Morgunblaðið - 24.02.1959, Qupperneq 1
20 síður
46. árgangur
45. tbl. — Þriðjudagur 24. febrúar 1959
Prentsmiðja Morgrnblaðsina
Macmillan og Krúsjeff
rœöast við
> i
s Myndin var tekin á Iaugardag- ^
\ er Macmillan og föruneyti)
S hans kom þangað í 10 daga|
■ heimsókn. Krúsjeff tók á móti s
s gestunum ásamt fríðu föru- í
s neyti — og sjást þeir hér^
| á myndinni, Krúsjeff og Mac S
S millan veifa til áhorfenda að i
S móttökuathöfninni. ;
v J
Sjálflýsandi flug-
vélar
MEÐ vaxandi flughraða flugvél-
anna hefur hættan á árekstrum í
lofti aukizt. Allmörg slys hafa
hlotizt af þessum völdum — og
hafa þau í flestum tilfellum orð-
ið, er herflugvél og farþegaflug-
vél hafa rekizt á í slæmu skyggni.
Mörg flugfélög hyggjast því
grípa til þess ráðs, að mála flug-
vélar sínar með sjálflýsandi efn-
um svo að þær sjáist frekar í
dimmviðri. Fyrsta félagið á Norð
urlöndum, sem hrindir þessu í
framkvæmd, er Linjefly, sænskt
dótturfyrirtæki SAS. Hafa sjálf-
lýsandi rauðgular rendur verið
málaðar á nokkrar flugvélar
félagsins.
Brezka flugmálaráðuneytið hef
ur látið mála allar flugvélar sín-
ar eins — og fleiri munu koma á
eftir.
Vilja þjóðnýta
akurlendi
TRIVANDRUM, Indlandi 23.febr.
— Namboodiripad, forsætisráð-
herra Kerala, eina fylkis Ind-
lands, sem kommúnistar stjórna,
sagði í dag, að æskilegt væri að
þjóðnýta allar ekrur fylkisins án
þess að greiða nokkrar skaða-
bætur til núverandi eigenda.
MOSKVU, 23. febr. — Macmillan
og Krúsjeff ræddust við í Kreml
í dag að viðstöddum utanríkisráð-
herrum beggja landanna, Lloyd
og Gromyko, sendiherra Breta í
Moskvu og sendiherra Rússa í
London. Mikojan varaforsætis-
ráðherra var og viðstaddur. Fund
urinn í dag stóð í tvær og hálfa
stund — og fór vel fram. f gær
ræddust þeir óformlega við, Mac
millan og Krúsjeff, í sumarbústað
Krúsjeffs utan við Moskvu. Þeir
munu aftur ræðast við þar á
morgun.
Macmillan heimsótti Moskvu-
háskóla í dag og flutti þar nokk-
ur stutt ávörp. Sagðist hann m.
a. vera fylgjandi gagnkvæmum
Kýpur öðlast sjáltsfœði
innan árs
Dauðarefsingu og rit-
skoðun aflétt þar í gœr
London og Nicosiu, 23. febrúar. — Reuter-NTB.
K Ý P U R mun hljóta sjálfstæði eigi síðar en 19. febrúar á
næsta ári. Þetta kemur fram í samningunum um framtíð Kýpur,
sem undirritaðir voru'í fyrri viku í London af forsætisráðherrum
Bretlands, Grikklands, Tyrklands svo og fulltrúum gríska og tyrk-
neska þjóðarbrotsins á Kýpur. Samningurinn var birtur í lieild í
dag í London, Aþenu, Ankara og í Nicosiu á Kýpur jafnframt því
einnig Zurich-samkomulagið svonefnda, sem forsætisráðherrar
Grikkja og Tyrkja gerðu með sér og lagt var til grundvallar við
umræðurnar í London og samningsgerðina þar.
í samningnum kveður einnig skyldu, að þeir séu sammála um
samnmgnum
svo á, að settar verði þegar í
stað á laggirnar þrjár nefndir á
Kýpur til þess að gera tillögu að
stjórnarskrá fyrir eyjuna. Þing
skulu starfa þrjú á eyjunni, tvö
eins konar undirþing fyrir hvort
þjóðarbrot um sig, en eitt sam-
eiginlegt þar sem fulltrúar gríska
þjóðarbrotsins eiga að hljóta
70% þingsæta, en tyrkneskir
30%.
í ríkisstjórn skulu sitja 7
grískumælandi eyjarskeggjar og
3 tyrkneskir. Heimiit verður ráð-
herrum að beita neitaunarvaldi
gegn framgangi ýmissa mikil-
vægra mála, en þó svo, að meiri-
hluti ráðherra viðkomandi þjóð-
arbrots standi að neitunarvald-
inu.
★
Forseti eyjarinnar verður fyrst
í stað grískrar ættar og varafor-
seti tyrkneskrar og hafa forset-
arnir víðtæk völd, en að því til-
Fallast Fœreyingar á
brezk-danska sam-
komulagið
KAUPMANNAHÖFN, 23. febr. —
Uppkastið að samningi Breta og
Dana um fiskveiðilandhelgi Fær-
eyja verður birt á morgun jafn-
framt því sem uppkastið verður
tekið til umræðu í Lögþinginu
færeyska. Samningurinn verður
ekki undirritaður af hálfu Dana
fyrr en Lögþingið og heimastjórn
in færeyska hafa samþykkt hann
— svo og danska þjóðþingið.
Peter Mohr-Dam, lögmaður
Færeyja, sagði í dag, að öll gögn
viðkomandi viðræðum Breta og
Dana um fiskveiðilandhelgina
hefðu nú verið rannsökuð af sér-
legri Lögþingsnefnd.
Málgagn Lýðveldisflokksins
færeyska ,14. september, staðhæf-
ir í dag, að þegar sé tryggðwr
meirihluti Lögþingsmanna mcð
brezk-danska samkomulaginu, en
þar mun gert ráð fyrir, að fisk-
veiðilandhclgin verði 12 mílur,
en heimilað að veiða upp að 6
milum.
framkvæmdaatriðin. Það er' t.d.
í þeirra vald sett að velja ýmsa
af helztu valdamönnum eyjarinn-
ar, en val forsetanna er ekki gilt
nema að þeir séu sammála. Þann-
ig velja þeir líka yfirforingja
hersins, sem á að telja 2.000
manns — og verða 60% her-
manna grískir, en hinir tyrkneskr
ar ættar. í varaliðinu verður sami
fjöldi, en þar skipa grískir 70%
og tyrkneskir 30%. Skipan ör-
yggissveita verður og í sama hlut
falli.
★
Bæði þing og forsetar verða
kjörnir tii fimm ára í senn. Op-
inber mál verða tvö, gríska og
tyrkneska, fáni verður einn og
litir hans eiga vera „hlutlausir“,
en heimilt skal að flagga með
tyrkneska og gríska fánanum
jafnhliða fána eyjarinnar við sér-
stök tækifæri.
★
Herbækistöðvar Breta, sem
þeir eiga að fá full yfirráð yfir
sjálfir, verða þrjár. Flugvöllur
við höfuðborgina og tvær litlar
herstöðvar annars staðar á eyj-
unni.
I ★
í dag urðu miklar breytingar
á högum manna á Kýpur. í kjöl-
far birtingar Kýpursamkomu-
lagsins tilkynnti brezka herstjórn
in, að aflétt væri dauðarefsingu
frá og með deginum í dag, allir
Kýpurbúar nytu fulls ferðafrelsis
og ritskoðun væri afnumin.
Hátíðahöldunum, sem hófust í
gær, er Bretar slepptu þeim föng
um, sem eftir voru í fangelsum
þeirra, var haldið áfram í dag í
öllum bæjum eyjarinnar.
Framámenn grískumælandi
manna eru farnir að undirbúa
komu Makariosar — og vonirnar
um að hann mundi koma innan
skamms glæddust enn í dag, þeg-
ar hluta af farangri hans og bú-
slóð var skipað upp í hafnarbæ á
Kýpur í dag. Þar á meðal voru
tveir bílar, Cadillac og Pontiac.
Dr. Kutchuk, formælandi tyrk-
neska minnihlutans, sem sat við-
ræðufundinn í London og undir-
ritaði samkomulagið, var væntan
legur til Kýpur í dag, en vegna
óhagstæðra veðurskilyrða varð
flugvél hans að snúa aftur.
stúdentaheimsóknum landanna og
meiri bókaútflutningi til Rúss-
lands, enskar bækur sæjust varla
í rússneskum bókabúðum.
Talið er, að á fundinum í dag
hafi m.a. verið rætt um aukin
menningartengsl landanna.
í kvöld hafði Macmillan boð
inni fyrir rússneska ráðamenn í
brezka sendiherrabústaðnum í
Moskvu, en brezku gestirnir
þágu heimboð Rússanna í gær.
Til að draga úr
atvinmileysinu
BRÚSSEL, 23. febr. — Belgiska
stjórnin hefur lagt fram áætlun
um stórfellda lántöku til við-
reisnar þeim atvinnuvegum lands
ins, sem verst eru settir hvað
samkeppni við aðrar atvinnu-
greinar snertir. Voru tillögurnar
lagðar fyrir sameiginlegan fund
fulltrúa stjórnarinnar, iðnaðar-
ins og verkalýðssamtakanna —
og eru ein þeirra ráðstafana, sem
stjórnin hyggst gera til þess að
binda endi á verkföllin og minnka
atvinnuleysið.
Síðari fregnir herma, að til-
raunir stjórnarinnar til að binda
endi á verkfallið hafi farið út
um þúfur vegna andstöðu sósía-
liska verkalýðssambandsins við
tilboð stjórnarinnar.
Miklar hópgöngur voru farnar 1
nokkrum borgum landsins í dag,
en ekki kom til átaka milli verka
manna og lögreglu.
Menderes-flugslysið enn
óupplýst
ENN HEFUR ekki tekizt að upp-
lýsa hver ástæðan var til þess,
að tyrkneska flugvélin, sem flutti
Menderes forsætisráðherra Tyrk-
lands til Kýpurráðstefnunnar,
fórst skammt frá London í fyrri
viku. Einu hugsanlegu skýring-
una telja sérfræðingar þá, að
flugstjórinn hafi lesið vitlaust af
hæðarmælinum, þegar hann lækk
aði flugið og bjóst til að lenda.
Flugvélin var í sjónflugi. Flug
stjórinn hafði ekki beðið flug-
turninn um að fylgzt yrði með
flugvélinni með ratsjá, eða að
lendingfunni væri stjórnað af
jörðu. Skyggni var hins vegar
slæmt vegna þoku og tekið var
að skyggja.
Eina skýringin, sem fundizt
hefur á því, að flugvélin steypt-
ist til jarðar 8 mílum frá braut-
arendanum er sú, að flugmaður-
inn hafi lesið 1.100 feta hæð á
hæðarmælinum, þegar hæðin var
raunverulega 100 fet.
Brezki sjóheriiin
efldur
LONDON, 23. febrúar. — Brezki
sjóherinn mun innan skamms fá
fjóra tundurspilla af nýrri gerð.
Þeir verða búnir eldflaugum og
knúnir nýrri gerð aflvéla, eins
konar gufugasvél, aflmikilli. Er
brezki herinn að búa sig undir
að geta orðið skjótvirkur og öfl-
ugur á öllum höfum, ef til heims
styrjaldar kemur. Þá mun vopna-
búrum verða komið upp víðs veg-
ar um heim svo að auðvelt verði
að vopna brezk kaupför, sem eru
á siglingum um öll heimsins höf.
öll kaupför verða búin tækjum
til þess að eyða segulmögnuðum
tundurduflum.
Það er e. t. v. engin tilvilj-
un, að daginn áður en slysið
varð hafði brezka samgöngumála
ráðuneytið gefið út aðvörun til
flugmanna um að hætta væri á
að lesið væri vitlaust af hæðar-
mælum þeim, sem eru í Comet-
um, Bristol Britannia og flest-
um Viscount. Hafa og verið gerð-
ar ráðstafanir til að lagfæra
þetta.
Andvígir ráða-
hagnum
PÁFAGARÐI, 23. febrúar: — Mál
gagn páfastóls ræddi í dag orð-
róminn um að íranskeisari heíði
hug á að ganga að eiga Gabriellu
prinsessu af Savoy. Páfastóllinn
er andvígur slíkum ráðahag, því
að keisarinn er múhameðstrúar,
en prinsessan kristin. Telur blað-
ið, að með slíku hjónabandi væri
hinni dýrmætu eign prinsessunn-
ar, trúnni, stefnt í voða. Keisar-
inn væri múhameðskur og ljóst
væri, að ala yrði a. m. k. einn
son þeirra i pp i múhameðstrú
— sem arftaka ríkisins.
Þriðjudagur 24. febr.
Efni blaðsins m.a.:
BIs. 3: Frá skemmtikvöldi Varðar.
— 6: Frelsisneistinn slokknar aldrei.
(Frá Eistlandi.)
— 8: Frásögn af umræðum um fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurbæjar.
— 10: Forystugreinin: Á hnefaréttur
að ráða á íslandi?
Utan úr heimi: Var skekkja á
hæðarmæli orsök flugslyssins
við Gatwizk?
— 11: Kaupmannahafnarbréf.
— 18: íþróttir.
Frásögn af Búnaðarþingi.