Morgunblaðið - 24.02.1959, Qupperneq 20
VEDRID
Suðvestanátt með hvössum éljum
— frostlaust.
mtM*
Kaupmannahafnar-
bréf
______Sjá bls. 11.
45. tbl. — Þriðjudagur 24. febrúar 1959
Yfir 100 þús. kr. söfnuðust
fyrsta daginn
Þátttaka i söfnuninni er mikil
og almenn
FJÁRSÖFNUN sá, sem hafin er
til styrktar aðstandendum þeirra,
sem fórust með togaranum Júlí
frá Hafnarfirði og vitaskipinu
Hermóði, fór mjög vel af stað, og
brá almenningur hér skjótt og vel
við sem oft áður í slíkum neyðar-
tilfellum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk frá Bæjarútgerð Hafn-
arfjarðar í gærkvöldi, höfðu alls
safnazt í gær nokkuð á annað
hundrað þúsund krónur. Stærsta
framlagið var 50 þús. kr. frá
stofnun einni hér í bæ, og maður,
sem vill halda nafni sínu leyndu,
afhenti formanni útgerðarráðs
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar 30
þús. kr. í söfnunina. — Þá má
geta þess, að allir Alþingismenn
lögðu fram fé 1 söfnunarsjóðinn.
Auk þess barst fjöldi stærri og
smærri gjafa frá fyrirtækjum og
einstaklingum til hinna ýmsu að-
ila, er veita söfnunarfé móttöku.
Kvikmyndahúsin í Reykjavík
og Hafnarfirði munu gefa and-
virði einnar sýningar, og ágóði
fyrsta sýningarkvölds kabaretts,
sem hefst hér í byrjun marz, mun
renna í söfnunarsjóðinn, en það
er Einar Jónsson, féhirðir, sem
stendur fyrir kabarett þessum.
Fyrsta framlagið í söfnunina
lagði söfnunarnefndin sjálf fram
— 10 þúsund krónur. — Söfnun-
arlistar mun þegar vera farnir að
ganga innan ýmissa fyrirtækja,
og í stuttu máli virðist það séð,
eftir þennan fyrsta söfnunardag,
að allir ætli hér að leggjast á eitt.
Morgunblaðinu bárust mörg
framlög til söfnunarinnar í gær,
og námu þau samtals 15.420 krón-
um eftir daginn. — Fer listi yfir
gefendur og framlög þeirra hér
á eftir, en annars verða söfnunar-
listarnir hér eftir birtir í Dagbók
blaðsins:
Óli og Stína 200,00; Rósa 500,00;
N.N. 200,00; Ónefnd 100,00; Pettý
500,00; N.N. 500,00; Haraldur
Salómonsson 1.000,00; Jónína Hall
dórsdóttir 100,00; S.J.H. 500,00;
D.F. 100,00; Þuríður og Arndís
1.000,00; Helga og Ernst 300,00;
H. G. 500,00; N.N. 500,00; K.H.K.
720,00; Þóroddur Jónsson 500,00;
Ingibjörg Ingadóttir 100,00; Guð-
mundur Jónsson 400,00;' Ó. J.
500,00; ómerkt í bréfi .1.000,00; R.
G.M. 300,00; R.S. 100,00; kona
100,00; tvær systur 100,00; Tempo
500,00; N.N. 100,00; Timburverzl.
Völundur 5.000,00.
Skipverji á Tungufossi
slasast á Húsavík
Vírhvippa hertist að fœti hans og tók af
HÚSAVÍK, 23. febr. — Það slys
vildi til hér í nótt, þegar Tungu-
foss var að leggjast að bryggju
í sunnanstrekkingi, að vírhvippa
slóst um fót eins hásetans á skip-
inu, Jóns Sigurðssonar, Týsgötu
5 í Reykjavík, og tók fótinn af
um miðjan legg.
Ungur háseti, sem nærstaddur
var, sýndi mikið snarræði og
batt um fótlegginn, þannig að
blóðrásin stöðvaðist. — Mun Jón
því ekki hafa misst mjög mikið
blóð.
Héraðslæknirinn, Daníel Daní-
elsson, kom fljótlega á vettvang.
Gerði ham> fyrst að sárum manns
ins um borð, en síðan var farið
með hann í sjúkrahús Húsavíkur,
þar sem fullnaðaraðgerð fór
fram. — í kvöld var líðan hans
eftir atvikum góð. — Fréttaritari.
Jón Sigurðsson, sem er ungur
fjölskyldumaður, var nýr maður
í skiprúmi á Tungufossi. — í ráði
var að flytja hann þegar í gær
flugleiðis til Reykjavíkur, en frá
Stjórnarkjör í 3 verka-
lýðsfélögum um sl. helgi
STJÓRNARKOSNlNGAR í Fé-
lagi íslenzkra járniðnaðarmanna
fóru fram um síðustu helgi. Urðu
úrslit þau að stjórn og trúnaðar-
mannaráð voru endurkosin. At-
kvæði féllu þannig að A-listinn,
listi stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs, hlaut 211 atkv. og alla menn
kjörn, en B-listinn hlaut 128 at-
kvæði, 1 seðill var auður. í síð-
ustu kosningum í félaginu, kosn-
ingum til Alþýðusambandsþings,
fékk A-listinn 191 atkv., en B-
listinn 99 atkv.
Þá fóru einnig fram stjórnar-
kosningar í tveimur öðrum verka
lýðsfélögum um helgina. í Sveina
félagi pípulagningarmanna hlutu
eftirtaldir menn kosningu: Guð-
mundur Gíslason, formaður, Guð-
jón Júlíusson, varaform., Ólafur
AÐALFUNDUR „SÓKNAR"
í KEFLAVÍK
( Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
i Keflavík heldur aðalfund n.k.
miðvikudag 25. þ.m. í Sjálfstæð-
ishúsinu. Auk venjnlegi-a aðal-
fundarstarfa verða kjörnir Tull-
trúar á Landsfund Sjálfstæðis-
flokksins. Að loknum fundi verð
ur sameiginleg kaffidrykkja og
spiluð félagsvist. Góð verðlaun.
Sjálfstæðiskonur eru hvattar til
að fjölmenna á fundinn.
Marteinn Pálsson, gjaldkeri,
Hjálmar Jóhannsson, ritari, Helgi
Þorvarðarson, gjaldk. styrktar-
sjóðs.
í stjórn Sveinafélags skipa-
smiða í Reykjavík voru eftirtald-
ir menn kjörnir: Helgi Arnlaugs
son, formaður og meðstjórnendur:
Björn Emil Björnsson, Magni Guð
mundsson, Kjartan Einarsson og
Jens Marteinsson. Gjaldkeri, sem
er utan stjórnar var kjörinn
Magnús Jónasson.
Rússar bjóða
Friðriki Ólafssyni
til skákmóts í apríl
NÚ UM HELGINA barst Skák-
sambandi Islands símskeyti frá
Skáksambandi Sovétríkjanna,
þar sem Friðrik Ólafssyni stór-
meistara er boðið að taka þátt
í skákmóti, sem fram á að fara
í Moskvu dagana 6.—21. apríl n.k.
Til móts þessa er boðið einum
skákmeistara frá eftirtöldum
löndum: Búlgaríu, Ungverja-
landi, Danmörku, Islandi og
Tékkóslóvakíu, en auk þess munu
tefla þar 6 rússneskir meistarar.
Rússar munu sjá um allan
kostnað þátttakenda í sambandi
við mót þetta, einnig ferðakostn-
að. — Má segja, að boð þetta sýni
glögglega, hve mikils álits Frið-
rik Ólafsson nýtur nú í skák-
heiminum.
því var horfið vegna slæmra flug
skilyrða. Mun hann fluttur hing-
að við fyrsta tækifæri.
Vonir standa til, að ekki þurfi
að taka frekar af fæti Jóns en
orðið er, og mun hann þá halda
hnélið ósködduðum.
9 merni teknir
ölvaðir við akstur
UNDANFARNA daga hafa verið
nokkur brögð að því, að menn
aki bílum sínum undir áhrifum
áfengis. Frá því á föstudagskv. og
þar til á sunnud.kv., höfðu götu-
lögreglumenn tekið hvorki meira
né minna en sjö menn, er allir
voru meira og minna undir áhrif-
um áfengis, og höfðu sumir þein a
lent í árekstrum. Slys á fóiki
hafði ekki hlotizt af völdum
þeirra. í síðustu viku voru alls
níu menn teknir ölvaðir við akst
ur. Þrátt fyrir strangari viður-
lög samkvæmt nýju umferðar-
lögunum, eru enn töluverð brögð
að því, að menn aki bílum sínum
ölvaðir, sem af þessu má sjá.
Greinilegt er því, að ekki má
lögreglan slaka á klónni gagn-
vart háskalegum mönnum í um-
ferðinni á götum bæjarins.
•í í "Njí /f * f JV' f ' *• -.V”—. ' 'X S MJffl X ’fi
Þetta er mynd af vélbátnum Langanesi, sem sökk undan Vest-
mannaeyjum sl. laugardag. — Sjópróf hafa nú farið fram vegna
slyssins, en þar kom ekkert fram, er upplýst gæti, hvað því
hefir valdið. — Bátsmenn fullyrtu, að orsökin gæti ekki verið
sú. að báturinn hefði „slegið úr sér“ þéttingu, sem kallað er.
Lítill afli
HAFNARFIRÐI. — Mjög stopul-
ar gæftir hafa verið undanfarið,
og þó bátarnir hafi komizt út, þá
hafa þeir venjulega lent í vonzku
veðri og stundum orðið að snúa
við af þeim sökum eftir að vera
komnir langleiðina á miðin. Afli
hefir verð fremur tregur eða
yfrleitt 4—6 tonn í róðri og þar
af minna.
Togararnir eru nú á veiðum fyr
ir vestan nema Röðull, sem er í
„klössun“ í Reykjavík og Ágúst
í Englandi, þar sem hann seldi
afla sinn fyrir skömmu. — G.E.
Drengir í Keflavík með
riffilkúlur og skotvopn
Lá við stórslysi þar á föstudaginn
KEFLAVÍK, 23. febr. — Lögregl-
an hér í Keflavík hefur nú fengið
til meðferðar alvarlegt mál, sem
foreldrar barna hér í bænum
ættu að athuga vel og reyna að
aðstoða lögregluna við að upp-
lýsa áður en til alvarlegra slysa
dregur. Komið hefur í ljós að
nokkrir drengir á aldrinum 10—
12 ára, hafa með einhverjum
hætti komizt yfir riffilskot. Eru
skotin finnsk og af stærri gerð-
inni. Svo virðist sem skot þessi
hafi undanfarið gengið milli
drengjanna sem eins konar skipti
mynt. Þó munu einhverjir drengj
anna hafa selt skot, sem þeir
hafa komizt yfir.
Það hættulegasta við þetta er,
að drengirnir virðast ekki gera
sér neina grein fyrir hversu
hættulega hluti þeir með handa
á milli. Hefur í ljós komið, að
drengirnir sprengja riffilskotin
með því að slá með steini á hvell-
hettuna og einnig hafa þeir
sprengt þau með því að kveikja
eld undir skotunum. Kúlurnar
þjóta svo út í loftið og má mikið
lán teljast að ekki hefur hlotizt
af stórslys.
Á föstudaginn gerðist hér al-
varlegur atburður. Drengur er
hafði nokkrar riffilkúlur í fórum
sínum komst yfir riffil. Setti
hann skot í hann og lék sér með
hann hér innanbæjar, við mikla
umferðargötu. Allt í einu hljóp
skot úr rifflinum, þvert yfir göt-
una og lenti í gluggarúðu hinu
megin götunnar. Kona sat við
gluggann og fór skotið rétt ofan
við höfuð hennar, en lenti síðan í
hillu sem var á veggnum and-
spænis glugganum. Eins og sjá
má af þessu er hér um alvarlegt
mál að ræða.
Háskólafyrirlestur um
Thomas Mann
í DAG, þriðjudaginn 24. febrúar,
flytur þýzki sendikennarinn við
Háskóla íslands, Hermann Höner
lektor, fyrirlestur um Thomas
Mann. Thomas Mann fæddist
1875 í Lúbeck og var einn af
mestu rithöfundum vorrar aldar.
Árið 1925 hlaut Thomas Mann
Nobelsverðlaun, og þegar hann
var kominn heim til Evrópu eftir
stríð varð hann heiðursborgari
Lúbeckborgar og félagi í friðar-
deild þýzku orðunnar „Pour le
mérité".
í öllum skáldsögum sínum virð
ir Thomas Mann lífið og mann-
1 inn fyrir sér af sjónarhóli háð-
fuglsins, sem þekkir tvísæi lífs-
ins. Fyrir honum vakir að af-
hjúpa hið innsta eðli mannsins
og skyggnast inn í dýpstu hugar-
fylgsni hans. Hann er mesti rit-
snillingur Þjóðverja á síðari tím-
um.
Thomas Mann kom síðast opin
berlega fram í Þýzkalandi, þeg-
ar hann hélt minningarræðu á
150 ára ártíð Schillers 1955.
Sama ár dó hann í Sviss.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
þýzku og hefst kl. 8,30 e.h. í I.
kennslustofu háskólans. Öllum
er heimill aðgangur.
Þar sem rannsókn málsins er rétt
á byrjunarstigi er ekki mögulegt
um það að segja hve mikið er
af riffilskotum í umferð, né
heldur hvaða skotvopn drengirn-
ir hafa komizt yfir. — Ingvar.
Kveðjuathöfn
ÁKVEÐIÐ hefir verið að halda
kveðjuathöfn í Hafnarfjarðar-
kirkju eftir hádegi á laugardag
n.k. til minningar um þá, sem
fórust með togaranum Júlí frá
Hafnarfirði. — Útvarpað verður
frá kveðjuathöfninni.
Frost beit að
kvöldi - vorblær
að morgni
AKUREYRI, 23. febr. — Hér er
meinleysisveður í dag, hiti ná-
lægt frostmarki og ofurlítil hríð-
armugga, en í gær má segja, að
verið hafi vorblíða og hlýindi.
Varð hitabreytingin óvenjusnögg.
Á laugardagskvöldið var hér
alhvítt af snjó, og kl. 23 um kvöld
ið var 4 stiga frost, en allmiklu
kaldara hafði verið fyrr um dag
inn. — Um nóttina hélt áfram
að hlýna mjög ört. Kl. 2 var kom
inn 7 stiga hiti, og í gærmorgun
kl. 8 var hitinn kominn upp í 10
stig. Mátti heita að jörð væri þá
orðin marauð. — Mag.
Máltunáir
Heimdallar
í KVÖLD kl. 20:30 hefst 4. mál-
fundur Heimdallar. Umræðuefni:
Hefur menningin brugðizt hlut-
verki sínu?
Frummælendur: Árni Sveins-
son, Markús Antonsson, Ólafur
Davíðsson, Ragnar Tómasson og
Skúli Möller.
Nú þegar eru skráðir þátttak-
endur námskeiðsins rúmlega 50,
en Heimdellingar og aðrir ungir
Sjálfstæðismenn geta enn látið
skrá sig á námskeiðið. Fundurinn
í kvöld hefst kl. 20:30 og verður
haldinn í Valhöll við Suðurgötu.