Morgunblaðið - 15.02.1959, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.02.1959, Blaðsíða 4
4 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudagur 15. febr. 1959 f dag er 46. dagur ársin Sunnudagur 15. febrúar. Vika lifir þorra. ArdegisflæSi kl. 10,12. SiðdegisfiæS: kl. 22,50. . Slysavarðstofa Reykjavikur i Heilsuverndarstöðinni er opin all- an sólarhringinn. Læknavörður L.R. (fyrir vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8. — Sími 15030. I Naeturvarzla vikuna 15. tii 21. febrúar er í Lyfjabúdinni Iðunni, ftími 17911. | Holts-apótek og Garðs-apótek eru opin á sunnudögum kl. 1—4 eftir hádegi. í Helgidagsvarzla er í Laugavegá apóteki, sími 24045. Hafnarf jarðarapótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugar- daga kl. 9—16 »g 19—21. Helgi- dag kl. 13—16 og kl. 19—21. Nætur- og helgidagslæknir í Hafnarfirði er Eiríkur Björnsson, sími 50235. Keflavíkur-apótek er opið alla virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16. Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9 er opið daglega kl. 9—20, nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Sími 23100. O MÍMIR 59592167 = 2 □ EDDA 59592174 = 3 □ EÐÐA 59592177 = 3 I.O.O.F. = Ob. 1 P. = 1402178^ = Fl. 5£| Bruökaup S.l. fimmtudag voru gefin sam an í hjónaband af séra Garðari Þorsteinssyni Svanhildur Ingvars dóttir, símamær og Sveinn Guð- bjartsson, útvarpsvirki. — Heimili þeirra verður að Bröttukinn, Hafn arfirði. —■ ^JHjónaefni Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Sigríður Auðunsdótt- ir, Bjargi, Selfossi og Birgir Hall dórsson, Sunnubraut 22, Akra- nesi. Tmislegt Frá Húsmæðrafélagi Reykjavik- ur: — Húsmæður eru minntar á afmælisfagnað Húsmæðrafélags Reykjavíkur á morgun, mánudag- inn 16. febrúar, í Borgartúni 7. Emilía Jónasdóttir og Valdemar Helgason sýna leikþátt o. fl. Borð- haldið hefst kl. 7 með hinum vana lega, góða mat. — Þess er vænzt, að húsmæður fjölmenni og til- kynni þátttöku sína í síðasta lagi í kvöld í áður auglýsta síma. Jóhanni ögmundi Oddssyni verð ur haldið hóf í tilefni áttræðisaf- mælis hans í Góðtemplarahúsánu annað kvöld kl. 8,30. Fyrir hófinu standa Stórstúka íslands og St. Víkingur nr. 104. Þakkir. — Öllum, sem gáfu mér peninga til viðgerðar á bíln- um mínum, þakka ég af heilum hug. — Lamaðu stúlkun á Keykja lundi. — Hvítabandskonur: — Munið af- mælisfagnað félagsins n.k. þriðju dag í Tjamarkaffi, uppi. K. F. U. M. og K., Hafnarfirði: — Sunnudagaskólinn er kl. 10,30, drengjafundur kl. 1,30 og almenn samkoma kl. 8,30. Felix Ólafsson kristniboði talar. Á mánudags- kvöld kl. 8,30 er unglingafundur. i^Aheit&samskot Til Hallgrímskirkjti í Saurbæ hefi ég nýlega móttekið 1000 kr- í ábyrgðarbréfi, áheit frá S.G. — Matthías Þóiðarson. -S yyjumincý clciCýSinó Hvert er hlutverk almennings í kirkjunni — og teljið þér, að íslendingar vanræki það hlutverk? Séra Gunnar Ámason: — Kirkjan er félag kristinna manna, sem starfar nú í ýmsum myndum og deildum um víða veröld. I engu félagi veltur meira á hlut deild alls al- mennings en í kristinni kirkju. Þess vegna er dauft kirkjulif hérlendis eins og s a k i r standa. Þj óðkirkj uf yrir- komulagið veld- ur hér vafalaust nokkru um. Það tryggir að vísu meðlimafjöldann, en slævir jafnframt tilfinningu almennings fyrir gildi hans og ábyrgð í þessum málum. Flestir tala hér um kirkjuna eins og prestafélag — en ekki líkama, sem þeir eiga hlutdeild í. Núver- andi ástand getur að minum dómi ekki varað lengi án þess að leiða til aðskilnaðar ríkis og kirkju — nema safnaðarvitundin vakni og færist í aukana. Til þess þarf almenningur að vera sann- færður um sannleiks og lífsgildi kristindómsins og að hann sé hverjum manni ljós og líf. — Hvernig þessu er háttað í frum kristni geta menn lesið í I. kor. 12—14. í einu orði sagt: Líf kirkj unnar liggur við, að áhugi og starf safnaðanna sé sem mest og heilbrigðast. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, stud. theol.: — Kirkjan á að vera fyrir allan almenning. Almenningur á að sækja kirkju að staðaldri og taka þátt í safnaðarstarfi sjálfs Ég komst að ísjakanum og lagði á bratt- ann. Þetta var mjög hættulegt. Sums staðar voru stórar glufur í ísinn, annars staðar var jakinn alveg þverhníptur. Loksins var ég' kominn alveg að bjarn- dýrunum og sá nú, að þau voru að stinga saman nefjum glettnisleg á svip. sín vegna. Al- menningur á að hlýða guðsþjón- ustunnj en hann á ekki einungis að vera hlust- andi heldur líka beinn þátttak- andi í því, sem fram fer, sjálf- um sér til á- nægju og uppbyggingar. Ein- staklingurinn á að taka orð kirkj unnar alvarlega, opna hjarta sitt fyrir Kristi og gefast honum. Hann á að bera starfið uppi með bænum sínum, þvi án mín getið þér alls ekkert gjört, segir Krist- ur. Safnaðarstarfið fer ekki fram í kirkjunni einungis en á einnig að koma fram í daglegu lífi, á heimili og á stéttunum. Á þessu er misbrestur og íslendingar hafa á margan hátt vanrækt hlut verk sitt í kirkjunni því að margt annað hefur kallað að og margt af því í sjálfu sér gott en það mundi áreiðanlega verða til góðs ef kirkjurækni og heilbrigt, áhuga- samt safnaðarlíf íæri í vöxt. Ungt fólk ætti að taka upp þetta merki. Ólafur Ólafsson, kristniboði: — Hlutverk almennings í þjóð- kirkju íslands tel ég vera fyrst og fremst það, að kjósa sér kenni- mann „er fara rétt með orð sannleikans — fagnaðarerindið um Krist“ og því næst, að hlýða kröfu þess um hugarfars- breytingu og kalli þess til G u ð i helgaðs lífernis. Því að þá „veitist allt annað að auki“. Þetta meginhlutverk hefur al- menningur vanrækt að svo miklu leyti sem það kann að hafa komið fyrir, að kosnir voru kennimenn út frá annarlegum sónarmiðum. Sigurður Á. Björnsson frá Veðramóti: — Kirkjan er samfé- félag þeirra manna, sem telja 3^ CopwioM P I B Ég var í þann veginn að grípa til byss- unnar, er mér skrikaði fótur, og ég féll aftur á bak. Þetta var svo mikið fall, að ég leið í ómegin. Þið getið ímyndað ykkur, hversu undr- andi ég var, þegar ég rankaði við mér. Annað bjarndýrið hafði bitið í rassinn á buxunum mínum og dró mig með sér. Ég velti því fyrir mér, hvar ég myndi að lokum hafna. FERDIIM AND Seppl gerist aðsópsmikill CmmMC 8» > 6‘f/b sig hafa sameiginlegar trúarskoð anir.Þeir sem mynda slíkt sam félag, verða að gera sér Ijóst, að á þeim hvílir skylda, til að reynast s e m beztur kraftur í þeim félagsskap sem öðrum, og það því fremur, sem kirkju eða trúarféiög eru fíestum öðrum félögum liklegri til andlegs og siðlegs þroska ein staklinganna. Hlutverk þeirra er því auðvitað það, að efla og styrkja sitt kirkjufélag með hverjum þeim hætti, er að beztu haldi má koma til trúarlegs þroska og félaglegs samstarfs. Ein af höfuðnauðsynjum og skyldum allrá meðlima eins kirkjufélags eðá safnaðar er það, að sækja sína kirkju. Með því efla þeir félagslegt samstarf og þó einkum sinn trúarstyrk. Vil ég taka fram, að þar er ekki allt komið undir ræðu prestsins eða söngnum, og eru þó áhrifin frá þessu hvorutveggja mjög ákjósan legur og ánægjulegur rammi' utan um það, sem gerist hjá ein- staklingnum, meðan hann í sam tali sínu við guð sinn er sokkin ofan í sína bæn pg þakkargjörð til gjafarans allra góðra hluta. í þessu umhverfi er einstakling- urinn umvafinn samstillingu og samhug allra þeirra sem í kirkj- unni sitja, ef þeir eru þar með réttum hug. Ég verð því miður að segja, að , ég tel mjög skorta á, að íslend- ingar ræki sem þeim ber þá skyldu, að sækja sína kirkju og notfæri sér því ekki sem skyldi þá möguleika til trúarlegs og sið- legs þroska, sem lifandi og þrótt mikið safnaðarlíf getur veitt. Gísli Sveinsson, fyrrv. sendi- herra: — Eðlilegast er að álykta, að hlutverk almennings í kirkj- unni eigi að vera að sýna í verki áhuga á kirkju- og trúarmálum, en víst mun óhætt að segja, að fslendingar vanræki það á ýmsan veg í rik- um mæii. Þetta er svo sem ekk- ert nýtt, né ein- stakt hér á landi, og margir ágætismenn eru þannig „skapi farnir". Um slíkt get ég haft það til að segja: Það verður að hafa það, líklega er ekki afskorið, að „hver getur orð ið sæll í sinni trú“ (því að allir hafa einhverja trú), ef hún er eitthvað í áttina til trúar á æðri mátt en mannlegan og veit til góðs í lífi manna. Svona er ég nú frjálslyndur, þótt ég telji það affarasælast hverju mannsbarni að hafa eitthvað fast undir fót- um í trú og siðgæði. Rökin fyrir þessu, um tómlæti landans í þessu efni ,eru marg- vísleg og raunar oftast deginum ljósari: 1. Hin daufa tíðasókn í borg og byggð (sem ekki sker þó úr); 2. svo sem engin ástundun almennt í heimahúsum að kynn- ingu kirkjulærdómanna (eins og þeir eru fluttir í hinni evan- gelísk-lútersku þjóðkirkju); 3. lítið lagt upp úr því meðal borgaranna að haga lífemi sínu í samræmi við kristindóminn eða eins og menn skilja boðskap meistarans, sem hann vissulega gaf með lífi sínu og kenningu, og þurfa ekki að koma því til við- bótar mannasetningarnar, sem umgirða trúarbrögðin. Og fleira og fleira. En ef við höldum okk- ur í þessu efni við íslendinga, þá er áreiðanlegt, láti þeir um það nokkuð í ljós, að þeir vilja yfir- leitt vera „skynsemistrúar", þótt stundum fari að vísu lítið fyrir skynseminni. — Hér verður þó, í þessum dómi, að undanþiggja ýmsa sértrúarflokka, sem safna saman einstaklingum, er telja „andann" hafa komið yfir sig, þótt ekki megi þeir „heilagir“ kallast. Þar getur áhuginn og hrifningin verið yfirgnæfandi — Framl á bls. 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.