Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 4
4 MORGIÍNBLAÐÍÐ Þriðjudagur 21. apríl 1959 í dag er 111. dagur ársins. Þriðjudagur 21. apríl. Árdegisflæði kl. 3:46. Síðdegisflæði kl. 16:12. Heilsuverndarstöðin er opin all an sólarhringinn. Læknavörður L.R. (fyrir vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8. — Sími 15030. Helgidagavarzla er í Laugavegs- apóteki. Nælurvarzla vikuna 19.—25. apríl er í Laugavegsapóteki, sími 24047. Holts-apótek og Garðs-apótek eru opin á sunnudögum kl. 1—4 eftir hádegi. Hafnarfjarðarapótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugar- daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi- dag kl. 13—16 og kl '9—21. Næturlæknir í Hafnarfirði er Kristján Jóhannesson, sími 50056. Keflavíkur-apótek er opið alla virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16. Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9 er opið daglega kl. 9—20, nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Sími 23100 □ EDDA 59594217 — 1 Frl. I.O.O.F. = Ob. 1 P = 1404218% = Fl. Œ3 Messur Hafnarfjarðarkirkja: — Altaris ganga í kvöld kl. 8:30. Séra Garð- ar Þorsteinsson. fi^Brúdkaup Hinn 12. þ.m. voru gefin saman 1 hjónaband af séra Jóni Þorvarðs •yni ungfrú Sesselja Koibrún Ing- ólfsdóttir og Maríus Aðalbjörn Gröndal, húsgagnasmiður. — Heim r ili þeirra er að Miblubraut 42, Reykjavík. Sl. laugardag voru gefin sam- an í Dómkirkjunni af séra Óskari J. Þorlákssyni ungfrú Kolbrún Pálína Hjartardóttir (Ingþórsson- ar fulltrúa, Ásvallagötu 71) og Jón í. Karlsson framkvstj. (Karls sonar kaupmanns á Norðfirði). ^ Hjónaefni S.l. sunnudag opinberuðu trú'lof un sína ungfrú Steinunn Ingibjörg Bjartmarsdóttir, Njálsgötu 85 og Birgir Axelsson, starfsmaður hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, — Mávahlíð 39. 1BB3 Skipin Eimskipafélag íslands h. f.: — Dettifoss er í Helsingfors. Fjallfoss er í London. Goðiafoss fer frá Rvík í kvöld. Gullfoss er í Kaupmanna- höfn. Lagarfoss fer frá New á morgun. Reykjafoss fer frá Ham- borg í dag. Selfoss fór frá Vest- mannaeyjum í gærkveldi. Trölla- foss fór frá Leith í fyrradag. — Tungufoss fór frá Vestmannaeyj- um í fyrradag. Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell fór frá Reykjavík 19. þ.m. Arnar- fell fór fi'á Reykjavíik 17. þ.m. — Jökulfell er í Amsterdam. Disar- fell fór frá Keflavík 18. þ.m. Litla fell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell er í Þorlákshöfn. Hami'a fell fór frá Reykjavík 17. þ.m. Flugvélar Flugfélag Islands h.f.: — Gull- faxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 09:30 í dag. — Væntanlegur aftur til Reykjavík- ur kl. 23:45 í dag. Fer til Glasgow og Kaupmannaihafnar kl. 09,30 í fyrramálið. — Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akur- -mcíf rr. eyrar, Blönduóss, Egilsstaða, Flat- eyxar, ísafjaxðar, Sauðárkróks, Vestmannaeyja og Þingeyi-ar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Húsavíkur, Isafjarðar og Vestmannaeyja. Loftleiðir h.f.: — Hekla er væntanleg frá Hamborg, Kaup- mannahöfn og Osló kl. 19:30 í dag. Hún heldur áleiðis til New York kl. 21:00. Pan American-flugvél kom til Keflavíkur í morgun frá New York og hólt áleiðis til Norðurland anna. Flugvélin er væhtanleg aift- ur annað kvöld og fer þá til New York. — EQYmisIegt Orð lífsins: — Hið sanna Ijós, sem upplýsir hves'n mann, var að koma í heiminn. Harm var í heim- inum, og heimurinn var orðinn til fyrir hann, og heimwrinn þekkti hann elcki. (Jóh. 1, 9—10). ★ Félag Biskupstungnamanna í Reykjavík heldur bazar í dag. í Góðtemplarahúsinu og verður hús ið opnað kl. 2. — Á bazarnum verð ur margt eigulegra muna með góðu verði. Skátar. — 8. hverfi KjSFR: — Gönguæfing í kvöld við Skátaheim- ilið kl. 8. Félagar eru beðnir að mæta stundvíslega og í búningum. P^Aheit&samskot Strandakirkja: — N N kr. 50,00; E 10,00; S Á 200,00; í S 100,00; N N 10,00; frá gamalli konu 10,00; G K 100,00; E S K 50.00; áheit frá þrem ferðalengj- um 30,00; K J 10,00; Vagn Áka- son 100,00; ónefnd kona á Siglu- firði 25,00; J I F 300,00; Þ K áheit 25,00; Þ J 120,00; L 1 50,00; F F 100,00; F 20,00; G E G 100,00; S G B 200,00; M G 150,00; L M 300,00; G 25,00; áheit frá þakk- látri 100,00; Gömul og ný áíheit frá Ó F 500,00; Þ J 50,00; N N gömul áheit 70,00; A T 20,00; G E 150,00, G T S 100,00; S J Selfossi 100,00; N N 10,00. — — Skammar konan þtn þig aldrei fyrir að horfa á hnefaleikakeppni á hverju kvöldi? ★ Sigga litla vildi ekki láta þvo sér í framan: — Nei, sagði hún ákveðin. Ég vil ekki láta þvo mér í framan! — Þú ættir að skammast þín, telpa mín, sagði amman reiðilega. Þegar ég var lítil stúlka, þvoði ég mér alltaf, þegár nuV var sagt að gera það. ■— Ja-há, sagði Sigga litla sigri hrósandi. Líttu bara í spegil og sjáðu, hvernig þú lítur út í dag? ★ Eiginmaðurinn var að koma heim. Án þess að segja orð tók hann litla flösku með saumavélar olíu og bar á hjarirnar á stofu- hurðinni. — Hvað ert þú að gera? spurði eiginkonan. Eiginmaðurinn opnaði hurðina og lokaði henni aftur, og ekkert ískur heyrðist: — Ég vissi, að það hlaut aö vera þessi hurð, sem ískraði svona óþægilega L — Saumavélarolían kemur víst ekki að neinu gagni, vinur minn. Þetta er bara hann Karl litli, sonur okkar, sem er að æfa sig í fyrsta sinn á fiðluna sína. — Hvers vegna hlupust þér & brott frá fjölskyldu yðar? spurði dómarinn. — Það skal ég fúslega segja yður. Ég reifst við konuna mína og rifrildinu lauk með þvi, að hún greip stól og fleygði honum í höfuðið á mér. Skömmu síðar slöngvaði tengdamóðir mín borð- stofuborðinu í áttina til mín. — Nú, já, og þá hafið þér hlaupist á brott? — Nei, herra dómari. En þegar ég tók eftir því, að stjúpsonur minn horfði mjög einbeittur á borðstofuskápinn, þá stóðst ég ekki lengur mátið og lagði á flótta. ★ MERCEDES BENZ UNIMOG TIL SÖLIJ Með bifreiðinni fyigja ýmis tæki. Upplýsingar í síma 35116. Læknar fjarverandi Árni Bjöi'nsson um óákveðinn tíma. — Staðgengill: Halldór Arin bjarnar. Lækningastofa í Lauga- vegs-Apóteki. Viðtalstími virka daga kl. 1:30—2:30. Sími á lækn- ingastofu 19690. Heimasími 3Ó738. Esra Pétursson fjaxrverandi til 2. maí. Staðgengill: Ólafur Tryggva son. Gunnar Benjamínsson frá 13. apríl til 23. apríl. — Staðgengill: Jónas Sveinsson. Guðmundur Benediktsson um óá kveðinn tíma. — Staðgengill: Tómas Á. Jónasson, Hverfisgötu 50. Viðtalstími kl. 1—2, nema laugardaga, kl. 10—11. Sími 15521 Kjartan R. Guðmundsson til aprílloka. — Staðgengill: Gunnar Guðmundsson, Laugavegi 114. — 16. Hermanninn langaði af- skaplega mikið til að sjá kóngs- dótturina yndislegu aftur. Og svo kom hundurinn aftur um nótt- ina, tók hana og hljóp burt með hana eins og fætur toguðu, en gamla hirðmeyjan fór í gúmmí- stígvél og hljóp líka eins hratt og hún komst á eftir þeim. Þegar hún sá, að þau hurfu inn í stórt hús, hugsaði hún með sér: Nú veit ég, hvar það er. Síðan krot- aði hún stóran kross með krítar- mola á hurðina, hélt svo heim- leiðis og lagðist til svefns. FERDIINÍ4IMD Horgull á skiptimynt Viðtalstími kl. 1—2:30, laugar- daga kl. 10—11. — Simi 17550. Oddur Ólafsson um óákveðinn tíma. — Staðgengill: Árni Guð- mundsson. Þórarinn Guðnason frá 9. apríl til 14. maí. — Staðgengill: Guð- jón Guðnason, Hverfisgötu 50. — Viðtalstími þriðjudaga, miðviku- daga og fimmtudaga kl. 13:30—■ 14:30 — mánudaga og föstudag* ki. 16—17. Sími í lækningastofu: 15730. Heimasími: 16209. Afli Akranesbáta 180 lestir AKRANESI, 18. april. — Heild- arafli báta hér í gær, föstudag, var 180 lestir. Minnstur afli á bát var 2,5 lestir. Aflahæstir voru þessir: Sigrún 25,5 lestir, Keilir 23,5 lestir og Sveinn Guð- mundsson 22,5 lestir. Nítján bát- ar eru á sjó héðan í dag. Hér var Esja í nótt og lestaði um 200 lestir af sementi, sem hún flytur til Siglufjarðar og Dal- víkur. í dag er hér mótorskipið Beldur og lestar 30Ö lestir af sementi og flytur það norður á Blönduós. — Oddur. Þing L. í. V. DAGANA 8.—10. maí n.k., ver8 ur haldið í Reykjavík þing Land samband íslenzkra verzlunar- manna. L.Í.V. var stofnað 2. júní 1957. Voru þá starfandi 9 félög skrif- stofu- og verzlunarfólks í land- inu. Síðan hefir sambandið beitt sér fyrir stofnun 8 félaga þannig að nú eru starfandi alls 17 félög. Þingið hefst föstudaginn 8. maí kl. 8,30 í fundarsal Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur Vonar- stræti 4 og lýkur sunnudagainn 10. maí. Um 70 fulltrúar munu sitja þingið. Fyrir þinginu munu liggja mörg mikilvæg hagsmuna mál verzlunarfólks. (Frétt frá L.Í.V.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.