Morgunblaðið - 14.04.1959, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.04.1959, Qupperneq 1
r 24 síður Talið er að Duiles sé dauðans matur * Leggst aftur á sjúkrahús en Eisenhower hraðar för sinni til Washington í>að styrkir og mjög þessar grunsemdir, að Eisenhower for- seti, sem verið hefur í fríi í bæn- um Augusta í Georgíu, ákvað skyndilega að snúa til Washing- ton í dag í þeim tilgangi ein- um að heimsækja Dulles í sjúkra húsinu. Washington, 13. apríl. JOHN FOSTER DULLES batt í gær skyndilega enda á hvíldardvöl sína í Florída og flaug aftur til Washington. — Hann var veiklulegur og virt- ist hafa grennzt mikið. Þegar til Washington kom ók hann beint til Walter Reed-sjúkra- hússins og lagðist þar að nýju. Mörgum getgátum er leitt að því, hvað valdi að ut- anríkisráðherrann leggst aft- ur í sjúkrahúsið, en margir telja, að hann muni ekki verða fær um það framar að gegna embætti sínu, því að hann sé dauðans matur. Dalai Lama fœr bústað i bœnum Musoorie Nýja Delhi, 13. apríl. (Reuter) ÞAÐ er nú ákveðið að Dalai Lama, hinum landflótta þjóð- höfðingja Tíbets, verður feng- inn dvalarstaður í bænum Mussoorie í rótum Himalaya- fjalla. Dalai Lama mun ekki ganga á fund Nehru forsætisráð- herra, heldur mun Nehru hitta hann í Mussorie þann 23. apríl, en þann dag ætiar Nehru að sitja fund alþjóðlega ferðamálafélags ins, þar sem rætt verður um að- ferðir til að auka ferðamanna- straum til Indlands. Alitið er, að Nehru muni eftir hinn fyrirhugaða fund með Dalai Lama ræða við sendiherra Rauða Kína um möguleika á að koma á nýjum sáttum milli Dalai Lama og kínverskra kommúnista. Er það haft eftir áreiðanlegum heimildum, að Nehru sé þess mjög fýsandi að Dalai Lama fái aftur að snúa heim. Telur hann að sú lausn yrði öllum fyrir beztu og myndi draga úr spennunni í Suður Asíu. Bærinn Musoorie er mjög vin- sæll hvíldar- og sumardvalar- staður í Norður Indlandi. Þangað streyma Indverjar í sumarleyfi, þegar hitinn verður of mikill niðri í Hindustan-sléttu. Bærinn er suðvestur af smáríkinu Nepal Landakröfur BELGRAD, 13. apríl. (Reuter). Koca Popovic utanríkisráðherra Júgóslavíu fór hörðum orðum í þingræðu í dag um stuðning Rússa við landakröfur Albaníu og Búlgaríu gegn Júgóslavíu. Hann sagði, að ef Rússar styddu slíkar landakröfur væri það eitt alvarlegasta vandamálið, sem upp hefði komið í sambúð þess- ara þjóða, því að slíkar landa- kröfur gætu falið í sér neista, er kveikt gæti styrjaldarbál. Popovic kvað það eftirtakan- legt, að ekkert Austur Evrópu- ríkjanna hefði mælt gegn landa- kröfum Albana og Búlgara og það þrátt fyrir það, að fyrr á ár- um hefðu þau viðurkennt og und irritað samninga varðandi núver- andi landamæri Júgóslavíu. En nú hefur sú breyting orðið á. að Rússar sjá, að þeir geta ekki kúg að Júgóslava. Þess vegna taka þeir meira að segja að styðja landakröfur Búlgara, sem þó börðust með nazistum í síðustu styrjöld. og um 150 km. frá landamærum Tíbets. Engar samgöngur eru þó hugsanlegar þá leið, því að stór- fenglegustu fjallgarðar heims iiggja þar á milli og algerar veg- leysur. Það er talið að Dalai Lama fái einbýlishús í borginni til umráða og þess að vænta að strangur vörður verði um húsið til að losa Dalai við ónæði. Nýtt Discoverer gervitungl V anderber g-stöðin í Kaliforníu, 13. apríl. (NTB) FULLTRÚI bandaríska flug- hersins skýrði blaðamönnum frá því í kvöld, að þá um kvöldið hefði verið skotið á loft nýju gervitungli af teg- undinni „Discoverer“. Heppn- Jaðist skotið prýðilega. Gervi- tungl þetta fer í kringum jörðina í rétta stefnu norður- suður og í hverri umferð beint yfir heimskautin. Eldflaugin, sem skaut Dis- coverer á loft, var tveggja þrepa, alls 26 metra há, er hún stóð á jörðinni og mun seinna þrepið fylgja sjálfu gervitunglinu á brautinni kringum hnöttinn. Alls vegur þetta seinna þrep og gervi- tunglið 2200 kg. Fulltrúi flughersíns upp- lýsti, að ætlunin væri að gera næstu daga merkilega tilraun með að sleppa 100 kg. hylki út úr eldflauginni og freista þess að senda það óskemmt inn í lofthjúp hnattarins og niður á jörð. Fulltrúinn tók þó fram að því miður væru tiltölulega litlar líkur til að tilraunin heppnaðist. Hylkið á að koma niður til jarðar nálægt Hawai á Kyrrahafi. í opinberri tilkynningu um sjúkrahúsvist Dullesar segir, að hann hafi lagzt í sjúkrahúsið til þess að gangast undir nákvæma læknisrannsókn. Sé nú ætlunin að ganga úr skugga um, hver ár- angur hefur orðið af geislalækn- ingunum, sem beitt var við hann vegna þess að hann gekk með krabbamein. Það er- álit manna, að Dulles einn ákveði það, hvort hann seg- ir af sér embætti sem utanríkis- ráðherra. Ef hann tekur þá ákvörðun að láta af embætti mun hann fyrst skýra forsetan- um frá því. Þess vegna velta menn því fyrir sér, hvort Dulles muni segja lausnarorðið, þegar Eisenhower kemur að sjúkrabeði hans. Útvarpsumræða um kjördæmafrum- varpið í kvöld Ólafur Thors, Jón á Reynistað og Jón á Akri fala af hálfu Sjálfstæðis- flokksins í KVÖLD kl. 8,15 hefst útvarp frá Alþingi. VerSur þá útvarpað fyrstu umræðu um kjördæma- frumvarpiS. Verða talaðar tvær Mynd þessi var tekin austur í Moskvu fyrir nokkrum dögum af Frikrik Ólafssyni við setningu skákmótsins. Hann er hér að draga úr númer sitt í röð keppendanna. (Ljósm.: Tass) umferðir og hefur hver flokkur 45 mínútur til umráða, en í fyrri umferð talar hver flokkur 25 til 30 mínútur. Röð flokkanna er ákveðin og verður Sjálfstæðisflokkurinn fyrstur, þá Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag. Af hálfu Sjálfstæðisflokksina tala í umræðunum fyrsti flutn- ingsmaður frumvarpsins Ólafur Thors, form. Sjálfstæðisfl., Jón Sigurðsson á Reynistað 2. þingm. Skagfirðinga og Jón Pálmason á Akri, þingmaður Austur-Hún- vetninga. Konungsbróðir trúlofar sig Einn nl íoringjum dnnshrn Jnfnnðnrmnnnu slnl vishý Stjórnmálaferli hans þarmeð lokið KAUPMANNAHÖFN. — Kunnur forustumaður danska Jafnaðar- mannaflokksins, Villy Heising, sem bæði hefur verið þingmaður flokksins og fulltrúi hans í bæj- arstjórn Khafnar hefur skyndi- lega orðið að víkja úr þessum stöðum sínum, vegna þess, að hann var gripinn að verki, þar sem hann var að stela viskýflösku og vindlum úr veizlu hjá bæjar- stjórn Kaupmannahafnar. Starfsfóik Ráðhússins í Khöfn hefur orðið þess vart að undan- förnu, að þegar bæjarstjórnar- veizlur hafa verið haldnar í ráð- hússalnum hefur bæði áfengi og tóbak horfið. Vegna þessa hefur starfsliðinu verið fyrirskipað að fylgjast vel með því sem gerist í veizlunum og reyna að komast fyrir þjófnaðina. Fyrir nokkrum dögum fóru fram í bæjarstjórn Kaupmanna- hafnar kosningar í forsæti og ýmis embætti bæj arstj órnarinn- ar. Þar var meðal annars endur- kjörinn annar varaforseti bæjar stjórnar, jafnaðarmaðurinn Villy Heising. Þegar kosningum var lokið var efnt til hinnar árlegu veizlu bæjarstjórnar í tilefni kosn inganna. En þá gerðist það að einn af varðmönnum ráðhússins kom að Villy Heising, þar sem hann var að stinga viskýflösku og vindlakassa ofan í skjalatösku sína. Varðmaðurinn skýrði borgar stjóra frá þessu. Félagar Heising í borgarstjórninni tóku þegar mjög hart á þessu afbroti, sem þeir sögðu að væri fyrir neðan virðingu nokkurs bæjarstjórnar- fulltrúa. Kölluðu þeir Heising á sinn fund og kröfðust þess, að Framh. á bls. 23 BRUSSEL 13. apríl (Reuter). Öll belgíska konungsfjölsky! ’"'n var saman komin í dag í ánægju- legri veizlu í konungshöllinni, þar sem. Albert yngri bróðir Baldvins Belgíukonungs tilkynnti trúlofun sína við Paolu prinsessu af Kalabriu, en hún er ítölsk aðalsmær. Tilkynningin um trúlofunin kom Belgum á óvart, en nú hefur verið skýrt frá því, að Albert hafi dvaldizt í heilan mánuð undir dulnefni í Rómaborg í vetur, þar sem hann var á höttunum eftir hinni ítölsku prinsessu. En ást þeirra blómgaðist síðan, er þau dvöldust saman í skíðakofa uppi í fjöllum Svisslands. í kvöld brá Alþert prins dýr- mætum demantshring á baug- fingur sinnar fögru meyjar. Ekki hefur enn verið tilkynnt hvenær brúðkaupið fer fram, en það verð ur í Rómaborg. Síðan munu þau búa í Belvedera-höll í Belgíu. Þriðjudagur 14. apríl Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Á íslandi í 50 ár. —- 6: Sérhver verkamaður ,,kapital- isti“ (Erl. yfirlitsgrein). —„Þef ar fólk fer til að skemmta sér“ samtal við Sussan Sorrela. — 8: „Húmar hægt að kveldi" leik- rit Þjóðleikhússins. — 9: Miskunnsamur samverji (Rita Ólafíu Jóhannsdóttur minnzt i Noregi). — 10: Hlutfallskosningar eru runnar af rót réttlætishugsjónar — eftir Júlíus Havsteen. — 12:* Forustugreinin: 14. apríl — George Orwell — samvizka okk ar tíma (Utan úr heimi). —13: Tíbet og Tíbetþjóðin — sr. J4- hann Hannesson. — 17: Happdrætti S.Í.B.S. — 22: íþróttafréttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.