Morgunblaðið - 15.03.1959, Side 1
* 24 siður
46.
Prentsmiðja Morgunblaðslfli't
62. tbl. — Sunnudagur 15. marz 1959
argangur
Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Einar Guðfinnsson, útgerðarmaður ' Bolungar-
vík, ræðast við á landsfundinum.
Kjördæmamálið var aðalmál
Iandsfundarins í gær
Bandaríkjamenn öllu viðbúnir
Floti skipa og flugvela
reiðubúinn til liðsauka-
flutninga til Evrópu
WASHINGTON, 14. marz — Her.
málastjórn Bandaríkjamanna hef
ur að fullu undirbúið ráðstafanir,
sem gripið verður til, ef til átaka
kemur um Berlín. Maxwell Tayl-
or, hershöfðingi og foringi her-
ráðsins, upplýsti þetta á leynileg-
um fundi í einni af nefndum þjóð-
þingsins bandaríska fyrr í vik-
unni.
í dag var birt smáfrásögn af
þessum fundi, en öllum mikil-
vægum atriðum er þó haldið
leyndum. Sagði Taylor, að ef
A-Þjóðverjar reyndu eftir hinn
27. maí að hindra frjálsar sam-
göngur til Berlínar með vopna-
valdi m-'.ndu Bandarikin beita
nægilegu afli til þess að tryggja
hinum liðlega tveimur milljón-
um Berlinarbúa líf og öryggi.
Sagði Taylor sjöunda herinn
bandaríska í Evrópu mjög vel
þjálfaðan og búinn öllum full-
komnustu vopnum. Kvað hann
herstjórnina hafa gert ráðstafan-
ir til þess að hægt yrði að flytja
liðsauka manna og vopna austur
yfir Atlantshaf til Evrópu með
skemmstum liugsanlegum fyrir-
vara. Nægilega stór floti skipa og
flutningavéla væri nú handbær,
Bandaríkjamenn mundu verða
við öllu búnir.
Landsfund-
urinn í dag
LANDSFUNDUR Sjálfstæðis-
flokksins heldur áfram í dag kl.
2 e. h. Er búizt við að fundinum
ljúki siðari hluta dags. Og verður
þá m. a. kosið í miðstjórn flokks-
ins.
Ungir Sjálfstæðismenn meðal
landsfundarfulltrúa koma saman
á fund í Sjálfstæðishúsinu kL
10,30 f. h.
í kvöld kl. 8,30 hefst kynning-
arkvöld meðal fulltrúa í þremur
samkomuhúsum, Sjálfstæðishús-
inu, Hótel Borg og Lido.
Mikill áhugi og einhugur rikjandi
á fundinum
LANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokksins hélt áfram í gær. — Hófst
íann kl. 10 árdegis. Voru ræddir á fundinum fram til kl. 4 e. h.,
er blaðið fór í prentun, eftirfarandi málaflokkar: Kirkjumál, skipu-
lagsmál, atvinnu- og verkalýðsmál, sveitastjórnarmál, félagsmál,
sjávarútvegsmál, menntamál og kjördæmamálið. Var búizt við
miklum umræðum um síðastalda málið, en framsögu þess var lokið
létt fyrir kl. 4 síðdegis.
Salir Sjálfstæðishússins voru fullir út úr dyrum og ríkti mikill
elnhugur og áhugi meöal fundarmanna. Var svipur fundarins allur
hinn glæsilegasti.
FORMAÐUR Sjálfstæðisflokks-
ins setti fund kl. 10 í gærmorgun
og lagði til að Karl Frið-
riksson frá Akureyri yrði
kjörinn fundarstjóri, en hann
útnefndi síðan Jón Gauta Péturs-
son, Kópavogi, og Pál Scheving
frá Vestmannaeyjum, sem fundar
ritara.
Fyrstur tók til máls Ásgeir Pét
ursson og flutti framsöguræðu
fyrir allsherjarnefnd. — Þá
talaði Magnús Jónsson, fram-
sögumaður skipulagsnefndar. —
Síðan töluðu framsögumenn at-
vinnu- og verkalýðsmálanefndar,
þeir Gunnar Helgason og Magnús
Jóhannesson.
Næstir töluðu Matthías Bjarna-
son, framsögumaður nefndar
þeirrar sem fór með sveitastjórn-
armál, Friöjón Þórðarson, fram-
sögumaður félagsmálanefndar, og
Jóhann Þ. Jósefsson fyrir sjávar-
útvegsmálanefnd. Var þá komið
fram yfir hádegi og fundi frestað.
Síðdegisfundurinn
FUNDUR hófst að nýju kl. 2 síð-
degis. María Maack var kjörin
fundarstjóri en fundarritarar þær
frú Auður Auðuns og frú Jakob-
ína Mathiesen.
Fyrst flutti Ragnhildur Helga-
dóttir framsögu fyrir mennta.
máianefnd. Því næst tók til máls
Jóhann Hafstein og flutti fram-
söguræðu fyrir kjöraæmanefnd.
V&r hann að Ijúka ræðu sinni,
þegar blaðið fór í prentun.
Þrír fulltrúar úr Dalasýslu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Frá vinstri: Jóhann Pétursson. Stóru-Tungu, Guðmundur Bene-
diktsson, Hömrum, og Jóhann Sigurðsson, Hnúki.
Fulltrúar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Talið frá vinstri: Þorvaldur Ari Arason, Reykjavik,
Páll Þór Kristinsson, Húsavík, Þórhallur B. Snædal, Húsavík, ungfrú Anna Borg, Reykjavík, Ás-
björn Guðmundsson, Njarðvík, frú Jóna Þorfinn sdóttir, Reykjavík, Jósafat Arngrímsson, Njarð-
vík, og Þorgrímur Halldórsson, Hafnarfirði.
Ghona úr brezka samveldinu?
HS
ACCRA og London, 14. marz. —
Kröfugöngur hafa verið farnar í
Accra, höfuðborg Ghana, til þess
að krefjast einhverra aðgerða af
hálfu stjórnarinnar í sambandi
við átök þau, sem nú eiga sér
stað í Mið-Afríku sambandsríki
Breta. Samkvæmt fregnum í dag
mun stjórn Ghana hafa í morgun
tekið til athugunar hvort ekki
bæri að segja landið úr brezka
samveldinu í mótmælaskyni við
aðfarir að blökkumönnum í
Njassalandi og Rhodesiu.
Víða hefur komið til smáátaka
í Njassalandi og N-Rhodesiu í
dag og í gær, kröfugöngur hafa
verið farnar, lögregla hefur beitt
kylfum og táragasi — og fáeinir
leiðtogar hinna innfæddu hafa
verið handteknir til viðbótar
hinum fyrri.
4.870 létust
LONDON, 14. marz. — í síðustu
viku létust 1,399 manns af völd-
um inflúenzu í Englandi — og er
það nokkur rénun frá því sem
var í lok febrúar. Þá létust á
einni viku 1,572 manns af völdum
inflúenzu. Síðan um áramót
hafa 4,870 Bretar látizt úr inflú-
enzu og er þetta liðlega fjórum
sinnum meira en á sama tíma
í fyrra. Um 88% hinna látnu
voru 55 ára og eldri
Sunnudagur 15. mars.
Efnl blaðsins m.a.:
Bls. 3: Flóttinn frá lifinu, eftir fr. Ófk-
ar J. Þorláksson.
Úr verinu, eftir Einar Sigurðsf,
— 6: Frá þýzku bókasýningunni.
— 9: Bókaþáttur: SpámaSurinn.
— 10: Fólk i fréttunum.
— 12: Forystugreinin: Útrýmum stétta
baráttunni úr íslenzku þjóS-
félagi.
— 13: Ræða Bjarna Benediktssonar á
Landsfundi SJálfstæðismanna.
— 15. og 16: Lesbók barnanna.
— 17: Kvennadálkur.
★--------------------------★