Morgunblaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 15. marz 1959 I>egar talað er um fjarstæður er oft tekið til samanburðar, að hitt eða þetta sé jafnheimskulegt og að flytja kaffi til Brazilíu, eða að fara með kvenfólki til Spánar. Jafnfjarstæðukennt virðist að kenna húla-hopp á Honolulu, þar sem húla-húla dansmeyjar eru á hverju sirái. En myndin hér að ofan er samt tekin á Honolulu, af ílugfreyju hjá Pan American, sem er að kenna Húla-dansmey húla-hopp. En fyrst er þá hægt að tala um, blóðug viðureign Breta og Kýpur búa stóð sem hæst. En þegar hann kom aftur til Kýpur nú fyrir skemmstu, eftir að friður var kominn á, munaði minnstu, að mannfjöldinn, sem fagnaði hon- um í Nikósíu gerði út af við hann, svo mikil voru fagnaðarlætin. Hann ók í gegnum borgina í opn- um bíl og ætlaði að lyfta höndun- um til að blessa mannfjöldann, en varð í þess stað að nota þær til að verja sig. Þegar hann loksins komst heilu Svnr til Skúlo I ÞINGMANNAVEIZLUNNI 5. þ.m. urðu nokkuð margar vísur til eins og oft áður. Hefi ég yfir- leitt lítið að því gert, að birta þá framleiðslu, enda ætlað sem stundar gaman. En þar sem Skúli Guðmundsson hefir nú birt nokk uð er stefnir að væntanlegri kjör dæmabreytingu, þá þykir mér rétt, að láta nokkuð fokka af svörum. Þessar tvær urðu til í veizl- unni og þó sín í hvert sinn: Varla mundi skyldur skerða, Skúli fagnar þvi senn, ef við skyldum eiga að verða einlægir samþingismenn. Guðmundssonor Fjármálanna fjöru ratar „Framsókn" ekki í sóknum lin, en samvinnuna sjálfa hatar sé hún tengd við kjördæmin. Þessa tvær eru yngri en frá veizlunni: Helzt ég Skúla hitt vil hróðrar inn í nausti, greppurinn þegar gengur til gleðinnar að hausti. Munu vísur mikils virði margt af nýju að heyra og sjá, á Sauðárkróki og Siglufirði saman betur tölum þá. Jón Pálmason. Guðný Egilsdóttir F. 6. júní 1878. D. 27. febr. 1959. Kveðja frá börnum og vinum. Milda, göfga móðir hníg þú hljótt að beði. • Veiti þér himnarnir vonsæla gleði. Við þökkum af hjarta alla elsku þína. Á minningarhimni helgar stjörnur skína. Hve hjarta þitt var auðugt, lund þín Ijúf og dreymin. Þú vildir fegins hugar faðma allan heiminn. Svíf nú sólarvegu, sæl til ljóssins heima. Alla þína elsku er svo ljúft að geyma. Við kyssum þig í anda, kveðjum, elsku móðir. Hjá þér urðu allir svo yndislega góðir. Blíðir bjartir englar, blessi þig og krýni. Vorsins ástarundur, ilmi þér og skíni. Arel. að húla-hopp sé orðin hrein vit- leysa, þegar farið er að veita verðlaunagripi eins og þennan, sem stúlkan heldur á, fyrir sigur í húlahopp keppni. Þetta hefur þó gerzt, í Toronto í Kanada. Þar ieiddu 100 bráðsnjallar húla- hopp ungmeyjar saman hesta sína. Sigurvegarinn hlaut þennan mikla verðlaunagrip. Hún hélt viðstöðulaust áfram í tvær klst. með íleiri en einn hring um sig miðja — og auk þess nokkra smærri hringi á handleggjunum. Geri aðrir betur. 'og höldnu inn í erkibiskupssetrið, fölur og titrandi, varð honum að orði: — Aldrei hefði sér dottið í hug, að það væri svona miklu hættu- legra að bera sigur úr býtum en berjast. Loksins hefir einhver orðið til þess að láta í ljós dálæti sitt á Lundúnaþokunni margumtöluðu. Og það var engin önnur en óperu söngkonan Maria Callas. Hún fór nýlega til Lund- úna til að gera samning við Co- vent Garden- óperuna. H ú n varð að bíða marga s ó 1 a r- hringa eftir flug fari til megin- landsins vegna þokunnar, en hún harmaði það ekki. Öðru nær. Fyrir nokkru las Bert- rand Russell upp í brezka sjón- varpinu minningargrein um sjálfan sig. f minningargreininni segist hann munu deyja 1. júní 1962. — Ég skrifaði minningargrein- ina um sjálfan mig árið 1937. Hún er skrifuð í sama stíl og Times notar í minningargreinum sínum um þekkta menn. Ég hefi í engu breytt greininni, síðan ég skrif- aði hana fyrst. Og hvers vegna tiltekur Bfert- rand Russell endilega þennari dag sem dánardægur sitt — Jú þá verð ég orðinn ní- ræður, og mér finnst, að það hljóti að vera mjög hæfilegt að deyja þá . . . en ég skal viður- kenna, að ég er farinn að verða dálítið órólegur. Tíminn líður óð- í fréttunum MAKARYOS Makaríos erkibiskup var aldrei Baksvipurinn er auðþekktur: Fyrrverandi forsætisráðherra Breta að mála. Churchill er að reyna að festa á léreftið endur- skin sólarljóssins á rauðleitum veggjum húsanna í Marrakech í Marokkó. Hann sendi vini sín- um og jafnaldra dr. Adenauer kveðju frá Marrakech. Kveðjan hljóðaði svo: — Þér ættuð að kynnast Marra kech, herra forsætisráðherra. Loftslagið getur ekki betra verið. Þetta er einmitt staðurinn, þar sem við ættum að setjast að, þeg- ar við erum báðir orðnir gamlir. ® Audrey Hepburn datt nýlega af hestbaki og meiddist mikið. Fjórir hryggjarliðir brotnuðu. Þetta átti sér stað í Mexíkó, en þar er verið að taka fyrstu kvik- myndina úr villta vestrinu, sem Audrey leikur í. Audrey er þó þaulvön að sitja hest. Þegar slys- ið átti sér stað hafði hún sam- fleytt í ellefu daga æft sig í því að fara síðklædd á hestbak. Audrey og hestinum Diablo hafði orðið vel til vina, en þrátt fyrir það fór svo, að Diablo kastaði Audrey af baki sér með fyrr- greindum afleiðingum. Hjálparbeiðni MÁNUDAGINN þann 9. þ.m. brann íbúðarskáli inni í Herskála hverfi. Eldurinn kviknaði út frá olíukyndingartæki og varð þeg- ar óviðráðanlegur. Þarna bjó einstæð móðir með fjögur börn sín á aldrinum 17 ára, 10 ára, 6 ára og 3 ára. Allt innbúið brann þarna á stuttri stund og eins fatnaður, nema sá, sem fólkið hafði á sér. Allt var óvátryggt. Nú stendur móðirin Uppi allslaus með börn sín. Góðir vinir tóku hana og börn- in á sitt heimili og þar hafa þau öll fimm dvalizt síðan. Vissulega er þarna bágur hagur og erfiður og því hefir Morgunblaðið góðfús lega lofað að koma þeim pening- um áfram sem einhverjir kynnu að vlja láta af hendi rakna, þess- ari heimilislausu fjölskyldu til hjálpar. Garðar Svavarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.