Morgunblaðið - 14.04.1959, Qupperneq 9
Þriðjudagtir 14. apríl §Í59
nfOXCfJNBLAÐIÐ
9
Miskunnsamur Samverji í
„undirheimum" Oslóborgar
Rita Ólafiu Jóhannsdóttur minnzf
i Noregi
t jólablaði norska blaðsins
„Várt land“ birtist grein um
hina þekktu trúkonu og mann
vin Ólafíu Jóhannsdóttur.
Greinin er eftir Helge Kefs-
um dómara í Björgvin, en
hann starfaði í lögreglunni í
Osló á yngri árum og kynnt-
ist Ólafíu þá náið. Hann hefur
gert sér mjög títt um íslenzk-
ar bókmenntir, einkum laga-
bókmenntir. Hér er birtur
kafli úr grein hans.
Það eru sennilega ekki margir
nú orðið, sem hafa sérlega margs
að minnast, þegar þeir sjá minn-
ismerkið um Ólafíu Jóhannsdótt-
ur eftir íslenzka myndhöggvar-
ann Kristin Fétursson í Vater-
land í Osló. Samt voru mikil há-
tíðahöld þegar það var afhjúpað í
Osló 26. júní 1930 — þegar þús-
und ára afmæli Alþingis íslend-
inga var hátíðlegt haldið á öll-
um Norðurlöndum. Þeir, sem
ekki eru á hraðri ferð fram hjá
munu verða þess áskynja að hér
er um að ræða höggmynd, sem er
ekki hlutlaus eftirlíking. Og ef
við nemum staðar andartak kem
ur það fljótlega í ljós, að við
stöndum frammi fyrir listaverki
sem hefur sögu að segja úm líkn-
arstarfsmann — sem aldrei ætti
að gleymast í sögu Oslóborgar.
Nú eru þeir fáir sem muna eft-
ir henni sem lifandi drætti í
mynd borgarinnar, en það var
hún einu sinni. Aldraðir lögreglu
þjónar, sem þekktu systur Ólaf-
íu og störf hennar í þágu utan-
garðsmanna samfélagsins, gátu
að minnsta kosti fram yfir árið
1940 sagt margar athyglisverðar
sögur um þessa merkilegu ís-
lenzku konu, sem hafði svo
mikla hæfileika til að hjálpa
hrjáðum íbúum Oslóborgar.
Margar af þessum sögum varpa
ljósglætu yfir einhvern myrk-
asta kaflann 1 norskri þjóðfélags
sögu. Til allrar hamingju nær sú
saga ekki til sérlega mannmargs
hóps.
Systir Ólafía leitaði uppi og
safnaði að sér þeim mönnum,
sem hún áleit hjálparþurfi. Hún
leitaði um göturnar í skugga-
hverfum borgarinnar í íslenzlsum
búningi sínum með silfurbelti um
mittið, skotthúfuna með langa
silkibrúskinn og hið mikla ljósa
hár í tveimur fléttum. Mörg af
„börnum hennar", eins og hún
kallaði þá sem nutu hjálpar henn
ar, hafa gefið ljósar lýsingar á
kvnnum sínum við „engil Ijóss-
ins“. Meðal lögregluþjónanna og
-þeirra sem hún hjálpaði gekk
hún venjulega undir gælunafn-
inu „ísland". Hvar sem hún fór
bar hún með sér ró og öryggi sem
vakti virðingu. í fasi hennar var
enginn asi eða óðagot, enda þótt
hún væri mjög athafnasöm að
eðlisfari.
Hjá henni var ekki að finna
neina leikaratilburði, hún sló eng
ar trúboðsbumbur, og hið hljóð-
láta hjálparstarf hennar bar eng-
in einkenni sjálfsánægjunnar.
Allur framgangur hennar ein-
kenndist af hlýju hjartalagi og
opinskárri vinsemd. Það voru
helzt hin gáfulegu, mildu og
máttugu augu hennar, sem
brenndu sig í vitund þeirra sem
kynntust henni í daglegum störf-
um. Andlit hennar bar svip vilja-
styrks, velvildar, gáfna og
menningar. Hún gekk örugg um
skuggalegustu öngstræti Osló-
borgar. Hvorki harðsvíraðasti
bófi né versti drykkjuræfill göt-
unnar lét sér detta í hug að ráð-
ast á þessa hugrökku velgerða-
konu. Komið gat fyrir að maður
sæi þessa beinvöxnu, velklæddu,
höfðinglegu, litlu og fjaðurmögn
uðu konu burðast með tvæt vatns
skjólur upp Akersbakken, en á
eftir henni staulaðist gamla kon
an, sem hún var að hjálpa, í ill-
færri hálkunni. Öðrum stundum
kom það fyrir að hún leiddi við
hönd sér útúrdrukkinn fjöl-
skylduföður, sem hafði ekki far-
ið beint heim að vinnu lokinni.
Oft voru það heiðvirðir verka-
menn, sem hún fylgdi þannig
heim til að fórðá þeim frá hánd-
töku fyrir ölvun á almannafæri,
en það hefði bakað þeim bæði
smán og mikil fjárútlát. Ólafía
var nákunnug kjörum almúgans,
Ólafía Jóhannsdóttir.
striti hans og sorgum. — Hún átti
eðiislægan hæfileika til sálkönn-
unar og samúðar með þeim sem
verst voru á vegi staddir. Það
voru þeir sem hún vildi helzt
hjálpa. Þess vegna voru Karl
Johan og göturnar, sem fínu kon-
urnar ganga, ekki hennar eigin-
legi vettvangur. Málarinn Christ-
ian Skredsvig sagði eitt sinn:
„Næst Kristi þekki ég enga mann
eskju göfugri og hreinni til sál-
ár og sinnis en systur Ólafíu". Og
Redvald Larsen yfirlögreglu-
þjónn var þeirrar skoðunar, að
hefði norska kirkjan átt dýrl-
inga, þá væri systir Ólafia mésti
kvendýrlingur Noregs.
í hinum stóru norsku alfræði-
orðabókum er Ólafíu Jóhanns-
dóttur að sjálfsögðu getið. Þar er
henni venjulegá lýst sem íslenzk
um mannvini og rithöfundi.
Vinkona hennar og samverka-
kona, Inga Björnson, hefur
skrifað um hana í „Norsk Bio-
grafisk Leksikrn", og í „Norveg-
ia Sacra“ fyrir árið 1924 ritar K.
O. Kornelius dómprófastur ýtar-
lega lýsingu, sem nefnist „Systir
Ólafía Jóhannsdóttir (1863—
1924)“. Mirjan Devold hefur gef-
ið út bók um hana, og síðustu út-
gáfurnar af bók Ölafíu, „De
ulykkeligste. Livsskildringer fra
Oslo“, hafa flestar að geyma yf-
irlit yfir ævi hennar.
í fyrra (1957) kom út hjá for-
laginu „Hlaðbúð“ í Reykjavik
verkið „Ólafía Jóhannsdóttir. Rit
I. Frá myrkri til ljóss. Endur-
minningar. Inngangur eftir
Bjarna Benediktsson. Rit II. Aum
astar allra“. Hér er um að ræða
verk, sem verðskuldar norska
þýðingu. Þetta er falleg bók,
myndskreytt af íslenzkum lista-
konunni Barböru Árnason.
Bókin hefst á stuttri, efnismik-
illi og vel gerðri lýsingu á ævi
Ólafíu. Hún er skrifuð af lög-
fræðingnum, háskólakennaran-
um og stjórnmálamanninum
Bjarna Benediktssyni alþingis-
manni. Því næst koma endur-
minningar Ólafíu, sem ná fram
til 1904. Systir hennar, Svein-
björg Jóhannsdóttir, hefur skrif
að viðauka, sem er nokkrar blað-
síður. Hann dregur upp næi'-
færna mynd af sérkennum þess-
ara tveggja hæfileikakvenna.
Ættartölurnar eftir Sigurð Bald-
ursson héraðsdómara segja frá
dreifðri ætt, sem hefur komið
miklu til leiðar bæði á íslandi,
í Bandaríkjunum og Kanada.
Seinna bindi verksins er sjötta
útgáfa á „Aumastar allra“. Fyrsta
útgáfan kom út í Osló árið 1916,
en fimmta útgáfa var prentuð í
Osló árið 1947. Bók Ólafíu var
þýdd á ensku og gefin út í Tor-
onto í Kanada árið 1936 undir
nafninu „The Waiting Shadow".
Einnig hafa kaflar úr bókinni
verið þýddir á þýzku. í Osló var
bók Ólafíu á sinn hátt boðskapur,
sem hafði djúp áhrif á ákveðinn
lesendahóp, á sama hátt og ,A1-
bertine" eftir Christian Krogh og
bækur Hans Jægers höfðu á sín-
úm tíma gertæk áhrif á þá hópa
sem höfðu bókmenntaáhuga.
Margir þeir, sem voru fjarlægir
trúarlífi og öllum trúarflokkum,
lásu bókina, og hún vakti sam-
vizku þeirra. Að formi til er
bókin blátt áfram, en þar er engu
orði ofaukið. Kennslukonur í Osló
lásu oft úr henni fyrir stúlkna-
bekkina í skólunum til að vekja
með stúlkunum félagslega ábyrgð
artilfinningu og leiða þeim fyrir
sjónir, hve ill og hörð voru kjór
þeirra, sem lentu í ógæfu. Ólafía
segir sjálf um bók sína: „Þessar
ævilýsingar eru ekki til orðnar
í því skyni að fullnægja þörf
minni eða hæfileikum til að
skrifa, því ég get af hvorugu
státað, en innri nauðsyn hefur
knúið mig til að vinna þetta verk,
sem oft hefur verið mér ástríða".
Systir Ólafía gat skrifað um
það sem hún hafð. séð og reynt.
Hún hafði ótvíræðan hæfileika
til að skrifa. Hún var komin af
mjög merkri stórætt, sem hefur
alið marga duglegar konur og
menn og einnig skáld, sem skap.
að hafa sér nafn í norrænum bók-
menntum og í heimsbókmennt-
unum. Einn af ættfeðrum hennar
er skáldið Egill Skallagrímsson.
Ljóðskáldið Einar Benediktsson
og Ólafía voru systkinabörn.
Talið er ’ 'æði is „Snjáka". sé
ort til hennar og um hana.
Hafnarfjörður
4ra herb., sem ný og vönduð
rishæð við Hringbraut, til sölu.
I íbúðinni eru öll þægindi. Tvö
fallt gler og svalir. Fallegt út-
sýni. Laus 14. maí.-Uppl. í
síma 50418. —
Sá sem getur útvegað
tveim konum eiirihvers konar
létta vinnu, 3—5 tíma á dag, t.
d. heimavinnu, getur fengið
leigt 1 rúangott herbergi með
eldunarplássi, og öðrum þæg-
indum. Tilb. merkt: „Vinna —
5925“, sendist blaðinu fyrir 18.
þessa mán.
Z. O. G. T.
St. Dröfn nr. 55.
Fundur í kvöld kl. 8,30. — Kosn
, ing og innsetning embættis-
j manna. — Kosning fulltrúa á um
, dæmisstúkuþing. — Hagnefndar
atriði G. M.
Æ. T.
Stúkan Verðandi nr. 9.
Fundur í kvöld kl. 8,30.
I. Inntaka nýliða.
II. Innsetning embættis-
manna.
III. Upplestur.
Æ. T.
Somkomar
Fíladelfía:
Biblíulestur kl. 8,30..
K. F. U. K. a. d.
Bibliulestur í kvöld kl. 8,30. —
Bjarni Eyjólfsson ritstjóri.
Allt kvenfólk velkomið.
SÓLÓ-mótor
5 hestafla, 2ja cyl. ný uppgerð
ur, er til sölu með öllu tilheyr-
andi. Tseki færisverð. Upplýs-
ingar í síma 1-30-14.
Óska eftir
ráðskonustöðu í bænum, í vor.
Helzt hjá 1—2 mönnum. — Er
einhleyp. Allar uppl. í samtali.
Tilboð sendist Mbl. til 20. þ. m.,
merkt: „Gott samband —
5928“. —
Húseigendur
Smíða eldíhúsinnréttingar, inn-
byggða klæðaskápa o. fl. Vönd-
uð vinna. Sanngjarnt verð. —
Sími 24950. —
Taða til sölu
Upplýsingar í síma 22994 eftir
kl. 6 síðdegis.
Hjúkraleikfimiskena
óskar eftir herbergi, helzt með
útsýni yfir Esjuna. Tillboð
leggist inn á blaðið sem fyrst,
merkt: „5926“.
Sem nýr Pedegree
barnavagn
til sölu. Stærri gerðin. Á Loka-
stíg 10, uppi, til hægri.
Leikfangagerð
sem framleiðir plastik-leikföng,
tii sölu. Upplýsingar 9—12 í
síma 17350 og 1—4 í Templ-
arasundi 3, 1. hæð.
Ameríkani, giftur islenzkri
stúlku, vantar 3—4ra herb.
í BÚÐ
á góðum stað í bænum eða út
fyrir bæinn, á góðum stað fyr-
ir börn. Uppl. í síma eftir kl.
6. Fyi i i' f ramgrei ðsl a ef óskað
er. — Sími: 22973.
Bakaraofn
„Rafha“4>akaraofn fyrir brauð
gerðaihús, 2x4 plötu, til sölu. —
Upplýsingar í síma 19795.
meðal-stórt, til leigu, á góðum
stað nálægt Miðbænum. (Hent-
ugt fyrir brauðbúð t. d.). Tilboð
sendist afgr. blaðsing fyrir
laugardagskvöld, merkt: —
„Meðal^stór — 5931“.
Stúlka
eða eldri kona óskast til eld-
hússtarfa. Upplýsingar í skrif-
stofunni. —
HÓTEL VÍK
Tilboð óskast i lót
851,62 ferm., á góðum stað í
Hafnarfirði. Tilboð leggist í
pósthólf 27, Hafnarfirði, merkt
„Lóð“. —
Lauguveg 1
IBÚÐ
2ja herbergja íbúð óskast. —
Upplýsingar í síma 35736 eða
14775, frá 1—8 e.h.
ÍBÚÐ
Fámenn fjölskylda óskar eftír
góðri 4ra—5 herbergja íbúð.
Fyrirframgreiðsla, ef óskað er.
Tilboð merkt: „Fyrirfram-
greiðsla — 5987“, sendist MW.,
fyrir 20. þ.m.
Takið eftir
Saumum tjöld á barnavagna. —
Höfum SiIver-Cro»s barnavagna
tau og dúk. Vönduð vinna. —
Öldugötu 11, Hafnarfirði. —
Sími 50481. —
Fullorðin einbloyp hjón óslka
eftir 2—3 lierbergja
ÍBÚÐ
1. maf. Vinna bæði úti. Upplýs
ingar í síma 10859 eftir kl. 7 1
kvöld. —
Regluama stúlku í góðri at-
vinnu, vantar litla
íbúð
helzt í Hlíðunum, þó ekki skil-
yrði. Upplýsingar í síma 14557,
til kl. 6. —
Snið kennsla
Kenni að taka mál og sníða
dömu- og barnafatnað. Nám-
skeið í dag- og kvöldtímum.
Bergljót Ólafsdóttir.
Laugamesvegi 62. Sími 34730.
T rillubátur
Trillubátur 214 tonn, til sölu.
Vél og bátur í mjög góðu lagi.
Uppl. í síma 737 og eftir kl. 19
í sima 117, Keflavíik.
I ii leigu óskast
2ja til 3ja herb. íbúð á 1. ann-
ari hæð, í góðu húsi, ekki langt
frá Miðbæ, fyrir eldri hjón,
barnlaus. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Uppl. í síma 14951,
19090. —
Reglusöm kona óskar eftir
VINNU
hálfan daginn. Helzt við af-
greiðslustörf. — Upplýsingar
í sínra 334C9. —