Morgunblaðið - 24.02.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.02.1959, Blaðsíða 11
T>riðjudagur 24. febr. 1959 MORGUNBLAÐ1Ð 11 Þannig var umhorfs í Kaupmannahöfn á þeim mikla hátíðisdegi, þegar Friðrik III var hylltur sem erfðakóngur 18. okt. 1660. Danir minnast jbess oð fyrir 3 00 árum var árás Svía á Kaupmannah öfn hrundiB Kaupm.höfn í febrúar 1959. ÞRJÚ hundruð ár voru h. 11. þ.m. liðin frá því að Danir hrundu árás sænska hersins á Kaupmanna- höfn. Danir minntust á ýmsan hátt þessa sögulega viðburðar, sem í raun og veru réði úrslitum í dönsk-sænsku styrjöldinni og leiddi til merkra umskipta í sögu Danmerkur. Borgarstjórn Kaupmannahafn- ar hélt aukafund á hátíðlegan hátt vegna þessa dags. Þangað var boðið sendiherrum allra Norðurlanda og Hollands ásamt formönnum félaga þessara landa í Kaupmannahöfn. Fyrir íslands- hönd voru þarna viðstaddir Tryggvi Sveinbjörnsson sendi- ráðunautur og Ólafur Halldórs- son, cand. mag., formaður íslend- ingafélagsins. Eftir fundinn var gengið með blys til Þjóðminja- safnsins. í súlnagögum þess var afhjúpuð tafla til minnis um Svía og Hollendinga, sem féllu í bardögunum um Kaupmanna- höfn. Tildrög árásarinnar á borgina voru þau, að Karl 10. Gústaf Svíakonungur var óánægður með friðarsamninginn, sem hann gerði við Dani í Hróarskeldu í febrúar 1658, eftir að hann hafði farið með her sinn frá Jótlandi yfir ísinn á dönsku sundunum alla leið til Kaupmannahafnar. Danir gáfust þá upp. Svíar fengu dönsku héruðin austan Eyrar- sunds, nefnilega Skán, Halland og Blekinge, og þar að auki Borgundarhólm ásamt tveimur norskum lénum: Bohusléni og Þrándheimsléni. Þetta var þó miklu minna en Karl 10. Gústaf hafði gert ser vonir um. Ætlaði að stofna sænskst stórríki. í byrjun ágúst 1658, aðeins missiri eftir að Hróarskeldusamn ingurinn var undirskrifaður, fór Svíakonungur aftur með her til Danmerkur. Nú ætlaði hann sér að gera alvöru úr því sem mis- tókst árið áður, nefnilega að leggja undir sig alla Danmörku ásamt fslandi og Noregi. Þannig ætlaði hann að skapa stórt stór- ríki, sem næði yfir öll Norður- önd og gæti ráðið lögum og lof- um við Eystrasalt. M. a. hafði hann í hyggju, að flytja Kaap- mannahafnarháskóla til Gauta- borgar og danska aðalinn til Ingermanlands austan Eystrasalts en það var þá í höndum Svía. Danskur sagnfræðingur ber fram þá spurningu, hvaða örlög hefðu verið Norðurlöndum búin, Utan úr heimi Framh. af bls. 10 Neyðaróp og kvalakvein „Áður en ég sá nokkuð, bárust mér til eyrna neyðaróp og kvala- vein utan úr þokunni. Er nær kom, sá ég að fremsti hluti flug- vélarinnar var gersamlega brot- inn í spón, og brakið lá á víð og dreif allt um kring. Bolurinn hafði brotnað í tvennt og nokkrir farþeganna höfðu kastazt út um rifuna. Ég sá þrjá menn staulast burt frá flakinu. Þeir reyndu að hraða sér, en virtust mjög ringlaðir og óttaslegnir. Rétt á eftir varð nokkur sprenging, og eldurinn, sem komið hafði upp í brakinu, magnaðist nokkuð. — Einn þess ara þriggja manna var hr. Mend- eres. Föt hans voru öll rifin og táin. Hann hafði setið aftarlega hægra megin í flugvélinni, skammt þar frá, sem bolurinn brotnaði, tekizt að losa öryggis- belti sitt og komast út úr flak- inu af sjálfsdáðum“. „Það var hræðilegt-------“ „Ég h’jóp eins hratt og ég gat gegnum skóginn í áttina að eld- bjarmanum", sagði Peter Heath- er, annar garðyrkjumaður frá Rusper, sem næstur kom á vett- vang. Honum tókst þegar að ná ungri gtúlku, sem var mjög slösuð, út úr brakinu. Hann taldi, að það hefði verið önnur flugfreyjan. — Síð- an hjálpaði hann einum af tyrkn- esku fulltrúunum út úr flakinu. Hann var einnig allmikið meidd- ur. „Það var hræðilegt að heyra óp og kvalastunur fólksins“, sagði Heather. Brátt komu tveir lögreglubílar Og sjúkrabíll á slysstaðinn, og rétt á eftir komu fyrstu bruna- verðirnir frá Crawley, en þeir höfðu orðið að leggja brunaslöng urnar nær einnar mílu leið gegn- um skóginn. Neyðaróp fólksins, sem enn lá ósjálfbjarga inni í flugvélinni, bárust án afláts út í myrkrið og þokuna. Einn lögreglumannanna fann tyrkneska flugstjórann látinn, bundinn niður í sæti sitt. „Mér sýndist sem hann hefði verið að gera tilraun til að losa sig úr sæt- inu,‘þegar dauðann bar að,“ sagði lögreglumaðurinn. Eins og í gildru. „Brunaliðsmenn reyndu að ryðja sér braut inn í flakið með því að höggva gat á bolinn með öxum“, hélt Ileather áfram lýs- ingu sinni. „Bolurinn var brot- inn í tvennt, og fremri hlutinn lá á hvolfi. Inni fyrir lá slasað fólk- ið eins og lokað inni í gildru. Loks tókst einum brunaliðsmann anna að höggva gat á flugvélar- búkinn og komast inn. Gat hann síðan opnað dyrnar innan frá. Hann dró eitt lík út með sér. Síð- an fór hann inn aftur, ásamt fé- lögum sínum. Brátt birtust þeir á ný — og höfðu þá náð fjórum farþegum, lifandi“. Og áfram var haldið að leita að látnum og lifandi í brakinu í margar klukkustundir. Alls staðar menn með sjúkrabörur Brian Smith, starfsmaður við flugstöðina í Gatwick, kom á slysstaðinn skömmu á eftir fyrstu sjúkraliðunum. Hann lýsti því sem fyrir augun bar svo: — „Það var ekki svo auðvelt að finna staðinn, því að þokan lá yfir öllu eins og þykk hula. — Ég komst þó fremur auðveldlega þangað — fylgdi brunaslöngun- um, sem lagðar höfðu verið gegn- um skóginn, þar til ég kom í rjóðrið, sem myndazt hafði, þar sem flugvélin kom niður. Brunaliðsmenn voru í óða önn að draga burtu fallna trjáboli, sem lágu ofan á flakinu. — Nokkr ir höfðu kastazt út úr flugvélinni og lágu ósjálfbjarga umhverfis brakið — og alls staðar voru menn með sjúkrabörur. — Aðal- hluti búksins var nokkurn veginn í heilu lagi, en aftasti hluti hans ásamt stélinu, var brotinn af, og hefir sennilega orðið eftir ein- hvers staðar uppi í trjákrónunum. Eftir því sem ég bezt gat séð, var fremsti hluti flugvélarinnar mölbrotinn, og vængirnir höfðu kubbazt af. — Á meðan ég var þarna, sá ég sjúkraliða ná all- mörgu fólki lifandi út úr flakinu, en meira og minna slösuðu. Margt fólk úr nágrenninu var til aðstoð- ar. Flugvélin hafði skilið eftir sig a.m.k. hundrað metra „slóð“ í skóginum, áður en hún nam við jörðu. — Þegar ég kom á staðinn, var orðið næstum almyrkt, svo kveikja þurfti á Ijóskösturum og tendra kyndla til þess að unnt væri að halda björgunarstarfinu áfram“. ★ — Eins og bræður Tveim dögum eftir slysið, er samningar höfðu náðst í Kýpur- málinu, komu þeir Macmillan, forsætisráðherra Breta, og Kara- manlis, forsætisráðherra Grikkja, í heimsókn til Menderes í sjúkra- húsið — til þess að undirrita Kýpursáttmálann. — Brezku blöð in lýstu því allnákvæmlega, er Menderes, klæddur náttfötum og slopp, tók sér penna í hönd og undirritaði samninginn um sjálf- stæði Kýpur, en athöfnin fór fram í sjúkrastofu hans. — Mun það sennilega einsdæmi, að milliríkja- samningur sé undirritaður í slíku umhverfi. Fenmen ,einkaritari Menderes, sem var viðstaddur athöfnina, lét þau orð falla, að henni lok- inni, að hinir þrír forsætisráð- samlegir hver í annars garð. Þeir voru eins og beztu bræður“. herrar hefðu verið „meira en vin- ef þetta hefði tekizt. Sagnfræð-1 ingurinn er ekki i neinum efa um, að þjóðlegar andstæður hefðu fyrr eða síðar sundrað slíku ríki. fbúarnir kveiktu í húsunum. Þegar Karl Gústaf gekk með her sinn í land í Korsör á Sjá- landi þ. 8. ágúst 1658, gerði hann sér vonir um að vinna sigur í skyndistríði. Aðeins þremur dög um seinna stóð hann á Valby- hæð, suðvestan við Kaupmanna- höfn og virti borgina fyrir sér. Honum brá í brún, þegar hann sá, að úthverfin voru hulin reykj armekki. íbúarnir höfðu kveikt í húsunum sínum og setzt að innan víggarðanna. Af þessu réði Svía- konungur, að Danir væru stað- ráðnir í því, að bjóða honum byrginn og veita öflugt viðnám. Karl Gústaf hætti því við hið fyr- irhugaða áhlaup á borgina, en settist um hana. Danir bjuggust til varnar. Frið- rik 3. Danakonungur sagðist held ur vilja deyja í hreiðrinu sinu en gefast upp. Danir gerðu við víggarðana, sem voru víða í ólagi og dýpkuðu díkin meðfram þeim, en þau voru sums staðar svo grunn, að auðvelt var að vaða yfir þau. Herlið Dana í Kaupmannahöfn var tiltölulega fámennt. íbúar borgarinnar voru þá ekki nema 25.000 að tölu. Óbreyttir borgarar Áhlaupið á Kaupmannahöfn. Aðfaranótt hins 11. febrúaf 1659, hóf Karl Gústaf því árásina á borgina. Það var hríðarveður. Yfirhafnir Svíanna voru hvítar, samlitar si.jónum. Danir kölluðu þær líkklæðin. Danir höfðu höggv ið svo breiðar vakir í ísinn á díkj unum, að sóknarbrýr Svíanna náðu ekki yfir þær. Danskir her- menn stóðu ásamt borgarliðinu uppi á varnargörðunum. Þeir not uðu ekki aðeins skotvopn, heldur líka bjálka og grjót, sem þeir köstuðu niður á árásarherinn, og heltu sjóðandi vatni og tjöru í höfuðið á þeim. Einna ákafast var barizt, þar sem Tívolí er nú. Eftir nokkurra klukkustunda- bardaga, höfðu Danir hrundið árásinni. 580 Svíar féllu, 900 særð ust. Ekki nema 10—12 Danir létu þarna lífið. Karl Gústaf þorði ekki að gera nýja árás á Kaupmannahöfn, en styrjöldinni lauk ekki fyrr en rúmlega ári seinna. Friður saminn í febrúar 1660 andaðist Karl 10. Gústaf. Sonur hans, Karl 11., var þá ekki nema 5 ára gamall. Foráðamenn hans voru ekki eins herskáir og faðir hans hafði ver- ið. Þ. 27. maí 1660 sömdu Danir og Svíar frið í Kaupmannahöfn. Svíar urðu að láta af hendi Þránd heimslén og Borgundarhólm. En Áhlaupi Svía á virkið hrundið. gripu til vopna. M. a. voru sér- stakar stúdentahersveitir mynd- aðar. Fljótlega varð skortur á mat- vælum og öðrum nauðsynjavör- um, þar sem borgin var umkringd af óvinaher, sem stöðvaði að- flutninga. Skipin, er von var á, frá íslandi, Noregi og Jótlandi, komu ekki. Hámarksverð var sect á allar nauðsynjavörur. Danir urðu að herða á mittisólinni. Jafnvel Friðrik konungur varð að spara og láta sér nægja 10 rétti tvisvar á dag. Bandamenn Dana hjálpa. Sumarið og haustið leið. Kast- alinn Krónborg á Helsingjaeyri gafst upp. Svíar tóku hann mót- spyrnulaust. Sagnfræðingar líta svo á, að líklega myndu Danir hafa tapað þessu s.ríði, ef banda- menn þeirra hefðu ekki komið þeim til hjálpar. Bæði Sjáland, Fjón og Jótland var hernumið af Svíum. í október kom hollenzkur her- skipafloti til Kaupmannahafnar eftir orustu við sænska flotann í Eystrasalti. Hollendingarnir færðu Kaupmannahafnarbúum ýmsar nauðsynjavörur. Herlið frá Pólíandi og Brandenburg, sam- tals 30.000 manns, kom um svipað leyti til Jótlands til að hjálpa Dönum. Svíakonungur gat þvi ekki flutt til Sjálands sænskt herlið, sem var á Jót'andi, og sem hann hefði annars getað notað til árásar á Kaupmannahöfn. Svíum var nauðsyulegt að sijr ast á Kaupmannahöfn fyrir vorið. Búast mátti við, að Kaupmanna- hafnarbúar fengju hjálparlið frá Jótlandi, þegar sundm yrðu auð. Danir fengu ekki aftur Skán og hin gömlu dönsku héruðin aust- an Eyrarsunds. Frakkar og Bret- ar vildu ekki, að eitt ríki réði yfir báðum ströndum Eyrarsunds og gæti lokað leiðinni til Eystra- salts. Mazarin kardínáli, þáver- andi forsætisráðherra Frakka, stóð fast á þessu. Sama er að segja um bæði Oliver Gromwell, sem andaðist á stríðsárunum, og eftirmenn hans. Hörmulegt ástand í Danmörku, sérstaklega á Jót landi, var ástandið hörmulegt, þegar styrjöldinni lauk. Bæði sænsku hermennirnir og útlendu hermennirnir, sem komu Dönum til hjálpar, lifðu oft á ránum. Svíakonungur þröngvaði fjölda danskra bænda til herþjónustu á móti Rússum í Eystrasaltslönd- unum. Skæðar farsóttir bárust með pólsku hermönnunum til Jótlands og urðu í sumum sveit- um helmingi íbúanna að bana. Lyngið breiddist víða yfir akr- ana. Fénaður féll hrönnum sarr.- an. Mörg þorp lögðust að meira eða minna leyti í eyði. f bæjun- um brann fjöldi húsa til kaldra kola. Víða átti fólk við sult að búa. Öll þjóðfélagsskipun Dana var í upplausn. Ráðamenn konungs töldu nauð synlegt að efla ríkisvaldið til þess að endurreisa landið. Frið- rik 3. fékk því ótakmarkað ein- veldi og rétt til ríkiserfða fyrir niðja sína. Þ. 18. október 1660 var hinn einvaldi erfðakonungur hylltur með mikilli viðhöfn framan við Kauphöllina í Kaup- mannahöfn. Fáll Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.