Morgunblaðið - 17.03.1959, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.03.1959, Qupperneq 1
20 siður Stjórnmálayfirlýsing Landsfundar Sjálfstæðisflokksins: Sækjum fram til vaxandi vel- megunar og menningar með relsi og framtak að leiðarstjörnu Tryggfum lí gildi með aukinni framleilslu, stöðugu verð- og Eiagnytingu auðlinda landsins sáttarorð mili fólksins í sveil og vió sfó LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, sem lauk síðastíiðinn sunnudag, samþykkti meðal annars stjórnmála- yíirlýsingu þar sem mörkuð er stefna flokksins í stórum dráttum. Ennfremur samþykkti landsfundurinn ítarlegar ályktanir um afstöðu flokksins til einstakra þjóðmála. Hér fer á eftir stjórnmálayfirlýsing landsfundarins: ANDLEGT FRELSI GrundvaJIarskoðun Sjálfstæðismanna er sú, að andlegt frelsi og athafnafrelsi einstaklinganna sé fyrsta skilyrði þess, að hæfileikar og kraftar njóti sín tíl fulls. Stefna þeirra er að nýta hugvit og orku, sem í einstaklingnum býr, svo að hann fái frjáls og fjötralaus að njóta sín, þjóðinni allri, sér og sínum til frama og farsældar. Það er höfuðstefna Sjálf- Etæðismanna, að atvinnurekstur sé í höndum einstaklinga og félaga, en ekki hins opinhera. Hið frjálsa framtak, samkeppni og eignarréttur einstak- llnga, hafa verið, eru og munu verða hinn tápmesti fjörgjafi allra framfara. Þessi stefna er í samræmi við íslenzkt þjóðareðli og þjóðarþörf, og sagan hefur sannað réttmæti hennar. Reynslan sýnir, að þjóðir hins frjálsa athafnalífs búa miklu hetur, bæði um andleg og efnaleg lífskjör, en þjáðar þjóðir hins alþjóðlega kommúnisma. Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðísflokksins, slítur 13. landsfundi Sjálfstæðisflokksins og biður fundarmenn lirópa ferfalt húrra fyrir fósturjörðinni. Við hlið hans stendur Pétur Ottesen, l>ing- maður Borgfirðinga, er var fundarstjóri á fundinum. (Ljósm.: Vigfús Sigurgeirsson) TRYGGING GÓÐRA LÍFSKJARA Til þess að frelsi og framfarir komi að varanlegu gagni og lífskjör hatni hjá alþýðu manna, er stöðugt verðgildi pen- inganna öðru fremur nauðsynlegt. Ella grúfir yfir sú hætta, að kjarabætur koðni niður og framkvæmdir reynist reistar á sandi. Lífskjör íslendinga og menningu má bæta að miklum mun með fjölbreyttari framleiðslu, aukinni tækni, bættum vinnubrögðum og aukinni vöruvöndun, en allt miðar þetta til þess, að sérhver hönd og hugur afkasti drýgra starfi og ;:kapi verðmæti meiri en áður var. HAGNÝTING AUÐLINDA LANDSINS Frá fornu fari hafa íslendingar lifað á búnaði og fiski- fangi. Fjársjóð íslands við strendur þess, slagæð þjóðarinn- ar, þarf að vernda og verja með oddi og egg og hvergi nema staðar unz náð er framtíðarmarkinu, sem er: Landgrunnið allt. Nú er risinn hinn þriðju bjargræðisvegur, iðnaður, sem svo hefur vaxið ört úr grasi á tveim tugum ára, að af honum ljfir þriðjungur landsins barna. Þó blasa þar við miklu stærri og voldugri verkefni og möguleikar, þegar þjóðin fær hagnýtt hina miklu orku í elfum lands og iðrum jarðar. Bjargræðisvegina þarf að efla af megni og hagnýta þeim til handa hin nýjustu vísindi, tæki og tækni. ÖRVUM FRAMTAK OG ATHAFNAÞRÁ Almannavaldið þarf að gjöra tvennt jafnsnemma: Forð- ast fjötra um atvinnulífið og gæta hófs um álögur. Örva þarf framtak og athafnaþrá, fremur en úr að draga, og tryggja jafnrétti og réttlæti um opinber gjöld og alla aðstöðu, svo að allir sitji við sama borð. Til þess að traustir séu hornsteinar efnahags og fjár- mála, þarf fjárveitingarvald ríkisins að sýna gott fordæmi: Hagsýni, hagsýslu og aðgát um útgjöld, enda er mikilsverður sparnaður mögulegur á mörgum sviðum, svo sem með ein- faldari skipan toll- og skattheimtu, afnámi ýmissa nefnda, ráða og skriffinnsku. Og sjálfsagt er, að ríkisstjórn og Alþingi gangi á undan um milljónasparnað fyrir stórfellda styttingu þinetímans á ári hverju með betri undirbúningi þingmála. Frh. á bls. 2. Megi forsjónin farsæla fóstur jörbinni störf þessa landsfundar Mikill einhugur og eindrægni mótaði 13. landsfund Sjálfstæðisflokksins. f-undinum var slitið á sunnudags'.:völd „ÉG þakka þann einhug, sem hver í sínu lagi, að þeir hér hefur ríkt og bið þess, að mundu af alhug vinna að því forsjónin megi farsæla fóstur- jörðinni störf þessa fundar“, sagði Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins í loka- ræðu á 13. landsfundi Sjálf- stæðisflokksins og jafnframt ihinum f jölmennasta, sem jlauk klukkan 7 á sunnudags- kvöldið í Sjálfstæðishúsinu. Mikil eindrægni og einhugur ríkti á fundinum og kom það vel fram í ræðum landsfund- arfulltrúa, einkum eftir að leið á fundinn. Á sunnudag- inn voru frjálsar umræður og töluðu þá fulltrúar úr öllum landshlutum og lýstu því yfir, að afla sjálfstæðisstefnunni sem mestra sigra í hönd far- andi kosningum. SÝNDI MIKINN EINHUG Allan sunnudaginn voru salir Sjálfstæðishússins þétt- skipaðir og hlýddu menn með athygli á mál ræðumanna. I fundarlok flutti formaður SUS ávarp til Ólafs Thors, form. Sjálfstæðisflokksins, og þakkaði honum skilning og tillitssemi við skoðanir ungra Sjálfstæðismanna. — Ólafur Thors flutti að lokum hvatningu til landsfundarfull- trúa um að berjast af djörf- ung og dug fyrir velferðar- málum íslenzku þjóðarinnar. Var það einróma álit lands- fundarfulltrúa, að þessi lands- fundur hefði verið með mik- illi reish og sýnt vel einhug Sjálfstæðismanna á þeim tímamótum, sem nú eru í stjórnmálasögu þjóðarinnar. Fundur hófst að nýju á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins kl. 4,30 á laugardaginn. Fundarstjóri var kjörinn Matthias Bjarnason á ísafirði, en fundarritarar Þor- steinn Sigurðsson á Brúarreykj- um og Vésteinn Guðmundsson á Hjalteyri. Framhald á bls. 19, ★-------------★ ÞriSjudagur 17. marz. Efni blaðsins m.a.: Bls. 6: Sanasol og lyfjabúðir (Hæsta- réttardómur). — 10: Forystugreinin: Að loknum landsfundi. Marilyn Monroe ekki sam- vinnuþýð. (Utan úr heimi). — 11: Það er bara kviknað í húsinu. Íslandssinfónían. — 13: Hlustað á útvarp. — 18: íþróttafréttir. ★----------------------------★

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.