Morgunblaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 6
e MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 15. marz 1959 Eðlisfrœðisfofnun H.í. þarfnast stuðnings Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, ræðir við Hans Richard Hirschfeld, sendiherra, (t. h.) og forstjóra þýzku bókasýningarinnar, dr. Muller-Römheld. // Bókin er skærasti kyndill menningarinnar 44 Þýzku bókasýningunni i Þjóðminja- safninu lýkur kl. 70 / kvöld Til þessa hafa rúmlega 3000 manns skoðað hana Á ÞVÍ er lítill vafi að þý/.ka bóka- aýningin, sem opnuð var almenn- ingi í bogasal Þjóðminjasafns 1. marz s.l., er ein af beztu og vönd- uðustu sýningum, sem hingað hafa komið. Á þetta bæði við um val og uppstillingu bókanna, og ekki síður um bókagerðiifa sjálfa. Það var fyrst og fremst vestur- þýzka sendiherranum hér, Hans Riehard Hirschfeld, að þakka, að þessi verðmæla sýning kom til Is- lands,, og af þeim sökum hefur Morgunblaðið snúið sér til hans og beðið hann að segja nokkur orð um tildrög og tilgang sýningar- innar. Sendiherrann segir: „Það hefur lengi verið draumur minn að sýna Islendingum, sem eru orðlagðir fyrir bókmenntaáhuga sinn, hve langt við höfum aftur náð í bóka- útgáfu, síðan endurreisnin hófst 1945. Þessi draumur hefur nú rsetzt, og má þakka það fyrst og fremst skilningi gtjórnar minnar, áhuga þýzkra útgefemda og hjálp samstarfsmanna minna. Einnig eigum við menntamálaráðiierra ykkar mikið að þakka, sem og ís- lenzkum stjórnarvöldum, bóksölum og kaupsýslumönnum, sem hafa veitt margháttaða aðstoð við und- irbúning og uppfærslu þessarar sýningar. Og síðast en ekki sízt stöndum við i mikilli þakkarskuld við íslenzku blöðin, sem hafa tek- ið svo einstaklega vel á móti bók- um okkar. Skærasti kyndillinn Mig langar til að ítreka þau orð, sem íslenzki menntamálaráð- herrann, Gylfi Þ. Gíslason, hefur svo vinsamlega skrifað í formála sýningarskrárinnar: „Bókin er skærasti kyndill menningarinnar" — og um leið láta í ljós þá von að sýning okkar í hinum fögru salarkynnum Þjóðminjasafnsins hafi gefið mönnum hugmynd um þýzka nútímamenningu og stuðl- að að þvi að varpa ljósi yfir þýzk- lalenzk menningarsamskipti, sem eigra sér langa og menkilega sögu. Ég vona að sýningin hafi orðið báðum þjóðum til gleði og gagns“. Gagnsemi bókasýningarinnar Við veitum því abhygli að sendi herrann talar ekki aðeins um gleði, heldur líka gagn, og spyrj- um hvort hann hafi nokkuð sér- stakt í huga í því sambandi. „Jú, þér hafið sennilega veitt því athygli, að bækur um vísindi og tækni eru mjög áberandi á sýn- ingunni. Þetta er gert af ráðnum hug, þar sem við höfum oft heyrt Islendinga vekja athygli á því, að eftir seinni heimsstyrjöldina hafi skorturinn á þessari tegund þýzkra bókamennta orðið æ tilfinn anlegri. Nú eru bækurnar sem sagt hingað komnar, og margir hafa tjáð mér að þeir hafi átt gieðilega endurfundi við gamla kunningja á sýningunni, þ. e. a. s. bækur sem þeir á sínum tíma lásu sem námsmenn. Auk þess eru auð- vitað komnar margar nýjar bækur sem bæði fylla inn í eyður eldri verka og fjalla um ný vandamál í vísindum og tækni. Ég vona að þessar bækur verði mörgum að gagni, ekki sízt þeim fjölmörgu íslenzku stúdentum, sem nú stunda nám í Þýzkalandi, en munu brátt koma aftur heim til fósturjarðar- innar. Vonandi koma líka aðrar bæk- ur á sýningunni að gagni að svo miklu leyti sem þær gefa fyllri mynd af ástandinu í Þýzkalandi eftir str-íðið: eyðileggingunni, að- skilnaði Austur- og Vestur-Þýzka- lands, hinum miklu félagslegu og efnahagslegu vandamálum, sem komu í kjölfar stríðsins, og endur- reisninni, sem nú er í fullum gangi. Gagnkvæm gleði Fagurbókmenntirnar munu án efa vekja menn til umhugsunar, en jafnframt veita gleði, auðga lífið og víkka sjóndeiidarhringinn. Ég vona að þýzkar fagurbók- menntir á sýningunni gegni þessu hlutverki á sama hátt og þau þýddu íslenzku verk, sem við sýn- um með sérstakri ánægju, hafa veitt okkur gleði og margháttað gægn. Ég vona að bæikurnar á þýzku bókasýningunni muni enn um langa framtíð efla skilning milli þjóða okkar, því þeim mun betur sem við þekkjum hvor annan þeim mun betur munum ÞESSI misseri eru tveir ungir eðlisfræðingar að koma fótum undir rannsóknarstofu í eðlis- fræði við Háskóla íslands. Við verkfræðideild H. I. hefur ekki til þessa verið starfrækt rann- sóknarstofa og veldur því fé- leysi og mannekla. Víða sér merki um fátækt háskólans okk- ar, en hér keyrir þó um þverbak. Nú hefur svo vel tekizt til, að tveir dugandi eðlisfræðingar eru að reyna að bæta úr þessu að nokkru, en þá fá þeir ekki nauð- synlegustu áhöld né aðstoð, a. m. k. ekki enn sem komið er. Nútíma velmegun þjóða bygg- ist á þróuðum vísinda- og tækni- rannsóknum. Þess vegna keppast flestar þjóðir við að efla þá starf- semi hjá sér og spara hvergi fé. Þeim gengur ekki „idealismi" til heldur miskunnarlaus hagsýni, af því að þjóðarauður nú á dögum er vísinda- og tæknigeta lands- fólksins miklu fremur en t. d. kol eða málmar í jörðu. Við ís- lendingar notum líklega til vís- inda um 1/10 þess fjár, sem við þyrftum að gera til að standast samanburð við nágranna okkar í því efni, enda er búreksturinn eftir því. Opinber stjórnarstefna íslend- inga er að treysta nær eingöngu á fiskirí til að efla velmegun þjóðarinnar, þótt allir geri reynd ar ráð fyrir, að veiði, í hlutfalli við tilkostnað, muni fara minnk- andi. Sannleikurinn er, að við ís- lendingar verðum fátækir og öll afkoma okkar á hálmstrái, þar til okkur tekst að öðlast vísinda- og tæknimenningu, sem geri okk- ur hlutgenga meðal nágranna okkar. Eðlisfræðingarnir tveir þurfa líklega áhöld fyrir upphæð, sem nemur andvirði eins eða tveggja bíla og aué þess tvo eða þrjá að- stoðarmenn, til að starfskraftarn- ir nýtist. Væri ekki að skaðlausu hægt að losa einhvers staðar tvo eða þrjá unglinga af skrifstofu eða úr búð til að hjálpa þeim? Fleiri og fleiri íslendingar, þaulmenntaðir í náttúruvísinda- greinum, taka nú við stöðu er- lendis, þar sem ekki er farið með þá eins og leiðinlega betlara. Hér á landi eru fá tækifæri fyrir þessa menn og fái þeir eitthvað að gera, þegar þeir eru tilbúnir að hefja ævistarf sitt, 30—35 ára gamlir, eru laun þeirra oft litlu hærri en tekjur ófaglærðs verka- manns, og miklu lægri en tekjur ýmissa iðnaðarmanna (VI. fl. launalaga, nú 6.500 kr. á mánuði, sem jafngildir 260 dollurum eða við skiija að við erum tveir sjálf- ; 1775 dönskum krónum). Þessi stæðir meðlimir sömu fjöl-, misseri hverfa nú svona menn, skyldu". | hver á fætur öðrum, þegjandi og skrifar úr daglegq lífínu Málflutningsskrifstofa Eina. B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pét» rsson Aðalstræti 6, III. íiæð. Símar 12002 — 13202 — 13r>02 Skíðaferffir hafa margt sér til ágætis SKÍÐAÍÞRÓTTIN hentar fiest- um vel, ungum jafnt sem gömlum, þeim sem hafa gaman af að klifra upp brekkur og steypa sér svo fram af brekkubrúninni og láta vindinn þjóta' um vang- ana ekki síður en hinum, sem kjósa heldur að rölta um til að halda á sér hita meðan þeir njóta útiverunnar og útsýnisins. Nú er einmitt kominn sá árs- tími, sem bezt hentar til skíða- ferða hér á Suðurlandi. Daginn er tekið að lengja og nú fara að verða meiri líkur til þess að mað- ur komist á skíði fyrir snjó, þ. e. a. s. ófærð á vegum. Margt má segja skíðaferðunum andlega endurnærðir og hressir heim, eftir að hafa andað að sér heilnæmu fjallalofti í heiian dag. Velvakandi hefur farið á fjöll og ekki stigið sínum fæti inn í Skíða Öll fjölskyldan á skíffi EN svo sleppt sé öllu gamni, eru skíðaferðir áreiðanlega holl og góð íþrótt. Foreldrar ættu að gera meira að því að fara með skálann ailan daginn, til að fá , böi’n sín upp í fjöll í snjóinn á ekki ofan í sig þetta bland af | frídögum. Krakkarnir hafa gam. þungu lofti og sígarettureyk, sem an af að veitast í snjónum og oft ríkir þegar prúðbúnir bæjar- búar fylla salinn, en í staðinn renna sér á sleðum, eða bara á vaxdúkspjötlum, ef þau eru ekki hamast við að gleypa heilnæmt 'j orðin nægilega stór til að vera fjalialoft allan daginn. Satt að segja fór heldur lítið fyrir and- legri reisn daginn eftir. Hvernig á það líka að vera þegar Jíkam- inn er heltekinn harðsperrum? En það er þó alltaf hægt að sitja og á skíðum, og skíðaferð virðist ágætt ráð til að halda fjölskyld- unni saman á frídögum. Allir með limir hennar geta þannig notið samvistanna í stað þess að hver fari sína leið og hafj ofan af hvíla sig í sólinni og fjallaloftinu, , fyrir sér með sínum jafnöidrum. jafnvel þó hælsæri eða brotinn • Verst er hve lítið hefur verið fótur neyði mann ekki til þess. ] um snjó í vetur. Öðru hverju er til ágætis. Þeir hátíðlegustu orða ] Unga fólkinu finnst það kostur á i þó nægilega gott skíðafæri. Mér það þannig, að í skíðaferðum kom ] skíðaferðunum, að á skíðum er oft1 ist maður í náið samband við móð ' stofnað til óvænts kunningsskap- ur jörð. Velvakandi hefur nú þá reynslu, að maður komist stund- um í óþarflega náið samband við jörðina, að minnsta kosti þegar maður stingst á höfuðið gegnum sjóskafl og beinlínis rekur and ar og ung'r menn segja að á fjöll- um sé oft urmull af lögulegum stúlkum. En þeir hljóta að vera slyngarí en þeir líta út fyrir að vera ef þeir eru alltaf vissir um að innan i hettuúlpunni og bak litið í hana. Aðrir segjast koma við sólgleraugun sé lagleg stúlka. er sagt að Sigurður Sigurðsson íþróttafréttaritari útvarpsins hafi stundum undanfarið komið inn í danslagaþáttinn á laugardags- kvöldum og skýrt unga fólkinu frá því að nú væri skíðafæri og hvernig það gæti komizt á skíði. Það er áreiðanlega vel þegið. hljóðalaust til starfa erlendis, fremur en að skaprauna sjálfum sér og öðrum með því að taka upp betlistarf hér. í nágrannaiöndum er starf vís- indamanna metið allt öðru vísi og við munum því í framtíðinni tapa fleiri og fleiri mönnum, ef ekki verður að gert. Að vissu leyti eru þessir menn rjóminn af æskumönnum okkar og það er mikið tjón að glata þeim. Þó er kannske betra að þeir hverfi úr landi en að þeir setjist hér að og koðni niður, af því að kraftar þeirra njóta sín ekki vegna lé- legra vinnuskilyrða. Vill ekki fjárveitinganefnd Alþingis og aðrir góðir menn, sem einhvers mega sín í þessu efni, taka þetta til yfirvegunar. Keldum, 11. marz 1959. Björn Sigurffsson. Barðstrendinga- félagið i Reykjavík BARÐSTRENDINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík hélt nýlega 15. aðal- fund sinn í Skátaheimilinu við Snorrabraut. Á fundinum gengu í félagið 9 nýir félagsmenn. í skýrslu formanns félagsins segir meðal annars: „í félaginu eru 528 félagsmenn, 26 fóru af félags- skrá, sögðu sig úr eða dóu. 47 höfðu gengið í félagið á árinu. í félaginu voru haldnir 11 félags- fundir og 10 stjórnarfundir. Auk þess kaffisamsæti fyrir aldrað fólk úr Barðastrandarsýslu eins og venja hefur verið ásamt jóla- trésskemmtun fyrir börn“. í félaginu eru starfandi: Kvennadeild, Bridgedeild og Kvikmyr ’atökunefnd. Aðalverk- efni félagsins er starfræksla og rekstur gistihússins Bjarkalund- ur í Reyk'rólasveit, sem formaður skýrði frá að hefði gengis ágæt- lega. Auk þess hefur félagið starfað að gróðursetningu í reit féiagsins í Heiðmörk. í stjórn félagsins eiga nú sæti: Guðbjartur Egilsson, formaður. Vikar Davíðsson, gjaldkeri. Guð mundur r’snjaminsson, ritari, Sig urður Jónasson, Alexander Guð- jónsson. ZCristján Halldórsson, meðstjórnendur. Varastjórn: Sig- urjón Davíðsson. Gunnlaugur Þor steinsson, Gísli Skúlason, Páll Ágústsson. Endurskoðendur: Eyj-' ólfur E. Jóhannsson, Marenó Guð jónsson, Sigurbjörn Guðjónsson til vara. — Kvennanefndina skipa þessar konur: Guðrún Rögnvalds dóttir, Ágústa Guðjónsdóttir, Sig ríður Bjarnadóttir, Vigdís Ólafs- dóttir, Lilja Ingimundardótt;-. — Formaður Bridge-deildar er Ólaf- ur Sigurðsson. — f Kvikmynda- tökunefnd: Böðvar Pétursson. Bergsveinn Skúlason, Páll Ágústs son, og til vara Marenó Guð- jónsson, Ólafur Jónsson, Baldur Snæiand. Jónbjörn Sigurðs- son Fæddur 29. janúar 1940 — fórst meff „Hermóði“. Vertu sæll, glaði, góði frændi minn, Guð þér opnar, náðarríka faðminn sinn. í Þerrar tár af litla barnsins brá, breytir sorg, í gleði himnum á. Mamma og pabbi muna drenginn sinn, muna systkin elsku bróðurinn, Þakka fyrir liðin æskuár, oft nú fellur þeim af hvarmi tár. Unnustan og litla barnið blítt. Biðjum Guð að náðar ljósið þitt, megi þerra trega sorgar tár. Trúin læknar öll vor hjarta sár. Kveðjur öll viff kærar sendum nú, kvaddur ert í sannri von og trú, Guð þig leiði um ljóssins björtu lönd, lýsi þér á Himnaríkis strönd. — Frænka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.