Morgunblaðið - 24.02.1959, Blaðsíða 2
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 24. febr. 1959
Sjómenn og útvegsmenn við
Faxaflóa hlynntir reglum um há
marks fjölda þorskanetja í sjó
Rannsoknarstofa Fiskifélagsins reifar málið
Úrval fágœtra bóka,
blaða og tímarita
ALLAR HORFUR eru á því að
settar verði reglur um hámarks-
fjölda þorskanetja, sem bátur
hefur í sjó hverju sinni. Rann-
sóknarstofa Fiskifélags Islands
sendi blöðunum í gær fréttatil-
kynningu um þetta mál. Segir
þar að undirtektir útgerðar-
manna og sjómanna í verstöðv-
unum við Faxaflóa séu þær, að
þeir vilji láta setja reglur um
þetta og fleiri atriði. Tilgangur-
inn með þessu er að tryggja betra
ástand fisksins, þegar honum er
landað úr bátunum að loknum
róðri. í annarri frétt hér í blaðinu
er skýrt frá daufum undirtektum
í Vestmannaeyjum. í fréttatil-
kynningu Fiskifélagsins segir á
þessa leið:
„Undanfarin ár hafa sölusam-
tök fiskframleiðenda fengið sí-
vaxandi kvartanir erlendis frá,
vegna gallaðrar framleiðslu, sem
oftast hefur mátt rekja til lé-
legs eða jafnvel skemmds hrá-
efnis. En aðalorsökin fyrir þessu
er breytt veiðitækni, þ. e. a. s.
aukin netjaveiði. Þetta ástand í
fiskframleiðslu okkar er því al-
varlegra, vegna þess að helztu
keppinautar okkar á heimsmark-
aðinum leggja nú allt kapp á að
vanda framleiðslu sína.
Með hliðsjón af þessum stað-
reyndum skipaði sjávarútvegs-
málaráðuneytið á sl. hausti 6
manna nefnd samkvæmt marg-
endurteknum tilmælum frá sam-
tökum sjávarútvegsins, til þess
að kanna, hvort æskilegt væri
að stofna til mats á nýjum
vinnslufiski. Nefnd þessi, sem
kallast Ferskfisknefnd, skilaði
siðan áliti, þar sem lagt var til,
að stofnað yrði til eftirlits á
þessari vertíð með nýjum báta-
fiski.
Ráðuneytið fól síðan nefndinni
að hefja slíkt eftirlit til reynslu.
Rannsóknarstofa Fiskifélags Is-
lands fer með yfirstjórn þess og
er eftirlitið þegar hafið í helztu
verstöðvum.
Eitt af því, sem nefndin lagði
til, var að settar yrðu ákveðnar
reglur um þann netjafjölda, sem
vertíðarbátar mættu hafa í sjó.
Óhóflegur netjafjöldi er að sjálf-
sögðu ekki nema einn liður í
langri orsakakeðju, sem leiðir til
lélegs hráefnis, en nauðsynlegt er
að fyrirbyggja, að lögð séu vís-
vitandi fleiri net í sjó en menn
ráða við að draga á einum degi.
Þetta er vandamál, sem erfitt
verður að leysa, svo að öllum
liki. Bezt væri, að útvegsmenn og
sjómenn gætu sjálfir leyst vand-
ann, án íhlutunar hins opinbera.
I Keflavík og Vestmannaeyjum
hafa farið fram viðræður meðal
þessa aðila, þar sem rætt hefur
verið um nauðsyn þessa máls.
Yfirleitt hefur komið fram, að
vilji er fyrir hendi að takmarka
netafjölda við ákveðið hámark,
en að sjálfsögðu er óskað eftir
samkomulagi hjá sem allra flest-
um veiðistöðvum um þetta mál.
Til að kanna undirtektir út-
gerðarmanna og sjómanna, ákvað
Dagskrá Alþingis
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis kl. 1,30. Á
dagskrá efri deildar eru 3 mál:
1. Ríkisreikningurinn 1956,
frv. — 1. umr. 2. Bjargráðasjóður
Islands, frv. — 1. umr. Ef deildin
leyfir. 3. Hafnargerðir og lend-
ingarbætur, frv. — 2. umr.
Tvö mál eru á dagskrá neðri
deildar:
1. Sementsverksmiðja, frv. —
1. umr. Ef deildin leyfir. 2. Lif-
eyrissjóður sarfsmanna ríkisins,
frv. — 1. umr.
Ferskfisknefnd að halda fund
með fulltrúum þessara aðila frá
svæðinu: Grindavík — Akranes.
Fundur þessi var haldinn sunnu-
daginn 22. febrúar og mættu þar
25 manns. Umræður urðu fjörug-
ar og undirtektir góðar. Fer hér
á eftir tillaga, sem samþykkt var
við lok fundarins með samhljóða
atkvæðum:
„Fundur útgerðarmanna, skip-
stjóra og forustumanna sjómanna
félaga, haldinn í húsnæði Rann-
sóknastofu Fiskifélags íslands,
sunnudaginn 22. febrúar 1959, að
tilhlutan Ferskfisknefndar, sam-
þykkir eftirfarandi:
VESTMANNAEYJAR, 23. febr.:
Nokkrum sinnum hefur verið um
það rætt hér í Vestmannaeyjum,
hvort takmarka beri þann fjölda
netja, sem bátar eiu með hverju
sinni. Nú ’iefur þessu máli skot-
ið upp á ný. Útvegsbændaféiagið
ræddi um það á fundi sínum 11.
þ. m. Voru útvegsbændur sam-
mála um nauðsyn þess að eitt-
hvað raunhæft yrði aðhafzt. Var
samþykkt að skrifa Skipstjón-
og stýrimannafélaginu Verðandi
um málið, og farið fram á það
við stjórn félagsins að um þetta
mál yrði rætt frekar meðal félags
manna þess.
I framhaldi af þessu var svo
haldinn fundur um málið í gær.
Var það fjölmennur fundur, en
Fékk tundurdufl
í vörpuna
I FYRRINÓTT fékk togarinn
Svalbakur tundurdufl í vörpuna
og fór með það inn til ísafjarð-
ar. Þangað fór svo gæzluflugvél-
in Rán með tundurdufla-sérfræð-
ing Landhelgisgæzlunnar, Gunn-
ar V. Gíslason skipstjóra, er gerði
duflið óvirkt.
(Frá Landhelgisgæzlunni).
Fjórar bækur
prentaðar í Skál-
holti 1688 á upp-
boði
Á BÓKAUPPBOÐI Sigurðar
Benediktssonar, sem fram fer í
Sjálfstæðishúsinu í dag, eru marg
ar merkar bækur. — Þar er fyrst
að telja fjórar bækur, sem prent
aðar eru í Skálholti 1688 — Saga
Landnáma, Kristendóms Saga,
Gronlandia og Schedæ Ara fróða.
Þessar fjórar bækur seljast í einu
lagi, enda eru þær bundnar sam-
an. Er það hið upprunalega band,
frá þeim tíma er bækurnar voru
prentaðar — og er það ótrúlega
vel farið.
Af öðrum fágætum bókum, sem
seldar verða á uppboðinu, má
nefna Ljóðmæli Jónasar Hall-
grímssonar (Khöfn 1847), árituð
af Brynjólfi Péturssyni, Kvæði
Benedikts Gröndals eldra (Viðey
1833), Bakkynjurnar, grísk leik-
rit þýdd af Sigfúsi Blöndal (útg.
1923), og Norðurfara I—II (Kaup
mannahöfn 1848—’49), auk
margra annarra fágætra bóka.
Bókauppboðið hefst í Sjálf-
stæðishúsinu kl. 5 síðdegis.
1. Að settar verði reglur um
hámarksfjölda þorskanetja,
sem bátur hefur í sjó hverju
sinni, og álítur fundurinn hæfi
legt hámark 90 net á skipum
yfir 40 smálestir, en minni bát
ar hafi aldrei fleiri en 75 net
liggjandi í sjó.
2. Að allur fiskur verði und-
antekningarlaust blóðgaður
strax, þegar hann hefur verið
greiddur úr neti.
3. Stefna ber að því, að góð-
ur og vel með farinn fiskur
verði greiddur mun hærra
verði heldur en sá, sem lé-
legur er og illa með farinn,
enda komi þá til verðflokkun
í þrjá gæðaflokka“.“
hugmyndin um takmörkun á
netjafjölda bátanna, fékk mjög
daufar undirtektir. Tillaga, sem
fram kom á fundinum um að
skipa sérstaka nefnd til frekari
viðræðna við Útvegsbændafélag-
ið, var felld, svo mál þetta virð-
ist útrætt af hálfu skipstjóra og
stýrimanna á Vestmannaeyjabát-
unum a. m. ki bili. —Bj.Guðm.
Enska bikar-
keppnin
HANDHAFAR bikarsins, Bolton
Wanderers, sigruðu í gærkvöldi
Preston North End með einu
marki gegn engu á hlutlausum
velli, Ewood Park, Blackburn.
Nat Lofthouse skoraði sigurmark
ið. Bolton átti mun meira í leikn
um. Þessi tvö lið hafa leikið í
samtals 390 mín. á 10 dögum,
þrjá leiki í bikarkeppninni og
einn í deildakeppninni. 1 hinum
leiknum sem fór fram í gær voru
Birmingham City slegnir út af
Nottingham Forest með fimm
mörkum gegn engu. Dwight skor-
aði þrjú af mörkunum og Gray
tvö. Forest sýndu yfirburði all-
an leikinn, og verðskulduðu sig-
urinn. Leikurinn fór fram á leik-
velli Leicester City.
I sjöttu umferð, sem fer fram
á laugardaginn leika þessi lið
saman:
Aston Villa gegn Burnley.
Blackpool gegn Luton Town.
Nottm. Forest gegn Bolton.
Sheffield Utd. gegn Norwich C.
Afli Akranesbáta
AKRANESI, 23. febr. — Tólf bát-
ar voru á sjó héðan í dag, í stinn-
ingsvestanátt og leiðindaveðri. —
Afli þeirra' báta, sem búnir voru
að vigta kl. 9 í kvöld, var frá 5
og upp í 8,5 lestir.
Á laugardaginn voru 16 Akra-
nesbátar á sjó og fengu alls 95
lestir. — Langaflahæst var Sigur
von, með 12,5 lestir. Sá næsti
var með 9, þriðji með 8 og fjórði
með 7 lestir. — Tveir þessara 16
voru með þorskanet. Fékk annar
4 og hinn 2 lestir.
Megnið af aflanum var þorsk-
ur, stór og feitur. Allur er þorsk-
urinn flakaður og frystur.
— Oddur.
KEFLAVÍK, 23. febr. — Allflest-
ir bátar héðan eru á sjó í dag.
Enda þótt veður væri fremur
rysjótt, var afli bátanna, sem að
voru komnir um kl. 8 í kvöld að
meðaltali 6—9 lestir.
Óvíst er hvort róið verður aft-
ur í kvöld, þar sem veðurútlit
er ekki sem bezt. — Ingvar.
á bóka- og blaða-
markaðinum í Ing-
ólfsstrœti 8
I GÆR mánudaginn 23. febr.
opnaði Helgi Tryggvason bóka-
og blaðamarkað í markaðssaln-
um í Ingólfsstræti 8. Þarna verða
á boðstólum bækur í þúsundatali,
og eru margar þeirra mjög fá-
gætar og löngu uppseldar. Einnig
verða á boðstólum hundruð blaða
og tímarita, allt ,,komplett“ og
margt af því afar fágætt.
Meðal þeirra bóka sem voru
til sölu á bókamarkaðinum þegar
í gær, voru nokkrar af fyrri bok-
um Þórbergs Þórðarsonar, svo
sem Hvítir hrafnar og Pistilinn
skrifaði. Einnig Grágás I—II.,
útg. 1852. Fréttir frá íslandi (öll
heftin), Málsháttarsafn Finns
Jónssonar og mikið af þjóðsög-
um, rímum og riddarasögum svo
nokkuð sé nefnt. Á hverjum degi
munu svo við bætast nýjar bæk-
ur á markaðinn. Mörg heil tíma-
rit og blöð, sem ógjörningur hef
ur verið að ná saman nú um
langan tíma, verða einnig á boð-
stólum á bóka- og blaðamarkaði
Helga Tryggvasonar.
Tveir drengir
meiddust í slysum
Á SUNNUDAGINN og svo aftur
í gærdag meiddust litlir drengir
í umferðarslysum.Báðir urðu þeir
fyrir bílum, en munu hafa slopp-
ið furðanlega lítt skaddaðir.
Á sunnudaginn hafði 3 ára
drenur, Smári Lindberg, Brekku-
götu 8, Hafnarfirði, hlaupið fyrir
bíl suður á Kópavogshálsi. Dreng
urinn hafði allt í einu hlaupið frá
móður sinni, er þar var á gangi
með hann, og út á götuna. í sama
mund var bíl ekið hjá og skipti
það engum togum að drengurinn
kom á bílinn miðjan. Við árekst-
urinn kastaðist drengurinn langt
frá bílnu' ’, en hafði ekki hlotið,
við það r.ein meirihátar meiðsli.
í gærdag varð skóladrengur,
Gísli Stefánsson, Hátúni 7, fyrir
bíl, er hann kom hlaupandi út
úr porti heima hjá sér, á leið
í skólann. Var Gísli fluttur í
slysavarðstofuna. Hafði hann
hlotið nokkra áverka, en mun eigi
hafa hlotið beinbrot.
Verndarsvæði
brezku togaranna
flutt sunnar
EINS og kunnugt er hafa brezku
herskipin hér við land undan-
farið haldið uppi tveimur vernd-
arsvæðum fyrir Austurlandi, til
ólöglegra veiða fyrir brezku tog-
arana. Mjög lítil veiði hefur ver-
ið á þessum slóðum og fáir tog-
arar nema mjög langt utan fisk-
veiðimarkanna.
Nú hefur hins vegar sú breyt-
ing orðið á svæðunum, að þau
hafa verið flutt sunnar, þannig
að annað er frá Ingólfshöfða að
Hrollaugseyjum, og hitt frá
Stokksnesi að Papey. I gærmorg-
un voru 5 togarar á fyrrnefnda
svæðinu og 3 á hinu síðara. Svæð
anna gæta 3 til 4 brezkir tundur-
spillar, og auk þess er þar birgða-
skip. Afli var góður hjá sum-
um skipanna.
Alls munu vera um 30 brezkir
togarar fyrir Suðausturlandi,
langflestir á svonefndum Kidney-
banka, sem er langt undan landi.
Annars staðar við Island hefur
brezku togaranna hins vegar ekki
orðið vart.
(Frá Landhelgisgæzlunni).
•fa Belgrad, 20. febr. — Nokkrir
særðir alsírskir uppreisnarmenn
eru nú komnir til Júgóslavíu til
þess að njóta hjúkrunar.
Þá mun hann taka á móti list-
um frá bókasöfnurum yfir þær
bækur, sem þá vantar, og mun
hann reyna að útvega það, enda
þótt það sé ekki allt fyrirliggj-
andi á bókamarkaði hans.
Helga Tryggvason mun ekki
þurfa að kynna fyrir bókamönn-
um. Hann hefir um langt skeið
verið kappsamur bókasafnari og
hefir sérstaklega lagt stund á
söfnun blaða og tímarita, en
mjög erfitt er orðið að afla
margra þeirra. — Mun Helgi vera
einn þeirra, sem beztum árangri
hafa náð á því sviði.
Meðlijálpara
Olafsvíkurkirkju
þakkað 50 ára starf
ÓLAFSVÍK, 23. febrúar: — Við
guðsþjónustu hér í Ólafsvíkur-
kirkju minntist sóknarpresturinn
þess i lok guðsþjónustunnar, að
þennan dag fyrir 50 árum hefði
meðhjálpari kirkjunnar, Magnús
Kristinsson, trésmíðameistari, tek
ið að sér starf meðhjálpara. Séra
Magnús Guðmundsson flutti
Magnúsi, sem nú er kominn yfir
áttrætt, þakkir fyrir störf hans
fyrir Ólafsvíkurkirkju og fór
miklum viðurkenningarorðum
um hinn aldurhnigna meðhjálp-
ara, sem ber sinn háa aldur mjög
vel. Sóknarnefndin færði Magn-
úsi Kristjánssyni skrautritaða
gestabók, og jafnframt tilkynnti
nefndin ;.ð hún léti gera mjög
vandaðan útskorinn göngustaf
handa honum. Magnús var for-
maður sóknarnefndar á árunum
1913—32, og nýtur hann mikillar
virðingar hér í kauptúninu, enda
er hann óvenjulegur maður um
marga hluti. —B.
Burgess vill
skreppa til London
LONDON, 23. febrúar. — Brezku
blaðamennirnir, sem fylgjast með
ferð Macmillans til Rússlands,
hafa hitt Guy Burgess að máli.
Hann flúði árið 1951 ásamt Mac-
Lean til Rússlands sem frægt er
nú orðið.
Burgess kvaðst vilja heim-
sækja England til þess að sjá
sjúka móður sína, en kveðst ekki
viss um að fá að hverfa aftur til
Rússlands.
Randolph Churchill, sem er I
hópi brezku blaðamannanna
eystra, segir að Burgess hafi sagt
í viðtali við sig, að hann væri enn
kommúnisti og kynvillingur —■
og er þessu haldið mjög á lofti í
brezku blöðunum.
Friðrik teílir við
Akureyringa
AKUREYRI, 23. febr. — Friðrik
Ólafsson stórmeistari í skák er
nú staddur hér í boði Skákfélags
Akureyrar. Kom hann hingað til
bæjarins á laugardaginn.
f gær, sunnudag, tefldi Friðrik
fjöltefli við 36 menn í Lóni, fé-
lagsheimili karlakórsins Geysis.
Vann hann 30 skákir, gerði þrjú
jafntefli og tapaði 3 skákum. —
Þeir ,sem unnu stórmeistarann,
voru Atli Benediktsson, Randver
Karlsson og Ingimar Friðfinns-
son. Auk skákmanna hér á Ak-
ureyri, komu nokkrir menn úr
sveitunum hér í kring til keppn-
innar.
Samtímis fjölteflinu tefldi
Friðrik tvær blindskákir og vann
báðar.
I kvöld teflir hann eftir klukku
við 10 menn úr meistaraflokkl
Skákfélags Akureyrar. Teflt verð
ur að Hótel KEA. — Mag.
Skipstjórnarmenn í Ey jum andvígir
takmörkunum á þorskanetjaf jölda.