Morgunblaðið - 17.03.1959, Síða 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. marz 1959
Utg.; H.f. Arvakur Reykjavllt.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
AÐ LOKNUM
Á ER lokið landsfundi
Sjálfstæðismanna, hin-
um fjölmennasta, er
haldinn hefur verið. Engum, sem
satþennan mikla fund, mun hann
slcjótt úr minni falla. Þar ríkti
andi einingar og bjartsýni, bar-
áttuhugur ásamt eindregnum
ásetningi um að níðast aldrei á
neinum.
Á landsfundum bera menn
saman ráð sín um hvað eina, er
þeir telja máli skipta í stjórn-
málum. Auðvitað sýnist ekki öll-
um hið sama um allt. Menn segja
skoðanir sínar afdráttarlaust,
eins og vera ber milli vina. Við
það eyðist margur misskilningur
og menn eru nær hver öðrum að
lokum. Vegna fjölmennis lands-
fundarins og þess að þar eru sam-
an komnir menn úr öllum stétt-
um hvaðan æva, er hvergi betra
tækifæri til þess að kynnast og
eyða ýmiss konar misskilningi.
þó að sitt sýnist hverjum um
sumt, þá eru Sjálfstæðismenn
sammála um öll meginatriði.
★
Að vonum var á fundinum
tninnzt þeirra veðrabrigða, sem
orðið hafa í stjórnmálum á þeim
þremur árum, sem liðin eru frá
því að síðasti landsfundur var
haldinn. Þá hafði Hræðslubanda-
lagið verið stofnað skömmu áð-
ur, í því skyni að einangra Sjálf-
stæðisflokkinn. Eftir að V-stjórn-
in tók við, var það og höfuðstefna
hennar, eða a. m. k. forsætisráð-
herrans Hermanns Jónassonar, að
víkja Sjálfstæðismönnum til
hliðar. Að þessu var ósleitilega
unnið, í þau nær 2% ár, sem sú
lélega stjórn lafði. En nú kvein-
ar Framsóknarflokkurinn undan
því, að Sjálfstæðismenn skuli
ekki hafa viljað ganga í sam-
stjórn með honum. Mennirnir,
sem áður fullyrtu, að ekki væri
hægt að stjórna með Sjálfstæð-
isflokknum, segja nú, að alls ekki
sé unnt að vera án hans!
Þetta er mikilsvert vitni um
styrkleika Sjálfstæðisflokksins.
Með honum býr og það afl, sem
þjóðin má sízt án vera. En Sjálf-
stæðismenn gera sér þó grein fyr-
ir ,að þjóðstjórnartal Framsókn-
ar er af litlum heilindum mælt.
Þar hefur hún einungis sinn eig-
inn hag í huga. Hún leitar nú
allra ráða til að koma í veg fyrir,
að hin óhjákvæmilega leiðrétting
á kjördæmaskipuninni nái fram
að ganga.
★ *
Af látum Framsóknar nú mætti
ætla, að leiðrétting kjördæma-
skipunarinnar mundi verða henni
vís banabiti. En enginn ætlar að
beita hana rangindum.
Um raunverulegt fylgi Fram-
sóknar mega menn ekki láta síð-
ustu atkvæðatölur blekkja sig. 1
kosningunum 1956 gekk Fram-
sókn svo langt í falsi sínu, að
þá gerði hún leik til þess að fá
sem fæst atkvæði en þó sem
flesta þingmenn. Úrslitin urðu
þau, að í atkvæðamagni meðal
kjósenda varð hún hinn minnsti
meðal þeirra flokka, sem fengu
þingmenn kosna. En í þingmanna
fjölda varð hún næst stærsti
flokkurinn, svo að einungis mun-
ar 2 þingmönnum á henni og
Sjálfstæðismönnum, sem þó
fengu nær þrefalt fleiri atkvæði.
í raun og veru átti Framsókn
mun meira fylgi en hún fékk.
LANDSFUNDI
Sennilega endurheimtir hún eitt-
hvað af því nú þegar Hræðslu-
bandalaginu er slitið. Þess vegna
eru líkur til þess, að hún verði
áfram næst stærsti þingflokkur-
inn, þó að munur á henni og
Sjálfstæðisflokknum á þingi
verði að sjálfsögðu miklu meiri
en verið hefur.
★
En hvað hefur Framsókn þá að
óttast? Af hverju er í henni sá
mikli uggur, sem Hermann Jónas
son hóf strax máls á í setningar-
orðum sínum á flokksþingi Fram-
sóknar? Einungis vegna þess að
hún á að fá sinn rétta hlut og
ekki meira. Þá verður hún á
þingi sambærileg að stærð við
hina smáflokkana og hverfur úr
þeirri oddastöðu, sem hún hefur
haft nú um meira en 40 ár, svo
að nær ómögulegt hefur verið að
mynda stjórn í landinu án henn-
ar atbeina. Það er missir aðstöð-
unnar til valdabrasksins, sem
broddarnir nú óttast.
Sveitafólkið, sem valdabrask-
ararnir þykjast tala fyrir og
reyna með öllu móti að rugla,
mun vissulega átta sig á hinu
sanna samhengi. Því er enginn
hlutur hættulegri en ofurveldi
Framsóknar. Hún stefnir að því
að einangra fylgismenn sína og
egna aðra landsmenn til andstöðu
við þá. Eftir að megin þorri lands
fólksins hefur setzt að í þéttbýli,
verður ekki með neinu móti um-
flúið, að úrslitaráðin yfir málum
þjóðarinnar flytjist þangað einn-
ig. —
Þess vegna er um að gera að
breytingin verði meðan sáttfýsi
og sanngirni ræður hjá fjöldanum
og hann er fús til þess að taka
réttmætt tillit- til hagsmuna
hinna, sem í strjálbýlinu búa.
Gegn þessu hamast Framsókn nú
af öllum mætti. En Sjálfstæðis-
menn bera sáttarorð á milli og
vilja koma á þeirri skipan, sem
allir mega vel una.
★
Lausn kjördæmamálsins er mik
ilsverðasta viðfangsefnið nú. Án
hennar verður ekki upprætt spill-
ingin, sem þróazt hefur í skjóli
ranglætisins undanfarna áratugi.
Það er eðlilegt að um þetta niál
verði barizt. En auðvitað kemur
ýmislegt fleira einnig til greina,
og eru þó öll þessi efni svo sam-
tvinnuð, að erfitt er sundur að
skilja.
Kjósendur munu nú kveða á
um, hvort þeir vilja að nýju gefa
mönnunum, sem sumarið 1956
hófu svikaferil V-stjórnarinnar,
færi á að endurtaka svo ljótan
leik. Enn treysta þessir sömu
menn á mátt blekkinganna og það
valdakerfi, sem þeir með ótrú-
legri óskammfeilni hafa barið
saman í skjóli ranglætisins.
Sjálfstæðismenn gera sér ljóst,
að í þessu er við ramman reip að
draga. Góður málstaður hefur oft
orðið undir vegna þess að við
ofurefli er að etja. Sannleikur-
inn sigrar ekki fyrirhafnarlaust.
Einmitt þess vegna styrkja Sjálf-
stæðismenn nú samtök s:n. Þess
vegna komu þeir saman til síns
mikla fundar. Af fundinum fóru
þeir allir staðráðnir í að láta
ekkert ógert til að nú verði þau
þáttaskil í islenzkum stjórnmál-
um, sem ekki mega dragast.
Marilyn Monroe er ekki samvinnuþýð
segir kvikmyndaleik-
stjórinn Billy Wilder
MARILYN Monroe er falleg
kona, og kannski láta flestir karl-
menn sig dreyma um hana í
laumi. En ekki er allt gull, sem
glóir. Nýlega átti bandarískur
blaðamaður tal við Billy Wilder,
manninn, sem hefir stjórnað nýj-
ustu kvikmyndinni með Marilyn
Monroe í aðalhlutverki. Kvik-
myndin heitir „Some like it hot“.
Fara hér á eftir glefsur úr viðtali
blaðamannsins við Wildar:
Það mun hafa gengið á ýmsu,
meðan verið var að taka þessa
kvikmynd með Marilyn Monroe,
Tony Curtis og Jack Lemmon. í
hvert skipti, sem ég hitti Billy
Wilder, spurði ég hann, hvernig
honum og ungfrú Monroe kæmi
saman. Og hann svaraði alltaf á
sama veg:
— Ég skal segja þcr allan sann-
leikann. Ég á frænku í Vínarborg
(Wilder er innflytjandi frá Aust-
urríki). Það er áreiðanlegt, að
hún mundi mæta stundvíslega
við æfingar á morgnana, hún
myndi kunna hverja einustu línu
í handritinu utan að. Það, sem
gerir gæfumuninn, er að enginn
myndi vilja borga einn.eyri fyrir
að horfa á hana.
—★—
Fyrir nokkru síðan var til-
kynnt, að „Some like it hot“ væri
fullgerð og þætti hafa tekizt
mjög vel. Wilder var enn einu
sinni spurður sömu spurningar-
innar, og hann svaraði:
sér í sínu fagi. Charles Laughton
er einstakur, ekki aðeins sem leik
ari heldur hefir hann alltaf eitt-
hvað jákvætt til málanna að
leggja. Marlene Dietrich er dá-
samleg. Hún hefir erft þann
ágæta eiginleika frá Prússunum,
forfeðrum sínum, að geta látið
Marilyn Monroe og maður hennar Arthur Miller á baðströnd-
inni í Hollywood.
— Gloria Swanson er barnsleg,
hrifnæm, hjálpfús og mjög vel að
segja sér fyrir verkum. Bill Hold-
en er ágætur maður og mjög stillt
ur. Audrey Hepburn er í sér-
flokki, hún er svo ótrúlega aðlað-
andi stúlka. Gary Cooper er mik
ið prúðmenni. Humphrey Bogart
var sjentilmaður, þó að hann
vildi helzt ekki klæða sig í sam-
ræmi við það. Við þrættum í
hvert skipti, sem hann átti
að setja upp pípuhatt.
— Og ungfrú Monroe, hvernig
er að vinna með henni?
— Tja! Það er nú kvenmaður
í lagi. Ég er eini kvikmyndastjór
inn, sem hefir gert tvær kvik-
myndir með Monroe. Mér finnst,
að Samtök kvikmyndastjóra ættu
að sæma mig heiðursverðlaunum
fyrir það Ég hefi ekki getað sofið
rólegur í marga mánuði. Loksins
get ég horft á konuna mína án
þess að hafa löngun til að slá til
hennar, ef því að hún er kona. Ég
vil helzt ekki lasta neinn, en ég
átti í miklum erfiðleikum með
að láta allt ganga slétt og fellt,
meðan á töku kvikmyndarinnar
stóð. Þó að leikararnir og annað
starfsfólk sé allt af vilja gert og
barmafullt af áhuga, er mjög
hætt við, að andrúmsloftið verði
ekki sem þægilegast, þegar menn
þurfa að bíða klukkutímum sam-
an eftir stjörnu, sem kannski alls
ekki lætur sjá sig.
— Kom ungfrú Monroe oft
mjög seint?
Lana Turner og dóttir he nnar á frumsýningunni.
Kvikmyndin Jmitation ot Life"
ber nafn með réttu
NÝLEGA var frumsýnd í Holly-
wood nýjasta kvikmyndin með
Lönu Turner í aðalhlutverki.
Myndin fjallar um móður og dótt
ur, sem báðar eru ástfangnar af
sama manninum. Það vakti undr
un manna og hneykslun í Holly-
wood, er Lana Turner tók dóttur
sína, Cheryl Crane, með sér á
frumsýninguna. Ástæðan er sú,
að efni myndarinnar minnir mjög
á atburði, sem gerðust í einkalífi
þeirra mæðgna á s.l. ári. Ástmög
ur Lönu, Johnny Stompanato, var
myrtur — stunginn til bana með
eldhúshníf á heimili hennar, og
Cheryl, sem þá var 14 ára, sagð-
ist hafa banað Stompanato, af því
að hann hefði hótað að drepa
móður hennar.
Fyrir rétti var ákveðið, að
Cheryl skyldi framvegis vera í
umsjá ömmu sinnar, frú Mildred
Turner. Fyrir réftinum hvikaði
Cheryl aldrei frá þeim vitnis-
burði, að hún hefði drepið Stomp
anato til að verja móður sína,
en hins vegar voru margs kon-
ar sögur á kreiki um, að morðið
hefði átt sér stað með allt öðrum
hætti. Þá tíu mánuði, sem liðnir
eru, síðan þessir atburðir gerð-
ust, hafa þær mæðgur aldrei sézt
opinberlega saman fyrr en nú á
fyrrnefndi-i frumsýnmgu. Hefir
þeim báðum tekizt að gleyma
þeim hryllilegu atburðum, sem
gerðust fyrir tæpu ári?
Eða er Lana Turner fús til að
hætta hverju sem er í auglýsinga
skyni?
— Við skulum orða þetta dá-
lítið öðru vísi. Ég var að vona,
að mér tækist að ljúka kvik-
myndinni á sjö vikum. Fyrstu tvo
mánuði gekk allt sæmilega, en
það munaði minnstu, að ég gæfist
upp síðustu tvo mánuðina.
— Lét hún skapið hlaupa með
sig í gönur?
— Við kölluðum hana Maríu
Callas kvikmyndanna.
— Eruð þér að hugsa um að
taka aðra kvikmynd með Mon-
roe?
— Ég hef rætt um það við
lækninn minn og sálfræðinginn
minn. Báðir eru þeirra skoðunar,
að ég sé of ríkur og of gamall til
að leggja annað eins erfiði á mig
í þriðja sinn. Ég ætla að fá
frænku mína í Vínarborg til að
leika í næstu kvikmynd hjá
mér.