Morgunblaðið - 15.02.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.02.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ SA-stormur. Slydda og síðar rign- ingr. Snýst í SV mcð éljum í kvöld. 38. tbl. — Sunnudagur 15. febrúar 1959 Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13 Mikill áhugi Sjálístæðismanna á Stjórnmálaskóla Varðar Yfir 700 jbátttakendur Jóhannes Zoega, verkfrœðingur flyfur / erindi annað kvöld STJÓRNMÁLASKÓLI V a r ð a r, Ávarp til Reykvíkinga V -iGNA undirbúnings alþingiskosninga í vor munu fulltrúar Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík leita til borgaranna um margvíslegan stuðning og aðstoð eins og jafnan áður. Meðal annars verður hafin fjársöfnun í kosninga- sjóð með sérstökum hætti, en Fulltrúaráð Sjálfstæð- isfélaganna hefir forgöngu um þessa söfnun og munu fulltrúarnir ræða um tilhögun hennar við hvern og einn eftir því, sem atvik standa til. Verður leitað eftir því við þá, sem vilja styðja og styrkja Sjálf- stæðisflokkinn, að þeir heiti tilteknum mánaðar- greiðslum í flokkssjóð fram yfir kosningar. Þess er vænzt, að hver og einn, sem hefir áhuga og vilja til þess að veita Sjálfstæðisflokknum brautar- gengi, taki á sig nokkra fjárhagslega skuldbindingu, eftir því, sem aðstæður leyfa. Samstilltur vilji Sjálfstæðismanna er sterkasta aflið í þeirri kosningabaráttu, sem nú fer í hönd. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. VÖRÐUR — HEIMDALLUR — HVÖT — ÓÐINN 1 framkvæmdanefnd framangreindrar fjársöfnunar eru: Hannes Þorsteinsson, formaöur, Ásta Björnsdóttir, Jakobína Jósefsdóttir, Ásmundur Einarsson, Baldur Jónsson, Einar H. Jónsson, Haraldur Gislason. — Aöal- skrifstofa Sjálfstœöisflokksins í Sjálfstœöishúsinu og skrifstofa Fulltrúaráösins í Valhöll veita állar upplýs- ingar og fyrirgreiöslu í sambandi við þessa fjársöfnun. Versnandi ástand hjá Hitaveitu HveragerBis Arangur enginn af borunum i vetur sem hófst sl. mánudag, hefir vak- iö almenna athygli, og mikili á- hugi hefir komið fram á stjóm- málafræðslu þeirri, sem skólinn veitir. Þegar skólinn var settur höfðu um 80 menn innritazt, en siðan hafa margir bætzt við, þann ig að nú eru þátttakendur yfir 100. Erindunum, sem flutt eru í skól* anum, er skipt í 5 meginflokka. Er nú þegar lokið 1. fiokknum, , Valafellsskipstjór- inn ferðafær SEYÐISFIRÐI, 14. febr. — Rol- and Pretious, skipstjórinn á tog- aranum Valafelli, sem dæmdur var hér á dögunum fyrir veiðar í íslenzkri landhelgi, og lagðist í sama mund í sjúkarhúsið hér vegna magasjúkleika, er nú orð- inn sæmilega ferðafær. Mun hann fara með fyrstu flugferð til Reykjavíkur og þaðan til Eng- lands. Pretious er þó enn mjög veikur £ maga, þjáist af uppköstum og gengur illa að halda niðri nokkrum mat. Mun hann verða að leggjast í sjúkrahús aftur jafn skjótt og hann kemur heim til Englands. —K.H. BiMían, kirkjan og vísindiii SIGURBJÖRN Einarsson prófess or flytur fyrirlestur fyrir almenn ing um þetta efni í hátíðasal há- skólans í dag kl. 2 e.h. í erindi þessu verður rætt um þátt Biblíunnar og kristinnar trú- ar í vísindalegu viðhorfi Evrópu- manna. Hvaða áhrif hefur trúar- bók og átrúnaður kristinnar kirkju haft á vísindalega hugs- un? Hafa þau áhrif verið jákvæð eða neikvæð? Vikið verður að þeim átökum, sem á sínum tíma urðu um heimsmynd Kóperník- usar kenningar Giordanós Brún- ós og Charles Darwins o.fl. Hver er heimsmynd Biblíunnar og hvernig samrýmist hún vísinda- legum kenningum nútímans um gerð og eðli alheimsins? Þessum spurningum verður leit azt við að svara í þessu erindi. Fyrirlesturinn hefst stundvíslega kl. 2 og er öllum heimill aðgang- ur meðan húsrúm leyfir. EIN af Douglasflugvélum Flug- félagsins Gunnfaxi laskaðist töluvert í ofviðrinu, sem gekk yfir síðasta sólarhring. Flug- vélin var í Vestmannaeyjum, þegar veðrið skall á og var því ekkert annað að gera en reyna að verja hana á flugvellinum þar, en í Eyjum er ekkert flug- íkýli. Var flugvélin bundin rammlega niður og þegar storm urinn fór stöðugt vaxandi voru nokkrar vörubifreiðir fegnar og þeim lagt meðfram flugvélinni, ef vera mætti, að þeir yrðu henni einhver vörn í verstu þot- sem fj-allaði iim stjórnlög og stjórnskipun hins íslenzka lýðveld is. Bjarni Benedi'ktsson, varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, og Gunnar Thoroddsen, borganstjóri, fluttu mjög fróðlega og ýtarlega fyrirlestra um þetta efni. ... Jóhannes Zoéga Næsti erindaflokkur fjallar um land og þjóð og efnalhagsstarfs- semina. Fyrsti fyrirlesturinn í þessum efnisflokki verður annað kvöld. Jóhannes Zoega, verkfræð- ingur, flytur þá erindi og gefur al menna lýsingu landgæða og ræðir sérstaklega um vatns- og hita- orku og hagnýtingu hennar. -Skýr- ir fyrirlesturinn nauðsyn þekking- ar í þessu-m efnum og þýðingu rannsókna í þágu atvinnuveganna, sérstaklega með tilliti til þess að upplýsa um hagkvawnni fram- kvæmda í einstökum atvinnugrein um og samanburð á framleiðni þeirra. Fyrirlesturinn hefst kl. 8,30 í Valhöll við Suðurgötu. EINS og frá hefur verið sagt í fréttum, spilltust vegir í nágrenni Reykjavíkur nokkuð í hinu mikla vatnsveðri á fimmtudaginn. — Mest urðu vegarspjöllin í Hval- firði, en þar féllu skriður á veg- inn, og lentu bílar þar meira að segja í nokkurri hættu, þótt ekki hlytust nein slys af. I fyrradag var svo leiðin rudd, en í snjó- komunni í gaer myndaðist nokk- urt krap á blautum veginum, og var þá plógbíll sendur þangað unum. Veðurhæðin komst upp í 15 vindstig. Losnuðu jafnvæg- is og hæðarstýri flugvélarinnar úr lásum og slógust til — og skemmdust. Enginn vafi leikur á því, að flugvélin hefði fokið eins og lauf í vindi, ef hún hefði ekki verið reyrð niður. Viðgerðin mun taka nokkra daga. Óhappið kemur á versta tíma fyrir Flugfélagið, Sky- masterflugvélin er í skoðun ytra — og hefur félagið ekki nema tvær Douglas flugvélar til innanlandsflugsins auk Katalínu- bátsins. HVERAGERÐI, 14. febrúar. — Það gerðist hér í Hveragerði í gær, að ein borholan „féll nið- ur“, sem kallað er — hætti skyndi lega að gjósa. — Ástæðan mun hafa verið sú, að í námunda við holu þessa var Hitaveita Hvera- gerðis að láta bora eftir gufu og heitu vatni til aukningar á hita- veitukerfi sínu. — Árangur af til þess að skafa verstu kaflana. Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar síðdegis í gær, var Hvalfjarcúrvegurinn þá talinn fær öllum bílum. Færð var mjög þung á Hellis- heiðarveginum eftir hríðarveðrið í fyrrinótt og gærmorgun. Var hann ekki fær öðrum en stórum bílum í gær. Aftur á móti var Krýsuvíkurvegurinn fær öllum bílum. Hafði aðeins á einum stað myndazt nokkur fyrirstaða, en þar hafði Vegagerðin hjálparbíl fram á kvöld í gær, ef á þyrfti að halda. — Ekki mun færð yfir Holtavörðuheiðina hafa spillzt neitt að ráði. Aftur á móti fékk blaðið þær upplýsingar frá fréttaritara sín- um á Akureyri, að færð á vegin- um um Öxnad. og Öxnadalsheiði hefði þyngt nokkuð — rekið þar í smádriftir á nokkrum stöðum. — Hlekktist áætlunarbíl Norður leiðar, sem fór frá Akureyri í gær morgun, smávegis á, er hann var að fara yfir heiðina — hjá Gilja- reit. Mun bíllinn hafa runnið það langt út á kantinn, að hann komst ekki inn á veginn aftur af sjálft ’áðum og var því fenginn bíll frá vegagerðinni á Akureyri til aðstoðar. — Er ekki annað vitað, en ferðin hafi gengið að óskum úr því. þeirri borun hefur aftur á móti enginn orðið, og var hætt að bora í gær. Var þá komið niður á 80 metra dýpi. Þetta var önnur holan, sem Hvergerðingar hafa látið bora í vetur, en „árangur" hefir orðið sá einn, að tvö fyrirtæki og tvö íbúðarhús hafa miss sinn hita. Og af þeim litla hita, sem hitaveit- an hefur, verður hún að miðla þessum húsum, Það er leitt að þurfa að segja það, en fyrir það fé, sem allar hinar „dauðu“ holur hér hafa kostað, hefðum við að öllum lík- indum getað látið bora tvær hol- ur með hinum stóra jarðbor rík- isins og Reykjavíkurbæjar. — Hann þurfum við að fá — því fyrr því betra. — G. M. BORAS, 14. febrúar: — Svíar sigruðu fslendinga í landsleikn- um í handknattleik, sem fór fram hér í dag með 29:16. íslend ingarnir voru lélegir í fyrri hálf leik og virtust þreyttir. Fyrsta markið kom strax á þriðju mínútu. Guðjón, sem ekki var í essinu sínu, var tekinn úr markinu eftir tíu mínútur. Tók Hjalti j á við og varði mjög vel, m.a. tvö vítaköst af þremur í fyrri hálfleik. Svíar unnu fyrri hálfleik með 13:5. í síðari hálfleik léku fslend- ingar miklu betur, og höfðu meira þol en Svíar. Þrjú víta- köst voru dæmd á íslendinga og varð mark úr öllum. Tvö voru dæmd á Svía og var annað var- ið. Mörk íslendinga gerðu: Ragn- ar 7, Gunnlaugur 3, Guðjón 2, Hörður, Einar og Karl eitt hver. Dómarinn var norskur, Reidar Aker og dæmdi mjög illa. Stjórnarkjöri í Múraraf élaginu lýkur í kvöld Stjórnarkjörið í Múrarafélagi Reykjavíkur heldur áfram í dag. Kosið er í skrifstofu félagsins, Freyjugötu 27, og hefsú kosningin kl. 1 e. h. í dag og stendur til kl. 10 sd. og er þá lokið. Tveir listar eru í kjöri A-listi, borinn fram af meirihluta uppstillingar- nefndar og studdur af lýðræðis- sinnum og B-listi, kommúnista. Stuðningsmenn A-listans eru hvattir til þess að kjósa sem fyrst og veita aðstoð sína við kosn- ingarnar. Skammhlaup af völdum eldingar? UM kl. hálffjögur í gærdag varð Reykjavík skyndilega rafmagns- laus, og leið um það bil hálftími, þar til bærinn fékk rafstrauminn aftur. Blaðið spurðist fyrir um það hjá Ingólfi Ágústssyni, stöðvar- stjóra í Elliðaárstöðinni, hvað valdið hefði, og taldi hann lík- legt, að eldingu hefði slegið nið- ur í Sogslínuna austur undir íra- fossi og valdið skammhlaupi. Hins vegar munu engar skemmd ir hafa orðið á línunni, því að allt virtist vera í bezta lagi, þegar straumi var hleypt á aftur. KÓPAVOGUR Skemmlun Sjálfslæðisfélaganna í Kópavogi verður í Breiðfirðinga- búð n.k. þriðjudagskvöld klukkan 20,30. HVATAR-FUNDUR Annað kvöld kl. 8,30 heldur Sjálfstæðiskvennafélagið H V Ö T fund í Sjálfstæðishúsinu. Þar talar Jóhann Hafstein ban'kastjóri um kjördæmamálið. Gefst félagskon- um og öðrum sjálfstæðiskonum þarna golt tækifæri til að kyruia sér þetta mál, sem svo mjög er á oddinum um þessar mundir. Á eftir skemmtir Hjálmar Gíslason með gamanvísnasöng og að lok- um verður kaffidrykkja. Hannes Sigurðsson sagði eftir leikinn, að sænska liðið hafi ver ið mjög sterkt og harðar skyttur. Eru strál.arnir bláir og marðir. Ragnar sýndi mjög góðan leik ásamt Guðjóni. Gunnlaugur var aftur á móti lélegur vegna þreytu. — Fréttaritari. Aðalf undur V.R. MÁNUDAGINN 23. febrúar n.k. verður aðalfundur Verzlanar- mannafélags Reykjavíkur haldinn í Sjálfstæðisthúsinu. Fara þar fram venjuleg aðalfundanstörf og verður lýst kjöri stjórnar og ann- arra trúnaðarmanna, sem þegar hefir fram farið. Ennfremur verða gerðar tillögur um smávegis laga- breytingar. Fundurinn hefst kl. 8,30 e.h. (Frétt frá V.R.). Douglasflugvél skemm- ist í ofviðrinu í Eyjum Hellisheiði illfœr í gœr — og fœrð spilltist nokkuð á Öxnadalsheiði Svíar unnu íslendinga Ragnar Jónsson skorabi 7 mörk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.