Morgunblaðið - 24.02.1959, Side 19
Þriðjudagur M. febr. 1959
MORCirNBLAÐlÐ
19
Sigurbjörg Kristín Sveinsdóttir
irá Ketu — Minning
Mannorðið þó maðurinn deyi
með honum grefst í jörðu eigi
það lengi eftir lifir hann.
Oft ber það við að maður þráir
að heyra helfregn vina og kunn-
ingja. Þannig var það að mér
fannst ég finna til gleði, þegar
mér var tilkynnt lát minnar góðu
vinkonu Sigurbjargar frá Ketu.
Þjáningarstríð hennar var orðið
allt of langt. Vikur, mánuðir, ár.
Sætur er friður fenginn. Lífið
hefur látið herfangið af hendi við
þann máttuga og miskunnarlausa
dauða. Þannig eru allra forlög.
Sigurbjörg Kristín Sveinsdóttir
var fædd að Króksstöðum í
Hrolleifsdal í Skagafjarðarsýslu.
Foreldrar hennar voru dugnaðar
og sæmdarhjónin Sveinn Magn-
ússon og Sigurlaug Guðvavðar-
dóttir.
Með þeim fluttist hún yfir
fjörðinn 4ra ára að aldri, að Efra-
Nesi á Skaga. Þar ólst hún upp
til 17 ára aldurs en þá fluttist
hún ásamt foreldrum sínum og
systkinum að Ketu í sömu sveit.
Þar beið hennar lífsstarfið sem
húsfreyju og móður á gestrisnu
sveitaheimili og kirkjustað. Á
þeirri jörð bjó hún í 31 ár rausn-
ar og myndarbúi.
Hún var tvígift. Fyrri maður
hennar var Guðmundur Rafns-
son. Með honum átti hún einn
son Rafn sem nú er búsettur á
Sauðárkróki.
Seinni maður hennar er Magn-
ús Árnason frá Syðra-Mallandi á
Skaga. Eignuðust þau fjögur
börn, sem nú eru öll búsett í
Reykjavík, Sigurður framkv.stj.,
Sporðagrunni 7, Ragnar lögg.
endurskoðandi, Rauðalæk 61.
Magnús starfsm. hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, Gunnarsbraut
28 og Ester verzlunarmær Hring-
braut 109.
Sigurbjörg var framúrskarandi
góð móðir og ástrík eiginkona,
enda naut hún þess ríkulega. Átti
góðan eiginmann og góð og mann-
vænleg börn. Hún var glæsileg
kona í sjón, skynsöm og skemmti-
leg í tali, gestrisir og vinamörg
í sveit sinni. Það var gott að
koma að Ketu, enda sneiddu eng-
ir þar hjá garði. Hjónin og börn-
in voru samvalin að gera gestun-
um stundirnar skemmtilegar. Ég
var svo lánsöm að búa í nágrenni
við Ketu í 15 ár en vinskapur
okkar Sigurbjargar byrjaði þegar
við vorum á fermingaraldri og
varaði alla tíð meðan hún íifði.
Vorið 1942 brugðu þau Sigur-
björg og Magnús búi og fluttust
til Reykjavíkur. Börnin voru þá
komin til Reykjavíkur, nema
elzti sonurinn Rafn, sem þá var
giftur og búsettur á Sauðárkróki.
Sigurbjörg varð fyrir þeirri
þungu raun að Rafn elzti sonur
hennar veiktist af lömunarveiki
og hefir nú á vori komanda legið
rúmfastur í 25 ár. Það mun hafa
reynst honum meiri styrkur en
flest annað hvað móðir hans
gýndi honum, konu hans og börn-
um mikla umhyggju og móður-
kærleika alla tíð. Það er trú mín
að þótt hún hafi borið þetta mót-
læti með dugnaði og einstakri
þolinmæði, þá hafi þetta reynt
meira á hana en allt annað. Ég
veit að allir ástvinir þessarar
vinkonu minnar sakna hennar
sárt, en þó mun söknuðurinn sár-
astur hjá honum, svo mikið sem
hann hefir misst.
í Reykjavík bjuggu þau Sigur-
björg og Magnús að Hringbraut
109. Þar heimsótti ég þau árlega
og naut sömu glöðu og hlýju við-
taknanna og áður. Síðustu kveðju
orðin talaði hún til mín í sima frá
sjúkrabeði sínum. Nú heyri ég
fyrir mér mjúka málróminn henn
ar og sé fallega brosið, þegar hún
var að minnast á skemmtilega við
burði frá æskudögunum.
Einu sinni á unglingsárunum
— Alþingi
Framhald af bls. 3
taka upp frv. frá 1950 um sam-
eining þessara tveggja ríkisstofn-
ana og því væri það endurflutt
efnislega óbreytt.
Gninnar Jóhannsson kvaddi sér
hljóðs og skýrði frá því, að er frv.
um niðurfærslu verðlags og
launa o. fl. var til umræðu á
þingi hefði hann bent á að sam-
eina bæri áfengis- og tóbaks-
einkasölu ríkisins. Kvað hann Al-
þýðubandalagsmenn mundu
fylgja þessu frv.
Að loknum umræðum var frv.
vísað til 2. umr. og fjárhagsnefnd-
ar.
Frumvarp um sauðfjárbaðanir
var til 1. umr. og afgreitt til 2.
umr. umræðulaust, en frv. um
sementsverksmiðju var tekið út
af dagskrá.
Frumvarp til skipun presta-
kalla var til 3. umr. Páll Þorsteins
son, framsögumaður menntamála
nefndar tók fyrstur til máls.
Ræddi hann um tillögu Jóns
Pálmasonar um að prestsetrið
yrði flutt frá Æsustöðum að Auð-
kúlu. Kvað hann nefndina hafa
borið þetta mál undir biskup
landsins og hefði borizt svar. Var
í því skyni talið að annmarkar
væru á flutningi prestssetursins
frá Æsustöðum að Auðkúlu, og
leggði menntamálanefnd því til
að meginmáli breytingartillög-
unnar yrði breytt á þann veg, að
þessi framkvæmd verði í heimild-
arformi.
Jón Pálmason kvaðst fyrir sitt
leyti geta gengið að því að mæla
með því að tillaga menntamála-
nefndar yrði samþykkt og tæki
hann því sína tillögu til baka. Var
breytingartillaga menntamála-
nefndar samþykkt með 19 sam-
hljóða atkv. og afgreitt til efri
deildar.
datt okkur í hug að vaka hálfa
vornóttina til að sjá sólina rísa
upp úr öldunum af stuttum lág-
nættisblundi. Það var dásamleg
og ógleymanleg sjón. Nú vona ég
að þessi fátæklegu kveðjuorð ber
ist til þín á einhverjum bylgjum
Ijósvakans inn í eilífðarlandið þar
sem sólaruppkoma* hlýtur að
vara margfalt dýrðlegri en heima
í köldu og hrjóstrugu sveitinni
okkar.
Drottinn fylgi þór úr garði í
garð. Það var gaman að kynnast
þér vinkona.
Guðrún B. Árnadóttir.
Dr. Cunnlaugur
Þórðarson tekur
sæti á Alþingi
ER fundur hafði verið settur í
neðri deild Alþingis í gær, skýrði
forseti deildarinnar svo frá, að
sér hefði borizt bréf frá 10. lands
kjörnum þm., Pétri Péturssyni,
þess efnis, að þar sem hann væri
á förum til útlanda í opinberum
erindagjörðum og yrði væntan-
lega fjarverandi tvær til þrjár
vikur, óskaði hann þess, að vara-
maður sinn, dr. Gunnlaugur Þórð
arson, tæki sæti sitt á Alþingi á
meðan.
Þar sem kjörbréf dr. Gunn-
laugs. hafði áður verið athugað,
var ekkert því til fyrirstöðu að
hann tæki sæti á þingi og bauð
forseti deildarinnar hann velkom
inn.
Skákmót Hafnar-
f jarðar, 3. umferð
HAFNARFIRÐI. — Þriðja um-
ferð skákmótsins var tefld hér
á sunnudaginn og fóru þá leikar
svo að Haukur Sveinsson vann
Hjört Gunnarsson, Þórir Sæ-
mundsson vann Kristján Finn-
björnsson, Ólafur Sigurðsson og
Sigurgeir Gíslason gerðu jafn-
tefli. Biðskákir urðu hjá þeim
Stíg Herlufsen og Skúla Thorar-
ensen svo og Ólafi Stephensen og
Jóni Kristjánssyni.
Eftir þessar þrjár umferðir er
Þórir efstur með 3 vinninga, Jón
2 og biðskák, Haukur og Sigurgeir
2 hvor og Stígur 1% og biðskák.
— Fjórða umferð verður tefld á
miðvikudagskvöld og hefst kl. 8.
Eins og sagt hefir verið áður,
er teflt í hinum nýju húsakynn-
um Iðnskólans, en þar er mjög
rúmgott og ágætt fyrir áhorfend-
ur að fylgjast með skákunum. Á
sunnudag var t.d. allmargt áhorf-
enda. — Sigurvegarinn á móti
þessu hlýtur titilinn Skákmeist-
ari Hafnarfjarðar 1959. — G. E.
Innilega þakka ég öllum, sem sýndu mér vinsemd og
virðingu í tilefni af 75. afmælisdegi mínum með árnaðar-
óskum, heimsóknum og gjöfum.
ÓLAFUB PÁLSSON
Innilega þakka ég öllum þeim, nær og fjær, sem sýndu
mér vinarhug á sjötugsafmæli mínu, 17. þ.m. og gerðu
mér daginn ógleymanlegan.
GUÐLAUG BJARTMABSDÓTTIR
frá Prestsbakka
U n g I i n g
vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfi
Skeggjagötu
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
Lokað í dag
vegna jarðarfarar Gunnþórunnar Halldórsdóttur.
Verzlun GUNNÞÓRUNNAB HALLDÓRSDÓTTUR
•frr
Lokað í dag
vegna jarðarfarar.
EYJÓLFUR K. SIGURJÓNSSON,
RAGNAR Á. MAGNÚSSON
lögg. endurskoðendur.
Klapparstíg 16.
Lokað í dag
frá kl 12 á hádegi, vegna jarffarfarar
KJÖRBÚÐIN LAUGARNESI
Dalbraut 3
Lokað í dag
Vegna jarðarfarar.
H.f. Rafmagn
Vesturgötu 10
Konan mín og-móðir okkar
MARlA MAGNtíSDÖTTTR
andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 23. febr.
Karl Guðmundsson og börn.
Eiginmaður minn
HELGI J. JÓNSSON,
frá Súðarvík,
Tangagötu 19 A Isafirði, andaðist laugardaginn 21. febr.
í Sjúkrahúsi Isafjarðar.
Fyrir mína hönd og barna minna,
Pálína Sigurðardóttir
Eiginmaður minn
SIGURÐUR JÓNSSON,
skólastjóri Mýrarhúsaskóla
verður jarðsunginn frá Neskirkju, fimmtudaginn 26. þ.m.
kl. 2 e.h.
Athöfninni verður útvarpað. Blóm eru afþökkuð, en
þeim, sem minnast vildu hins látna er bent á líknar-
stofnanir.
Fyrir mína hönd, barna, tengdar og barnabarna.
Þuríður Helgadóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug,
við andlát og jarðarför
GUÐRÚNAR MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Skólavörðustíg 16 A. Sömuleiðis fyrir alla hjálp og vin-
áttu er henni var auðsýnd í hennar löngu sjúkdómslegu.
Aðstandendur
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við and-
lát og útför
SESELJU ÞORSTEINSDÓTTUR
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Þórunn Petersen, Guðrún Árnadóttir,
Guðný Guðjónsdóttir
Við þökkum innilega þeim öllum, sem vottuðu okkur
samúð sína við andlát og útför.
BJÖRNS ÞORKELSSONAR
frá Hnefilsdal
og heiðruðu minningu hans.
Börn og barnaböm.