Morgunblaðið - 17.02.1959, Síða 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. feb'r. 1959
Hið mikla og margumrædda fiskiðjuver á Seyðisfirði, aðgerðarlaust að heita má, og skammt
frá liggur togari bæjarútgerðarinnar, Brimnes, bundinn við bryggjuna.
(Ljósm. Garðar Pálsson).
/ augum Seyðfirðinga er það hin ó-
hugnanlegasta staðreynd
ÞAÐ er í senn furðulegt og
ömurlegt að sjá helztu atvinnu-
tæki Seyðfirðinga mannlaus og
yfirgefin, en sú sjón blasir nú
við aðkomumönnum í þessum
gamla höfuðstað Austurlands.
Spurningunni um það á hvern
hátt daglaunamenn framfleyta
sér og sínum þegar svo er komið
skýtur upp í huga manns.
Augljóst er að meðan verið var
að koma mannvirkjum þessum
upp, hefur til þess þurft verulegt
Félagslíf
MeÍ9taramót íslands
ikörfuknattleik
hefst sunnudaginn 15. marz n.
k., en ekki þ. 7. marz eins og áður
var auglýst, þar eð ákveðið hefur
verið að halda dómaranómskeið í
körfuknattleik í byrjun marz-mán
aðar. — Tilkynningar um þáttöku
í mótinu, ásamt þátttökugjaldi kr.
25,00 fyrir hvert lið, skulu hafa
borizt Körfuknattleiksráði Reykja
víkur, c/o Ingólfur Ömólfsson
form., Stýrimannastíg 2, Reykja-
vík, eigi síðar en 3. marz n. k. —
Mótið og dómaranámskeiðið verða
nánar auglýst síðar.
Stjórn K. K. R. R.
fþróttafélag kvenna.
Munið mynda- og kaffikvöldið,
miðvikudag 18. þ.m. kl. 8,30 í Að-
alstræti 12 (uppi).
Sfkíðadeildin.
Farfuglar
Föndurnámskeið hefst að Lind-
argötu 50B, annað kvöld kl. 8. —
Kennari: Ingibjörg Hannesdóttir.
— Farfuglar.
Knattspyrnufélagið Valur
Skemmtun haldin í félagsheim-
ilinu föstudaginn 20. febr. 1059.
Til skemmtunar m. a. dans og
skemmtiþáttur. Hefst kl. 10. Vals-
menn, fjölmennum og mætum
stundvíslega.
Skemmtinefndin.
KnattspyrnufélagiS Fram
Skemmtifundur fyrir 3. og 4.
flokk verður í félagsiheimilinu í
kvöld, þriðjudag kl. 8. — Kvik-
myndir. — Bingo. — Spurninga-
þáttur. — Stjórnin.
frá Róðrafélagi Reykjavíkur
Æfing verður í íþróttasal Mið-
jæjarskólans á morgun (mið-
tikudag), kl. 8,45 e.h. Takið með
rkkur útibúninga. Félagar, fjöl-
nennið. Nýir félagar velkomnir.
Æfingastjórn.
Cnattspyrnufélagið Þróttur
Handknattleiksæfing hjé Mfk, 1.
ig 2. fl. karia, í Valsheimilinu, í
:völd ld. 10,10—11,00. Mætið vel
ig stundvíslega. — Nefndin.
vinnuafl og telja má fullvíst, að
flestir daglaunamenn hafi haft
þarna ærið að starfa.
Það er líka augljóst að full
þörf er fyrir þessi atvinnutæki
og víst er að til þess að koma
þeim upp hefur þurft verulegt
fjármagn, en svo hlaut næsta
skrefið að verða að nota þessi
mannvirki til hagsælda fyrir
bæj arbúa.
Á Seyðisfirði er það alkunn
staðreynd að ráðamenn bæjarins
héldu þannig á fjárveitingum
ríkisins, að nægilegt fé hefði átt
að vera til þess, ekki aðeins að
koma þessum fyrirtækjum á fót,
heldur og til að hefja eðlilega
starfrækslu þeirra.
Það sem olli því, að svona
hörmulega tókst til, er einfald-
lega það, að stjórnleysi og
skammsýni hafa einkennt starfs-
hætti forráðamanna bæjarins,
sem metið hafa pólitíska hags-
muni umfram hið eðlilega sjón-
armið við uppbyggingu slíkra
atvinnutækja.
Það er alkunnugt að eitt hið
fyrsta verk þeirra á Seyðisfirði
var að láta gera gjaldþrota tog-
arafélagið Bjólf, en það félag
hafði keypt togara árið 1948 og
rekið hann síðan. Vinstri stjórn-
in lét afhenda bæjarsjóði Seyðis-
fjarðar skipið og síðan var stofn-
uð sérstök bæjarútgerð. Nú eft-
ir tæplega tveggja ára reynslu
af bæjarútgerð, er búið að
leggja togaranum og yfirvofandi
er að hann verði tekinn og látinn
Hafnarfjarðar-útgerðinni í té.
Hugmynd Hræðslubandalags-
manna mun hafa verið sú, er
þeir tóku togarann af hlutafé-
laginu, að tryggja að fiskiðju-
verið fengi hvern ugga er í skip-
ið kæmi. En sú hefur orðið
raunin á, að á því tæplega ári,
sem liðið er Trá því að frystihús
fiskiðjuversins tók til starfa,
hefur togarinn lagt upp tvo salt-
fiskfarma, en freðfiskframleiðsl-
an, fiskur af togaranum og bát-
um í kaupstaðnum, mun á sama
tíma svara til svo sem vikuaf-
kasta frystihússins.
Bæjarstjórnin á Seyðisfirði
hefur veitt ríflegar ábyrgðir og
einnig atvinnubótafé til nokk-
urra báta, sem heimahöfn eiga á
Seyðisfirði. Skyldu bátar þessír
afla hráefnis til fiskiðjuversins.
En svo undarlega bregður við að
eigi að síður hafa þessir bátar
allir verið leigðir til annarra
verstöðva!
Nú skyldi enginn halda að
Seyðfirðingar almennt geri sér
ekki fyllilega grein fyrir hinu
algjöra stjórnleysi, sem þar ríkir.
Körfuknattleiksdeild K.R.
Piltar! Munið æfinguna í kvöld
í íþróttahúsi Háskólans. Mætið vel
og stundvíslega. — Stjórnin.
n 6« 09
6*9
34-3-33
Það er tæplega um annað meira
rætt manna á milli en atvinnu-
mál bæjarins og hið ískyggilega
ástand. Bæjarbúar eru sann-
færðir um að ef réttilega væri
á málunum haldið, gæti togar-
inn og heimabátar tryggt rekst-
ur fiskiðjuversins og um leið
næga atvinnu fyrir þá bæjarbúa,
sem nú verða að leita atvinnu
í öðrum byggðarlögum.
Það er aðkallandi að atvinnu-
mál Seyðfirðinga verði tekin til
endurskoðunar, — því bjargað
sem bjargað verður,— og leitað
til þeirra manna í bænum, sem
þekkingu hafa á sviði útgerðar
og fiskframieiðslu. Á sjávarút-
vegi byggist tilvera Seyðisfjarð-
Frú Guðrún Karlsdóttir
Minningarorð
„Lífið er fljótt,
líkt er það elding, sem glampar
um nótt,
ljósi, sem tindrar á tárum,
titrar á bárum“.
★
ÞANNIG kvað Matthías eitt sinn
við lát ungrar konu. Sama hugs-
un grípur mann nú, þegar kvödd
er ung og glæsileg kona, Guðrún
Karlsdóttir, sem andaðist 10. þ.
m. og verður jarðsett í dag.
Guðrún var fædd hér í Reykja
vík 26. september 1922. Foreldrar
hennar voru hin vel þekktu hjón,
Karl Guðmundsson, skipstjóri og
María Hjaltadóttir. Hjá þeim
hlaut hún hið bezta uppeldi. Þar
var allt gert til þess að glæða
fagra hugsun og lögð áherzla á
það, sem mátti auka sanna mennt
un barnanna. Frú Guðrún stund-
aði nám í Kvennaskóla Reykja-
víkur og tók burtfararpróf þaðan
vorið 1938. Hinn 14. des. 1951
giftist hún eftirlifandi manni sín-
um, Sigurði Hallgrímssyni, vél-
stjóra, hinum ágætasta manni, og
hefur hjónaband þeirra verið far-
sælt. Þau eignuðust tvær dætur,
Rannveigu, sem nú er 5 ára og
Maríu, 4 ára.
Fyrir tveimur árum fluttust þau
í nýtt hús að Granaskjóli 24, sem
Sigurður hafði unnið að með
frábærum dugnaði og þau skapað
sér þar yndislegt heimili.
Þetta eru í fáum orðum helztu
æviatriði hinnar ungu konu, sem
nú er horfin sjónum vorum. Hún
var góðum gáfum gædd, vinsæl
og vel metin af öllum, sannkall-
að yndi og eftirlæti foreldra
sinna og okkar skyldfólksins. Hún
var systurdóttir konu minnar og
var því jafnan mikið ástríki milli
fjölskyldnanna. Við vorum sam-
býlisfólk mörg ár og fylgdumst
Sigurður Pétursson
fyrrv. byggingarfulltrúi
Þungavinnuvélar
MEÐ Sigurði Péturssyni fyrrv.
byggingarfulltrúa, er til moldar
hniginn mætur maður, sem í ára-
tugi hefur markað sín spor í
byggingarmálum Reykjavíkur.
Ungur nam hann múrsmíði, fór
síðan utan til framhaldsnáms og
lauk húsameistaraprófi í Kaup-
mannahöfn 1925. Vann sem húsa-
meistari hér í bæ, en tók svo
við störfum byggingarfulltrúa og
var skipaður í þá stöðu 1927.
Þá voru orðnar allmiklar breyt
ingar í byggingarháttum Reykvík
inga. Timbrið var ekki lengur
aðal byggingarefnið, heldur
steinsteypan og steyptu húsunum
fjölgaði með hverju ári. Hin
gamla byggingarsamþykkt frá
1903 hafði verið endurskoðuð og
í hana settar nýjar reglur um
ábyrgð og skyldur meistara o.fl.
Það kom í hlut Sigurðar, sem
byggingarfulltrúa, að sjá um
framkvæmd hinna nýju ákvæða,
og mun hann þá fljótt hafa orðið
var við kunnáttuleysi margra
þeirra, sem þá tóku að sér hús-
byggingar og fengu réttindi til
þess. Vildi hann þar bæta um,
því hann leit á starf sitt, ekki
aðeins sem strangt eftirlit, held-
ur og sem leiðbeiningu og var
því Ijúft, að miðla öðrum af
þeirri þekkingu og reynslu, sem
hann hafði fengið við nám og
starf erlendis. Tók hann líka að
sér kennslu við Iðnskólann í
járnabindingu og fagteikningu
múrara. Var hann stundum
kröfuharður kennari, en gladd-
ist líka yfir góðum námsárangri
nemenda sinna og fylgdist með
þeim í starfi.
Sigurður Pétursson tók nokk-
urn þátt í félagsstarfi múrara-
stéttarinnar og beitti sér fyrir
því, að stéttinni var skipt í meist-
ara og sveina. Tók hann þá að
sér formennsku sveinafélagsins,
samkvæmt einróma tilmælum fé-
lagsmanna og gegndi því starfi í
tvö ár.
Á þeim árum beitti hann sér
fyrir mörgum hagsmunamálum
stéttarinnar og þá sérstaklega
vinnuvöndun í iðninni, enda
vildi hann kenna múrurum þann
stéttarmetnað, að vanda verk
sín. Það var því að vonum, að
hann varð fyrsti formaður þeirr-
ar nefndar, sem stéttin skipaði
til þess, að framkvæma gæðamat
á múrhúðun og mun hafa verið
sú fyrsta, sem skipuð var af ís-
lenzkum stéttarfélögum.
Sigurður Pétursson hefur unn-
ið mikið starf fyrir byggingar-
iðnaðinn í Reykjavík og þess
mun lengi gæta í húsbyggingum
okkar ungu borgar. En hann var
líka iðnaðarmönnum hinn holli
ráðgjafi og kennari, sem ávallt
vildi glæða þekkingu þeirra og
ábyrgðartilfinningu í þýðingar-
miklu starfi.
Við þökkum störfin og bless-
um minningu hans.
Sig. Guffm. Sigurðsson.
því með vexti og þroska hinnar
látnu vinkonu alla tíð. Og hún
var þannig skapi farin, að það
var unun að vera í návist henn-
ar. Hún hafði lag á því, að gera
öðrum glatt í geði, og þess vegna
var alltaf hlýtt og bjart í kring-
um hana.
'■ •* -'w"‘
Fyrir fjórum árum kenndi hún
sjúkdóms þess, sem dró hana til
dauða og sárþjáð var hún síð-
ustu mánuðina. En þá kom þrek
hennar bezt í ljós. Hún æðraðist
aldrei, en bar sjúkdóm sinn eins
og hetja alla tíð.
Það var lærdómsríkt að sjá
slíkan hetjuskap. Foreldrar
hennar reyndust henni og heim-
ili hennar frábær stoð og stytta
í veikindunum, og eiginmaðurinn
var hinn trúfasti vinur, sem
aldrei brást. Fyrir allt þetta var
hún hjartanlega þakklát og öll-
um vinum og frændum sýndi
hún vináttu og kærleik þar til
yfir lauk.
Nú er sir harmur kveðinn að
öllu frændliði hennar, én þó hef-
ur eiginmaðurinn og litlu dæt-
urnar misst mest við burtför elsk-
aðrar eiginkonu og móður.
Að endingu vil ég þakka þér,
Gunna mín, fyrir allar ánægju-
stundirnar, sem þú hefur veitt
okkur frændfólki þínu hverja
stund, sem þú dvaldir hjá okk-
ur. Ég bið góðan guð að gefa
foreldrum þínum, eiginmanni,
litlu dæt.unum og systkinum
styrk í þeirra miklu sorg.
Blessuð sé minning þín.
Kristján Siggeirsson.
Í.ONDON, 14. febr. — Ráffstjórn-
in og Guinea hafa gert meff sér
víðtækan verzlunarsamning.
I Klfi*
erlausnin
VIKURFÉLAGIÐ?
Sigurður Ólason
Hæslarctlarlögmaður
Þorvaldur Lúðvíksson
HéraSsdómsIögntaffur
Málflutningsskrifstofa
Austurstræli 14. Sími 1-55-35.
I. O. G. T.
St. VcrSandi nr. 9.
Fundur í kvöld kl. 8,30.
I. Systrakvöld. — II. Böggla-
uppboð tiil ágóða fyrir systrasjóð
stúkunnar. — III. Að fundi lokn-
um verður spiluð félagsvist. Æt.
Hrönn nr. 9
Systrakvöld verður í kvöld kl.
8 að Fríkirkjuvegi 11. — Mætiff
slundvíslega. Fjölntenniff.