Morgunblaðið - 14.04.1959, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 14. apríl 1959
MORGVWnr. AÐIÐ
23
Minkur unninn við Eldvutn
Ekki vitað til, að minkur hafi áður
komizt austur fyrir Mýrdalssand
Kirkjubæjarklaustri, 13. apríl.
í sl. mánuði varð bóndinn á
Hnausum í Meðallandi, Eyjólfur
Eyjólfsson, hreppstjóri, var við
för eftir dýr, sem hann kannaðist
ekki við. Lágu förin meðfram
Eldvatni, en voru þó einkum
greinileg í kringum læk einn,
sem í það fellur móts við eyði-
býlið Feðga.
Eyjólfur gerði veiðistjóra að-
vart um för þessa, því að hann
grunaði þegar, að minkur væri
— Einn af
foringjum
Framh. af bls. 1.
hann segði þegar af sér borgarfull
trúaembættinu. Heising féllst á
það.
Enn liðu nokkrir dagar án þess,
að Heising sendi bréf til borgar-
stjórnar, þar sem hann segði af
sér borgarfulltrúaembættinu.
Greip borgarstjórnin þá til þess
ráðs að víkja honum úr stöðunni.
Nokkru síðar tilkynnti forseti
danska þjóðþingsins, að Villy
Heising myndi láta af þing-
mennsku.
Villy Heising hefur frá æsku
verið í danska Jafnaðarmanna-
flokknum. Hann hefur verið bæj-
arfulltrúi í Kaupmannahöfn síð
an 1936 og fulltrúi í bæjarráðinu
síðan 1945. Sama ár varð hann
meðlimur í miðstjórn danska
Jafnaðarmannaflokksins og 1954
varð hann varaformaður flokks-
deildarinnar í Kaupmannahöfn.
Hann er verkfræðingur að
menntun og starfaði í hafnar-
nefnd Kaupmannahafnar og var
yfirleitt áberandi maður í flokks
deild Jafnaðarmanna í Khöfn.
I>ess var vænzt að hann yrði borg
arstjóri í framtíðinni. Hann er
54 ára. Eftir að upp um hann
komst hefur hann legið sjúkur,
bilaður á taugum.
Þetta er annað meiriháttar
hneykslið innan danska Jafnaðar
mannaflokksins á tiltölulega stutt
um tíma. Hitt hneykslið var,
hvernig Blechingberg njósnari
fékk ábyrgðarmikil embætti í
utanríkisþ j ónustinni.
HILMAR FOSS
lögg.dómt. og skjalaþýð.
Hafnarstræti 11. — Sími 14824.
SVEIiNBJÖRN DAGFINNSSON
EINAR VIÐAR
Málflutningsskrifstofa
Hafnarstræti 11. — Sími 19406.
kominn í sveitina. Kom veiði-
stjóri austur í Meðalland fyrir
síðustu helgi og hafði með sér
veiðihund.
Reyndist grunur Eyjólfs bónda
réttur, því að í gær fannst mink-
ur með aðstoð hundsins nálægt
fyrrgreindum slóðtvm. Tókst
veiðistjóra að vinna minkinn.
Ekki er vitað til þess, að mink
ur hafi fyrr komizt austur fyrir
Mýrdalssand og ekki er heldur
vitað. hvort þeir hafa verið þarna
fleiri saman. Þó mun veiðistjóra
hafa sýnzt margt benda til þess,
að þarna hafi verið um eitthvert
fiökkudýra að ræða.
Er því ekki vonlaust um, að
þessar sveitir hér eystra verði
lausar við minkapláguna enn um
stund, þó að þetta dýr væri þarna
á ferli. G. Br.
EINN af gæzluföngunum í „kjall-
ara“ lögreglustöðvarinnar gerði
í gærkvöldi tilraun til þess að
kveikja í fangageymslunni. Var
slökkvilið kallað á vettvang.
Þetta gerðist um kl. 5.40. Varð
fangavörðurinn þess var að eld-
ur var kominn upp í klefa nr. 4.
Þar inni var þá rúmlega þrítugur
maður, sem mjög oft gistir þenn-
an stað og á líklega hvergi sama-
stað hér í bænum. Fangageymsl-
urnar voru allar tæmdar í snatri
og farið með fangana upp á varð
stofuna.
Kirkjudagur
HÚSAVÍK, 13. apríl. — Kirkju-
dagur Húsavíkursóknar var hald
inn í gær og hófst kl. 2 síðd. með
messu í kirkju bæjarins og
prédikaði sr. Friðrik A. Friðriks-
son, en hann og séra Pétur Sig-
geirsson, Akureyri, þjónuðu fyrir
altari. Á eftir messu flutti for-
maður sóknarnefndar, Sigurður
Gunnarsson, ávarp, kirkjukórinn
söng og sr. Pétur Siggeirsson
flutti erindi um æskulýðsstarf
þjóðkirkjunnar. Síðan var sam-
koma í samkomuhúsinu og flutti
þar ávarp Finnur Kristjánsson
kaupfélagsstjóri, kirkjukórinn
söng undir stjórn séra Friðriks,
Sigurðar Hallmarssonar og Ingi-
mundar Jónssonar. Pétur Sigur-
geirsson sýndi og skýrði lit-
skuggamyndir frá Grímsey og frá
alþjóða lúthersku kirkjuþingi í
Ameríku á s.l. sumri, og þá frá
æskulýðsstarfi þjóðkirkjunnar á
Akureyri. Þá skemmti Karlakór-
inn Þrymur, undir stjórn Sigurð
ar Sigurjónssonar og sr. Friðrik
las kvæði. — SPB.
Slökkviliðsmenn komu brátt á
vettvang og urðu þeir að rífa
timburklæðningu frá vegg til að
komast að eldinum. Urðu
skemmdir litlar og greiðlega
gekk að kæfa eldinn.
Það kom í ljós að fanganum í
klefa nr. 4, hafði með einhverj-
um hætti tekizt að komast með
eldspýtur inn í kléfann, því lög-
reglumenn fundu á gólfinu nokkr
ar útbrunnar eldspýtur.
í gærkvöldi voru svo kjallara-
fangar allir fluttir upp í Stein
og þar átti að hafa þá í nótt.
SINFÓNlUHLJÓMSVEIT lSLANDS
Tónleikar
í Þjóðleilrhúsinu þriðjud. 14. apríl kl. 8,30 síðd.
Stjórnandi Páll Pampichler.
Emleikari Klaus-Peter Doberitz.
Viðfangsefni eftir Handel, Boccherini, Benjamin Britten
og Artur Michl.
Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu.
SiálfstœSisfélögin
í Rangárvallasýslu
ikveikjutilraun í fanga-
geymslu lögreglunnar
Gísli Einarsson
héruSsrl-Sinslögma Jur.
MáUlulningsskrifstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
efna til fundar að Hellu, laugardaginn 18. þ.m. kl.
9 e.h. — Á fundinum verða tekin fyrir venjuleg
aðalfundarstörf, kosin stjórn og fulltrúaráð.
Ennfremur verður gengið frá famboðslista fyrir
næstu kosningar.
Ingólfur Jónsson, alþingismaður, hefur framsögu
um kjördæmamálið og stjórnmálaviðhorfið.
Allir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins velkomn-
ir á fundinn.
Stjórnir Sjálfstæðisfélaganna.
Mínar innilegustu þakkir og kærar kveðjur sendi ég
öllum þeim, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum
og heillaskeytum á sextugsafmæli mínu 9. þ.m.
Helgi Kr. Helgason.
Öllum ættingjum og vinum, starfssystrum í Kvenfélagi
Hallgrímskirkju og félögum í stúkunni Framtíðin, votta
ég innilegustu þakkir fyrir auðsýndan góðhug, gjafir og
heillaskeyti á sextugsafmæli mínu, þann 6. þ.m.
Anna Bjarnadóttir, Kjartansgötu 5, Rvík.
Hjartanlega þakka ég þeim er glöddu mig fimmtuga.
Ingibjörg Jónsdóttir
Torfastöðum.
Austin 8 '46 til sölu. — Þarfnast viðgerðar. Upplýsingar í síma 35899. — Einhleypur karlmaður óskar eftir tveimur herbergjum og eldhúsi sem fyrst. Tilboðum skal skila fyrir fimmtudagskvöld, merkt: „A-16 — 5992“.
Maðurinn minn
AXEL SCHIÖTH
fyrrum bakarameistari, andaðist í súkrahúsi Akureyrar
hinn 13. apríl.
Margrét Schiöth.
Tengdasonur okkar
RALPH VINCENT BENSON
andaðist 6. apríl í sjúkrahúsi í Long Beach, Calif.
Jarðarförin hefur farið fram.
Fyrir hönd eiginkonu og barna.
Anna S. Jónsdóttir, Þorgils Guðmundsson.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir
GUNNAR SIGURÐSSON
lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 13. þ.m.
Guðbjörg Þ. Kristjánsdóttir, börn og fósturdóttir.
Eiginmaður minn
ÞORVALDUR GUÐJÓNSSON
skipstjóri frá Vestmannaeyjum, andaðist í Landsspítal-
anum að morgni 13. þ.m.
Fyrir hönd vandamanna.
Klara Guðmundsdóttir.
Faðir og tengdafaðir okkar
JÓN EINAR JÓNSSON
prentari,
andaðist að Elliheimilinu Grund, sunnudaginn 12. apríl.
Böm og tengdabörn.
Hjartkær eiginmaður minn
ERNST SCHICKLER
andaðist í Köln, laugardaginn 11 .apríl. Jarðarförin er
ákveðin n.k. fimmtudag.
Villa Jónsdóttir Schickler.
Bróðir okkar
MAGNÚS magnússon
frá Hafnarhólmi,
andaðist á heimili sínu í Winnipeg Kanada 6. þessa
mánaðar.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Eymundur Magnússon skipstjóri
Bárugötu 5.
Þökkum hjartanlega öllum þeim sem sýndu samúð og ■
vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður og afa.
JÖNS BJÖRNS ELfASSONAR
skpistjóra,
Jóhanna Stefánsdóttir,
böm, tengdabörn og barnabörn.
Öllum nær og fjær, sem sýndu okkur vinsemd og
samúð við andlát og jarðarför
ÞÓRÓLFS G. INGÓLFSSONAR
offsetprentara,
færum við okkar innilegasta þakklæti, en þó sérstaklega
húsbændum hans í Litbrá, læknum og hjúkrunarliði í
Bæjarspítalanum.
Guð blessi ykkur öll.
F.h. aðstandenda.
Uimur Bergsveinsdóttir, Dagný Þórólfsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginmanns míns, föður og tengdaföður
EVJÓLFS JÓHANNSSONAR
Helga Pétursdóttir,
Ingibjörg Eyjólfsdóttir,
Ásthildur Finlay,
Elísahet Markúsdóttir,
William A. Finlay,
Jóliann Eyjólfsson.