Morgunblaðið - 15.03.1959, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 15. marz 1959
nttMflMfr
Utg.: H.f. Arvakur Reykjavllt.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Árni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
I lausasölu kr. 2.00 eintakið.
ÚTRÝMUM STÉTTABARÁTTUNNI
ÚR ÍSLENZKU ÞJÓÐFÉLAGI
UTAN UR HEIMI
47 bílum og mótorhjólum stolið
árlega i þremur borgum Svíþjóðar
í Stokkhólmi var á sl. ári stoliö helmirmi
fleiri bílum en i Os/ó, Kaupmannahöfn
og Helsinki samanlagt
AÐ sem fyrst og fremst
einkennir 13. Landsfund
Sjálfstæðisflokksins, fjöl-
xnennasta flokksþing, sem nokkur
íslenzkur stjórnmálaflokkur hef-
ur haldið, er sú staðreynd, að
hann er skipaður fólki úr öllum
stéttum og starfshópum þjóðfé
lagsins. Þar getur að líta mikinn
fjölda bænda, útvegsmanna, sj S-
manna og verkamanna. Þar sitja
verzlunarmenn, iðnaðarmenn,
bifreiðarstjórar og menntamenn
hlið við hlið. Þar er fjöldi kvenna
úr öllum landshlutum. Þar eru
ungir og gamlir.
Meðal alls þessa fólks hefur
rikt hin ánægjulegasta sam-
vinna og félagsandi. Fulltrú-
arnir á landsfundinum hafa
gert sér það ljóst, að þeir eru
komnir þangað til þess að
vinna að mikilvægu verkefni,
sem er mótun þjóðmálastefnu
Sjálfstæðisflokksins á næstu
ánim.
Aldrei eins
þýðingarmikið og nú
Það hlutverk Sjálfstæðisflokks
ins, að vera hið sameinandi afl
fslenzku þjóðarinnar, samnefn-
ari allra stétta hennar og starfs-
hópa, er aldrei mikilvægara en
nú. Vinstri stjórnin var byggð
upp af þeim flokkum, sem hafa
stéttabaráttu að einu megin at-
riði stefnu sinnar. Kommúnistar
telja að milli verkalýðs- og vinnu
veitenda beri að vera stöðug ill-
indi og átök. Sósíal-demókratar
aðhyllast boðskap stéttabarátt-
unnar einnig i aðalatriðum, og
Framsóknarflokkurinn hefur allt
frá upphafi byggt tilveru sína á
ríg og óvild milli sveita og sjáv-
arsíðu, sveitafólksins og almenn-
ings í þorpum og kaupstöðum
landsins.
1 Þessir flokkar hafa undanfarin
214 ár farið með stjórn á fslandi.
Þeir lofuðu þjóðinni fyrir valda-
töku sína friði og uppbyggingu í
þjóðfélaginu, stöðvun dýrtíðar og
verðbólgu og stórfelldum atvinnu
lifsumbótum. Staðreyndir blasa
við um efndir þessara fyrirheita.
Aldrei hefur annar eins ófriður
milli verkalýðs og vinnuveitenda
ríkt í landinu eins og á valdadög-
um vinstri stjórnarinnar. Aldrei
hafa verkalýðssamtökin verið
eins ofurseld pólitískri togstreitu
og á þessu tímabili. Og aldrei
hefur dýrtíð og verðbólga magn-
azt eins hröðum skrefum eins og
á þessu 214 árs valdaskeiði vinstri
stjórnarinnar.
Þessir flokkar töldu sig sjálfa
vera hina einu sönnu fulltrúa
„vinnustéttanna". Þar með gerðu
þeir sig seka um mikla yfirsjón.
Þeir gleymdu stærsta verkalýðs-
flokknum, sterkasta aflinu í ís-
lenzkum stjórnmálum, því afli,
sem sameinar innan vébanda
sinna verkalýð og bændur, iðn-
aðarfólk og sjómenn, verzlunar-
menn og menntamern. Þeim sást
yfir það, að tilraun þeirra til þess
að stjórna íslandi í fullkomnum
og yfirlýstum fjandskap við þenn
an mikla fjölda íslendinga, var
fyrirfram dauðadæmd. Engin rik-
isstjórn á íslandi, sem Sjálfstæð-
isflokkurinn tekur ekki þátt í,
getur í raun og sannleika kallað
sig stjórn „hinna vinnandi
stétta“.
Innan vébanda Sjálfstæðis-
flokksins er langsamlega
stærsti hópur þess fólks, sem
vinnur undirstöðustörf í þágu
framleiðslu og uppbyggingar í
landinu, til sjávar og sveita.
Sameinum kraftana
Á hinum fjölmenna Landsfundi
Sjálfstæðisflokksins, mótar sú
skoðun fyrst og fremst allar um-
ræður, að nú beri islenzku þjóð.
inni að sameina krafta sína í vold
ugu átaki til efnahagslegrar við-
reisnar hinu íslenzka þjóðfélagi.
Vinstri flokkarnir hafa fertgið sitt
tækifæri. Hin margumtalaða
„vinstri stjórn“ hefur setið að
völdum í hálft þriðja ár og gefizt
færi á að sýna, hvers hún er megn
ug. Hún hefur haft aðstöðu til
þess að sýna úrræði sín og flokka
sinna, fara þær leiðir, sem þessir
flokkar töldu viturlegastar fyrir
íslenzku þjóðina í þeim vanda.
málum, sem við var að etja. Vi-
menningur í landinu veit nú,
hverjar þessar leiðir voru og hef-
ur fundið áhrif þeirra á allan
hag sinn og afkomu. Fólkið fer
þess vegna ekki í neinar grafgöt-
ur um það, hvað vinstri stjórn
raunverulega er, hvers hún er
megnug og hvers eðlis samsta^f
hinna þriggja svo kölluðu vinstri
flokka er.
Þetta er vissulega dýrmæt og
merkileg reynsla, sem þjóðin
verður að draga af sínar ályktan-
ir. Auðsætt er að hún mun nota
tækifæri við næstu kosningar til
þess. Um það báru bæjar- og
sveitarstjórnarkosningarnar vet-
urinn 1958 greinilegt vitni. Þá
lýstu íslenzkir kjósendur yfir ó.
tvíræðu vantrausti á vinstri
stjórninni og stefnu hennar. Sjálf
stæðisflokkurinn hlaut þá hrein-
an meirihluta atkvæða í þeim
byggðarlögum, sem kosið var L
En í þeim kosningum gengu um
75% þjóðarinnar að kjörborðinu.
Útirýmum
stéttabaráttunni
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins mun senda frá sér ítarlegar
stefnuyfirlýsingar í flestum þýð-
ingarmestu þjóðmálunum. Grunn
tónn þeirrar stefnu, er áskorun
til þjóðarinnar um að hverfa frá
trúnni á stéttabaráttuna, efla sátt
og samlyndi meðal hinna ýmsu
stétta og starfshópa, skapa skiln-
ing og gagnkvæmt traust milli
sveita og sjávarsíðu, sameina alla
krafta í baráttunni fyrir efna-
hagslegri viðreisn og traustum
og réttlátum grundvelli íslenzks
lýðræðis og þingræðis.
Sjálfstæðismenn benda á og
leggja áherzlu á það, að
„vinstri stjórn“ hefur fengið
sitt tækifæri. Nú er röðin kom-
in að Sjálfstæðisflokknum til
þess að sýna, hvers hann er
megnugur, hvernig hann getur
leyst vandamál þjóðarinnar og
veitt henni forystu í barátt-
unni fyrir betra og réttlátara
þjóðfélari.
AÐ jafnaði er nú stolið 47 bílum
og mótorhjólum á dag í þremur
helztu borgum Svíþjóðar, Stokk-
hólmi, Gautaborg og Málmey. —
Fjöldi slíkra þjófnaða hefur far-
ið síhækkandi undanfarið. Er
þetta orðið mikið vandamál, og
hefur vakið mikla reiði meðal
almennings, svo að búast má við,
að refsingar við slíkum afbrot-
um verði mikið þyngdar.
OÍfO
Þjófarnir, sem venjulega eru
kallaðir „bíllánarar“, eru að
heita má allir ungir menn, sem
stela bílum til þess eins að svala
ævintýraþrá sinni eða upphefja
sig í augum vinstúlkna sinna.
Það er nær óþekkt fyrirbrigði í
Svíþjóð, að menn fremji slíka
þjófnaði í því skyni að auðgast
af þeim, og oftast nær finnast
bílarnir fyrr eða síðar. Flestir
bílarnir eru þó meira eða minna
skemmdir, og er þar m. a. um
að kenna fákunnáttu og ungæðis-
hætti þeirra, sem leggja hald á
bílana.
Allur þorri manna og einkum
bíleigendur — en þeim hefur
fjölgað stórlega í Svíþjóð síðan
í stríðslok — hafa mjög fundið
að því, hve vægt væri tekið á
hinum ungu bílþjófum. Ástæðan
fyrir því er sú, að samkv. núgild-
gildandi lögum telstheimildarlaus
taka ekki þjófnaður nema til-
gangurinn sé að auðgast af verkn
aðinum. Sé hins vegar hlutur
tekinn, notaður og síðan skilinn
eftir eða honum skilað, telst það
vera nytjastuldur, en refsing fyr-
ir slíkt er miklu vægari en fyrir
þjófnað. Flestir bílþjófnaðir í
Svíþjóð flokkast undir heimild-
arlausa töku. Auk þess er tekið
vægt á þjófunum vegna æsku
þeirra, m. a. í þeim tilgangi, að
þeir leiðist síður út á glæpa-
brautina fyrir alvöru. Upp á síð-
kastið hefur mjög fjölgað kvört-
unum vegna þessarar mildu með-
ferðar réttvísinnar á „bíllánurun-
um“.
o+o
Bent er á það, að í Stokk-
hólmi, þar sem 800 þús. manns
búa, hafi bílþjófnaðir á sl. ári
verið helmingi fleiri en bílþjófn-
aðir í Ósló, Kaupmannahöfn og
Helsinki samanlagt. í Stokkhólmi
var stolið samtals 4246 bílum, í
Kaupmannahöfn, þar sem býr
ein milljón manna, var stolið 828
bílum, í Ósló, þar sem íbúatalan
er 450 þús., var stolið 1067 bílum
og í Helsinki, 400 þús. íbúa borg,
var einungis stolið 225 bílum.
Tala stolinna bíla í Stokkhólmi
var 23% hærri 1958 en árið áður.
Séu þjófnaðir á mótorhjólum,
skellinöðrum og öðrum vélknún-
um farartækjum taldir með, er
heildartalan 10.054 samanborið
við 8191, sem er heildartala sams
konar þjófnaða í hinum höfuð-
borgunum.
Vegna þessa koma fram æ há-
værari kröfur í Svíþjóð um
strangari refsingar fyrir þessi af-
brot, enda þótt þjófarnir steli
ekki bílunum til að auðgast af
því. Vakin er athygli á því, að
ekki sé einungis um skemmdir á
eignum annarra að ræða, heldur
stafi og af þessu mikil slysa-
hætta. Þjófarnir aki mjög gálaus-
lega, þó að þeir séu alls óvanir
bílunum, og margir þeirra hafi
ekki ökuleyfi. Lögfræðingar
hafa líka bent á það, að sam-
kvæmt lögum lendi sá maður,
sem ekur bíl sínum eftir að hafa
bragðað áfengi, óhjákvæmilega í
fangelsi, þó að hann verði ekki
valdur að slysi eða baki öðrum
tjón. En unglingur, sem steli bíl
og aki honum ölvaður, fái áminn
ingu eða sé í mesta lagi dæmdur
til stuttrar dvalar á hæli fyrir
vandræðaunglinga.
o*o
Nú hefur mál þetta verið rætt
á þingi og nefnd, skipuð af
stjórnarvöldunum, hefur skilað
áliti. Er þetta talið benda til þess,
að breytinga til bóta megi vænta
á þessu ári. Tage Erlander, for-
sætisráðherra, hét í þingræðu
umbótum í þessu efni, svo að
auðveldara yrði að hafa hemil á
sívaxandi afbrotum unglinga og
þá sérstaklega bílþjófnuðum.
Stjórnskipuð nefnd, sem hefur
unnið að endurbótum á hegning-
arlögunum, hefur lagt til, að sér-
stök ákvæði verði sett um þessa
tegund bílþjófnaða. Skuli þeir
flokkast undir sérstök afbrot en
ekki venjulega þjófnaði og sér-
stakar refsingar verði ákveðnar
fyrir þá. Strangari refsingar —
ef til vill sex mánaða til fjögurra
ára fangelsi — kunna að verða
ákveðnar. Lögreglan er þeirrar
skoðunar, að skilorðsbundnir
fangelsisdómar og sektir sé
lausnin, en málið verður rætt
síðar í þinginu.
o+o
Tillaga um, að bílþjófunum
verði gert að skyldu að bæta bíl-
eigendum það tjón, sem þeir
valda á bílunum, á mestu fylgi
að fagna meðal bíleigenda. Flest-
ir bíleigendur þjóftryggja bíla
sína, en tryggingin nær ekki allt-
af til allra þeirra skemmda, sem
verða á bílnum. Auk þess hafa
tryggingafélögin hert á skilmál-
um sínum. Ef eigandinn hefur
ekki á bíl sínum lás af sérstakri
gerð, sem venjulega er settur á
gírkassann, verður hann að
greiða sjálfur fyrstu 300 kr.
(sænskar) af viðgerðarkostnað-
inum. Auk þess verður slíkur
lás að vera læstur, ef tryggingin
á að gilda. Sé lásinn opinn, skipt-
ir það engu máli, þó að bíllinn
sjálfur hafi verið læstur og hafi
staðið inni í læstum bílskúr.
Enn er það ósannað, hvort ör-
ugg vörn sé í þessum lásum. Bíl-
eigendur hafa bent á, að bílþjófn-
uðum fjölgi sifellt, enda þótt
85% allra bíla í Stokkhólmi og
64% allra bíla í Svíþjóð séu bún-
ir slíkum lásum.
o^o
Talið er mjög líklegt, að verði
unglingunum gert að greiða
skaðabætur auk þess sem þeir
yrðu að greiða sekt eða afplána
fangelsisdóm, myndi það draga
mjög úr þessum afbrotum. Bíl-
eigendur í nágrenni uppeldis-
heimila og annarra slíkra stofn-
ana eru sérstaklega hlynntir
|f þessu. Unglingar flýja mjög oft
% frá slíkum stofnunum, og undan-
tekningarlítið stela flóttamenn-
irnir sér bíl i nágrenninu til að
komast undan. Bíleigendur í a.
m. k. einu héraði, þar sem slík
stofnun er, hafa stofnað með sér
„heimavarnarlið“. Er það látið
vita strax og uppvíst verður um,
að unglingar hafi flúið frá heim-
ilinu, og er þá vörður settur um
alla bíla.
Myndin var tekin fyrir nokkrum dögum, þegar eldflaugin
Júnó II hóf sig til lofts frá Canaveralhöfða á Flórída og bar
út í himingeiminn gerviplánetuna Framvörð IV. Eldflaugin
vó 60 tonn, en gerviplánetan aðeins tæp 7 kg.