Morgunblaðið - 15.02.1959, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.02.1959, Qupperneq 22
22 MORGl’NBLABIÐ Sunnudagur 15. febr. 195* Olíuverðid mundi líkindum hækka et ríkið tœki olíuverzlunina í sínar hendur FRUMVARP til laga um olíu- verzlun ríkisins, flutt af Lúðvík Jósefssyni, var tekið til fyrstu umræðu í neðri deild Alþingis sl. föstudag. Fylgdi flm. því úr hlaði með ræðu. Sagði hann m. a. að eðlilegt væri að oliuverzlunin væri í höndum ríkisins, þar sem innkaup olíuvaranna væru í höndum þess, þar eð um vöru- skiptasamninga væri að ræða. Þegar ríkið væri hvort eð væri búið að leggja í kostnað við samningagerðina væri réttlátt að Slæm umgengiii íbiðskýlunum UMSJÓNARMENN strætisvagn- anna hafa kvartað yfir mjög slæmri umgegni í sumum litlu biðskýlanna, sem S.V.R. hefur látið setja upp í úthverfunum. Er umgengnin með þeim hætti, að sögn umsjónarmannanna að orð fá vart lýst. Til viðbótar eru svo skemmdarverk í skýlunum daglegur viðburður. Fá engar rúður að vera í friði í sumum þeirra. Þess var t.d. getið að bið- skýli eitt í Laugarneshverfinu hefði orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum, og þar er á skömmum tíma búið að setja 7 sinnum í nýjar rúður. Þeir, sem nota skýlin, ættu að koma til liðs við okkur um að verja þau fyrir frekari ágangi skemmdar- varga og hiklaust kæra þá sem þannig haga sér, sagði einn af umsjónarmönnunum við Mbl. í gær. ríkið tæki einnig að sér flutning á olíunni til landsins og heild- sölu á henni. Sú skoðun væri nú ríkjandi, að einmitt í sambandi við flutningana til landsins væri tekinn óeðlilega hár skattur af framleiðslunni og öðrum notend- um olíuvaranna, en það fyrir- komulag sem frv. gerði ráð fyrir yrði til að tryggja eðlilegt og rétt heildsöluverð og losna við deilur og tortryggni um óhóflegan milli- liðakostnað. i Þá vék ræðumaður að því, að olíuverzlun landsmanna væri nú í höndum erlendra auðhringa og væri því engan veginn tryggt, að hagur landsmanna yrði látinn sitja í fyrirrúmi við innflutning þessarar nauðsynjavöru. Björn Ólafsson tók næstur til máls. Kvaðst hann hafa búizt við gleggri rökum í ræðu framsögu- manns, en þar hefðu komið fram. Sagði hann að rök flutnings- manns fyrir því að setja upp ríkiseinkasölu með olíu væri næsta furðuleg. í fyrsta lagi tel- ur hann að ríkið eigi að taka að sér allan þennan innflutning til þess að fá upp í þann kostnað, sem ríkið hefði af milligöngu um kaupin. I öðru lagi af því öryggis leysi, sem því fylgdi fyrir lands- menn, að einkafyrirtæki önnuð- ust innflutning á þessari nauð- synjavöru. Og í þriðja lagi vegna þess að verðlag á oliunni væri of hátt í höndum þessara fyrir- tækja. Ef taka ætti slíka röksemda- færslu gilda, sagði Björn Ólafs- son, hvernig færu þá öll þau riki í Evrópu og Ameríku, sem hafa frjálsa olíusölu, að búa við það „öryggisleysi" án þess að ríkis- valdið tæki í taumana? Ekki oð öllum hefði þó borið á að um nokkurn olíuskort væri að ræða í þessum löndum. Þar væri þó sami háttur á olíusölu og hér. Ef ríkið ætti hins vegar að taka í sínar hendur olíusöluna til þess að fá upp í kostnaðinn við samn- ingagerðina um olíukaupin, þá væru slík rök létt á metunum og næsta brosleg, þar sem ríkið hef- ur milligöngu að einu eða öðru leyti við flest clearing-lönd vegna vörukaupa og mætti þá segja að ríkið ætti að taka að sér kaup á öllum þeim vörum, sem þannig eru keyptar, aðeins til að fá upp í kostnað ríkisins vegna þessara viðskipta. Hvað þriðju ástæðuna varðar, sagði Björn ennfremur, að verðið sé of hótt, þá veit háttv. flutn- ingsmaður, að rikið sjálft gerir samning um verð olíunnar fob og alla flutninga frá Rússlandi. Síðan reiknar verðlagseftirlitið út alla kostnaðarliði og ákveður nákvæmlega á hvaða verði hver tegund á að seljast. í því efni eru félögin algerlega háð ákvörðun verðlagseftirlitsins. — Vill nú ekki háttv. þingm. skýra það nánar hvernig verðið getur verið of hátt undir öruggri hand- leiðslu og gagnrýni hins opin- bera? Flutningsmaður sagði, að eng- in samkeppni væri í olíuverzlun- inni. Það er rétt, sagði Björn, en hvernig getur verið samkeppni í verði milli þriggja félaga, sem öll selja sömu vöruna og öll hafa sama verð, fyrirskipað af verð- lags’eftirlitinu? Sú eina sam- keppni, sem komizt getur að und- ir slíku fyrirkomulagi, er sam- keppni um þjónustu við kaup- endur. Lúðvík Jósefsson hélt því fram að olíufélögin hér væru háð erlendum auðhringum og störf- uðu aðallega eftir þeirra fyrir- mælum. Björn Ólafsson sagði að slík fullyrðing hefði ekki við neitt að styðjast. Félögin væru öll íslenzk, með íslenzkt hlutafé og störfuðu með íslenzkt rekstr- arfé, sem bankarnir legðu þeim til. Hér væri um hreinan blekk- ingaráróður að ræða. Björn hélt svo áfram og sagði meðal annars: En aðalatriðið í þessu máli er ekkert af þeim furðulegu og léttvægu rökum, sem flm. hefur sett fram til stuðnings frv. Aðalatriðið í mál- inu er að sjálfsögðu það, hvort landsmenn geta keypt olíuna með hagkvæmara verði eftir að ríkið hefur tekið að sér einka- söluna. Þetta atriði, sem skiptir mestu máli, hefur flm. forðast að nefna á nafn. Þess vegna spyr ég: Hversu mikið getur olíuverð- ið lækkað með ríkiseinkasölu? Flm. hlýtur að hafa gert sér grein fyrir því. Ef um enga lækk un er að ræða, er enginn grund- völlur fyrir þessu frv. Lúðvík Jósefsson tók aftur til máls. Sagði hann, að aðalrökin fyrir frv. væru, að hér væri ujp þá vörutegund að ræða, semfs- lendingar keyptu til landsins í ríkustum mæli. Til að tryggja örugg innkaup og lágt verð væri bezt að ríkið hefði þetta með höndum. Kvaðst hann ekki geta sagt hver verðlækkun gæti orðið, en telja, að það ætti að vera hægt að lækka olíuverðið til mikilla muna, ef frv. yrði að lög- um, en það væri erfitt að segja til um slíkt. Þá mundu olíusam- lögin einnig geta fengið olíuna á réttu heildsöluverði, ef frv. næði fram að ganga. Þau þrjú félög, sem nú verzluðu með olíu, hefðu einokunaraðstöðu. Björn Ólafsson talaði aftur. Kvaðst hann ekki vita hvað væri einokunarform á olíusölu, ef það væri ekki sú skipan, sem frv. gerði ráð fyrir. Þá kvaðst hann ekki heldur vita hvað flm. hefði átt við er hann ræddi um rétt heildsöluverð, því engar skýringar voru gefnar um það. Hann hefði heldur engar upplýs- ingar gefið um verðlækkun. — Sannleikurinn væri sá, að olíu- verðið mundi að öllum líkindum hækka, sem næmi kostnaði ríkis- ins við einkasöluna, ef það tæki hana í sínar hendur. Þá skýrði Björn Ólafsson frá því,að áður en Lúðvik Jósefsson komst í ríkisstjórn hefði hann mikið tal- að um of hátt olíuverð. Meðan hann var í ríkisstjórninni hefði hann látið rannsaka hvort olíu- verðið væri of hátt og komizt að raun um að svo væri ekki. Með- an hann var ráðherra heyrðist ekkert frá honum um of hátt verð. En hann var ekki fyrr kom- inn úr ríkisstjórninni og orðinn ábyrgðarlaus, en hann færi að klifa á því á nýjan leik, að olíu- verðið væri of hátt. Svona menn væri ekki hægt að taka alvar- lega og svona frumvarp væri vanhugsað og byggt á sandL — Ur verinu Framhald af bls. 3. þessum efnum. Ekki er þó verið að vekja athygli á þessu hér, til þess að skatturinn á félögum verði hækkaður, enda stendur það víst ekki til, þar sem þessi lög voru sett sl. vor, heldur að skatturinn á einstaklingum verði lækkaður. Lágmarkskrafa skatt- greiðenda ætti að vera, að tekju skatturinn færi aldrei yfir 20% með tilliti til hlunninda félag- anna. Hreinlegast væri að fall- ast á tillögu Gísla Jónssonar og Alþýðuflokksins um að fella tekjuskattinn alveg niður. Ríkið myndi ekki tapa á því. Það er líka vafasamt að það myndi borga sig að innheimta einstaklings- skattinn ,ef hámarkið væri 20%, jafn mikil vinna sem í kringum það er. Ætli það séu ekki um 1000 manns, sem starfa að álagn- ingunni og innheimtunni. Það voru talin 600 fyrir nokkrum ár- um. Getur löggjafinn mismunað ein staklingum og félögum á þennan hátt án þess að kalla yfir sig reiði fólksins. Happdrætti S jálfstæðisflokksins býður yður upp á glæsilega ameríska fólksbifreið af gerðinni FORD-FAIRLINE (500), fjögurra dyra, model 1959 Þefc, sem fengið hafa heimsenda happdrættismiða, eru vinsamlegast beðnir að gera skil við fyrsta tækifæri. Miðasala og afgreiðsla er í skrifstofu happdrættisins í Sjálfstæðishúsinu, opið alla virka daga kl. 9 f.h. til kl. 5 e.h, Sími 17104 x FREISTIÐ GÆFUNNAR! Með því að kaupa mi ða skapið þéir yður möguleika á að eignast glæsilega og dýra bifreið af nýjustu gerð. i Dregið verður 16. marz HAPPDRÆTTI SJALFSTÆÐISFLOKKSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.