en and-
virði seldrar framleiðsluvöru
hefir verið 45 millj. Þessar tölur
tala svo skýru máli, að ég þarf
ekki að bæta þar neinu við. Ég
segi þó aðeins frá því, að fyrir
utan þetta mikla verk sem þarna
hefur verið innt af hendi, þá hef-
ur einnig verið rekinn iðnskóli.
Þar hafa 150 menn lokið þriðja
eða fjórða bekkjar prófi og með
því búið sig undir lífsbar-
áttuna, sem þeirra bíður fram-
undan.
Ég skal ekki nefna nöfn þeirra
manna, sem heiðurinn eiga af
þessum glæsilegu framkvæmd-
um. Þetta eru þjóðkunnir menn,
og ég held, að þeir njóti trausts
allrar þjóðarinnar. Þeir eru
óvenjulega miklir hugsjónamenn,
og auk þess, bæði áræðnir og
hagsýnir. Mér er nær að halda,
að það sé ekki mjög algegt, að
saman fari þessir miklu kostir og
má þó við bæta fórnfýsi, ráð-
deild og heiðarleik þeirra, sem
hér hafa markað stefnuna og
stýrt förinni.
Ég er meðal þeirra mörgu,
ja ætli við séum það ekki allir —
sem dái verk þessara manna. Og
við erum ekki einir um það. Þjóð
in er öll sammála okkur. Og við
erum ekki einir íslendingar um
þetta, heldur vitum við það sjálf-
sagt, sem hér erum inni, að þessi
starfsemi er eitt af því, sem mest
er rómað af gerðum þessarar litlu
þjóðar, sem þó, þrátt fyrir okkar
mörgu galla, nýtur mikils álits
og það að verðugu, í augúm
þeirra manna, sem einhverja að-
stöðu hafa fengið til að kynnast
okkur. En eins og ég segi, þrátt
fyrir allt, er kannske ekki þetta
sízt. Þrátt fyrir margt, sem okk-
ur er fært til ágætis, er þetta
kannske öðru fremur nefnt sem
glæsilegt vitni um framtak og
mannkærleika og manngæzku
íslendinga.
Ég skal ekki fjölyrða um það
að þeir sem koma af sjúkrahús-
um og hafa kannske átt þar sæmi
lega vist vegna þess, að þeir hafa
eins og samlagazt andrúmsloftinu
sem þar ríkir og beðið eftir bat-
anum með tilhlökkun, verða oft
fyrir miklum vonbrigðum þegar
þeir koma úr sjúkrahúsunum og
eiga að fara að njóta gæða lífsins,
sem sæmilega heilbrigðir menn.
Þá er kannske oít skammt um
liðið, frá því að dyr sjúkrahús-
anna lokast á eftir þeim, að þeir
mundu helzt óska sér, að þessar
dyr opnuðust aftur. Margir af
þessum mönnum eru staddir í
jökuldal lífsins. Það er eins og
enginn vilji við þeim lita, enginn
skilji þá, enginn hlaupi undir
bagga með þeim. Þessi starfsemi,
sem S.Í.B.S. hefur innt af hendi,
er því kærleiksverk, ekkert siður
nema fremur sé, heldur en það
er hagsýnisverk. Það, sem hrífur
marga okkar mest er áreiðan-
lega ekki fjárhagshlið málsins,
þótt hún sé mikils virði, heldur
hitt að þessir utangarðsmenn ná
fótfestu að nýju, þeim opnast
aftur innsýn í veröld gæfunnar
og gleðinnar. Þeir öðlast nýja
trú á lífið og með þvx þá ham-
ingju sem allir þrá.
Þetta er það sem mestu varð-
ar. Hugsjón S.Í.B.S. er því fögur
og göfug.
Ég segi það, um leið og ég dái
verk forystumannanna, sem hér
hafa verið að verki og færi þeim
áreiðanlega fyrir hönd okkar
margra, miklar þakkir fyrir
þeirra störf, þá veit ég, að
okkur er áaægja, eins og ég
áðan sagði, að geta átt
nokkurn þátt í að greiða götu
þeirra áfram við þetta mannkær-
Haika og þarfaverk, sem þeir
hafa nú staðið að og vilja enn
standa að. Ég fer engum óvirð-
ingarorðum um okkur þm. né
þær ríkisstjórnir, sem setið
hafa í landinu að undanförnu,
þó að ég dragi fullkomlega
í efa, að við mundum
hafa af eigin rammleik tekið
að okkur að leitast við að leysa
þetta verkefni, sem hér hefur
verið innt af höndum. Ég segist
draga það í efa. Hitt dreg ég
aftur á móti ekki í efa, að enda
þótt við hefðum borið gæfu til
að reyna að leysa það, þá hefði
okkur aldrei farnazt eins vel í
þeim efnum, eins og þessum
mönnum, sem hér hafa verið að
starfi.
Ég veit, að það hefur vaknað
— Framsókn
Framh. af bls. 1.
kaupstað, að undanskildum
Svalbarðsstrandar- og Grýtu
bakkahreppum.
9. Austfirðinga, er nær yfir
Norður-Múla-, Suður-Múla
og Austur-Skaftafellssýslu,
ásamt Seyðisfjarðar- og
Neskaupstað.
10. Sunnlendinga, er nær yfir
Vestur-Skaftafells-, Rangár
valla- og Árnessýlu, ásamt
Vestmannaeyjum.
8. gr.
Tala búnaðarþingsmanna er 25,
og skiptast þeir þannig á kjör-
dæmin:
Kjalarneskjördæmi...........2
Borgfirðinga- og Mýrakjör- ..
dæmi.......................2
Dala- og Snæfellingakjördæmi 2
Vestfirðingakjördæmi........3
Húnvetningakjördæmi........ 2
Skagafjarðarkjördæmi........2
Eyfirðingakjördæmi..........2
Þingeyjarkjördæmi...........2
Austfirðingakjördæmi........3
Sunnlendingakjördæmi........5
Kjósa skal jafnfmarga til vara.
Kosning gildir til 4 ára. Á Bún-
aðarþingi eiga enn fremur sæti,
en ekki atkvæðisrétt, stjórn fé-
lagsins og búnaðarmálastjóri.
Ráðunautar félagsins eiga þar til-
lögurétt og málfrelsi. Búnaðar-
málastjóri er ekki kjörgengur á
Búnaðarþing.
Getur það skaðað bændur
og strjálbýlið?
Að öllu þessu athuguðu sætir
það engri furðu, þótt sú spurning
rísi meðal bænda, hvort það geti
verið þeim eða strjálbýlinu yfir-
leitt hættulegt, að kjósa í stórum
kjördæmum með hlutfallskosn-
ingu til Alþingis, fyrst slíkt kosn
ingafyrirkomulag hefur i 22 ár
verið talið ágætt og hentugt í
kosningum til Búnaðarþings?
Framsóknarmenn leggja á það
höfuðkapp að telja bændum trú
um að hin nýja kjördæmaskipan,
sem nú er ráðgerð og byggð er
sú hugsun hjá mönnum, sem að
öðru leyti unna þessu málefiii
og vilja því allt gott, hvort ekki
væri óhætt að taka nokkurn
hluta af arðinum, sem fellur af
happdrætti S.Í.B.S. og nota hann
til að byggja upp vissa menning-
arstarfsemi í landinu. Það hefur
verið skoðun annarra, að það
væri ekki rétt. Við segjum: Ég
vil ekki fyrir mitt leyti ganga
inn á að vera meðflutningsmað-
ur eða rétta upp höndina með
frv., sem leggur eins eyrisskatt
á þessa starfsemi. Við höfum
sagt: Við viljum ekki byggja
upp menninguna í landinu á
kostnað mannúðarinnar. Minnzt
hefir verið á að skerða tekjur
S.Í.B.S. í því skyni að byggja
listasafn. Við höfum svarað, að
enginn list sé eins fögur eins
og sjúkur vesalingur, sem hefur
öðlazt nýja trú á lífið, nýja and-
lega og líkamlega orku og ný
sjónarmið, sem gerir honum lífið
unaðslegra og gerir hann sjálfan
að gagnlegri þjóðfélagsborgara.
Ég gæti sjálfsagt staðið hér,
og hlaðið lofi á mennina, sem
að þessu standa og hugsjónirn-
ar, sem þeir hafa barizt fyrir. En
það er óþarfi, af því að við erum
sjálfsagt allir svo sammála um
þetta, og ég vil heldur ekki gera
það, þannig að það þyki ósmekk-
legt. En ég vil hins vegar mega
treysta því, líka af því, að ég
þekki þá menn, sem hér eru að
verki, að við getum allir orðið
sammála um að greiða fyrir
þessu máli, á sérhvern þann veg,
sem auðið er, og af okkur er nú
ekki heimtað annað heldur
en að láta þá í friði með starf-
semi sína.
Um minni háttar breytingar,
sem hér eru á ferðinni vísa ég til
grg., en ég held, að þetta séu nú
meginatriðin, sem ég hef leyft
mér að skýra frá hér og sumpart
tekið beint upp úr grg. og raunar
að mestu.
á sama grundvelli og kjördæma-
skipun Búnaðarþings sé tilræði
við hagsmrni þeirra. Nákværn-
lega sömu staðhæfingu hömruðu
Framsóknarmenn á, þegar teknar
voru upp hlutfallskosningar í tví
menningskjördæmunum sumarið
1942. Fulltrúum bænda á Alþingi
var þá ekki fækkað um einn ein-
asta þingmann. Með þeirri breyt-
ingu á kjördæmaskipuninni sem
nú er ráðgerð er heldur ekki gert
ráð fyrir að fulltrúum bænda eða
strjálbýlisins yfirleitt fækki um
svo mikið sem einn þingmann.Það
er aðeins lagt til, að kjördæmin
stækki og verði 8 eða 9 í stað
þess að þau voru 10, skv. kjör-
dæmaskipun þeirri, sem Búnaðar
þing samþykkti fyrir stéttarsam-
tök bænda árið 1937.
Framsókn í sjálfheldu
Það hlýtur vissulega að
verða ljóst ölhim landslýð,
ekki siður bændum en öðrum,
að Framsóknarmenn eru komn
ir í algera sjálfheldu í þessu
máli. Þeir beita sér sjálfir fyr-
ir hlutfallskosningu í stórum
kjördæmnim til Búnaðarþings
fyrir 22 árum. N» telja þeir
slíkt kosningarfyrirkomulag
og kjördæmaskipun til Alþing-
is tilræði við bændur og str jál-
býlið.
Enn hefur það sannazt, að
Framsóknarflokkurinn lætur
klíkuhagsmuni sína öllu ráða
og gengur erinda hins stein-
runna afturhalds.
Andstaða Framsóknaraftur-
haldsins við nýja og réttláta
kjördæmaskipun, hlýfeur að
þoka öllum frjálslyndum
mönnum, hvar í flokki sem
þeir standa saman, ibaráttunnl
fyrir þessu réttlætismáli. ís-
lendingar verða að treysta
grundvöll lýðræðis og þing-
ræðis í landi sínu. Alþingi,
elzta og virðulegasta stofnun
þjóðarinnar verður að vera
rétt mynd af vilja hennar á
hverjum tima. Því aðeins verð
ur það fært um að skipa mál-
um hennar af réttsýni og ráða
fram úr þeim vandamálum,
sem að steðja.
i