Morgunblaðið - 14.04.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ
Allhvass norðaustan. Léttskýjað.
ot!0vmií>Xa
83. tbl. — Þriðjudagur 14. apríl 1959
T íbet og Tíbetþjóðin
Sjá bls. 13
Fyrsti
okurmáladóm-
Hæstarétti
unnn l
Brandi Brynjólfssyni gert að greíðo
rúmlega 750,000 krónur
t GÆRDAG gekk dómur í Hæsta
rétti í hinu fyrsta svonefnda
„okurmáia" og er það dómur í
máli því er ákæmvaldið höfðaði
gegn Brandi Brynjólfssyni lög-
fræðingi Baldursgötu 12, hér í
bæ fyrir okurstarfsemi. Hæsti-
réttur staðfesti í öllum meginat-
riðum dóm undirréttar er dæmdi
Brand Brynjólfsson í 570,000 kr.
sekt til ríkissjóðs. Hinn óiöglegi
ágóði var og gerður upptækur,
en sú fjárhæð er rúmlega 140,000
krónur. Loks var lögfræðingnum
gert að greiða allan málskostnað
fyrir Hæstarétti.
Þetta mál Brandar Brynjólfs-
sonar er mjög mikið að vöxtum.
21 þús. manns sáu
*
Asgrímssýninguna
SL. sunnudagskvöld 'lauk Ás-
grímssýningunni í Listasafni rík-
isins. Allan þann dag var stöð-
ugur straumur fólks, enda veður
mjög gott. Munu hafa skoðað
hana þann dag um 2 þúsund
manns.
Sýningargestir voru 21 þúsund
þessar þrjár vikur sem sýningin
var opin og mun það vera metað-
sókn á maive''kasýningu hérlend
Eins og það var lagt fyrir dómend
ur Hæstaréttar, var það í „tveim
bindum“, alls 289 vélritaðar folíó
síður. f undirrétti eru málavextir
og dómsforsendur raktar á rúm-
lega 40 fólíosíðum. Staðfestingar
dómur Hæstaréttar er aftur á
móti mjög stuttur.
Ákæruatriðin á hendur Brandi
Brynjólfssyini eru alls 16 og tru
sum þeirra í allmörgum liðum.
Brandur Brynjólfsson var tal-
inn hafa gerzt brotlegur í við-
skiptum sínum við forstjóra fyrir-
tækisins Ragnar H. Blöndal h.f.
en það var Gunnar Hall. í>á var
Brandur talinn hafa gerzt sekur
um okurviðskipti við nokkra ein-
staklinga aðra, en þeir höfðu
leitað til svonefndrar okurnefnd-
ar sem kjörin var af alþingi 1955.
Hinir ólöglega teknu og á-
skildu vextir er Brandur hafði
tekið, námu alls kr. 142,488,60.
Lög heimila að sektarupphæð
skuli nema 4—25 síhnum hærri
upphæð en hinn ólöglegi hagnað
ur okrarans nemur. Var Brandur
dæmdur í lágmarkssekt og nemur
hún 570,000 krónum og skal hún
ganga til ríkissjóðs. í undirrétti
var Brandi settur 4 vikna
greiðslufrestur á sektarupphæð-
inni og staðfesti Hæstiréttur þann
frest, og að verði hún eigi greidd
þá, komi varðhald í eitt ár.
í Hæstarétti var Brandur Brynj
ólfssyni gert að greiða alls 40,000
krónur í málskostnað.
Samanlögð fjárhæð sem Hæsti-
réttur dæmdi Brand til greiðslu
á, nemur kr. 752.488,60.
Mynd þessi var tekin austur á Þykkvabæjarfjöru, síðdegis á
töstudaginn, er björgun Gulltops var að komast á lokastigið.
Goo veiði
í nælonnetin
GJÖGRI, 9. apríl. — Suðvestan-
átt var ríkjandi hér nær allan
marzmánuð, og var þá yfirleitt
hlýtt mjög í veðri, enda tún tek-
in að grænka. — Hinn 4. apríl
hljóp hann svo í norðanátt með
snjókomu og frosti, og hefir svo
haldizt síðan.
Ágæt rauðmagaveiði hefir ver
ið hér undanfarið og sæmileg
grásleppuveiði í nælonnet, en
þau hafa ekki verið notuð hér
fyrr en nú. Hafa sex slík net ver-
ið í sjó hér að undanförnu, og
hefir fiskazt vel í þau, þótt nær
ekkert hafi fengizt í hin venju-
legu net. Eru þegar komnar 16
tunnur af fullverkuðum hrogn-
um, og er það óvenjumikið svo
snemma vors. — Regína.
Báturinn var dreginn 80 m
áður en hann varð dreginn
Vel heppnaðri björgun Culltopps lokið
sandi
i flot
ÞYKKVABÆ, 1?. apríl. — Eftir
rúmlega fimm sólarliringa linnu-
laust björgunarstarf við vélbát-
inn Gulltopp, sem strandaði hér
á sandinum beint fyrir neðan
Þykkvabæ, tókst á sunnudags-
morgun að ná honum á flot aftur
og gat báturinn siglt hjálparlaust
til Vestmannaeyja.
Aðfaranótt þriðjudagsins var
hófst sjálft björgunarstarfið. Var
það Björgun hf., sem það annað-
ist á vegum tryggingarfél. Sam-
ábyrgðar íslands á fiskiskipum.
— Báturinn var kominn um 80
m leið upp í sandinn frá fjöru-
borði. Mjög hafði sandurinn
hreyfzt síðan bátnum var bjarg-
að undan sjó, nokkrum dögum
eftir strandið. Hafði hlaðið svo
miklum sandi að bátnum, að
Undiriéttardómur i Tungufossmálinu:
24 menn dœmdir í 1,4 millj. kr. sekt
í Menningarsjáð fyrir áfengissmygl
í SAKADÓMI Reykjavíkur hefur
verið kveðinn upp dómur í máli
25 manna í hinu svonefnda Tungu
foss-máli, stórfelldasta áfengis-
smygli síðan á bannárunum. Að-
eins einn þessara manna var sýkn
aður, en hinir hlutu allir sekt-
ardóm. Nemur hin samanlagða
sektarupphæð rúmlega 1,4 millj.
kr. Árdegis í gær sendi saka-
dómaraembættið út eftirfarandi
fréttatilkynningu um málið:
„Árvekni tveggja götulögreglu-
manna, Borgþórs Þórhallssonar
og Kristins Óskarssonar, leiddi til
þess, að uppvíst varð að kvöldi
Keflavik - Suðurnes
SKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokks-
Ins á Suðurnesjum hefur verið
opnuð í Sjálfstæðishúsinu í
Keflavík. Fyrst um sinn verður
skrifstofan opin frá kl. 10—5,
sími 21.
Sjálfstæðismenn í Keflavík og
á Suðurnesjum eru hvattir til að
leita til skrifstofunnar varðandi
flokksstarfið fyrir væntanlegar
alþingiskosningar.
Sjálfstæðisfélögin
á Suðurnesjum.
27. ágúst 1958 um stórfelldasta á-
fengissmygl síðan á bannárunum.
Lögreglumenn þessir handtóku þá
tvo menn hér í Reykjavík, sem
fluttu með sér á bifreið 770 lítra
af spíritus. Síðar þetta kvöld
lagði götulögreglan hald á 410 1.
til viðbótar. Rannsókn hófst þeg
ar í málinu á vegum rannsóknar-
lögreglu og daginn eftir hófst
dómsrannsókn í tnálinu. Spíritus
inn var rakinn til skipverja á m.s.
Tungufossi, sem hafði komið frá
útlöndum til Reykjavíkur laust
fyrir miðnætti 25. ágúst. Rann-
sóknin reyndist æði umfangs-
mikil og náði til fleiri lögsagnar-
umdæma. Upplýsingar fengust
um eldra smygl Tungufoss-
manna. í ljós kom, að Tungufoss-
menn höfðu í þremur ferðum
skipsins vorið og sumarið 1958
smyglað inn spíritus til sölu. Að-
ferðin var ætíð sú sama: Bátur
var leigður, honum siglt til móts
við m.s. Tungufoss súnnan Reykja
ness, þar sem Tungufoss-menn
vörpuðu spíritusnum í sjóinn, án
þess að dregið væri úr ferð skips
ins eða stefnu breytt, bátsverjar
hirtu upp spíritusinn og komu
honum á land í Grindavík, Höfn-
um og Kópavogi, þar sem hann
var settur á vörubíl og ekið til
Reykjavíkur. Kaupendur spíri-
tussins voru einkum leigubílstjór
ar.
Ekki fengust óyggjandi sann-
anír fyrir heildarmagni þess spíri
tuss, sem smyglað var til landsins
í þessum þremum ferðum m.s.
Tungufoss.
Undir rannsókn málsins var
lagt hald á 1585 lítra spirituss og
er þá með talið það, sem götu-
lögreglan lagði hald á í fyrstu
lotu. í gæzluvarðhald voru úr-
skurðaðir 18 menn. Sátu þeir í
haldi frá 2 til 13 daga hver mað
ur. öllum þeim skipverjum, 16
talsins sem sannaðist, að viðriðnir
væru smyglið, sagði útgerð m.s.
Tungufoss upp starfi.
Inn í málið drógust ýmsir menn,
sem höfðu veitt aðstoð við smygl
ið eða átt viðskipti við smyglar-
ana. Málum 7 slíkra aðstoðar- og
viðskiptamanna var lokið með
dómssáttum í desember 1958 og
janúar 1959. Hlutu þessir menn,
hver um sig, sektir, er námu frá
kr. 200,00 til kr. 4000,00.
Ákæruskjal var gefið út 10. jan
úar 1959. Voru 25 menn sóttir til
saka fyrir þátttöku í málinu. Dóm
ur gekk í málinu í sakadómi
Reykjavíkur 9. apríl 1959. Einn
hinna kærðu var sýknaður, en 24
hlutu sektardóm, frá kr. 2000,00
til kr. 180.000.00 hver maður. Sam
tals nema sektirnar samkvæmt
dóminum og dómsáttunum kr.
1.448.200,00 Sektirnar renna í
Menningarsjóð.
Ólöglegur hagnaður nam sam-
tals kr. 189.166.76. Var hann gerð
ur upptækur til ríkissjóðs, ásamt
6% ársvöxtum. 1585 lítrar af spíri
tus voru gerðir upptækir til ríkis
sjóðs.
Dómfelldir fengu hálfs-mánað-
ar frest til að segja til um á-
frýjun.“
raufin, sem gera þurfti frá fjöru-
borði og að honum, var um 3
metra djúp uppi við bátinn og
25—30 m breið, en honum var
rennt á hlið niður í fjöruborðið.
Björgunarstarfið var sem sé í
því fólgið að láta ýtur ryðja
braut fyrir bátinn, setja undir
hann „sliskjur" og draga hann á
þeim fram í sjó. Var það mjög
öflugur trukkur með vindu sem
dró bátinn fram.
Hvíldarlítið var unnið daga og
nætur, og var um 20 manna
vinnuflokkur við björgunarstarf-
ið, sem var seinunnið, meðfram
af því, að sandrok var mikið alla
dagana.
Þegar Gulltoppur var kominn
í sjó fram, var dráttarvír settur
úr bátnum yfir í gæzluskipið
Fanney, sem hefur verið Vest-
mannaeyjabátum til aðstoðar eft-
ir að Hermóður fórst. Einnig var
Vonarstjarnan frá Vestmanna-
eyjum til aðstoðar, en skipin
reyndust ekki nógu öflug til að
geta náð bátnum út, svo ákveðið
var að biðja varðskipið Þór að
koma á vettvang. I annarri til-
raun, um klukkan 8,30 á sunnu-
dagsmorgun, tókst Þór að draga
Gulltopp á flot. Voru þá um borð
í bátnum m. a. skipstjórinn, Sig-
fús Guðmundsson, og vélamaður-
gang, er báturirin var kominn á
flot. Var síðan siglt til Vest-
mannaeyja án nokkurrar frekari
aðstoðar. Er Gulltoppur mjög
lítið skemmdur og hefur björgun
bátsins tekizt mjög vel. Mun Gull
toppur vera 37. báturinn, sem
Björgun hf. nær á flot. Báturinn
mun hafa verið tekinn í slipp í
Vestmannaeyjum í morgun.
Framkvæmdastjóri Björgunar,
Kristinn Guðbrandsson, hefur
beðið Mbl. að færa Þykkbæing-
um sem að björgun bátsins störf
uðu, sérstakar þakkir fyrir ein-
stakan dugnað og ósérhlífni í
starfi við svo erfiðar aðstæður
sem á sandinum voru þessa daga.
— Magnús.
inn, sem setti vél bátsins þegar í ið til.
Cervi-vandamál
NORFOLK, Virginíu, 6. apríl. —
NTB-Reuter. — Formaður ráð-
herranefndar Atlantshafsbanda-
lagsins, hollenzki utanríkisráð-
herrann Luns, sagði á fundi við
fréttamenn í dag, að væru Sovét-
ríkin reiðubúin til að slaka eitt-
hvað til í Berlínarmálinu, þá
væri hugsanlegt að Vesturveld-
in hefðu líka eitthvað að gefa.
Hins vegar lagði hann áherzlu á,
að Berlínarmálið væri gervi-
vandamál, sem Rússar hefði bú-
Friðrik vann Lutikov
FRIÐRIK Ólafsson vann sína
fyrstu skák á mótinu á laugardag,
er hann í 5. umferð átti við Rúss-
ann Li.tikov, sem lék drottningar
peði. Friðrik breytti slavneskri
vörn og segir í skeyti frá Tass
fréttastofunni, að byrjun Friðriks
hafi verið athygiisverð. Friðrik
vann peð í 30. leik og hratí
nokkru síðar öllum sóknarmögu-
leikum Rússans og vann eftir 50
leiki. Þetta er fyrsta skák mótsins,
sem vinnst á svart.
Önn -• .'i jlit í 5. umferð: Dr.
Filip og Smyslov, Spassky og
Milev gerðu jafntefli, en bið-
skákir voru hjá Vasiukov og
Aronin, Larsen og Bronstein,
Simagin og Pcrtisch. Biðskákir
úr fyrri umferðum: Skák þeirra
Aronins og Smysiovs úr 1. umf.
varð jafntefli. í þriðju umferð
gerði Larsen jafntefli við Sim-
agin og í 4. umfeið gerði Aronin
jafntefli við Spasskv. Eftir fimm
umferðir er Rússinn Smyslov
efstur með 3% vinning, í öðru
og þriðja sæti eru landar hans
Aronin og Bronstein með 214 v.
og eina óútkljáða skák hvor, í
fjórða til sjöunda sæti þeir Frið-
rik, Tékkinn Filip, Búlgarinn
Milev og Rússinn Spassky, sem
hafa hlotið 214 vinning hver,
Rússinn Vasiukov er áttundi með
2 vinninga og eina biðskák, í
níunda og tíunda sæti þeir Larsen
og Ungverjinn Portisch með 114
vinning og tvær biðskákir hvor.
Rússinn Simagin er ellefti með
114 vinning og eina biðskák.
Landi hans Lutikov rekur lestina
með einn vinning.
Friðrik á biðskák
við Filip
MOSKVU, 13. apríl. — Skákin
milli Friðriks Ölafssonar og Fil-
ips í 6. umferð taflmótsins fór í
bið. Aðrar skákir í þessari um-
ferð fóru svo: Spassky vann
Vasiukov. Jafntefli varð í skák-
um milli Smyslovs og Larsens,
Bronsteins og Simyagins, Milevs
og Portis. Skák milli Aronins og
Lutikovs fór í bið.
I dag voru og tefldar biðskák-
ir milli Larsens og Bronsteins,
Vasiukovs og Aronins og milli
Simyagins og Portis, en urðu all-
ar að fara aftur í bið.